Morgunblaðið - 13.10.1983, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1983
BRIDGESTONE RALL 83:
Flugeldasýning og ann-
að sprell í rásmarkinu
BRlDGESTONE-rallið, sem leggur af
stað frá Hjólbarðahöllinni í Fellsmúla
á morgun kl. 22.00, verður síðasta
rallkeppni ársins og jafnframt tuttug-
asta rallkeppnin er Bifreiðaíþrótta-
klúbbur Revkjavíkur skipuleggur. 23
keppnisbílar eru skráðir til leiks og
verður þeim skotið af stað með mikilli
flugeldasýningu og öðru spreili, sem
hefst kl. 21.00 og er stjórnað af strák-
unum í Hjólbarðahöllinni og Hjálpar-
sveit skáta.
„Við ætlum að vinna, alveg sama
hvernig aðrir keyra,“ sagði Jón
Ragnarsson í samtali við Morgun-
blaðið, en hann og Ómar munu nú
aka Renault-5 bilnum að nýju í
Bridgestone-rallinu. „Við hugsum
ekkert um íslandsmeistaratitilinn,
ætlum bara að vinna rallið," bætti
Jón við.
Þeir bræður eru mjög sigur-
stranglegir í rallinu ásamt Halldóri
Úlfarssyni og Tryggva Aðalsteins-
syni, sem aka Toyota Corolla 1600.
Þessar áhafnir eru í efsta sæti í bar-
áttunni um íslandsmeistaratitilinn.
f keppni ökumanna hefur Halldór 65
stig, en Ómar 52 og þriðji er Rík-
harður Kristinsson með 25 stig. Að-
stoðarökumenn keppa einnig um ís-
landsmeistaratitil innbyrðis og er
það gert í fyrsta skipti á þessu ári.
Morgunblaðið/Gunnlaugur
Halldór Úlfarsson á Toyota Corolla verður ræstur fyrstur af stað í Bridge-
stone-rallinu ásamt félaga sínum Tryggva Aðalsteinssyni. Þeir berjast um
íslandsmeistaratitilinn við Ómar og Jón Ragnarsson.
Þar er Jón Ragnarsson efstur með 52
stig, Tryggvi annar með 45 stig og
Atli Vilhjálmsson er þriðji með 25
stig.
Fyrir fyrsta sætið í rallinu fást 20
stig í stigakeppni til fslandsmeist-
aratitils, annað 15 og þriðja 12 stig.
Því verða Halldór og Ómar að sigra
ef annarhvor ætlar sér titilinn, en
Jóni nægir að lenda í öðru sæti ef
Halldór og Tryggvi sigra. Hvernig
þessir keppendur ætla að haga
akstrinum kostar örugglega heila-
brot hjá einhverjum.
f fyrsta skipti í langan tíma verð-
ur hörð keppni um sigur í vélarflokki
0-1300 cc bíla. Þar er skrautlegasti
bíll rallsins, Zaztava bílkríli þeirra
Braga Guðmundssonar og Matthías-
ar Sverrissonar. Síðast er Mbl. frétti
af þeim félögum leituðu þeir dyrum
og dyngjum að varahlutum í gír-
kassa bílsins. Ef einhver á slfkt er þá
félaga að finna á bílaverkstæðinu
Toppur í Kópavogi.
Skoðun keppnisbílanna fer fram í
kvöld kl. 21.00 og verður síðan fund-
ur með keppendum.
Listasprang í bjarginu í Spröngunni í Eyjum. Ljósmynd Mbl. Sigurgeir.
Bjargveiðiveizla
Hótels Loftleiða
ÁRLEG bjargveiðimannaveizla Hótels Loftleiða í stíl bjargveiði-
manna í Vestmannaeyjum verður í Víkingasal hótelsins nk. laugar-
dagskvöld. Um árabil hefur Hótel Loftleiðir boðið upp á slíka
veizlu, en lögð er megináherslan á lunda, nýja, reykta og mariner-
aða, auk súlu bæði nýrrar og reyktrar, en hlaðborð bjargveiði-
mannaveizlunnar er hlaðið ýmsum dýrindis krásum úr sjó og lofti.
