Morgunblaðið - 13.10.1983, Blaðsíða 23
Veður
víða um heim
Akureyri 3 úrk. i grennd
Amsterdsm 14 skýjaó
Aþena 28 heiðskírt
Barcelona 21 skýjaó
Berlín 13 skýjað
BrQssel 15 skýjaó
Buenos Alres 18 heióskírt
Chicago 25 rigning
Dublin 17 skýjaó
Feneyjar 17 léttskýjað
Frankturt 15 skýjað
Færeyjar 7 alskýjað
Genf 16 heiöskfrt
Havana 32 skýjaó
Helsinki 6 n I l
Jerúsalem 25 heióskírt
Jóhannesarborg 24 heióskirt
Kaupmannahötn 12 rigning
Las Palmas 32 léttskýjaó
Lissabon 26 heiöskirt
London 17 skýjaó
Los Angeles 36 heióskírt
Madrid 26 heiðskfrt
Malags 25 léttskýjaó
Mallorca 25 skýjaó
Miamí 27 skýjaó
Moskva 6 skýjaó
New York 18 rigning
Osló 6 skýjaó
Pan's 17 heiöskirt
Reykjavík 5 alskýjaó
Róm 24 skýjaó
San Fransisco 24 heióskírt
Stokkhólmur 10 skýjaó
Tókýó 19 heióskirt
Vancouver 13 skýjað
Vinarborg 13 rigning
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1983
Japan:
Kakuei Tanaka dæmdur
fyrir að þiggja mútur
Tókýó, 12. oklóber. AP.
KAKUEI Tanaka, fyrrum forsætisráðherra Japans, var í dag fundinn sekur
fyrir undirrétti um að hafa þegið meira en 500 milljón yen, rúmlega 60 millj.
ísl, kr., í mútur frá Locheed-fyrirtækinu bandaríska. Var hann dæmdur í
fjögurra ára fangelsi og sektaður um
Fullvíst er talið, að Tanaka
muni áfrýja dóminum en han hef-
ur alltaf haldið fram sakleysi sínu
í þau sjö ár, sem málssóknin gegn
honum hefur staðið. Fyrir sömu
sakir var einnig dæmdur einkarit-
ari hans og þrír fyrrum starfs-
menn Marubeni-fyrirtækisins,
sem hafði umboð fyrir Lockheed-
fyrirtækið í Japan. Fengu allir
ð, sem mutunum nam.
vægari dóm en Tanaka.
Sakarefnið var það, að á árun-
um 1974—78 hefði ANA, eitt
stærsta félagið í innanlandsflugi í
Japan, keypt 20 Tristar-þotur af
Locheed-fyrirtækinu og að Tan-
aka, sem þá var forsætisráðherra,
hefði ráðið mestu um það og þegið
múturnar fyrir.
Tanaka er enn í forystu fyrir
stærstu fylkingunni innan Frjáls-
lynda flokksins í Japan, sem löng-
um hefur farið með stjórn í land-
inu, og það var stuðningur hans,
sem réð úrslitum um, að Nakasone
varð forsætisráðherra fyrir ári.
Stjórnarandstaðan hefur hótað
öllu illu ef þingið krefst ekki af-
sagnar Tanaka og í japönskum
blöðum er því spáð, að Nakasone
neyðist til að leysa upp fulltrúa-
deildina og efna til nýrra kosninga
af þessum sökum.
Jiri Lederer látinn
Bad Reichenhall, V-Þýskalandi,
12. október. AP.
TÉKKNESKI rithöfundurinn, and-
ófsmaðurinn og útlaginn Jiri Le-
derer lést í dag á heilsuhæli í
Vestur-Þýskalandi að því er landi
hans og vinur, Ludek Pachman,
stórmeistari í skák, skvrði frá í
dag.
Lederer, sem var tæplega sex-
tugur að aldri, var að jafna sig
eftir hjartaáfall, sem hann fékk
fyrir hálfum þriðja mánuði, þeg-
ar dauðann bar að höndum.
