Morgunblaðið - 13.10.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1983
19
Sigurður Sigurðsson og Vilhelm G. Kristinsson rifja upp atvik fri liðnum
dögum fyrir bókina „Komiði sæl!“. Myndin er tekin á heimili Sigurðar að
Espigerði 2 í Reykjavík.
Vaka með viðtalsbók við
Sigurð Sigurðsson fymim fréttamann:
„Komiði sæl!“
BÓKAFORLAGIÐ Vaka mun senda
frá sér á jólamarkaðinn hressilega
viðtalsbók við Sigurð Sigurðsson,
fyrrum íþróttafréttamann útvarps og
sjónvarps, sem Vilhelm Kristinsson
hefur skráð.
Bókin mun heita „Komiði sæl!“
en sú kveðja var eins konar vöru-
merki Sigurðar öll þau ár sem
hann starfaði við fréttamennsku
hjá útvarpi og sjónvarpi.
Samkvæmt upplýsingum for-
lagsins er frásögn Sigurðar mjög
lifandi og opinská varðandi það
sem gerðist bakvið tjöldin f ríkis-
fjölmiðlunum þá áratugi, sem Sig-
urður sinnti þar hinum ólíkustu
störfum og segir hann ekki síst frá
ýmsu, sem ekki var hægt að segja
í hljóðnemann. Svipað gildir um
skoðanir Sigurðar og frásagnir
sem tengjast íþróttahreyfingunni,
ekki síst upprifjanir hans úr
keppnisferðum íslenskra íþrótta-
manna til útlanda á norræn og
evrópsk stórmót og ólympíuleika.
Þetta er fyrsta bókin, sem Vil-
helm Kristinsson skrifar, en hann
starfaði lengi við fréttamennsku,
þar af áratug á fréttastofu út-
varpsins. Hann er nú fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
bankamanna.
í bók þeirra Sigurðar og Vil-
helms, „Komiði sæl!“, munu á
fjórða hundrað manns koma við
sögu og verða birtar margar
myndir, sem ekki hafa áður komið
fyrir almenningssjónir.
Akranes:
Sjúkrahúsið
fær góðar gjafir
Akranesi, 20. september.
NÝLEGA afhenti Kvenfélag Akra-
ness sjúkrahúsinu á Akranesi að
gjöf lyftubaðkar í handlæknisdeild
við athöfn, sem fram fór í sjúkrahús-
inu. Viðstaddir athöfnina voru
stjórnarmenn sjúkrahússins, yfir-
menn þess, auk kvenna úr kvenfé-
laginu.
Þórdís Björnsdóttir, formaður
Kvenfélagsins, afhenti gjöfina en
Ríkharður Jónsson veitti henni
viðtöku fyrir hönd sjúkrahússins.
Segja má að Kvenfélag Akran-
ess sé á margan hátt „óskabarn"
sjúkrahússins, en allt frá þvi að
hafist var handa við byggingu
sjúkrahúss hafa kvenfélagskonur
verið mjög örlátar í gjöfum til
þess og sýnt því mikla ræktarsemi
á allan hátt.
Kvenfélagið rekur sölubúð í
sjúkrahúsinu og vinna konurnar
Jólaóratoría
Schiitz frumflutt
á Akureyri 1977
VEGNA frétta um verkefni Polýfón-
kórsins á starfsárinu 1983—1984, þar
sem sagt er að Jólaóratoria Heinrich
Schiitz verði frumflutt f vetur, óskum
við að koma eftirfarandi á framfæri:
Fimmtudaginn 15. desember 1977
var Jólaóratoría Heinrich Schútz
frumflutt í Akureyrarkirkju. Flytj-
endur voru auk Passfukórsins á Ak-
ureyri hljómsveit Tónlistarskólans
ásamt kennurum og einsöngvararn-
ir Lilja Hallgrímsdóttir, Jón Hlöð-
ver Áskelsson og Sigurður Demetz
Franzson, stjórnandi var Roar
Kvam.
