Morgunblaðið - 31.08.1983, Síða 29

Morgunblaðið - 31.08.1983, Síða 29
MORGIJNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1983 29 Edda Þórarinsdóttir og Sigurdur Karlsson í hlutverkum sínum í Lokaæfingu. Ljósmynd: Jóhanna Ólafsdóttir. Þjóðleikhúsið: Fyrsta frumsýn- ingin í Færeyjum FYRSTA frumsýning Þjóðleikhúss- ins á þessu hausti fer fram í nýja Norðurlandahúsinu í Þórshöfn í Færeyjum í dag, 31. ágúst. Verður frumsýnt nýtt leikrit Svövu Jakobs- dóttur, Lokaæfing, og er fyrirhugað að sýna það á Litla sviði Þjóðleik- hússins í vetur. Tvær til þrjár sýningar verða á Lokaæfingu í Þórshöfn í boði Norðurlandahússins, en þessi leikför er farin Þjóðleikhúsinu al- gerlega að kostnaðarlausu, þar sem Norðurlandahúsið fékk sér- stakan styrk frá færeysku lands- stjórninni til þessa verkefnis. Með hlutverkin í sýningunni fara Edda Þórarinsdóttir, Sigurð- ur Karlsson og Sigrún Edda Björnsdóttir, en leikstjóri er Bríet Héðinsdóttir. Leikmynd og bun- inga gerði Birgir Engilberts, en Ásmundur Karlsson sér um lýs- inguna. Áætlað er að sýningar á Loka- æfingu hefjist á Litla sviði Þjóð- leikhússins í byrjun október. Frá aðalfundi Kaupmannafélags Austfjarða. Ljósm. Mbl. ól.Guðm. Egilsstaðir: Verslunin er stærsti inn- heimtuaðili ríkissjóðs — segir í ályktun Kaupmannafélags Austurlands Kgilsstöðum, 28. ágúst í GÆR var haldinn að Eiðum aðal- fundur Kaupmannafélags Austur- lands. Gestir fundarins voru þeir Sigurður Haraldsson, formaður Kaupmannasamtaka íslands, Magn- ús Finnsson, framkvæmdastjóri samtakanna og Gunnar Snorrason, fulltrúi samtakanna í Lífeyrissjóði verslunarmanna. Aðalfundur Kaupmannafélags Austurlands samþykkti að hefjast nú þegar handa um byggingu sumarhúss fyrir félagsmenn sína í landi Staffells í Fellahreppi. Gert er ráð fyrir því að húsið verði tek- ið í notkun þegar á næsta ári. í ályktun fundarins segir m.a. að verslunin sé nú stærsti inn- heimtuaðili ríkissjóðs og er skorað á stjórnvöld að greiða ákveðna þóknun fyrir þá innheimtu. Þá skorar fundurinn jafnframt á stjórnvöld að jafna síma-, hitun- ar- og rafmagnskostnað — svo að allir megi sitja við sama borð í þeim efnum. Þá mótmælti fundur- inn „óeðlilegri skattlagningu kæli- búnaðar til verslunar“ — svo og „síaukinni gjaldtöku bankastofn- ana á sama tíma og tæknivæðing eykst“. Þá ályktar aðalfundur Kaupmannafélags Austurlands ennfremur um ýmsa skattstofna, s.s. aðstöðugjald, launaskatt og skatt á skrifstofu- og verslunar- húsnæði. Stjórn Kaupmannafélags Aust- urlands var öll endurkjörin á aðal- fundinum í gær — en hana skipa: Norræn eyjaráðstefna haldin í Vestmannaeyjum Á VEGUM Menningar- og fræðslu- sambands alþýóu á Norðurlöndum verður dagana 6.-9. september nk. haldin ráóstefna í Vestmannaeyjum, þar sem saman koma íbúar og félags- mcnn verkalýóssamtakanna á nokkr- um norrænum eyjum og ræða sameig- inleg hagsmunamál og áhugamál. Eyj- arnar eru auk Vestmannaeyja: Álands- eyjar, Borgundarhólmur, Gotland og Lofoten. Á ráðstefnunni verður skipst á skoðunum um atvinnumál eyjanna, félags- og menningarmál og með hvaða hætti verkalýðssamtökin á hverjum stað geta best stutt að öfl- ugra og fjölbreyttara atvinnulifi á eyjunum, en þessir staðir eiga það sameiginlegt, að atvinnulíf er frem- ur einhæft. Einnig verður fjallað um félags- og menningarmál eyj- anna og hlut verkalýðshreyfingar- innar í því efni. Þá verður fjallað um norræna samvinnu á vegum verkalýðshreyfingarinnar, hverjum hún eigi helst að þjóna og með hvaða hætti. Hér á landi er ráðstefnan undir- búin af Menningar- og fræðslusam- bandi alþýðu og verkalýðsfélögun- um í Vestmannaeyjum, en þetta verkefni hefur fengið styrk frá Norræna menningarmálasjóðnum. Norrænu þátttakendurnir heim- sækja stofnanir og fyrirtæki í Vest- mannaeyjum og ræða við for- svarsmenn þeirra. Þess skal einnig getið að í fylgd með erlendu þáttakendunum, sem alls eru tíu, er fréttamaður frá danska ríkisútvarpinu, sem mun fylgjast með ráðstefnunni og afla efnis í Vestmannaeyjum. Gunnar Hjaltason, Reyðarfirði, formaður; Gunnar Vignisson, Fellabæ; Björn Sveinsson, Fell- abæ; Elís Guðnason, Eskifirði og Brynjar Júlíusson, Neskaupstað. Að sögn formanns, Gunnars Hjaltasonar, var félagið stofnað 1978 og eru félagar nú 34 talsins. Sjö nýir félagar gengu í félagið á aðalfundinum. Á aðalfundinum færði Vilberg- ur Sveinbjörnsson, kaupmaður á Seyðisfirði, Kaupmannasamtök- um fslands veggplatta að gjöf — sem formaður samtakanna, Sig- urður Haraldsson, veitti viðtöku. — Ólafur. I KVÖLD KL: 18.30: LAUGARDALSVÖLLUR KR-INGAR STYÐJUM STRAKANA í BARÁTTUNNI UM EVRÓPUSÆTIÐ. ÞETTA ER SIÐASTI HEIMALEIKUR KR ÞAÐ VERÐUR KR-STUD í KVÖLD ÁFRAM KR VARTA ofurkraftur ótrúleg ending Lim og kitli tra Þvottahúsid AuObrakku 41, Köp. Simi 447*9 HÖTEL ►jOnust* SKÚLAGOTU 30 123 884 23388 P TÖLVUPAPPÍR IRi FORMPRENl Hvarfkgötu 71, tknar 26800 - IXiLud Austurstræti 17, __ sími 26611 Austurstræti 22, Innstræti, simi 11633. XEROX' LEIÐANDI MERKI í LJÓSRITUN NÓN HF. Hverfisgötu 105 S. 26235-26234 RANK XEROX umboöiö

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.