Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1983 Eins og mér sýnist Monsjúr Bertrand Gísli J. Ástþórsson „Hvað maður sá af andlitinu á manninum var hann alltaf sótsvartur af bræði útaf meintum ávirðingum." Þegar menn rjúka burt í fússi er alls ekkl óvenju- legt að þeir sjái seinna eft- ir því, og það er spá mín að hann Jean Bertrand, rallarinn sællar minningar, eigi eftir aö berja uppá hjá okkur aftur meö dálítið vandræðalegu brosi. Spurningin er hvort kveðjuskot hans hér í Morgunblaðinu nú fyrir skemmstu hafi verið þess eölis aö okkur beri bein- línis skylda til aö taka hon- um oþnum örmum. Bertrand okkar kann aö hafa sínar góðu hliöar, en hann var sannarlega ekk- ert að flíka þeim hér útá íslandi. Ef ég man rétt hafði hann einhverntíma á prjónunum aðför að stjórnarráöinu: þaö er aö segja aö hann ætlaði aö vinda sér inná bæinn þann og segja þeim háu herrum sem þar eru í forsvari nákvæmlega hverskonar mann þeir heföu að geyma. Hann var dæmalaust hneykslaöur á því og fór ekki leynt með hvílíkur reginmunur væri á þeim viötökum sem hann ætti vísar í svörtustu Afríku og svo þeim sem honum voru búnar hér uppá Fróni. Þeir voru nú ekki aö þvælast fyrir honum þeir svörtu þegar honum hentaði að sækja þá heim og spæna upp slóðirnar þeirra. „Komdu fagnandi," var viökvæðiö. „Hvar þóknast monsjúr Bertrand að spana í ár?“ Einhver munur en bölv- aöir íslendingarnir sem hann lýsti svo í sjónvarps- viötali aö skiptust í tvo parta einsog örgustu geö- klofar. í öörum helmingn- um voru góöir og gegnir menn og í hinum eintómir þverhausar; og geta menn svo dundað viö þaö á síö- kvöldum aö reikna út hvor þjóöarparturinn þaö hafi veriö sem fannst alveg sjálfsagt aö leyfa monsj- úrnum að ralla hér af hjartans lyst þegar honum sýndist. Kynni það ekki í og meö einmitt að hafa veriö stór- yröaglamriö og svo stund- um aö auki hrokinn sem fólst í þessum herraþjóö- arstælum sem varö til þess aö jafnvel meinlaus- ustu menn (og sem hafa hingað til ekkert veriö að abbast uppá loftaksturs- kappa) fóru aö spyrja sjálfa sig: Hvaö þykist monsjúrinn vera? Hvaö maöur sá af andlitinu á manninum var hann alltaf sótsvartur af bræöi útaf meintum áviröingum. Það virtist aldrei hvarfla aö honum aö hann væri gest- urinn en ekki húsráöand- inn. Hann haföi sjaldnast svo lítiö aö þurrka af sér. Raunar var það dálítiö dularfullt þetta meö boösbréfiö. Þegar Ber- trand og kappar hans lögöu af staö hingað til Is- lands, vissum viö ekki bet- ur þessir innfæddu en aö okkar vísustu menn með Náttúruverndarráð í broddi fylkingar sætu enn- þá meö sveittan skallann og þinguöu um þaö hvort við ættum aö veita Ber- trand og Co. leyfi til loft- akstursins. Hver gaukaöi því aö þeim franska aö honum væri alveg óhætt aö leggja upp: Sakleys- ingjar hér heima stæöu aö vísu í þeirri trú aö máliö væri ennþá á dagskrá, en auðvitaö fengi hann akst- ursleyfið, því mætti hann treysta. Hver haföi valdið og vitneskjuna til þess aö koma þeim þoöum til kappans að allt væri klappað og klárt? Aumingja Náttúru- verndarráð. Þaö á ekki af því aö ganga. Mikiö má vera langlundargeö mann- anna sem völdust til setu í þessu ráöi aö vera ekki fyrir löngu gengnir af skip- inu. Viö