Morgunblaðið - 10.09.1983, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1983
Framfaraflokknum
er spáð auknu fylgi
— í fylkis- og sveitarstjórnakosningum í Noregi
Oslo, 9. september. Frá fréttariUra Morgunblaðsins, Jan Erik Lauré
KOSNINGAR fara fram í
Noregi á sunnudag og mánu-
dag og verður þá kosið í
sveitarstjornir og til fylkis-
þinga í landinu. Þó að þessar
kosningar séu svæðisbundn-
ar, móta þjóðmálin kosn-
ingabaráttuna að talsverðu
leyti.
Skoðanakannanir berida til
þess, að styrkleikahlutföllin milli
stóru flokkanna tveggja, Hægri
flokksins og Verkamannaflokk-
ins, eigi eftir að haldast lítið
breytt og að Hægri flokkurinn fái
31,5% en Verkamannaflokkurinn
37%. Hins vegar er gert ráð fyrir
því, að hinir hægri flokkarnir
tveir, sem aðild eiga að norsku
ríkisstjórninni, það er Kristilegi
Flýðu til Austur-
ríkis í loftbelg
Austurríki, 9.9. AP
Tékkneskur byggingar-
verkfræðingur, kona hans
og tvö börn, flýðu til Aust-
urríkis í fyrrinótt í heima-
gerðum loftbelg.
Austurríska lögreglan hefur
neitað að gefa upp smáatriði
varðandi flótta tékknesku fjöl-
skyldunnar, vegna hættu á refsi-
aðgerðum gegn ættingjum fjöl-
skyldunnar, sem enn eru í
Tékkaslóvakíu.
Ónefndur lögreglumaður gaf
þó þær upplýsingar að fjölskyld-
an hefði ráðgert flótta í tvö ár,
og hefði loftbelgurinn verið
smíðaður í leyni úr regnkápum
sem saumaðar voru saman,
bráðabirgða trégólfi og stál-
grind.
Fjölskyldan hóf flóttann fyrir
miðnætti á miðvikudag, og innan
50 mínútna var belgurinn kom-
inn yfir landamærin og inn í
Austurríki. Landamæraverðir
sáu loga í 2'k km hæð, og skutu í
átt að honum, en gátu ekki gert
sér grein fyrir hvaða fyrirbæri
þetta var.
Eftir að fjölskyldan lenti heilu
höldnu nálægt landamærabæn-
um Drasenhofen, gekk hún inn í
bæinn og lét lögreglu vita af sér.
Fjölskyldan hefur nú beðið hælis
sem flóttamenn í Austurríki.
A lúxushótelí í hjarta
Amsterdam
Vikudvöl fyrir ótrúlega lágt verð.
Nú er rétti tíminn fyrir vikudvöl í Amsterdam, þar sem
fjölskrúðugt mannlíf og alþjóðlegir menningarstraumar
skapa einstaka stemmningu á degi og nóttu.
Við gistum á Sonesta, fimm stjörnu lúxushóteli í miðpunkti
borgarinnar, - annálað fyrir glæsilegan aöbúnað og
þjónustu. örstutt er á söfnin, í verslanirnar, á veitinga-
staðina og næturklúbbana og dvölin verður ógleymanlegt
ævintýri frá fyrsta degi.
Verð aðeins kr. 14.980.-
Innifalið: Flug, akstur að og frá flugvelli erlendis og
gisting á lúxushótellnu Sonesta m/morgunverði.
Samvinnuferöir - Landsýn
AUSTURSTR/ETI 12 - SÍMAR 27077 & 28699
þjóðarflokkurinn og Miðflokkur-
inn, eigi eftir að tapa fylgi.
Það er jafnvel talið, að Kristi-
legi þjóðarflokkurinn eigi eftir að
bíða afhroð í kosningum og fái
ekki nema 7,2% í stað 10,5% áður
og að Miðflokkurinn fái 6,5%, en
hann hafði 8,6% áður. Líklegast-
ur sigurvegari kosninganna er
talinn vera Framfaraflokkur-
innn, sem er bræðraflokkur
Glistrups í Noregi. Flokkurinn
hefur vaxið að fylgi í öllum kosn-
ingum að undanförnu. Árið 1979
fékk flokkurinn aðeins 2,5% at-
kvæða, í kosningunum til Stór-
þingsins 1981 hlaut hann 4,5% og
fékk þar fjóra menn kjörna og nú
þykja líkur á, að flokkurinn fái
6,5% og geti því virkilega látið að
sér kveða á fylkisaþingunum.
Fylkin í Noregi eru 19 og eru
jafnaðarmenn ráðandi flokkur
þremur þeirra. Mikil eftirvænt-
ing ríkir um úrslit kosninganna á
sjö fylkjsþingum, þar sem líkur
eru taldar á, að úrslit kosn-
inganna verði þau, að breytingar
á fylkisstjórnunum fylgi í kjöl-
farið.
