Morgunblaðið - 13.10.1983, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1983
ást er...
... aö gera gott úr mistök-
um hans.
TM Rea U.S. Pit. 0(1 — aN rigMs reserved
c 1981 Loe Angetes Times Syndicete
IjíHu t'ins «)> þú sért ekki systir
mín, því mi(> lanfrar art gera hana
þarna afltrýriísama.
láttu ekki skotiA geiga!
HÖGNI HREKKVÍSI
Lát mig minnast
ábyrgðar minnar
Droplaug-
arstaðir
virðast
gleymast
E.Í.V. skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Ef þú hefur pláss í einhverju
horni hjá þér, mættir þú minnast
á, að það indæla og fórnfúsa fólk,
sem ver dýrmætum tíma sínum í
að skemmta og stytta stundir
eldri borgara okkar á þeim dval-
arheimilum, sem eru hér í borg og
nágrenni, mætti muna eftir að við
eigum nýtt og prýðis gott dvalar-
heimili við Snorrabraut, Droplaug-
arstaði. Það er eins og þetta vel
gerða fólk sem heimsækir Grund
o.fl. heimili gleymi að á Drop-
laugarstöðum er ágætt hljóðfæri
og myndband og margt annað sem
hægt er að nota til dægrastytt-
ingar fyrir dvalargesti ef einhver
lítur til þeirra og eyðir með þeim
smá tíma.
Það er ails ekki þörf á löngu og
vönduðu dagskrárefni, en bara að
sýna þessu fólki smá vinsemd og
láta það finna að það er ekki alveg
gleymt af okkur samborgurunum.
Þetta fólk er jú búið að þjóna
okkur yngri borgurunum vel og
dyggilega langa ævi, og því finnst
nú fimmtudagskvöldin (sjón-
varpslausu kvöldin) stundum
daufleg. Þó gera þær ágætu stúlk-
ur sem þarna vinna allt fyrir fólk-
ið sem þær hafa tíma til, með
kvöldvökum og fl. En það er til-
breytni fyrir þetta fólk að sjá ný
andlit endrum og eins, og það hef-
ur nægan tíma til að hlusta.
Vilt þú vinsamlega minnast á
þetta ef þú átt smá horn laust við
tækifæri í því plássi í blaðinu sem
þér er ætlað.
Ég á móður nokkuð aldraða
þarna og hef svolítið orðið vör við
að Droplaugarstaðir virðast
gleymast í þessu efni.
Kærar þakkir."
Svafar Bjarnason, Kópavogi,
skrifar:
„Velvakandi.
Þá er umferðarvikan á enda
runnin og langt liðið á norræna
umferðaröryggisárið. öllum hefur
boðist þátttaka og skulum við
vona, að menn hafi notfært sér
það og lært eitthvað af því. Til
dæmis það að hafa bifreiðir sinar
í lagi, í stað þess að aka á þeim
eineygðum eða hljóðkútslausum,
svo að dæmi sé tekið. Sá sem hefur
skilið mikilvægi þessa þáttar í
umferðinni og tekið sig á i þeim
efnum, hefur um leið stuðlað að
öryggi sínu og annarra, að betri
umferðarmenningu.
En það er þetta með tímaleysið,
sem angrar mörg okkar. Við meg-
um ekki vera að neinu. Við höfum
varla tíma til að fara í vinnuna.
Tíminn er svo naumur, að við
megum ekki við að missa svo mik-
ið sem eina sekúndu. Þess vegna
eigum við svo bágt með að taka
tillit til erfiðra aðstæðna í um-
ferðinni. (Það er verið að tala um
að við eigum að haga akstrinum
eftir aðstæðum hverju sinni.) Við
höfum hreinlega ekki tíma til
þess. Og svo naumur er tíminn, að
við megum ekki einu sinni vera að
því að kveikja ökuljósin.
Það er skrýtið að þurfa að segja
þetta, en það er sannleikur samt.
Það vitum við vel, því að við sjáum
ljóslausa bíla í röðum, þegar full
ástæða væri til að hafa ökuljósin
á. Og ökumennirnir eru oft svo
sofandi, að þeir hafa ekki sinnu á
að kveikja ljósin, þó að við bend-
um þeim á það með því að blikka
ljósum. Og ég spyr: Hvað fleira
gæti ekki hent þessa ökumenn,
vegfarendur góðir?
Hvort sem við erum akandi eða
gangandi, skulum við nú hugsa
með hlýjum hug og hjarta um allt
það sem við eigum sameiginlegt.
Loks langar mig til að láta eftir-
farandi ferðabæn fylgja með þess-
um orðum:
Drottinn Guð, veit mér vernd þína
og lát mig minnast ábyrgðar minnar,
er ég ek þessari bifreið.
