Morgunblaðið - 10.09.1983, Side 19

Morgunblaðið - 10.09.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1983 19 þessar viðræður muni brátt skila árangri, stuðla að betri og örugg- ari heimi og verði meginþáttur í raunhæfri, almennri og alhliða af- vopnun. Islenska þjóðin, sem býr við lýð- ræði og hrósar sér af elsta þjóð- þingi heims álítur að mannrétt- indi og frelsi séu forsendur eðli- legra samskipta og samvinnu ríkja á milli. Við óskum spönsku þjóðinni sérstaklega til hamingju með endurreisn lýðræðis og mann- réttinda í landi sínu. Gestgjafar okkar hafa gefið verðugt fordæmi fjölda þjóða sem njóta ekki enn þessara grundvallarréttinda. Á sviði mannúðarmála er að finna í Madrid-skjalinu ýmsar nýjar skuldbindingar sem ekki var að finna í lokasamþykktinni frá Helskinki. Meðal þessara skuld- bindinga eru ákvæði um réttindi verkalýðsfélga og launþega. Koma okkur þá í hug þjáningar pólsku þjóðarinnar. Einnig má nefna skuldbindingu ríkja til að tryggja frjálsan aðgang að erlendum sendiráðum og ræðisskrifstofum. Þá er í fyrsta skipti á vettvangi Öryggisráðstefnunnar gert sam- komulag um að verulegt átak verði gert í baráttunni gegn hryðjuverkum og þau fordæmd. Ég vil ekki láta hjá líða, þar sem ísland er mjög háð utanríkisvið- skiptum um alla afkomu sína, að benda á að frjáls verslun er einnig mikilvæg til styrktar friði og ör- yggi í Evróðu og annars staðar í heiminum, eins og framfarir á öðrum sviðum samskipta þjóða. { Madrid-skjalinu leggja aðild- arríki áherslu á að hinar mann- legu hliðar heimsfjölskyldna og einstaklinga fái að njóta sín og stuðli að eðlilegum og traustum samskiptum þátttökuríkjanna í þágu raunverulegrar slökunar- stefnu í alþjóðamálum. Raunverulegur árangur hefur náðst hér í Madrid. Tekist hefur að tryggja jafn- vægi milli hinna ýmsu þátta loka- samþykktarinnar með samstöðu Vesturlanda. Einróma samkomu- lag okkar mun verða grundvöllur frekari viðleitni til að hrinda í framkvæmd skuldbindingum, bæði lokasamþykktar Helsinki- ráðstefnunnar og Madrid-skjals- ins. Við munum skýra almenningi í löndum okkar frá skyldum þeim sem við höfum tekist á hendur með þessu skjali og gera þjóðum okkar og annarra landa ljósa ábyrgð þeirra, sem standa ekki við skuldbindingar sínar. Við undirritun lokasamþykktar- innar í Helsinki lét ég svo um mælt að við værum ekki að reisa nein „Potemkin-tjöld". Við ættum hvorki að blekkja okkur sjálf né aðra. Þessi sannindi eru enn í gildi þegar við samþykkjum Madrid- skjalið. Við skulum vona að efndir Madrid-skjalsins séu í samræmi við ákvæði þess og að skilningur og samvinna ráði ferðinni þannig að þátttökuríkin geti lifað saman, unnið saman og stuðlað að raun- hæfari samskiptum byggðum á friði, öryggi og réttlæti. Þessum göfugu fyrirheitum megum við ekki bregðast. Öll þátttökuríkin þrjátiu og fimm sem hér eiga fulltrúa verða að virða heit sín og standa i einu og öllu við þær skuldbindingar sem þau hafa nú tekist á hendur. ur, og stöðugt komi á markað nýj- ar gerðir bíla. Það sé hins vegar ánægjulegt að siðasta árið í lífi sinu, hafi gamla gerðin af Golf enn verið á toppnum hvað sölu snerti, þrátt fyrir nýjar gerðir og harðari samkeppni, en venjan sé sú að það dragi úr sölu bifreiða eftir þvi sem lengra líði frá þvi þær koma fram. Staða Volkswag- en verksmiðjanna sé sterk, með Evrópu sem sinn sterkasta mark- að, einkum innanlandsmarkað í Þýskalandi, og síðan Frakkland og England og Italíu. Á síðastliðnu ári hafi Vokswag- en verksmiðjurnar til dæmis sent frá sér nýja gerð