„Með Lederer er mikill maður
genginn," sagði Pachman, en
þeir hafa verið samstarfsmenn
um langt skeið, allt frá 1968 þeg-
ar þeir börðust fyrir því að losa
Tékkóslóvakíu undan oki komm-
únismans.
Lederer var í raun rekinn frá
heimalandi sínu og fluttist til
Vestur-Þýskalands árið 1980. Þá
Jiri Lederer
hafði hann setið í fangelsi þrisv-
ar sinnum fyrir starfsemi, sem
leiðtogunum féll ekki í geð.
Hann var fyrst dæmdur árið
1970 í tveggja mánaða fangelsi
fyrir að leyfa sér fullmikið sem
blaðamaður og í annað sinn
tveimur árum síðar fyrir að
sverta ímynd kommúnistaleið-
toganna og sósíalismans. Þá
hljóðaði dómurinn upp á tvö ár
en honum vr sleppt úr haldi eftir
tíu mánuði.
Lederer var einn af upphafs-
mönnum tékknesku mannrétt-
indahreyfingarinnar, sem kennir
sig við árið 1977, og það sama ár
var hann handtekinn í þriðja
sinn og dæmdur til þriggja ára
fangavistar. Þá fannst tékknesk-
um stjórnvöldum vænlegast að
koma honum úr landi og lögðu
áherslu á þá kröfu sína með því
að neita honum um læknishjálp í
fangelsinu. Lederer féllst þá á að
fara úr landi með fjölskyldu
sinni.
w NQVA sófasettið
skipar eitt efstu sætanna á sölulista ULFERTS ...
ástæðan er augljós þegar þú hefur skoðaö þaö nánar. Eins, tveggja og þriggja sæta,
meö tauáklæöi sem taka má af og hreinsa.
Ég óska eftir aö fá sendan nýja ULFERTS-myndalist-
ann ókeypis.
Nafn
heimili
staöur
KRISTJÓn
SIGGGIRSSOn HF.
LAUGAVEGI 13. REYKJAVIK. SÍMI 25870
Opiö á fimmtudögum til kl. 21, á föstu-
dögum til kl. 19 og til hádegis á laugar-
dögum.
23
STILL-LONGS
ULLARNÆRFÖT
NÆLONSTYRKT
OÖKKBLÁ FYRIR
BÖRN OG FULLORDNA
SOKKAR
MEÐ TVÖFÖLDUM BOTNI
REGNFATNAÐUR
KULDAFATNAOUR
VINNUFATNAÐUR
VINNUHANSKAR
KLOSSAR
GÚMMÍSTÍGVÉL
ÖRYGGISSKÓR
,/ICaddiru
-JLIMUSLM I... ———W
OLÍUOFNAR
SMÍÐAJÁRNSLAMPAR
BORÐLAMPAR
HENGILAMPAR
VEGGLAMPAR
GASLUKTIR
OLÍUHANDLUKTIR
OLÍULAMPAR
10, 15, 20 LÍNA
VASALJÓS
LUKTIR
FJÖLBREYTT ÚRVAL
ARINSETT
FÍSIBELGIR
VIDARKÖRFUR
BAUJULUKTIR
ENDURSKINSHÓLKAR
PLÖTUBLÝ
SKRÚFUZINK
LÓDTIN
VÍR- OG
BOLTAKLIPPUR
•
GÚMMÍSLÖNGUR
1/2“ _ 2“
PLASTSLÖNGUR
GLÆRAR MEÐ OG ÁN
INNLEGGS
3/i«“— 1V«“
SLÖNGUKLEMMUR
BÓMULLARGARN
HVÍTT í RÚLLUM
FLEIRI SVERLEIKAR
NÆLONGARN,
FLEIRI SVERL.
SNÚRUR
FLÉTTADAR
•
INDVERSKAR
KÓKOSDYRA-
MOTTUR
5 STÆRÐIR
GÚMMÍMOTTUR
MOTTUGÚMMÍ
VÉLATVISTUR
I 25 KG BÖLLUM
HVÍTUR OG MISL.
GRISJUR I RÚLLUM
Sími 28855
Opiö laugardaga 9—12.