í Jesú nafni. Amen.“
Útvarpsdagskráin dæmigerð
fyrir steinrunna kerfiskalla
H.G. — þreyttur útvarpshlustandi
skrifar:
„Velvakandi.
í sumar lágu fyrir niðurstöður
skoðanakönnunar þeirrar sem
Ríkisútvarpið efndi til meðal hlust-
enda. Þær sýndu aðeins það sem ðll-
um var löngu orðið ljóst nema ráða-
mönnum útvarpsins, sem sé að yfir-
gnæfandi meirihluti hlustenda vildi
fá mun meira af popp- og rokktón-
listarþáttum og létta viðtalsþætti
með tónlist inni á milli, eins og
laugardagseftirmiðdagsþættina {
sumar. Og nú átti maður von á, að
ráðamennirnir tækju sig á með
lækkandi sól og vetrardagskrá og
byðu hlustendum upp á nýja og
ferska dagskrá, þar sem leitast væri
við að fara eftir niðurstöðum skoð-
Þessir hringdu .. .
Leiðrétting
Skúli Möller, formaður karla-
kórsins Fóstbræðra hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — I
Velvakanda í dag (miðvikudag)
anakönnunarinnar (allavega f aðal-
atriðum): þungir menningarþættir
fengju að finna fyrir niðurskurð-
arhnífnum, en létta efnið aukið sem
því næmi.
En hvað gerist? Jú, svarið er:
Nákvæmlega ekki neitt.
í vetur skal útvarpsdagskráin
vera jafnhundleiðinleg og áður, ef
ekki leiðinlegri (í refsingarskyni?). í
stað allra skemmtilegu tónlistar-
þáttanna sem maður átti von á,
verða sömu grautfúlu kvöldvökurn-
ar, sinfóníuvælið, ljóðalesturinn og
framhaldssögurnar. Ekki svo að
skiija að þessir leiðindaþættir megi
ekki heyrast í útvarpinu, öðru nær
(einhvers staðar verða vondir að
vera). En hvaða tilgangi þjónar það
eiginlega, að t.d. nú á föstudaginn
er haft eftir 5764—3498, að
karlakórinn Fóstbræður hafi
komið fram í tilteknum sjón-
varpsþætti. Þarna var um að
ræða Karlakór Reykjavíkur. í
framhaldi af því sem þarna er
sagt er rétt að taka fram, að
Fóstbræður hafa ekki komið
fram í sjónvarpsþætti enn sem
komið er. Um margra ára skeið
voru kjólföt hefðbundinn klæðn-
aður karlakóra og halda Fóst-
bræður enn tryggð við þá hefð,
einn karlakóra í landinu, og
klæðast ætíð kjólfötum á opin-
berum tónleikum, hvort heldur
er innan lands eða utan.
verður stanslaust sinfóníuvæl frá
kl. 14.30 — 17.10, tveir heilir klukku-
tíma þættir í lotu, og ekki nóg með
það, heldur skal bæta hálftlma við
um kvöldið, auk þess sem hálftfma
skammtur verður fyrr um morgun-
inn. Þá er hinn ágæti þáttur Guð-
mundar Benediktssonar, Upptaktur,
látinn víkja (að sjálfsögðu) yfir á
þann tíma sem Þriðjudagssyrpa
hafði í sumar. En hvar er þá Þriðju-
dagssyrpa? Jú, jú, hún er bara horf-
in og ekkert komið í staðinn. Sömu
sögu er að segja um laugardagseft-
irmiðdagsþættina, sem bar mjög
hátt í könnuninni. Það er búið að
taka þá út af dagskrá og setja ein-
hvern hámenningarlegan listaþátt f
staðinn!!!
Það er sama hvar drepið er niður:
Útvarpsdagskráin er alveg dæmi-
gerð fyrir steinrunna kerfiskalla,
sem virða óskir hlustenda að vett-
ugi. Og til að kóróna heimskuna eru
allir þeir sem voga sér að setja upp
eigin útvarpsstöðvar miskunnar-
laust lögsóttir og tæki þeirra gerð
upptæk (minnir helst á aðgerðir
stjórnvalda fyrir austan járntjald).
Það er augljóst mál, að útvarps-
ráð verður að gera sér grein fyrir, að
það er gersamlega óhæft til að reka
útvarp. Það verður þvi að þola sam-
keppni frá frjálsum útvarpsstöðv-
um, sem undir ströngum lögum
myndu bjóða hlustendum upp á
vandað útvarpsefni, sem þeir vilja
hlusta á. Og það er einmitt mergur-
inn málsins."