Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1983 21 Flugmað- urinn verði framseldur Gíslar látnir lausir í staðinn LLssabon, 9. ágúst AP. TUTTUGU OG FJÓRIR sovézkir gísiar, sem í haldi eru hjá uppreisn- armönnum gegn stjórnvöldum í Mozambique, verða látnir lausir „strax“, ef sovézk stjórnvöld senda flugmann þotunnar, sem skaut suður-kóreönsku farþegaþotunna niður í síðustu viku, til Seoul. Skýrði talsmaður uppreisnarmanna frá þessu í gær. Uppreisnarmenn, sem berjast gegn stjórn marxista í Mozam- bique, settu tvö skilyrði fyrir því, að sovézku gíslarnir verði látnir lausir. Annað er, að sovézki flug- maðurinn verði framseldur til Seoul en hitt, að hann verði þar „dreginn fyrir rétt“. ■ ■■ \T/ ERLENT, 7 millj. dollara gimsteinn Stærsti hjartalaga gimsteinn heims, „Le Grand Coeur d’Afrique** er nú til sölu í London, sem hluti af 50 gimsteina hálsmeni. Til þess að framleiða þennan einstaka stein, varð að höggva til þann 278 karata gimstein, sem sést til vinstri til þess að fá fram hjartalaga gimsteininn, sem er 70 karöt og metinn er á 7 millj. dollara (nær 200 millj kr.) Hvirfilvindur gerir usla Ilong Kong, 9. september. AP. L Hvirfilvindurinn Ellen skall á Hong Kong í fyrradag, og fórust a.m.k. 6 manns. 180 aðrir slösuðust þegar hvirfilvindurinn, sem er annað mesta óveður sem skollið hefur á í Hong Kong til þessa, gekk yfir. Vindhraðinn komst upp í 225 km á klst. og orsakaði gífurlegt tjón á mannvirkjum. Þegar stormurinn hafði gengið yfir milljónaborgina, var allt at- hafnalíf í borginni lamað, og 22 skip og bátar strönduðu, þ.á m. 21.000 tonna flutningaskip. Hinir 180 sem slösuðust, höfðu yfirleitt orðið fyrir höggi af völd- um götuskilta, eða annarra laus- legra hluta sem hvirfilvindurinn reif með sér. Meðal þeirra sem lét- ust, var 7 ára gömul stúlka. Hún hafði kramist undir fataskáp sem féll um koll í óveðrinu. Miðaldra maður lést þegar þak á kofa hans hrundi og slökkviliðsmaður og tvær systur létust af völdum skriðufalla. Þriggja manna er saknað, en talið er að þeir hafi farist er bátur þeirra strandaði. Ellen er mesti stormur sem gengið hefur yfir Hong Kong síð- an hvirfilvindurinn Hope skall á árið 1979, en þá létust 8 manns og 123 slösuðust. Skrifstofum Aeroflots lokað í Bandaríkjunum Starfsmönnum félagsins skipað að verða á brott Wa.shington, 9. september. AP. RONALD Reagan, forseti Banda- ríkjanna, hefur hvatt vinaríki til þess að fara að fordæmi Banda- ríkjamanna og rjúfa við- skiptatengsl við sovézka fiugfélag- ið Aeroflot og loka söluskrifstofum þess. Er þetta þáttur í þeim að- gerðum, sem Bandaríkjastjórn hef- ur gripiö til vegna suður-kór- eönsku farþegaþotunnar, er Rúss- ar skutu niður í síðustu viku. Hef- ur bandaríska utanríkisráðuneytið látiö framfylgja fyrirmælum forset- ans um að loka opinberlega skrif- stofum Aeroflots í New York og Washington og skipa starfs- mönnum félagsins þar að verða á brott frá Bandaríkjunum. Vestur-Þýzkaland og flest önnur aðildarríki NATO hafa samþykkt að hætta öllum flug- ferðum til Sovétríkjanna í tvær vikur frá og með 15. september nk. Var frá þessu skýrt af hálfu stjórnvalda f Bonn í dag. Sagði Júrgen Sudhoff, talsmaður