Veizlustjórn er í höndum Eyjamannanna Árna Johnsen, Sigurgeirs
Jónssonar frá Þorlaugargerði og Ása í Bæ, en að loknu borðhaldi er
dansað fram eftir nóttu við undirleik Stuðlatríós.
Listahátíð í léttum dúr annað kvöld
„LISTAHÁTÍÐ í léttum dúr“ verður haldin í Háskólabíói annað kvöld,
fóstudagskvöld, kl. 23:15, í tilefni af 10 ára afmæli Slysasjóðs Félags ís-
lenskra leikara og Starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar fslands. Þar
koma fram margir af færustu listamönnum þjóðarinnar og má þar nefna
Sinfóníuhljómsvcit fslands ásamt einsöngvurum og kór Þjóðleikhússins.
íslenski dansflokkurinn sýnir listdans og margir leikarar skemmta með
fjölbreytilegri dagskrá garaanmála.
Heimsforseti Kiwanis
á Islandi:
Á fundi hjá
Nes-klúbbnum
Heimsforseti Kiwanishreyfingarinn-
ar, Aubrey E. Irby, frá Tyler í Texas er
staddur hérlendis og situr hann kvöld-
verðarfundi hjá Kiwanisklúbbnum Nes
á Seltjarnarnesi í kvöld.
Aubrey E. Irby verður gestur
Nes-klúbbsins í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, og heldur þar ræðu. Þetta
er eini opni fundurinn, sem heims-
forsetanum gefst tími til að sitja
hérlendis að þessu sinni og vonast
forvígismenn hreyfingarinnar til að
sem flestir Kiwanismenn sjái sér
fært að mæta og eru þeir beðnir að
boða komu sína. Fundurinn er hald-
inn í félagsheimilinu á Seltjarnar-
nesi og hefst hann kl. 19.30.
Aubrey E. Irby, heimsforseti Kiwan-
ishreyfingarinnar.
Slysasjóður FÍL og SSÍ var
stofnaður til að leggja lið þeim er
orðið hefðu fyrir slysum og/eða
aðstandendum þeirra, er látist
hefðu af slysförum. Ákveðið var
að efna til skemmtunar til að afla
sjóðnum tekna og var fyrsta
skemmtunin haldin 11. maí 1973,
sem síðan er talinn stofndagur
sjóðsins. Skipulagsskrá sióðsins
hlaut staðfestingu forseta Islands
21. desember það ár og var þar
ákveðið að sjóðurinn skuli vera í
vörslu Siysavarnafélags íslands,
er tilnefni einn aðila í stjórn
sjóðsins ásamt fulltrúum frá Fé-
lagi íslenskra leikara og Starfs-
mannafélagi Sinfóníuhljómsveitar
íslands. Stjórnin hefur verið
óbreytt í tíu ár, en hana skipa
Guðbjörg Þorbjarnardóttir leik-
ari, Lárus Sveinsson hljóðfæra-
leikari og Hannes Þ. Hafstein,
framkvæmdastjóri Slysavarnafé-
lagsins.
Félagar í FÍL og SSÍ hafa árlega
efnt til skemmtana, þar sem lista-
fólk félaganna hefur endurgjalds-
laust annast undirbúning og fram-
kvæmd. Úthlutun úr sjóðnum hef-
ur farið fram árlega síðan 1974 og
hefur nú verið veitt rúmum 96
þúsund krónum til 25 aðila víðs-
vegar um landið. Sala aðgöngu-
miða á skemmtunina annað kvöld
verður í Bókabúð Lárusar Blöndal
á Skólavörðustíg og í Háskólabíói.
Á morgun, föstudag, kl. 16 mun
Sinfóníuhljómsveitin leika létt lög
á Lækjartorgi og leikarar selja að-
göngumiða, að því er segir í frétta-
tilkynningu frá sjóðnum.
