Morgunblaðið - 31.08.1983, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1983
Eyjafjörður:
Horfur á lélegri
kartöfluuppskeru
„VIÐ SLEPPUM fyrir horn ef grös-
in fá að spretta í hálfan mánuð í
viðbót, þá ættum við að fá einhvern
reyting. En ef grös fara að falla á
næstu dögum líst mér ekki á blik-
una,“ sagði Sveinberg Laxdal, bóndi
í Túnsbergi á Svalbarðsströnd, þeg-
ar Mbl. innti hann eftir uppskeru-
horfum hjá kartöflubændum í Eyja-
firðinum.
„Mér er kunnugt um nokkra
staði þar sem ekki mundi svara
kostnaði að taka upp ef grösin
fengju ekki að dafna svolítið leng-
ur,“ sagði Sveinberg, en bætti því
við að sprettan væri ærið misjöfn,
sums staðar jafnvel þokkaleg. Og
lítið væri farið að falla af grösum
enn sem komið er, þrátt fyrir að
legið hefði við næturfrosti í fyrri-
nótt.
Einn heimildarmaður Mbl. taldi
að góð spretta hjá sumum bænd-
um í Eyjafirði væri fyrst og
fremst því að þakka að þeir not-
uðu minkaskít sem áburð, sem
gæfist betur en venjulegur hús-
dýraáburður. Mbl. bar þessi um-
mæli undir Sveinberg og sagði
hann að ýmsir létu vel af þessum
áburði. „En ástandið núna stafar
þó einkum af vorkuldanum," sagði
Sveinberg. „Jörðin var sein að
hitna og menn settu almennt ekki
niður fyrr en viku eða tíu daga af
júní. Þarna skiptir hver vika máli
og þeir standa betur að vígi sem
settu fyrr niður."
Þjóðleikhúsið:
Framlag ríkis-
sjóðs uppurið
— mánaðarlegar launagreiðslur
allt að 4 milljónum króna
ÞEGAR starfsmönnum Þjóðleik-
hússins hafa verið greidd laun nú
um mánaðamótin lætur nærri að eytt
sé framlagi ríkissjóðs til Þjóðleik-
hússins. Framlagið nemur alls rúm-
um 28 milljónum króna, en auk þess
fara 4,5 milljónir í verðbætur vegna
launahækkana á árinu eða samtals
Æfingaskóli Kennara-
háskóla Islands:
Einnig með 5
ára nemendur
í MBL. í gær var frétt um fjölda
nemenda í grunnskólum í ár, og
kom þar fram í samtali við Þráin
Guðmundsson hjá fræðslustjóra að
tveir skólar tækju inn 5 ára nemend-
ur, ísaksskóli og Álftamýrarskóli.
Það er rétt að það komi fram að
einn skóli í viðbót hefur 5 ára
nemendur, en það er æfingaskóli
Kennaraháskóla íslands, og hefur
skólinn kennt 5 ára börnum í
nokkur ár.
INNLENT
um 33 milljónir króna. Framlagið
miðast við hvert almanaksár.
Auk þessa voru áætlaðar tekjur
Þjóðleikhússins af miðasölu og
annarri þjónustu 13,6 milljónir á
verðlagi fjárlaga. Að sögn Sigurð-
ar Þórðarsonar, deildarstjóra
gjaldadeildar fjármálaráðuneytis-
ins, nema launagreiðslur Þjóð-
leikhússins um 4 milljónum króna
á mánuði og taldi hann, að af
áætluðum tekjum Þjóðleikhússins
væru um 8 milljónir eftir. Það
væri því Ijóst að áætlaðar tekjur
dygðu ekki til launagreiðslna það
sem eftir væri ársins.