stjórnarinnar, að utanríkisráð- herrar NATO hefðu á fundi sín- um í Madrid tekið ákvarðanir um þessar aðgerðir til þess að leggja áherzlu á fordæmingu sína á Sovétríkjunum fyrir að skjóta niður suður-kóreönsku farþegaþotuna. Lendingarleyfi á Vesturlöndum fyrir flugvélar Aeroflots verða einnig felld niður á þessu tveggji vikna tímabili. Sudhoff tók það frí m, að Frakkar og Grikkir hefðu ekki fallizt á að taka þátt í þessum aðgerðum og óvíst væri um þátttöku Danmerkur og Tyrk- lands. Japönsk stjórnvöld bönnuðu í dag flug Aeroflots til Japan að sinni og báðu Sovétmenn um að „íhuga hegðun sína vandlega" vegna farþegaþotunnar, sem þeir skutu niður. Viðræður um fækkun kjarnorkuvopna: Rússar að draga í land í kröfum sínum? Madrid, 9. september. AP. RÚSSAR hafa gefið til kynna að þeir séu hugsanlcga reiðubúnir að falla frá þeim kröfum sínum, að brezk og frönsk kjarnorkuvopn verði talin með í viðræðunum í Genf um fækkun kjarnorkuvopna, aö sögn Hans- Dietrieh Genscher utanríkisráðherra V estu r-Þýzkalands. Genscher sagði á blaðamanna- fundi að Andrei Gromyko utanrík- isráðherra hefði gefið þessa af- stöðubreytingu Rússa til kynna í viðræðum þeirra í gær. Kvað Genscher hér um mjög jákvæða stefnubreytingu að ræða, ef sönn væri. Varaði Genscher þó við of mikilli bjartsýni, því það eitt skipti máli sem þeir byðu fram í samningavið- ræðunum í Genf um fækkun meðaldrægra kjarnorkuflauga. Viðræðurnar í Genf, sem hófust 1981, hafa staðið í stað að undan- förnu vegna kröfu Rússa um að 162 brezkar og franskar kjarnorku- flaugar yrðu taldar með, þar sem þær hefðu drægni á við þær kjarn- orkuflaugar, sem um væri verið að fjalla í viðræðunum. Bæði Bretar og Frakkar hafa ekki ljáð máls á því að flaugar þeirra yrðu taldar með í Genf, og hafa þeir verið studdir af banda- mönnum sínum í þeim efnum. McGovern í framboð? W a.shington, 9. september. AP GEORGE McGovern, fyrrum öld- ungadeildarþingmaður, mun bráð- lega tilkynna hvort hann gerir aðra tilraun við að ná útnefningu demó- krata til forsetakosninganna í Bandaríkjunum 1984. McGovern var frambjóðandi demókrata í forsetakosningunum 1972, en tapaði þá fyrir Richard Nixon. Seirawan vann Tal Nic.sik, 9. september. AP. BANDARÍSKI skákmeistarinn Yasser Seirawan sigraði Sovét- manninn Mikhail Tal, fyrrum heimsmeistara, í 12. umferð skákmótsins í Nicsik, sem tefld var á fimmtudag. Jafntefii varð hins vegar í skák Svíans Ulf Andersons og Garri Kasparovs frá Sovétríkjunum en sá síðar- nefndi er enn efstur í mótinu. Seirawan, sem einnig hefur unnið Spassky, fyrrum heims- meistara, í þessu móti, tefldi til jafnteflis á móti Tal. Sá síðar- nefndi hafnaði jafnteflisboðinu, en lék síðan ónákvæmum leik og tapaði peði. Þar með var skákin unnin fyrir Seirawan. Úrslit í 12. umferð urðu að öðru leyti þessi: Ljubojevic vann Ivano- vic, en jafntefli varð hjá Petrosian og Nikolic og Sax og Spassky. Skákir þeirra Gligorics og Miles og Portisch og Larsens fóru f bið. Staða efstu manna í mótinu er nú þannig, að Karparov er enn efstur með 9 vinninga, þá kemur Larsen með 7% vinning og Spassky, And- erson og Portisch hafa 6 vinninga hver.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.