Morgunblaðið - 13.10.1983, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1983
Sfldveiðar í Norðursjó:
Norðmenn fá leyfi
til að veiða á ný
08ló, 12. október. Frá Per A. Borglund, frétUriUra Morgunbladsins.
NORSKUM skipum er nú heimilt að
hefja síldveiðar á veiðisvæði Efna-
hagsbandalagsins í Norðursjó að
nýju. Er árskvótinn 31.000 tonn.
Þetta varð fyrst ljóst eftir fund
sjávarútvegsráðherra Efnahags-
bandalagsins í byrjun síðustu
viku. Var kvóti Norðmanna endur-
skoðaður í kjölfar mikilla umræð-
na um gagnkvæm fiskveiðiréttindi
innan bandalagsins. Samkvæmt
þessu nýja samkomulagi mega
Norðmenn veiða 10.000 tonn af
síld til viðbótar.
Hundahald bannað
með lögum í Peking
Peking, 12. október. AP.
BORGARYFIRVÖLD í Peking hafa bannað hundahald í borginni. Segja þau
hunda ógna öryggi almennings og af þeim stafi jafnframt óþrifnaður, auk
þess sem þeir geta borið með sér ýmsar pestar. Lögreglan er þó undanþegin
banninu og fær að hafa hunda sína áfram og ennfremur munu einstaka
undanþágur leyfðar að uppfylltum viðhlítandi skilyrðum.
Að sögn borgaryfirvalda tekur
bannið gildi þann 1. nóvember
næstkomandi. Brot á því hefur í
för með sér sekt, sem nemur um
700 íslenskum krónum. Jafnframt
verður viðkomandi hundi umsvifa-
laust lógað. Gerist það, að hundur
bíti mann, þarf eigandi hans að
standa straum af öllum hugsan-
legum lækniskostnaði fórnar-
lambsins, auk þess sem sektin tvö-
faldast.
Fjöldi hunda hefur farið ört
vaxandi í Peking á undanförnum
árum. Hefur í síauknum mæli ver-
ið kvartað undan hundum, sem
flækst hafa að heiman og átt það
til að glefsa í fólk eða hreinlega
bíta. Þrátt fyrir þessi nýju lög yf-
irvalda er talið, að erlendum
sendiráðsstarfsmönnum líðist að
hundsa bannið.
Lest flutninga-
skipa föst í ís
Moskvu, 12. október. AP.
LEST 15 sovéskra flutningaskipa er
nú lokuð inni á Chukot-hafi á milli
austasta odda Sovétríkjanna og Al-
aska, þar sem óvenjumikill ís er nú
á þeim slóðum miðað við árstíma.
Eitt skipanna hefur þegar sokkið í
sæ undan þrýstingi íssins og öðru er
nú ógnað að því er skýrt var frá í
Izvestia í gær.
Segir blaðið þennan mikla ís
stafa af því, að suðrænir vindar,
sem ríkja þar að sumri til, hafi
látið á sér standa að þessu sinni og
því hafi hitastig sjávar verið mun
lægra en venja ber til þegar vetur
gengur í garð. Sovésk flutninga-
skip sigla þessa leið með reglu-
bundnu millibili og er þetta í
fyrsta sinn í fjöldamörg ár, að þau
lenda í slíkum vandræðum á þess-
um slóðum.
Hárgreiðslan kost
aði hann vinnuna
Bristol, Englandi, 12. október. AP.
ATJÁN ára gömlum starfsmanni
hefur verið sagt upp hjá Rolls
Royce-verksmiðjunum í Bristol.
Uppsögn þessi þykir kannski ekki
tíðindum sæta, nema fyrir þá sök,
að ástæðan fyrir henni þykir harla
óvenjuleg. Porráðamönnum fyrir-
tækisins töldu öðrum starfs-
mönnum fyrirtækisins nefnilega
stafa hætta af hári piltsins.
Sá, sem hér um ræðir, heitir
Peter Mortiboy og er einlægur
unnandi svonefnds pönk-rokks.
Til þess að undirstrika áhuga
sinn enn frekar fylgir Mortiboy
hártísku pönkaranna út í ystu
æsar. Er hárið greitt í langa
brodda og feiti borin í svo þeir
standi út í loftið. Reyndar var
Mortiboy öllu stórtækari og not-
aði þykkt lím, sem síðan varð
grjóthart.
Og það voru einmitt þessir
broddar, sem forráðamenn fyrir-
tækisins óttuðust. Töldu þeir
hættu á, að þeir kynnu að rekast
í augu annarra starfsmanna og
valda þannig alvarlegu tjóni á
sjón þeirra. Broddarnir voru
enda ekki af styttri gerðinni,
20-22 sm langir.
Sjálfur unir Mortiboy þessum
úrskurði illa og segir röksemda-
færslu fyrirtækisins á sandi
byggða. „Ég hef farið allra
minna ferða án þess nokkurn
tímann að valda fólki meiðslum.
Eina vandamálið er þegar ég sef.
Þá verð ég alltaf að liggja á
maganum."