Sagði Sigurður, að það væri
ekkert nýtt af nálinni þó starf-
semi Þjóðleikhússins væri ekki í
takt við fjárhagsáætlun og fram-
lög ríkisins. Því mætti segja að
starfsemi Þjóðleikhússins væri
annaðhvort meiri í umfangi en
fjárhagsrammi þess leyfði eða
stjórnvöld hefðu ekki viðurkennt
þær staðreyndir, sem verið hefðu í
rekstri hússins á undanförnum ár-
um. Ríkissjóður hefði tekið að sér
að greiða laun, en framlagið frá
ríkissjóði dygði hins vegar ekki
fyrir launum og því ætti Þjóð-
leikhúsið að skila þeim mun af
sértekjum sínum, en mjög lítið
væri um það. Þetta hefði komið
fyrir áður og þá endað með því að
viðbótarfé hefði fengizt frá ríkis-
sjóði til að brúa bilið. Hvað gerðist
nú væri ekki gott að segja til um,
en ætti starfsemi Þjóðleikhússins
að halda áfram í svipuðu formi og
undanfarin ár væri aðeins tvennt
til, aukið framlag ríkissjóðs eða
hs?kka.ð miðaverA__________________
Magnús þór Sigmundsson, söngvari og lagasmiður, kyrjar lagið um Póstinn Pál raeð nokkrum sýningargesta af
yngri kynslóðinni. Morgunblaðið/RAX
Iðnsýningin:
Húsmóðir að norðan
gestur númer 50.000
„FJÖRUTÍU og níu þúsund og níu
hundruð níutíu og átta, níutíu og
níu .. og, bíðum við, hvað er nú
þetta ... fimmtíu þúsund og
fimm!“ taldi Sigurjón Jóhannsson,
blaðafulltrúi iðnsýningarinnar í
anddyri Hallarinnar síðdegis I
gær. Það voru aðvífandi gestir á
Iðnsýningu '83 sem Sigurjón var
að kasta tölu á, en til stóð að verð-
launa fimmtíu þúsundasta gest
sýningarinnar. Streymdi þá inn sex
manna fjölskylda frá Svalbarðs-
strönd, og var mjótt á mununum
hvaða fjölskyldumeðlimur færi
fremstur í flokki.
Úr því var þó fljótlega skorið;
húsmóðirin á heimilinu, Guðrún
Guðmundsdóttir, kom sjónar-
mun á undan bónda sínum og
börnum, og fékk hún fyrir vikið
fimm ávísanir, samtals að upp-
hæð 10 þúsund krónur, sem hún
fær að taka vörur út á.
Fjölskyldan, Guðrún, eigin-
maðurinn Hrafn Hauksson og
börnin fjögur, komu sérstaklega
til Reykjavíkur að þessu sinni til
að sjá iðnsýninguna. Keyrðu þau
í fyrrinótt frá Akureyri til
Reykjavíkur en hyggja á heim-
ferð aftur á laugardaginn. Sagð-
ist Guðrún hugsa sér gott til
glóðarinnar að taka út vörur
fyrir 10 þúsund krónurnar, án
þess þó að hafa neitt sérstakt í
huga. Sem skiljanlegt er, því
eins og hún sagði sjálf: „Fyrst
verður maður að sjá sýninguna!"
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, útvarpsstjóri á iðnsýningunni, og Bjarni Þór Jónsson, framkvæmdastjóri sýningar-
innar, óska Guðrúnu Guðmundsdóttur til hamingju. Við hlið Guðrúnar stendur eiginmaður hennar, Hrafn
Hauksson, og börn þeirra. Morgunblaðið/RAX
Myndin Paradís
í Austurbæjarbíói
Austurbæjarbíó hefur tek-
ið til sýningar myndina
Paradís (Paradise). Leik-
stjóri og höfundur handrits
er Stuart Gilliard, en aðal-
hlutverk eru leikin af Willie
Aames og Phoebe Cates.
Myndin á að gerast um
miðja_ síðustu _öld_ _og.fjsJLsr _
um heimferð dóttur nýlátins
forstjóra Austur-Indíafé-
lagsins. Ráðist er á úlfalda-
lest hennar á milli Bagdad
og Damaskus og fjallar
myndin um flótta hennar og
hjálparmanna undan ofsókn-
armönnum.
200 ára afmæli Reykjavíkurborgar:
Minnihlutinn með meirihluta
í undirbúningsnefndinni
Á FUNDI borgarráðs Reykjavíkur í
gær var samþykkt tillaga Davíðs
Oddssonar borgarstjóra um að skip-
uð yrði sérstök 7 manna afmælis-
nefnd til þess að undirbúa og annast
afmælishátíðarhöld f Reykjavfk í til-
efni af 200 ára afmæli Reykjavík-
urborgar árið 1986.
Nefndin hefur ekki verið skipuð
en í henni verða 3 fulltrúar frá
meirihlutanum en 4 fulltrúar frá
minnihlutanum í borgarstjórn,
þ.e. 1 fulltrúi frá öllum minni-
hlutaflokkunum og er það heldur
óvanalegt að minnihluti borgar-
stjórnar skipi meirihluta í nefnd,
sem skipuð er af borgarstjórn.
Hugsunin á bak við þessa skipun
er sú, að allir flokkarnir sem sæti
eiga í borgarstjórn eigi fuiltrúa í
nefndinni, en nefndin sé þó ekki
mjög fjölmenn.