íslendingar erum flestum þjóöum haröari viö að skipa nefndir og ráö og allskonar ráðgjafa- samkundur sem valds- mennirnir hundsa síöan eftir hentugleikum. Meira að segja neyðaróp þeirra ráösmanna um meintan kappakstur um Jökuldal- inn varö þara aö einskon- ar dauöahryglu. Stjórnar- ráösmennirnir spuröu hina ákærðu hvort þeir væru sekir, og þegar þeir svör- uöu einhverra hluta vegna nei, þá var það mál úr sögunni. Eftir á aö hyggja hlýtur Bertrand okkar stundum aö hafa fundist hann vera kominn í sæl- una suðurí Timbuktu. Hann fjargviðraöist ein ósköp útaf því í fyrrnefndu viötali hér í blaöinu hvaö rukkararnir heföu verið aögangsharöir. Hann haföi verið krafinn um beinharða peninga fyrir allskyns vöru og þjónustu sem hann virtist álíta aö hann heföi átt aö fá hér á silfurfati. Hann haföi verið látinn borga þaö sem hann kallaði tvöfalda tryggingu — í einfeldni sinni aö vísu. Þegar hann tók bílaleigubíla, þá mátti hann veskú borga leigu fyrir þá. Og hann haföi ekki einu sinni fengið ókeypis bensín. Ja, þvilíkt. Hann lýsti yfir í kveðju- ræöu sinni (nema „þus“ sé rétta oröið) aö hann ætl- aöi sko ekki aldeilis aö bera okkur vel söguna þegar hann kæmist aftur til siömenningarinnar. Ónei. Hann ætlaöi aö leggja spilin á boröiö. Hálf þjóöin var sem fyrr er sagt aldeilis forkastanleg, nema viö máttum eiga það, greyin, aö viö höföum samt alveg dýrlega hroöa- lega vegi ásamt meö fal- legu landslagi. Þaö var einmitt í gervi hins viökvæma róman- tíska náttúruskoðara sem monsjúr Bertrand birtist okkur þegar aumingja veslings sálirnar í Náttúru- verndarráöi báru það uppá hann aö hann heföi efnt til einskonar laumu- ralls þarna í Jökuldalnum. Bertrand hélt nú síður. Rallararnir hans höfðu bara veriö að dásama landslagið innanúr ryk- mekkinum þegar þeir geistust í halarófu upp dalinn, þeir öölingar. Þetta heitir aö hafa hjartaö á réttum staö, efa ég ekki. Þeir voru þá bara aö aka sér til afþreyingar í miöri aksturskeppni! Og nú er ég aö vona aö aðrir íþróttagarpar fari aö dæmi þeirra. Knattspyrnumenn halda þá áfram að þeytast al- sælir um völlinn í hálfleik í staö þess aö skjögrast til búningsklefa sinna aö hvíla sín lúnu bein. Boxar- inn sippar á milli lota af einskærri lífsgleöi. Og kúluvarparinn drepur tím- ann með því aö leika sér aö hundraö kílóa lóöum þar til rööin kemur aftur aö honum aö reyna sig viö heimsmetiö. Njóta flugmorðingjar forréttinda á íslandi? — eftir Magnús Oskarsson Á undanförnum árum hafa samskipti íslendinga og Sov- étmanna farið vaxandi. Að sumu leyti er þar um að ræða ánægjulega þróun. Aukin kynni geta leitt til gagnkvæms skilnings á viðhorfum annarra þjóða og dregið úr spennu á milli ríkja. En við Islendingar verðum að gera kröfu til þess að slík samskipti séu á jafnréttis- grundvelli. Því hljóta m.a. eftirfarandi spurningar að vakna: 1) Sovézk rannsóknaskip gera sig stöðugt heimakomnari í Reykjavíkurhöfn og virðist tilgangurinn m.a. vera sá, að hvíla áhafnirnar og gefa þeim tækifæri til innkaupa í landi, þar sem stöðug vöruþurrð hrjáir ekki al- menning. Um sjálfar rann- sóknirnar er minna vitað. En njóta íslenzk rann- sóknaskip sömu réttinda? Gætu þau leitað hafnar í Murmansk eða Petsamo í sama tilgangi, nánast hve- nær sem þeim hentaði? 