Morgunblaðið - 10.09.1983, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1983
23
nenn sýndu Ólöfu
ótrúlegt tillitsleysi
arnir framhjá. Hvorki fleiri né
færri en 30 bílar óku framhjá
henni á Hverfisgötunni án þess að
stansa. Loks kom lögreglumaður á
bifreið og stöðvaði umferðina svo
Ólöf litla kæmist yfir gangbraut-
ina.
Það var sólskin og blíða í gær
þegar Ólöf lagði af stað í skólann.
Hún athugaði fyrst hvort hægt
væri að komast yfir Hverfisgötuna
við Vatnsstíginn, en í sannleika
sagt var það ekki fýsilegt. Þar er
ekki gangbraut, auk þess hafði
sendibíl verið lagt ólöglega og
byrgði fyrir útsýni. Ólöf gekk að
gatnamótum Hverfisgötu og
Frakkastígs. Þar er gangbraut, en
aftur hafði sendibifreið verið lagt
ólöglega þannig að hún byrgði út-
sýni vestur eftir götunni.
Ólöf hélt þá leiðar sinnar norðan
megin götunnar og hugðist fara yf-
ir Hverfisgötuna við Vitastíg. Það-
an blasir Austurbæjarskólinn við
henni og er líklega besta leiðin;
minnst hætta á að hún villist. En
það var ekki auðhlaupið að komast
yfir. Ólöf stóð þolinmóð á gang-
stéttinni við gangbrautina en öku-
menn sinntu henni ekki hið
minnsta. Hvorki fleiri né færri en
30 bifreiðum var ekið hjá — enginn
ökumanna sinnti ólöfu litlu. Þeir
óku framhjá, sumir hratt, raunar
áberandi hvað strætisvögnum var
ekið hratt eftir Hverfisgötunni.
Loks kom lögreglumaðurinn,
sem áður er getið, og stöðvaði um-
ferðina og hleypti ólöfu litlu yfir
svo hún gat haldið leiðar sinnar.
Það gekk vel að komast yfir Lauga-
veginn — aldrei þessu vant var
umferð lítil. Sama gilti um Grett-
isgötu. Njálsgatan var öllu verri en
eftir skamma bið komst hún yfir.
Hið sama gilti um Bergþórugötu og
í porti Austurbæjarskóla tóku þær
Guðrún og Nína á móti Ólöfu. En
skömmu síðar — þegar blaðamað-
ur og ljósmyndari héldu leiðar
sinnar, var bifreið ekið á miklum
hraða austur Bergþórugötu. Við
hlið eins fjölmennasta barnaskóla
borgarinnar. Hugsunarleysi öku-
manna virðist engin takmörk sett.
Reykjavík skartaði sínu fegursta
þegar ólöf fór í skólann í gær, sólin
brosti við borgarbúum. Þrautin
verður þó þyngri þegar veður ger-
ast válynd í vetur. Þegar litil
stúlka þarf að komast leiðar sinnar
— þegar þúsundir skólabarna
þurfa að komast leiðar sinnar í
skólann — er brýnt að allir taki
höndum saman um að vernda
yngstu vegfarendurna. H.Halls.
6.
Nína og Guðrún taka á móti Ólöfu við Austurbæjarskólann.
Ólöf á gatnamótum Grettisgötu og Vitastígs.
kastígs og Hverfisgötu — þar hafði
ið gangbrautina.
4Um 30 bifreiðum var ekið framhjá Ólöfu við gangbrautina á Hverfisgötu Á leiðinni heim — Páll Garðarsson, lögregluþjónn stöðvar umferðina og
• við Vitastíg, án þess að nokkur ökuraaður hirti um að stansa og hleypa ( • hleypir Ólöfu yfir Hverfisgötuna. Myndir Mbl. JiUius.
henni yfir.
■>hultz
sam-
morgun
Geir Hailgrímsson sagði, að rætt
hefði verið um ráðstafanir til þess að
koma í veg fyrir, að atburðir af þessu
tagi gætu endurtekið sig. Það er ljóst,
sagði utanríkisráðherra, að ýmsar
þjóðir munu ákveða a.m.k. hálfsmán-
aðarbann við flugferðum til og frá
Sovétríkjunum.
Þá sagði Geir Hallgrímsson, að
ræða Gromykos á Madrid-ráðstefn-
unni hefði fallið í grýttan jarðveg og
mönnum hafi fundist hún vera utan
marka velsæmis.
Þessi atburður varpaði skugga á
ráðstefnuna, sagði Geir Hallgríms-
son. Menn höfðu gert sér vonir um, að
hún yrði hvatning til betri samskipta
þjóða á milli og mundi stuðla að
bættu andrúmslofti í alþjóðamálum.
Þetta athæfi Sovétmanna er hins veg-
ar brot á bæði Helsinki-samþykktinni
og lokaskjali Madrid-ráðstefnunnar.
Heildaraflinn hefur
dregist saman um
tæpar 70.000 lestir
Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra,
flytur ræðu sína á Madrid-ráðstefnunni.
HEILDARAFLI landsmanna fyrstu
8 mánuði þessa árs varð samtals
478.959 lestir en á sama tíma í fyrra
varð hann 546.714 lestir eða 67.755
lestum minni nú. Heildar þorskafl-
inn þetta tímabil reyndist tæpum
63.000 lestum minni en á sama tíma-
bili í fyrra. Rækjuafli reyndist hins
vegar um 2.000 lestum meiri nú en í
fyrra samkvæmt aflatölum Fiskifé-
lags íslands.
Sé litið á dæmið eftir veiðiskip-
um kemur í ljós, að afli báta hefur
dregizt samam um rúmar 50.000
lestir, var nú 222.994 lestir en í
fyrra 273.707. Þorskafli báta dróst
saman um rúmar 47.000 lestir, er
nú 131.770 en var í fyrra 179.203.
Afli togara þetta tímabil nú er um
17.000 lestum ininni en í fyrra eða
255.965 lestir á móti 273.007 í
fyrra. Þorskafli togara er tæpum
14.000 lestum minni nú en í fyrra.
Rækjuaflinn þetta tímabil nú
reyndist 8.603 lestir á móti 6.607 í
fyrra.
Sé aðeins ágústmánuður þess-
ara tveggja ára borinn saman
kemur í ljós að þorskafli báta er
nánast sá sami eða rétt rúmar
8.000 lestir, en heildaraflinn er nú
EDDAN farþegaskip Farskips
hreppti vont veður héðan á leið sinni
til Bretlands nú í vikunni og þegar
Morgunblaðiö hafði samband við
skipið í gær, var að nýju spáð versn-
andi veðri. Þá var skipið þegar orðið
12 tímum á eftir áætlun til New-
castle, en þangað á þaö að koma á
aáætlun á laugardagsmorgnura.
Talsverðar líkur eru því á að skipinu
tæpum 200 lestum meiri. Heildar-
afli togara varð nú um 10.000 lest-
um minni en í fyrra, eða 35.379
lestir nú á móti 45.466 og þorskafl-
inn reyndist rúmum 9.000 minni
nú en í fyrra eða 36% minni. Hins
vegar þrefaldaðist rækjuaflinn
tæplega eða óx úr 490 í 1.307 lestir.
seinki enn frekar.
Allt upp í 12 vindstig voru á
fimmtudag og létu farþegar þá
flestir fyrirberast í kojum. Aflýsa
varð bridgekeppni þann daginn,
en bridgemót fer fram um borð í
þessari ferð Eddunnar. Einn
káetugluggi brotnaði í veðrinu og
sjór streymdi inn, en engum varð
meint af.
12 tíma töf hjá
ms. Eddu á útleið