af Audi 100, sem hafi hlotið mjög góðar viðtökur, enda sé um frábæran bíl að ræða. Þarna sé Volkswagen að færa út kvíarnar og renna fleiri og styrk- ari stoðum undir reksturinn, því þeir hafi ekki verið mjög sterkir á þessum markaði hingað til. Golf peninganna virði „Auðvitað erum við með dýrari bíla en til dæmis Japanir," sagði Krems aðspurður um verðið á þýskum bílum. „Þýska markið hefur verið mjög sterkt gagnvart öðrum gjaldmiðlum, sem hefur gert útflutninginn erfiðari en ella. Þá erum við með ólíkt þjóðfélags- kerfi frá því sem Japanir hafa til dæmis og það er fleira sem gerir það að verkum að þeir geta fram- leitt ódýrari bíla en við. Við höld- um okkar stefnu fyrir því. Við bjóðum upp á þýsk gæði og tækni á hæsta stigi og óttumst ekki sam- keppnina hvað það snertir. Til að mynda bjóðum við nú upp á 6 ára ábyrgð gegn ryðskemmdum á sér- hverjum nýjum bíl. Bílarnir eru ryðvarðir hjá verksmiðjunum og sú ryðvörn dugir í 6 ár. Þetta er engin áhætta fyrir okkur, en fyrir viðskiptavinina skiptir það miklu máli. Þó fólk átti sig ef til vill ekki á því, þá er Golfinn framleiddur á mjög samkeppnisfæru verði við aðra bíla, þegar mið er tekið af því sem fólk fær fyrir peningana, þarna er um mikið meiri bíl að ræða, en fólk áttar sig almennt á. Endanlegt verð á íslandi hefur ekki verið ákveðið ennþá, en við höfum einmitt staðið í viðræðum um það og ég er viss um að við komumst að góðu samkomulagi," sagði Krems. „Ég myndi bjóða honum í prufu- keyrslu og eftir það ætti það ekki að vera neitt vandamál fyrir góð- an sölumann að sannfæra kaup- andann, ekki síst vegna hins háa endursöluverðs, sem er á Golf alls staðar í heiminum," sagði Krems, er hann var spurður um hvernig hann myndi fara að þvi, að sann- færa íslenskan kaupanda um að kaupa þýskan bíl í stað ódýrari bíls annarrar tegundar. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR Indira Gandhi, Indland. 1 Zia Ul Haag, Pakistan. Singye Wangchuck, forsætisráð- Abdul Gayoom, þjóðhöfðingi herra Bhutan. Maldives-eyja. Birenda konungur í Nepal. Athyglisvert framtak sjö Suð- austur-Asíu ríkja gæti boðaö betri daga í þeim heimshluta Sambúðarerfiðleikar og almenn togstreita hefur lengi sett svip sinn á skipti ýmissa landa Suðaustur-Asíu. Nú virðist sem áhugi sé að vakna fyrir því að þessi ríki reyni að greiða úr ágreiningsmálum, enda óhætt að fullyrða að valdastreita og skoðanamunur, trúarbragðagreinir og fleira hefur auðvitað staðið þessum löndum fyrir þrifum á leið til betri lífskjara. jö ríki ákváðu fyrir nokkru Sað efna til fundar í Nýju Delhi og stóð fundurinn í tvo daga. Ákveðið var að reyna að setja upp eins konar vinnuáætl- un sem reynt yrði að fylgja og það eitt út af fyrir sig, að full- trúar þessara landa skyldu koma sér saman um að hittast, er tölu- vert merkilegt. Hér var um að ræða utanrík- isráðherra Indlands, Pakistan, Bangladesh, Nepal, Sri Lanka, Bhutan og Maldives-eyja, sem eru í suðvestur af Indlandi. I yf- irlýsingu eftir fundinn kunn- gerðu fulltrúarnir að þeir hefðu á prjónunum áform um að efla samvinnu á ýmsum sviðum og nefndu sérstaklega til efna- hagsmál, félagsmál, menning- armál, vísindi og tækniþekkingu. Þó svo að fulltrúarnir hafi hitzt og talað saman er sjálfsagt enn iangt í land með að þessi ríki geti farið að vinna saman. Ekki skal því gleymt að Indverjar og Pakistanir hafa háð þrjár meiri- háttar styrjaldir og enn er sam- búð ríkjanna mjög stirð. Sambúð Indverja og Bangladesha er ekki heldur upp á það bezta og versn- aði stórlega eftir