Ausíurriki:
Vilia halda áskorendaeinvígið
Vín, 12. október. AP.
Borgarstjórnin í austurrísku borg-
inni Hollabrunn hefur boðist til að
halda áskorendaeinvígið í skák, sem
nú hefur verið ákveðið að halda að
nýju, milli þeirra stórmeistaranna
Zoltan Riblis frá Ungverjalandi og
Vasily Smyslovs frá Sovétríkjunum.
Forseti austurríska skáksam-
bandsins, Kurt Jungwirth, sagði,
að borgarstjórnin í Hollabrunn
hefði boiðist til að skipuleggja ein-
vígið eftir að keppendurnir fyrr-
nefndu hefðu báðir lýst áhuga sín-
um á Austurríki sem keppnisstað.
Sagði hann ennfremur, að hitt
einvlgið, milH þeirra Korchnois og
Kasparovs, færi að öllum líkind-
um fram í Rotterdam í Hollandi.
Florencio Campomanes, forseti
Fide, vék þeim báðum, Smyslov og
Kasparov, frá keppni 9. ágúst sl.
vegna þess, að þeir vildu ekki tefla
í Pasadena og Abu Dhabi, en nú
hefur samist um að halda einvígin
þrátt fyrir allt.
Gekk berserksgang
og myrti þrjá menn
í SÍÐUSTU viku gekk ungur
maður berserksgang í Quezon,
einni útborga Manila á Filipps-
eyjum, og stakk þrjá menn til
bana áður en hann féll sjálfur
fyrir byssukúlum lögreglunnar.
A efri myndinni sést hvar lög-
reglumaðurinn Epifano Canson,
sem skarst í leikinn þótt hann
væri ekki á vakt, skýtur að unga
manninum en skotið geigaði og
þegar hann reyndi aftur var
byssan tóm. Canson ætlaði þá að
flýja en hrasaði og féll í götuna.
Hér er ungi maður-
inn kominn yfir
Canson með hníf-
inn og því lauk
þannig, að hann
stakk lögreglu-
manninn til bana
mörgum stungum.
Þá kom annar lög-
reglumaður aðvíf-
andi og skaut unga
drápsmanninn til
bana.
Fjölmennustu mótmæli í Chile í áratug:
Margir báru myndir
af horfnum ættingjum
Santiago, Chile, 12. október. AP.
TUGIR þúsunda almennra borgara
efndu til mikilla mótmæla í höfuð-
borg Chile, Santiago, í gærkvöldi.
Eru þetta fjölmennustu mótmæli
gegn stjórnvöldum í áratug, eða frá
því herstjórnin tók við völdum. Mót-
mælin voru haldin með samþykki
yfirvalda, en lögregla beitti síðan
vatni og táragasi til að sundra
mannfjöldanum.
Samkoman í gærkvöldi var sú
sjötta í röð mánaðarlegra mót-
mæla gegn herstjórninni. Beinist
óánægja fólksins einkum gegn
miklu atvinnuleysi í landinu og
öllum þeim þvingunum, sem al-
menningur er beittur af stjórn
Pinochet. Mótmælin í gær fylgdu í
kjölfar skipulagðra hverfisbund-
inna mótmæla undanfarna daga.
Mótmælafundurinn í gærkvöldi
var haldinn í skjóli mánaðargam-
alla laga, sem kveða á um aukið
fundafrelsi í landinu. Yfirvöld
voru hins vegar ekki sátt við upp-
haflegan samkomustað, þar sem
25.000 manns efndu til fundar í
síðasta mánuði og lýstu yfir
stuðningi við stjórnvöld. Var
fundurinn í gær haldinn fáum
kílómetrum frá þeim stað og er
talið að 50.000 manns hafi safnast
þar saman.
Margir fundarmanna báru mót-
mælaspjöld og þá sáust einnig
nokkur stór líkneski af Salvador
Allende, fyrrum forseta landsins,
sem hrundið var frá völdum í bylt-
ingu hersins 1973. Þá bar fjöldi
fólks stórar myndir af ættingjum,
sem horfið hafa í valdatíð herfor-
ingjastjórnarinnar.
Viðurkenna slys
við geimskotið
Moskru, 12. oklóber. AP.
HEIMILDIR á meðal sovéskfa yfír-
valda hafa tjáð vestrænum frétta-
mönnura, að þrír geimfarar hafi slas-
ast þegar slys varð við geimskot fyrir
þann 27. september síðastliðinn.
Fyrstu fregnir af slysi þessu
bárust frá Bandaríkjamönnum í
byrjun mánaðarins. Þá var ekki
vitað hvort manntjón hefði orðið
þegar eldflaugin, sem bera átti
geimfarið, sprakk.
Geimfararnir þrír, þar af ein
kona, áttu að halda til móts við
Salyut-7 geimfarið, sem er á braut
um jörðu. Var ætlunin að þeir
dveldust í vikutíma í Salyut-7.
Tveir geimfarar eru þar um borð
og hafa verið frá 28. júní.