„Ógerlegt að fá
brúður til að brosa“
Leikbrúðuland sýnir í Iðnó:
segir Þórhallur Sigurðsson, leikstjóri
VINALEGUR hópur leikbrúða, ásamt sköpurum sínum og aðstandend-
um, tók á móti hlaðamanni er hann kom f kjallara húss þess, sem
stendur við Frfkirkjuveg númer 11, þar sem Leikbrúðuland hefur aðset-
ur sitt. Ástæða þessarar heimsóknar var blaðamannafundur, sem boðað
var til vegna nýs starfsárs sem nú er að hefjast hjá Leikbrúðulandi, og
þeirrar nýjungar, að sýningar Leikbrúðulands verða í Iðnó í vetur.
Iæikbrúðuland hefur starfað frá
árinu 1969. Að sýningunni í ár
standa Bryndís Gunnarsdóttir,
Hallveig Thorlacius, Helga
Steffensen og Þórhallur Sigurðs-
son, sem er leikstjóri sýningarinn-
ar. Er þetta í annað sinn, sem
hann leikstýrir sýningu hjá Leik-
brúðulandi. „Brúðurnar eru erfið-
ari viðfangs en mennirnir, það er
til dæmis alveg ógerlegt að fá
brúður til að brosa!" sagði Þór-
hallur og brosti breitt, er hann var
spurður hvort erfiðara væri að
leikstýra leikbrúðum en fólki.
Sýningin í ár er byggð á 4 einþátt-
ungum sem heita Ástarsaga úr
fjöllunum, Búkolla, Draumlyndi
risinn og Eggið.
Á blaðamannafundinum kom
m.a. fram að leikbrúðugerð er forn
tækni, sem upprunnin er í Indó-
nesíu en er tiltölulega ný listgrein
hér á landi. Sögðu aðstandendur
Iæikbrúðulands, að erfitt væri að
læra leikbrúðugerð á íslandi, og
engan skóla sem kenndi leikbrúðu-
gerð væri að finna á Norðurlönd-
um. Sögðust þær stöllur hafa lært
mikið af reynslunni við vinnu sína
í Leikbrúðulandi, en jafnframt
hefðu þær farið á mörg námskeið í
leikbrúðugerð bæði hér á landi og
erlendis. Einnig fara þær á brúðu-
leikhúshátíðir þegar færi gefst. Sú
sýning, sem nú er að hefjast, var
sýnd á alþjóðlegri brúðuleik-
húshátíð í Vasa í Finnlandi síðast-
liðið vor. Stefán Baldursson, leik-
hússtjóri Leikfélags Reykjavíkur,
sagði að sýningin væri það viða-
mikil að húsnæðið á Fríkirkjuvegi
dygði engan veginn. Því hefði orð-
ið samkomulag um að Leikbrúðu-
land sýndi í Iðnó á sunnudögum.
Sagði Stefán að salnum í Iðnó
hefði verið breytt í fyrra og væri
hann því hentugri fyrir barnasýn-
ingar nú en áður. Aftari hluti sal-
arins hefði verið hækkaður upp,
þannig að börn ættu nú betra með
að sjá það sem fram fer á sviðinu.
• „Ástarsaga úr fjöllunum" er í
leikgerð Hallveigar Thorlacius,
sem einnig gerði brúður og leik-
mynd. Upprunalega sagan er eftir
Guðrúnu Helgadóttur. Atli Heim-
ir Sveinsson samdi tónlistina sér-
staklega fyrir þessa sýningu.
Textann í „Ástarsögunni" flytja
leikararnir Jón Sigurbjörnsson og
Steinunn Jóhannesdóttir.
• „Draumlyndi risinn" og „Eggið"
eru eftir Helgu Steffensen og
gerði hún brúður og leikmynd
fyrir bæði verkin. „Draumlyndi
Adstandendur Leikbrúðulands, talið frá vinstri. Bryndís Gunnarsdóttir, Ha-
llveig Thorlacius, Þórhallur Sigurðsson, leikstjóri og Helga Steffensen. Stóra
brúðan, sem snæfir yfir alla heitir Flymbra og er aðalpersónan í „Ástarsögu
úr fjöllunum". Einnig sést í Búkollu, draumlynda risnn og tröllskessuna úr
„BÚkollu". Morgunbiaöiö/ól.K.M.