Brak úr annarri flugvél uppreisnarmanna f Nicaragua, sem gerðu loftárásir á
stöðvar í Nicaragua í gær og fyrradag, hinar fyrstu f sögu átakanna þar í landi.
Hermönnum tókst að skjóta niður aðra flugvélina, Cessnu-402, sem gerði árás
á höfuðborgina í fyrradag, og sést hér hluti braks hennar, þar sem hún
brotlenti við flugvallarbyggingar. ap/ símamynd.
Loftárásir skæruliöa á
stöðvar í Nicaragua
Managua. 9. september. AP.
FLUGVÉLAR skæruliða gerðu loft-
árásir á skotmörk í Nicaragua ann-
an daginn í röð. Átökin í landinu
hafa tekið nýja stefnu, því áður hafa
skæruliðar ekki gert árásir úr lofti.
Rétt fyrir dögun á fimmtudag
vörpuðu tvær flugvélar af gerðinni
Cessna 402 sprengjum á höfuð-
borgina og hlaust talsvert tjón á
mannvirkjum af, en manntjón
varð ekki. Önnur flugvélin varpaði
sprengjum á hverfi þar sem bú-
staður utanríkisráðherra er, og
komst hún undan, en talið er að
flugvélarnar hafi komið frá Costa
Rica.
Hin flugvélin varpaði sprengj-
um á flugvöllinn f Managua og
hlaust þar einnig af talsvert tjón,
en hermönnum, sem mönnuðu
loftvarnabyssur, tókst að skjóta
flugvélina niður, og brotlenti hún
við flugstöðvarbygginguna. Þrír
hermenn slösuðust.
f dag gerðu tvær T-28 flugvélar
árás á Kyrrahafsborgina Corinto,
sem er ein helzta hafnarborg Nic-
aragua, og ollu þær smávægilegu
tjóni á fjórum birgðatönkum í
olíustöð, en engan sakaði, að sögn
talsmanns hersins.
Hann sagði að flugvélarnar
hefðu varpað sprengjum og skotið
eldflaugum, sem flestar hverjar
hefðu farið í hafið eða sprungið á
opnu landi, og því litlu tjóni vald-
ið.
Þvf næst réðust báðar flugvél-
arnar á mikilvæga brú skammt
frá á þjóðveginum til Managua, en
urðu frá að hverfa er skotið var án
afláts af loftvarnabyssum. Flug-
vélarnar flýðu til Hondúras.
Járnbrautaslys við Kaupmannahöfn:
Þrír fórust
Kaupmannahöfn, 9. september. AP.
Þrír menn fórust og 15 slösuðust,
sumir alvarlega, þegar tvær járn-
brautalestir rákust á rétt við lesta-
stöðina í Stenlnse, skammt norður
af Kaupmannahöfn í morgun.
Slysið varð er önnur lestin stað--
næmdist ekki á stöðinni, sam-
kvæmt venju, heldur hélt áfram á
75 km hraða og keyrði beint fram-
an á farþegalest, sem var að nálg-
ast Stenlose.
Óljóst er hvers vegna lestin,
sem var tóm, stöðvaði ekki á stöð-
inni, þrátt fyrir ljósmerki og kall-
merki stöðvarstjóra. Annar lest-
arstjóranna er í hópi hinna slös-
uðu. --
Það tók slökkviliðs- og björgun-
armenn þrjár stundir að bjarga
fólki út úr fremstu lestarvögnun-
um, sem sumir fóru út af sporinu
og ultu við áreksturinn.
Slysið varð í dögun og var úr-
hellisrigning er það átti sér stað.
Singapore:
Rússar rufu lofthelg-
ina fjórum sinnum
SOVÉZKAR farþegaþotur frá
Aeroflot rufu lofthelgi Singapore
fjórum sinnum 1980 með þvf að
fljúga þá nærri herflugvelli þar.
Skýrði blaðið The Straits Times
frá þessu í dag og sagði, að stjórn-
in í Singapore hefði mótmælt öll-
um þessum atvikum harðlega við
sovézk stjórnvöid.
The Straits Times segir, að
sovézku farþegaþoturnar hafi
farið inn á bannsvæði í lofthelgi
Singapore, er þær nálguðust
Lebar-flugvöll. Þrisvar héldu
sovézku flugmennirnir því fram
eftir á, að þeir hefðu breytt um
stefnu vegna skýjafars. Engar
aðrar flugvélar tilkynntu hins
vegar um slíkt skýjafar og veð-
urskýrslur sýna, að himinn var
heiðskír þessa daga.
Blaðið skýrði frá þessu á for-
síðu við hliðina á frétt frá Madr-
id af ummælum Andrei Gromyk-
os, utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, þar sem hann lýsti þvi yf-
ir, að landamæri Sovétríkjanna
væru „heilög”.