Morgunblaðið - 17.09.1983, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1983
ASÍ, BSRB og Launamálaráð ríkis-
starfsmanna innan BHM:
Krefjast samnings-
réttar með undir-
skriftasöfnun
ALI>ÝÐUSAMBAND íslands,
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja og Launamálaráð ríkis-
starfsmanna innan Bandalags há-
skólamanna, hafa ákveðið að gang-
ast fyrir undirskriftasöfnun, þar
sem skorað er á ríkisstjórn og Al-
þingi að fella tafarlaust úr gildi öll
ákvæði bráðabirgðalaganna frá 27.
maí sl., sem afnema eða skerða
samningsrétt samtaka launafólks.
Á blaðamannafundi, sem hald-
inn var af þessu tilefni, kom
fram að leitað yrði til einstakra
aðildarfélaga heildarsamtak-
anna um dreifingu undirskrifta-
lista og óskað eftir því að haft
verði samband við alla vinnu-
staði.
Stefnt er að því að undir-
skriftasöfnuninni verði lokið
fyrir 7. október og að Iistarnir
verði afhentir stjórnvöldum við
setningu Alþingis þann 10.
október.
Herómmálið í Kaupmannahöfn:
Fleiri taldir
tengjast málinu
Krá fréttaritara Mbl. í Kaupmannahöfn.
SAMKVÆMT nýjum upplýsingum
frá Kaupmannahöfn eru frásagnir
blaða þar af handtöku íslenskrar
konu og bresks sambýlismanns
hennar í fyrradag nokkuð ýktar.
Eru þau bæði á bak við lás og
slá, eins og skiljanlegt er í svo
alvarlegum sökum, eins og eit-
urlyfjamál eru, en ástand kon-
unnar a.m.k. er gott eftir atvik-
um. Fólkið er í einangrun á
gæslustofnun 05 í Vestre-fang-
elsinu.
Fulltrúi rannsóknarlögregl-
unnar, sem hefur þetta mál til
meðferðar, telur ótímabært að
fjalla um það í blöðum að sinni,
enda muni nokkur tími líða, þar
til eitthvað verði að ráði aðhafst.
Einnig er talið að fleiri aðilar
tengist málinu og er því lögregl-
an treg að veita upplýsingar.
Afmælishátíd Flugleida hefst árdegis
FLUGLEIÐIR efna til afmælishá-
tíðar nú um helgina í tilefni þess,
að á þessu ári eru 10 ár liðin frá
stofnun félagsins. Hátíðin hefst
með því, að sýning á sögu félagsins
verður opnuð klukkan 11.00 árdeg-
is. Á sýningunni verður m.a. til
sýnis þessi myndarlegi flugvélar-
mótor. Samkvæmt upplýsingum
Sæmundar Guðvinssonar, frétta-
fulltrúa Flugleiða, kostar gripurinn
liðlega 1,5 milljónir dollara, sem
svarar til liðlega 42 milljóna ís-
lenzkra króna.
Sæmundur sagði að almenn-
ingi gæfist tækifæri um helgina
til að kynnast starfsemi félags-
ins, en almenn kynning mun
fara fram á starfsemi fyrirtæk-
isins báða dagana. M.a. verða
flugvélar félagsins almenningi
til sýnis.
Á sunnudagsmorgun munu
flugvélum Flugleiða verða gefin
nöfn, en samkeppni um nafngift-
ir fór fram sl. sumar. Þar verða
meðal gesta forseti fslands,
Vigdís Finnbogadóttir, og Albert
Guðmundsson, fjármálaráð-
herra, sem mætir í fjarveru
Matthíasar Bjarnasonar, sam-
gönguráðherra. Sæmundur gat
þess sérstaklega, að almenning-
ur væri velkominn til að vera
viðstaddur þegar vélum félags-
ins verður gefið nafn.
Skúlagötumálið afgreitt f borgarstjórn:
Tillaga um breytingu á land-
notkun og nýtingu samþykkt
NA-átt um helgina
— Þriggja daga veðurspár
teknar upp í lok september
NORÐAUSTANÁTT mun verða
ríkjandi um allt land um helgina,
að því er Trausti Jónsson veður-
fræðingur á Veðurstofu íslands
sagði í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gær. Trausti
sagði að áttinni myndi fylgja rign-
ing fyrir norðan og austan, en betra
veður yrði vestanlands og sunnan,
þó sennilega sólarlítið.
Hinn 29. þessa mánaðar mun
Veðurstofan taka upp þriggja
daga veðurspár fram í tímann.
Trausti sagði það unnt vegna
mikilla framfara í tölvuútreikn-
ingum sem orðið hafa á undan-
förnum árum. Erlendis væri farið
að gefa út allt að 6 til 7 daga spár,
og yrði það einnig gert hér á
landi áður en mjög langt liði. —
Sums staðar sagði hann vera
spáð allt að tíu dögum fram í tím-
ann, en svo langar spár væru þó
Húsavík:
Síldveiði
frekar
treg
llúsavík, 16. september.
SÍLDVEIÐI í lagnet hófst frá Húsa-
vík hinn 1. þessa mánaðar og hefur
veiði verið frekar treg, en 10 bátar
stunda veiðarnar og hafa fengið
samtals um 80 tonn sem allt hefur
verið fryst til beitu.
Síldarútvegsnefnd hefur enn
ekki leyft söltun. Síldin er sögð
stór og falleg og 20% að fitu-
magni.
