Morgunblaðið - 13.10.1983, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1983
Ctlitsteikning af frystihúsinu sem fyrirhugað er að reisa á Rifi. Þetta er norðurhliðin sem snýr út að höfninni.
Uppbygging Hraðfrystihúss Hellissands hf.:
„Stefnum að því að
taka fisk til söltunar
strax í þessum mánuði"
— segir Rögnvaldur Ólafsson framkvæmdastjóri
Yfirlitsmynd af Rifshöfn, sem sýnir vel staðsetningu nýja frystihússins.
UNNIÐ ER af kappi við að endur-
reisa fiskhúsin á Hellissandi sem
urðu eldi að bráð þann 17. ágúst sl.
og er gert ráð fyrir að þar verði
aftur hægt að taka á móti fiski til
söltunar í þessum mánuði. Þá hef-
ur verið ákveðið að endurbyggja
ekki frystihúsið á sama stað, held-
ur reisa nýtt frystihús á Rifi. Þegar
hefur verið hafist handa við það
verk og er stefnt að því að bygging-
in verði fokheld um miðjan des-
ember og komin í gagnið einhvern
tíma næsta sumar.
„Undirbúningur þessarar
framkvæmdar hófst strax dag-
inn eftir brunann, því mikilvægt
er að geta hafið að minnsta kosti
saltfisks- og skreiðarverkunina
sem allra fyrst,“ sagði Rögnvald-
ur Ólafsson, framkvæmdastjóri
Hraðfrystihúss Hellissands hf.,
en húsin sem brunnu eru í eigu
þess fyrirtækis.
„Það brann allt til kaldra kola
nema salthúsin, fiskimjölsverk-
smiðjan, skreiðarskemman og
ein geymsla. En þannig hagaði
til að við notuðum fiskmóttöku,
aðgerðarhús og kælda móttöku
sameiginlega fyrir frystingu,
saltfisk og skreið. Til þess að
geta hafið rekstur sem fyrst er
nauðsynlegt að endurbyggja
kældu móttökuna, aðgerðarhús,
vélhús, vinnusal, kaffistofu og
hreinlætisaðstöðu. Það er hörku-
lið sem vinnur i þessu og vonir
standa til að hægt verði að taka
á móti fyrsta fiskinum til sölt-
unar strax í þessum mánuði.
Frystingin verður hins vegar
að bíða fyrst um sinn. Það var
tekin ákvörðun um það að endur-
reisa frystihúsið ekki á sama
stað, heldur byggja nýtt á Rifi í
um þriggja kílómetra fjarlægð.
Það er að vísu óhagræði að hafa
rekstur fyrirtækisins á tveimur
stöðum, en það hefur einnig
ýmsa kosti að reisa nýtt frysti-
hús á Rifi. Þetta er framtíðar-
staður og höfnin þar er mjög
góð. Auk þess var það vilji skipu-
lagsstjóra ríkisins, hreppsnefnd-
Rögnvaldur Ólafsson fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hell-
issands.
ar og mikils meirihluta íbúanna
að nýtt frystihús yrði byggt á
Rifi.
Nýja frystihúsið verður um
2.100 fermetrar að flatarmáli,
eða lítillega stærra en það
gamla. Bygging frystihússins
var boðin út og bárust níu tilboð.
Við tókum því lægsta, frá ístak
hf., og hófu þeir verkið fyrir
skömmu. Húsið verður sett sam-
an úr steyptum einingum, sem
gerðar verða í Reykjavík og
fluttar á staðinn.
Þessi uppbygging kostar sitt
og tryggingarféð dugir engan
veginn til að endar nái saman,
svo við verðum að treysta á lána-
stofnanir með fjármögnun,"
sagði Rögnvaldur Ólafsson að
lokum.
Á þessum stað kemur nýja frystihúsið til með að rísa.
Uppbyggingu fiskhúsa Hraðfrystihúss Hellissands miðar vel áfram og reiknað með að starfsemin hefjist aftur í þessum mánuði.
Samþykkt
að aflétta
forkaups-
réttinum
eftir 30 ár
Á fundi borgarstjórnar Reykjavík-
ur á fimmtudag var tillaga Davíðs
Oddssonar, borgarstjóra, um að af-
létta forkaupsrétti á íbúðum í verka-
mannabústöðum eftir 30 ára sam-
fellt eignarhald samþykkt með 12
atkvæðum sjálfstæðismanna gegn 9.
Tekur ákvörðunin gildi frá og með 1.
nóvember nk.
í máli borgarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins kom fram að eðlilegt sé
að maður, sem átt hefur íbúð í 30
ár, fái að selja hana á frjálsum
markaði, þótt um verkamannabú-
staðaíbúð væri að ræða. Það væri
hagkvæmt bæði fyrir einstakling-
inn og þjóðfélagið. Skynsamlegra
væri að stefna að nýbyggingum á
verkamannabústöðum en að ríg-
halda í forkaupsrétt á 30—60 ára
gömlum íbúðum. Á árinu 1983
hefði byggingarsjóður verkamanna
haft 420 milljónir til ráðstöfunar
og þar af færu 90 milljónir króna
til kaupa á eldri íbúðum, sem
byggðar hafa verið á félagslegum
grundvelli. Dregst sú fjárhæð frá
þeim fjármunum sem til reiðu eru
til nýbygginga. Á sl. tveimur árum
hafa verkamannabústaðir aðeins
keypt 7 íbúðir, sem verið hafa í
samfelldri eign seljenda í 30 ár eða
meira. Þannig væri ljóst, að sala á
þessum íbúðum hefði nánast engin
áhrif á möguleika fólks til að eign-
ast húsnæði á félagslegum grund-
velli. Tveggja og þriggja herbergja
íbúðir í verkamannabústöðum
væru þær íbúðir sem mest gengju
kaupum og sölum í kerfinu og eftir
þeim væri eftirspurnin mest. Næðu
flestar þeirra aldrei 30 ára sam-
felldu eignarhaldi. Sú gagnrýni
kom fram á umsögn stjórnar
verkamannabústaða um þessa til-
lögu, að hún hefði ekki verið fag-
lega unnin, þannig að kostir henn-
ar og gallar væru metnir.
Borgarfulltrúar minnihlutans
lýstu sig andvíga þessari tillögu
með þeim rökum m.a. að afsal á
forkaupsrétti myndi draga úr
möguleikum til þess að leysa hús-
næðisvanda efnalítils launafólks og
að vafasamt væri að aðrir en erf-
ingjar seljenda myndu hagnast á
slikri ráðstöfun.
Skákmót
Tímaritsins Skákar:
Um þúsund
manns hafa
skráð sig
„UM ÞÚSUND manns hafa nú skráð
sig til þátttöku í skákmótið. Gífurleg-
ur áhugi er á mótinu og því hefur
verið ákveðið að framlengja frest til
þess að skila þátttökulistum um
nokkra daga,“ sagði Jóhann Þórir
Jónsson, ritstjóri Tímaritsins Skákar,
en hann hyggst halda fjölmennasta
skákmót fyrr og síðar þann 19. nóv-
ember næstkomandi.
„Allar símalínur hafa verið
rauðglóandi og fjölmargir einstakl-
ingar hafa síðustu daga verið að
biðja um gögn. Sérstaklega er
ánægjulegt hve mikill áhugi er úti
um landsbyggðina," sagði Jóhann
Þórir. Verðmæti verðlauna verða
þau hæstu sem verið hafa á móti
hér á landi — eða sem nemur
tveimur milljónum króna.
Höfóar til
.fólksí öllum
starfsgreinum!