Morgunblaðið - 13.10.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1983
15
T-deild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri:
Enn lokuð síðan
fyrir sumarfrí
Mismunandi sjónarmið sérmenntaðs
starfsfólks veldur deilunni
Akureyri, 11. október.
TAUGADEILD Ejóröungssjúkrahússins á Akureyri hefur enn ekki verið
opnuö fyrir sjúklinga, síðan fyrir sumarfrí. Eins og Mbl. hefur áöur skýrt frá,
sagöi Brynjólfur Ingvarsson, yfirleknir deildarinnar, upp starfi sínu í ág-
ústmánuði. Stjórn FSA fór fram á það við yfirlækninn, að hann gegndi starfi
sínu áfram út uppsagnarfreststímann. Ekki féllst læknirinn á það, nema að
uppfylltum ýmsum skilyrðum varðandi rekstur deildarinnar, sem stjórn
sjúkrahússins gat ekki fellt sig við. Um tíma leit út sem einhverjar sættir
væru að nást, en nú er Ijóst að svo veröur ekki. Eftir upplýsingum, sem Mbl.
telur áreiðanlegar, en hafa þó ekki fengist staðfestar, mun Brynjólfur
Ingvarsson því hafa verið tekinn út
þessa mánaðar.
Eins og áður hefur komið fram í
Mbl. mun vera um ágreining að
ræða milli yfirlæknisins og félags-
ráðgjafa FSA varðandi verkstjórn
og fyrirkomulag hjúkrunar á
deildinni. Af því tilefni sneri Mbl.
sér til Unnar Ólafsdóttur, félags-
ráðgjafa á FSA, og spurði hana
um ástæður deilnanna. Unnur
sagði: „Ég vil undirstrika, að ekki
er um að ræða sérstakar deilur
milli félagsráðgjafa stofnunarinn-
ar og yfirlæknis T-deildar, heldur
mismunandi sjónarmið sérmennt-
aðs starfsliðs T-deildar og yfir-
læknis varðandi starfstilhögun.
Ekki er um að ræða meðferðarleg-
an ágreining. Ég vil að skýrt komi
fram, að Brynjólfur Ingvarsson
hafði sagt upp störfum áður en
stærsti hluti starfsfólks kom til
starfa að sumarleyfum loknum og
tel ég því uppsögn hans engan veg-
inn standa i beinum tengslum við
þær skiptu skoðanir, sem komið
af launaskrá sjúkrahússins í byrjun
hafa fram varðandi fyrrgreint at-
riði“.
„Unnið er af fullum krafti að
lausn þessa máls,“ sagði Ásgeir
Höskuldsson, framkvæmdastjóri
FSA, þegar Mbl. hafði samband
við hann. „Við höfum þegar aug-
lýst eftir umsóknum um stöðu
yfirlæknis á deildinni, en engin
umsókn hefur enn borist. Við fór-
um fram á það við Brynjólf
Ingvarsson, þegar umsókn hans
barst, að hann sinnti sínum störf-
um út uppsagnartímann, sam-
kvæmt öllum venjum og ákvæðum
kjarasamninga. Um það hefur
ekki náðst samkomulag. Við telj-
um afar brýnt að leysa þetta mál
hið allra fyrsta. Starfsfólk
T-deildar er nú í öðrum störfum
innan FSA, auk þess sem einhver
hluti þess er í starfsþiálfun
annars staðar," sagði Asgeir
Höskuldsson að lokum.
GBerg.
Verslunarmenn
þinga á Húsavík
LANDSÞING Landssambands ís-
lcn.sk ra verslunarmanna verður
haldið um helgina á Hótel Húsavík.
Þingiö hefst árdegis á lostudag, og
því lýkur síðdegis á sunnudag.
Á Húsavík fara svo einnig fram
venjuleg aðalfundarstörf, þar sem
kosin verður stjórn og formaður
LÍV.
Það er staðreynd, að Danfoss
ofnhitastillareru
orkusparandi og borga sig því
upp á skömmum tíma.
Auk þess veita þeir mikil
þægindi með jöfnum óskahita
í hverju einstöku herbergi.
Fyrir nokkru var skipt um á
öllum ofnum í Empire State
byggingunni í New York, sem
er 102 hæðir, og settir upp
Danfoss ofnhitastillar.
Erekkifull
ástæöa til að þú setiir upp
ofnhitastilla hjá þér
þótt starfsemin sé aöeins
á einni hæð ?
= HÉÐINN =
SEUAVEGI2, REYKJAVÍK.SÍMI 24260
*
Að sögn Björns Þórhallssonar
formanns Landssambandsins,
munu fulltrúar félaga alls staðar
að af landinu sækja þingið, en inn-
an vébanda sambandsins eru nú
um 9.800 félagar, og koma þeir úr
21 félagi og úr tveimur deildum
verslunarmanna í öðrum verka-
lýðsfélögum. — Félagar í Lands-
sambandi verslunarmanna eru að-
eins þeir sem vinna verslunarstörf
í hálfu starfi eða meira.
Björn Þórhallsson sagði, að á
Húsavíkurþinginu um helgina
yrðu fjölmörg mál tekin til um-
ræðu. Mætti þar nefna vinnutíma-
mál, tæknimál, skipulagsmál,
kjaramál, lífeyrissjóðamál og
margt fleira. Mörg þessara mála
væru rædd á flestum eða öllum
þingum, þar sem fjallað væri um
hin mikilvægustu öllum stundum,
svo sem kjaramál og lífeyrissjóða-
mál.
,4
Wterkur og
L/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Metsala á
MICROLINE!
Af tilefni flutnings okkar í nýtt og rúmgott
húsnæði í Síðumúla 6, buðum við Microline 80
tölvuprentara á kr. 9.900.00 í septembermán-
uði. Viðtökur urðu slíkar, að í mánuðinum
slógum við öll fyrri sölumet.
Við höfum fengið nýja sendingu og ákveðið að
framlengja tilboðið út októbermánuð.
Athugið ennfremur allar aðrar gerðir Microline
prentara hafa lækkað um ca. 40% vegna hag-
stæðra innkaupa.
MICROLINE
Mest seldu tölvuprentarar á íslandi.
MÍKRO
Síðumúla6 Sími39666