— Fréttaritari
ekki birtar. Þær vörðuðu fyrst og
fremst meðalveður þennan tíma,
og hér á landi væri atvinnulíf
ekki með þeim hætti að meðal-
veður á ákveðnum dagafjölda
væri áhugavert.
O'
INNLENT
TILLAGA meirihluta skipulagsnefndar um breytingu á landnotkun og nýt-
ingarhlutfalli á svæði við Skúlagötu, sem afmarkast af Ingólfsstræti, Hverf-
isgötu, Snorrabraut og Skúlagötu, var samþykkt á fundi borgarstjórnar
Reykjavíkur á fimmtudagskvöld, með 12 atkvæðum meirihluta Sjálfstæðis-
flokksins, gegn 9 atkvæðum minnihlutans.
I umræðum um tillöguna kom
það fram hjá fulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins um að verulega
breytingu á landnotkun væri að
ræða og á stórum hluta svæðisins
væri horfið frá iðnaðar- og vöru-
^geymslusvæði yfir í hreint íbúða-
svæði. Nýting eins reits á svæðinu
hefði verið athuguð með hreina
byggð í huga og hefðu þær athug-
anir leitt í ljós að nýting gæti orð-
ið allt að 2,0 á stórum lóðum þar
sem samfellt væri byggt. Sagði
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður skipulagsnefndar, í um-
ræðum að allir ættu að geta verið
sammála um að rétt væri að auka
nýtingu og byggð á þessu svæði og
gera Skúlagötumyndina meira að-
laðandi. Þá ítrekaði Vilhjálmur að
ekki væri verið að fjalla um skipu-
lagsmál byggðarinnar, heldur að-
eins breytingar á landnotkun.
Sagði hann að þegar til deiliskipu-
lags kæmi, myndi núverandi
meirihluti kynna íbúum nágrenn-
isins tillögurnar og hafa við þá
samráð.
Hjá fulltrúum Kvennaframboðs
kom fram að æskilegra væri að
samþykkja tillögu Borgarskipu-
lags að landnotkun á fyrrgreindu
svæði og að fresta öllum ákvörð-
unum um nýtingarhlutfall á ein-
stökum reitum, þar til gerð hefði
verið tillaga að deiliskipulagi
svæðisins. Þessi tillaga var felld
með 12 atkvæðum gegn 9.
Alþýðubandalagið var þeirrar
skoðunar að nýtingarhlutfallið 2,0
væri allt of hátt og gerði að tillögu
sinni aðmýting yrði ákveðin 1,2 í
samræmi við tillögu Borgarskipu-
lags, en sú tillaga var ekki studd.
Þá voru Framsóknarflokkur og
Alþýðuflokkur einnig andvígir til-
lögu sjálfstæðismanna og töldu að
nýting á svæðinu væri of há.
Hærra verö á er-
lendiim mörkuðum
VERÐ á fiskmörkuðum erlendis fer
nú hækkandi og meðalverð á kfló
fyrir afla, sem landað er í Englandi,
Sex bflar í árekstri á Miklubraut
Mynd Mbl. Sigrún.
SEX bflar lentu í árekstri á Miklubraut, um 200 metra fyrir austan gatnamót Grensásvegar, laust fyrir klukkan fjögur
í gær. Atvik eru þau, að bifreið var stöðvuð fyrirvaralaust á Miklubrautinni. Ökumaður næstu bifreiðar náði að
stöðva, svo og þrír næstu, en svo var ekki um ökumann sem kom á eftir þeim.
* Hann ók aftan á og sendi hverja bifreiðina af annarri aftan á þá fremri og rétt í sama mund var bifreið ekið
aftan á bifreið hans. Varð af mikill árekstur og mikið eignatjón, en sá sem stöðvaði í upphafi og varð þannig
óbeint valdur að árekstrinum, slapp með bifreið sína óskemmda.
fór yfir fyrir 30 krónur nú í vikunni.
Er langt síðan svo hátt meðalverð
hefur fengizt þar. í Englandi er að-
allega landað þorski og ýsu, en
karfa og ufsa í Þýzkalandi. I þess-
ari viku seldu 7 íslenzk fiskiskip
afla sinn í Englandi og Þýzkalandi
og í næstu viku er fyrirhugað að 13
skip selji erlendis.
Síðastliðinn mánudag seldi
Þorri SU 61,2 lestir í Grimsby.
Heildarverð var 2.149.100 krónur,
meðalverð 35,11. Sama dag seldi
Karlsefni RE 171,5 lestir í Cux-
haven. Heildarverð var 3.268.700
krónur, meðalverð 19,06. Á mið-
vikudag seldi Klakkur VE 179,6
lestir í Cuxhaven. Heildarverð var
3.171.400 krónur, meðalverð 17,66.
Sama dag seldi Dalborg EA 94,2
lestir í Grimsby. Heildarverð var
3.029.900 krónur, meðalverð 32,16.
Baldur EA seldi ennfremur á mið-
vikudag. Seldi hann 72,1 lest í
Hull. Heildarverð var 2.204.900
krónur, meðalverð 30,59. Á
fimmtudag seldi Guðrún Þorkels-
dóttir SU 180,8 lestir í Bremer-
haven. Heildarverð var 2.812.300
krónur, meðalverð 15,55. Á föstu-
dag seldi Freyja RE 46,2 lestir í
Grimsby. Heildarverð var
1.105.400 krónur, meðalverð 23,95.