Morgunblaðið - 31.08.1983, Síða 33

Morgunblaðið - 31.08.1983, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1983 33 Oflug íþróttahreyfing er þjóðarnauðsyn — eftir Örn Eiðsson Mikil og stórbrotin skrif hafa átt sér stað um fjáröflunarleiðir og fjárskort íþróttahreyfingarinn- ar undanfarnar vikur á síðum dagblaðanna. Það er ekki oft, sem íþróttirnar fá slíka umfjöllun í dagblöðunum. Þar er nær ein- göngu fjallað um sentimetra, sek- úndubrot, mörk og stig, þegar íþróttir eiga í hlut. Hið mikla og fórnfúsa sjálfboðastarf, sem unnið er innan íþróttahreyfingarinnar af þúsundum ísiendinga fær því miður ákaflega takmarkaða um- ræðu, en án þess starfs er hætt við að þessi þýðingarmikla fjölda- hreyfing yrði vart svipur hjá sjón. Erfiðasta verkefni íþróttahreyf- ingarinnar á hverjum tíma er án nokkurs vafa fjáröflun og fjár- mögnun starfsins. Framlag hins opinbera nemur aðeins 8% —9% af lágmarks fjárþörf hreyfingar- innar, það gefur því auga leið að oft reynist erfitt að láta enda ná saman. Velvilji fyrirtækja og ein- staklinga í garð íþróttanna hefur gert það að verkum, að hægt er að halda uppi þolanlegu starfi, en því miður verður að segja eins og er, að fjárhagur íþrótta- og ung- mennafélaga, íþróttaráða, héraðs- sambanda og sérsambanda stend- ur svo tæpt í dag, að fátt annað virðist blasa við en samdráttur og minnkandi starfsemi. Það er slæmt, því að margir eru þeirrar skoðunar, og það með réttu, að íþróttaiðkun, hvort sem um er að ræða þá sem æfa eingöngu sér til heilsubótar eða þá sem einnig æfa með það fyrir augum, að ná ár- angri til keppni á alþjóðamótum, auki manngildi og geri einstakl- inginn hæfari til að takast á við lífsstarfið. Svo ekki sé talað um þá miklu kynningu á landi og þjóð, ef vel tekst til á kappmótum við er- lent íþróttafólk. Mér er til efs að nokkurt afl hafi vakið eins mikla jákvæða athygli á íslenskri þjóð og íþróttirnar. En hvernig á smáþjóðin ísland að standa að þessum málum? Eig- um við að taka þátt í kappleikjum þjóðanna á íþróttasviðinu? Eða eigum við eingöngu að þreyta okkar meistaramót í hinum ýmsu íþróttagreinum? Ég er þeirrar skoðunar að rétt sé að halda uppi eins öflugum samskiptum við aðr- ar þjóðir á íþróttasviðinu og mögulegt er og innan heilbrigðrar skynsemi, þó að það sé eins og margt annað teygjanlegt hugtak. Þær kröfur, sem gerðar eru til afreksfólks í íþróttum í dag eru gífurlegar. íþróttafólkið verður að æfa klukkustundum saman dag hvern til þess að bæta árangur sinn. Það eru allir hættir að tala um áhugamennsku, þegar þeir bestu í heiminum eiga í hlut. Þó að þýðingarmest sé að fá fjöldann með í íþróttirnar megum við ekki gleyma okkar ágæta afreksfólki sem vinnur frábært landkynn- ingarstarf og varpar ljóma á ís- land og íslensku þjóðina. Þetta fólk verður að fá tækifæri tii að iðka sína íþrótt eins og gerist hjá öðrum þjóðum. Við skulum nú aðeins hugleiða hvernig að þessum málum er stað- ið erlendis. I mörgum löndum má segja, að íþróttirnar séu þjóðnýtt- ar, t.d. í Austur-Evrópu og víðar. Stjórnvöld veita miklu fé til íþróttastarfseminnar, en margir eru þeirrar skoðunar, að íþrótta- hreyfingin í þessum löndum sé ekki frjáls í þeim skilningi, sem við leggjum í það orð. í vestrænum löndum er íþróttastarfsemin styrkt af almannafé, víðast ríf- lega, þannig að hægt er að halda uppi myndarlegu starfi. Hér hjá okkur er framlag hins opinbera til íþróttahreyfingarinnar lágt, þegar borið er saman við frændþjóðir okkar á Norðurlöndum og meira að segja, þó að miðað sé við fólks- fjölda. Til þess að afla aukins fjár eru gerðir samningar við fyrir- Rjóma- kjuklinga súpa Örn Eiðsson tæki, varningur og þjónusta eru auglýst eftir ýmsum leiðum gegn ríflegum greiðslum. Sumir eru þessu andvígir, en aðrir telja þetta sjálfsagt á tímum sölumennsku og viðskipta. Um réttmæti um- ræddra fjáröflunaraðferða skal ég ekki fella neinn dóm, en að sjálf- sögðu er nauðsynlegt fyrir íþróttahreyfinguna að fara að öllu með gát í þessum efnum. Rétt er þó að taka fram, að aldrei hefur borið á neinum þrýstingi um óeðli- lega fyrirgreiðslu af hálfu þeirra fyrirtækja, sem íslensk íþrótta- hreyfing hefur samið við. Þar hef- ur velvilji við íþróttirnar setið í fyrirrúmi. Um orðalag samninga má að sjálfsögðu alltaf deila, en slíkt hlýtur að standa til bóta í framtíðinni. Að lokum skal á ný vitnað í hin miklu skrif dagblaðanna um fjár- öflunaraðferðir íþróttaforystunn- ar í von um að þau verði til að opna augu manna fyrir því, að fátt er nauðsynlegra fyrir íslenska æsku en heiibrigð og sterk íþrótta- hreyfing. Það skal þó undirstrik- að, að ekki er nóg að skrifa falleg- ar greinar og flytja fagrar ræður á tyllidögum. Raunverulegur stuðn- ingur við íþróttirnar er það sem skiptir mestu máli. Örn Eiðsson er formsður Frjáls- íþróttasambands íslands. SSg Cream^^Créme of Chicken de Poulet Soupmtx Métange á Soupe fev/ » »■ I pm Koog */4 H Einnig: Sveppasúpa, Lauk- súpa, Spergilsúpa, Nuölu-kjúklingasúpa, Tómatasúpa, Græn- metissúpa. QLUmTET /4ccord PRGLUDG Til afgreiðslu meÖ stuttum fyrirvara Tökum notaöa Hondabíla upp í þann nýja HQ3VDA A ISLANDI — VATNAGÖROUM 24 — SIMAR 38772 — 39460.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.