morðið á fyrsta forseta landsins, Mujibur Rahm- an. Fámennari ríkin á þessu svæði óttast að í samskiptum eða sam- vinnu muni Indverjar með sínar 800 milljónir íbúa verða allsráð- andi, en embættismenn í Nýju Delhi hafa þó lagt sig fram um að tala um jafnan rétt og skyld- ur til að forðast ásakanir um yf- irgangsstefnu Indverja. En fleiri ljón kynnu að vera á veginum. Blandast þar inn I tengsl ýmissa þessara ríkja við stórveldin. Indverjar eða ind- verska stjórnin þó öllu heldur hefur mikil sambönd við Sovét- ríkin, aftur á móti halla her- stjórnir Pakistan og Bangladesh sér heldur að Bandaríkjunum. Embættismenn í Pakistan við- urkenna í einkasamræðum að mikið þurfi að ræða og ýmsar krókaleiðir þurfi að fara í slíkum viðræðum, áður en þessi ríki geti náð svo langt að móta einhverja heildarstefnu í þeim málefnum, sem að ofan var vikið að. Utanríkisráðherra Pakistan, Yakub Khan, fór nýlega í heim- sókn til Bangladesh, en ekki eru nema tólf ár síðan Bangladeshar háðu blóðuga styrjöld við pakist- anska herinn og upp af þeirri styrjöld spratt síðan ríkið Bangladesh. Þessi heimsókn þykir vísbending um að fulltrúar ríkjanna hafi jákvæða afstöðu til nánari samskipta. Bæði í Pakistan og Bangladesh eru herforingjastjórnir við völd, eins og áður er sagt og bæði ríkin geta að sumu leyti sameinast í ótta við yfirgangssemi og alræði Indverja í þessum heimshluta. Það er í rauninni óttinn við Ind- land sem gengur eins og rauður þráður gegnum þetta allt. Ind- land er risinn í heimshlutanum — bæði hvað varðar stærð og mannfjölda. Fyrri tilraunir til að leiða þessi ríki saman — fyrir milligöngu þeirra beggja Sov- étmanna og Bandaríkjanna hafa mistekizt og ástæður fyrir því án efa þessi kvíði við að Indverjar munu hreinlega gleypa smáríkin og þau verða áhrifalaus með öllu. En sem styrjöldin og ólgan í Miðausturlöndum heldur áfram, Rússar halda áfram að berja á afgönskum uppreisnarmönnum með æði takmörkuðum árangri, virðist svo sem ríki Suðaustur- Asíu þurfi að ná betur saman til að koma í veg fyrir að þar skap- ist ástand ámóta og í ýmsum öðrum heimshlutum, auk Mið- austurlanda má auðvitað nefna Mið-Ameríku og fleiri átaka- Jayawardene, hæstráðandi Sri Lanka. svæði. Þjóðir þessara landa gera sér grein fyrir því að lítið má út af bera í samskiptum þeirra, hagsmunir stangast á, ættbálka- deilur eru djúpstæðar, trúar- bragðadeilur geta komið öllu í bál og brand, svo að nefnt sé að- eins fátt eitt. Engu að síður eða kannski einmitt þessvegna gera menn sér grein fyrir því hversu mikilvægt er að styrkja frið og eindrægni í Suðaustur-Asíu, enda hafa ýmsar þjóðir þar fengið sig fullsadda af styrjöld- um og hörmungum þeirra. Fyrsta verkefni SARCS verð- ur ekki stórt í sniðum, en það eru þó að minnsta kosti stigin fyrstu skrefin: samræmd skulu lög um vegabréf og vegabréfsáritanir til og milli þessara landa, samgöng- ur og póstþjónustu og síma. Þessi mál — þótt lítilvæg séu á mælikvarða heimsvandamála — hafa töluvert mikið vægi og það getur gefið bendingu um, hvern- ig til tekst í framtíðinni milli þeirra, takist að leiða þau til lykta. Síðan er trúlegt að löndin snúi sér að einhverskonar samvinnu varðandi efnahagsmál og reynd- ar er óhætt að fullyrða, að þó að allt muni þetta taka sinn tíma og ekki bera árangur i einum græn- um hvelli gæti þetta verið fyrir- boði betri og friðsamlegri tíma fyrir þennan mikilvæga hluta Suðaustur-Asíu. (Heimildir: Observer John Stokes, Asia Yearbook 1983)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.