þar til skiptis í sjálfboðavinnu.
Afrakstur búðarinnar er síðan
notaður til kaupa á ýmsum hlut-
um líkt og nú átti sér stað.
Þá var sjúkrahúsinu nýlega af-
hent að gjöf málverk til minn-
ingar um Elínborgu Sigurðardótt-
ur ljósmóður. Gefendur málverks-
ins eru Sigurður B. Sigurðsson og
fjölskylda og Enrique Llorens og
fjölskylda. Elínborg starfaði á
sjúkrahúsinu sem ljósmóðir, en
hún lést fyrir aldur fram.
JG.
rw'-
Krislin
Guðmundsdóllir
Kegina
Stefnisdóllir
Helfja
Daníelsdóllir
Krislján
Sigurðsson
Snorri
Ingimarsson
Ráðstefna
Um konuna og
heilbrigðismálin
haldin í Kristalsal Hótels Loftleiða, Reykjavík, sunnudaginn, 16.
október 1983 og hefst kl. 9.00.
FormaöurSambands Alþýöuflokkskvenna, Kristín Guömundsdóttir, setur ráðstefnuna.
Ráöstefnustjóri: Kristín H. Tryggvadóttir, kennari.
9.05 Erindi:
Kynning á kvenlegum liffærum og starfsemi þeirra:
Regína Stefnisdóttir, hjúkrunarfræöingur og kennari.
Meðganga/fæðing:
Helga Daníelsdóttir, yfirljósmóöir Mæöradeildar Heilsuverndarstöðvar Reykja-
víkur.
Brjósta- og móðurlífskrabbamein: ~
Kristján Sigurösson, yfirlæknir Leitarstöðvar Krabbameinsfélags íslands.
Snorri Ingimarsson, sérfræðingur í krabbameinslækningum.
Getnaöarvarnir og fóstureyðing:
Þóra Fischer, sérfræðingur í kvensjúkdómum.
Geöheilsa kvenna á breytingarskeiöum:
Svanlaug Árnadóttir, geöhjúkrunarfræöingur.
Hver er reynsla þín af heilbrigöiskerfinu, hverjar eru hugmyndir þínar um breytingar:
Þórdís Þormóðsdóttir, húsmóöir.
Hvernig er skipulagi heilbrigöisþjónustunnar háttaö á íslandi:
Páll Sigurðsson, ráöuneytisstjóri.
9. Hvernig er hægt aö hafa áhrif á forgangsverkefni innan heilbrigöisþjónustunnar:
Árni Gunnarsson, fyrrverandi alþingismaöur.
Kl. 10.00 Kaffihlé.
Kl. 12.00 Hádegisveröarhlé.
Kl. 15.30 Kaffihlé.
Kl. 16.00 Pallborösumræöur:
Þátttakendur eru fyrirlesarar ráöstefnunnar.
Fyrirspurnir frá þáttakendum.
Stjórnandi: Gréta Aöalsteinsdóttir, hjúkrunarforstjóri.
Kl. 18.00 Ráöstefnuslit.
Kl.
1.
2.
3. -4
5.
8.
Gréta
Aðalsteinsdóttir
Ráðstefnan er öllum opin
Ráðstefnugjald er kr. 400,00 (innifalið m.a. fiskréttur, súpa, kaffi).
Þátttaka tilkynnist í síma 29244 kl. 9—5.
SAMBAND ALÞÝÐUFLOKKSKVENNA
Þóra
Fischer
Svanlaug
Árnadóttir
Páll
Sigurðsson
Þórdís
Þormóðsdóttir
Lux
HELGARFERÐIR - VIKUFERÐIR
Flug og gisting aaj
Verð frá krónum
Ath. einnig feröamöguleika til Parísar
Nánari upplýslngar fást hjá Söluskrif-
stofum Flugleiða umboðsmönnum og
ferðaskrlfstofum.
FLUGLEIÐIR .
Gott fólk hjá traustu félagi *