2) Sovézkir rannsóknaleið- angrar hafa farið um há- lendi Islands og rannsakað þar allt, sem hugur þeirra stendur til. Steingrímur Hermannsson lét meira að §egja eitt sinn selja þeim loftljósmyndir af öllu land- inu! Njóta íslendingar sömu réttinda í Sovétríkj- unum? Gætum við t.d. sent rannsóknaleiðangur til Kamtsjatka-skaga og feng- ið keyptar nýjar loftljós- myndir af öllum skagan- um? 3) Sovézka fréttastofan APN hefur útíbú í Reykjavík með sovézkum og íslenzk- um starfsmönnum og gefur hér út fréttablað til dreif- ingar meðal íslendinga. Geta íslendingar fengið sömu réttindi í Sovétríkj- unum? 4) Sovézkir sendiráðsmenn, sem hér eru ótrúlega marg- ir, hafa algert ferðafrelsi á íslandi og ferðast vítt og breitt um landið jafnt í merktum sem ómerktum bilum. Hafa hinir örfáu ís- lenzku sendiráðsmenn í Moskvu sömu réttindi í Sovétríkjunum? 5) Sovézka sendiráðið í Reykjavík hefur stöðugt sótt á um kaup og leigu fasteigna í Reykjavík. Hef- ur íslenzka sendiráðið í Moskvu sambærilegt frelsi til fasteignaumsvifa í Moskvu? 6) Sovézkar flugvélar fá öðru hverju að lenda hér á landi á leið sinni til Vesturheims, sérstaklega á flugleiðinni til Kúbu. Myndu íslendingar fá sams konar réttindi til millilendinga í Sovétríkj- unum, t.d. ef íslenzkar flugvélar ættu leið til S-Kóreu? Fleiri spurninga mætti spyrja en um þessar mundir brennur sú spurning heitast á vörum íslendinga, hvort sið- lausir morðingjar saklausra flugfarþega njóta hér forrétt- inda, þ.á m. varðandi flug, um- fram það sem þekkist í nokkru öðru vestrænu landi? Er ekki ærið tilefni, einmitt nú, til að endurskoða þessi samskiptamál frá grunni? Magnús Óskarsson er borgarlög- madur í Reykjavík. Sjálfstæðishús rís á Höfn Höfn, 4. september SJÁLFSTÆÐISMENN hér á Höfn vinna að því þessa dagana af miklu kappi að reisa sjálfstæðishús á staðnum. Húsið verður tveggja hæða og alls 150 fermetrar. Margir taka þátt í starfínu og óhætt er að segja að húsið þjóti upp. — Steinar Miklaholtshreppur: 255 millimetra úrkoma í ágúst Borg, Miklahoitshreppi, 8. september. UNDANFARNA daga hefur ástand með heyskap hér batnað verulega. Tíðarfar til heyskapar hefur gjörbreyst allt frá höfuðdegi og það sem af er september. Hey hafa náðst þótt þau séu úr sér sprottin og fóðurgildi verulega rýrnað. Tún eru þó ennþá blaut en sum þeirra verða tæplega slegin nema góður þurrkur verði um lengri tíma. Heyfengur verður verulega minni að vöxtum vegna kalskemmda á vor- inu og þar við bætist að heyin eru trénuð. Er leitt til þess að vita, að aldrei hefur jafn mörgum krónum verið fórnað til áburðarkaupa og í vor. Úr- koma í ágústmánuði á Hjarðarfelli var 255 millimetrar, og aðeins einn sólarhringur úrkomulaus. f Haukatungu var úrkoman 206 millimetrar og þrír úrkomulausir dagar. Úrkomumælingum á Arnarstapa hefur verið hætt. Ber, kartöflur og grænfóður hefur engum þroska náð í sumar. Síðast- liðna þriðjudagsnótt var hér frost og skúmað var á pollum um morguninn. I dag er austan gola og góður þurrkur og vonandi er að styttist til töðugjaldanna eftir þetta blauta sumar. _ páii

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.