Morgunblaðið - 13.10.1983, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1983
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
, TIL FÖSTUDAGS
Um
mánuði
ársins
Fyrir nokkrum dögum var
minnst á kvæðið um mánuði
ársins, hina tólf syni tímans,
hér í blaðinu (í Dagbókinni).
Aðalbjörg Baldursdóttir,
Rvík, og Guðrún Helgadóttir,
Hafnarfirði, höfðu samband
við okkur og hjálpuðu upp á
sakirnar. Kvæði þetta birtist í
lestrarbókinni „Ungi litli“,
sem Steingrímur Arason tók
saman, og eftir því sem næst
verður komist, mun kvæðið
vera eftir hann.
Hinir tólf synir tímans
Tólf eru synir tímans,
sem tifa fram hjá mér.
Janúar er á undan
með árið í faðmi sér.
Febrúar á fannir
rí læðist geislinn lágt.
mars þó blási oft biturt,
þá birtir smátt og smátt.
í apríl sumrar aftur
rí ómar söngur nýr.
maí flytur fólkið
og fuglinn hreiður býr.
í júní sest ei sólin,
brosir blómafjöldi.
júlí baggi er bundinn
og borðuð töðugjöld.
í ágúst slá menn engið
og börnin tfna ber.
í september fer söngfugl
og sumardýrðin þverr.
í október fer skólinn
að bjóða bðrnum heim.
í nóvember er náttlangt
í norðurljósa geim.
Þótt desember sé dimmur
dýrðleg á hann jól.
Með honum endar árið
og aftur hækkar sól.
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 11 og 12,
mánudaga til lostudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
verða að fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina þvf til lesenda blaðsins
utan höfuðborgarsvæðisins, að
þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja
hér í dálkunum.
í anda friðar-
hugsjónarinnar
Auðbjörg skrifar:
„Hvernig geta friðargöngur
talist róttækar? Þar er verið að
berjast fyrir lífinu, sem er
íhaldssamasta og elsta bar-
áttuefni mannsins.
Þetta sögðu þær María Jó-
hanna Lárusdóttir og Guðrún
Agnarsdóttir þingmaður á
blaðamannafundi, þegar þær
komu aftur heim úr friðar-
göngu kvenna í sumar.
Þessar tvær konur eiga
vissulega skilið þakklæti
okkar, af því að þær voru full-
trúar íslands í friðargöngu
norrænna kvenna, sem farin
var frá New York til Washing-
ton. Þær eru búnar að upplifa
fagra og dýrmæta reynslu, sem
verður vonandi upphafið að því
sem þær vilja og geta gert
ásamt öðrum konum fyrir frið-
arhugsjónina hér heima.
Og þar sem Guðrún Agnars-
dóttir er þingmaður, þá er von-
andi að hún taki nú upp bar-
áttu fyrir því á næsta þingi, að
fóstureyðingafrumvarpið verði
rækilega endurskoðað og helst
að lögin um frjálsar fóstureyð-
ingar verði numin úr gildi og
fóstureyðingar ekki leyfðar
nema í neyðartilfellum. Slíkt
væri í anda friðarhugsjón-
arinnar."
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Honum var orðið það afhuga.
Rétt væri: Hann var orðinn því afhuga.
SIGGA V/öGA £ ‘ÍILVE&W
'MFA'
Félagsmálaskóli alþýöu
1. önn 30. október til 12. nóvember.
1. önn verður haldin í Félagsmálaskóla alþýðu
dagana 30. okt.—12. nóv. nk. í Ölfusborgum.
Viðfangsefni annarinnar er einkum eftirfarandi:
Félags- og fundarstörf, ræðumennska, framsögn,
skipulag og starfshættir ASÍ, saga verkalýöshreyf-
ingarinnar, vinnuréttur, stefnuyfirlýsing ASÍ, kjara-
rannsóknir, og vísitölur, undirstööuatriði félags-
fræði, vinnuvernd og hópefli (leiöbeining í hóp-
vinnu).
Námstafið fer fram í fyrirlestrum, hópvinnu og al-
mennum umræðum. Flesta daga er unnið frá
08.30—19.00 með hléum. Nokkur kvöld á meðan
skólinn starfar verða menningardagskrár, list-
kynningar, upplestur og skemmtanir.
Félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eiga rétt á skólavist
í Félagsmálaskólanum. Hámarksfjöldi á önninni er
25.
Umsóknir um skólavist þurfa aö berast skrif-
stofu MFA fyrir 26. október.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu MFA
Grensásvegi 16, sími 84233.
Menningar- og fræöslusamband alþýöu.
Hamar og sög
er ekki nóg
NEMA ÞÚ VEUIR RÉTTA EFNIÐ**
Vegg- og loftklæðning
í glæsilegu úrvali
úr eik, aski, beiki, gullálmi, furu,
antikeik, mahogany, palesander oa ••
10 tegundir til viöbótar. I BJÖRNINN HF
V«rð frá aöelns kr. 75 pr m’. Skúlatúni 4 - Simi 25150 - Reykjavík
EG GET EKKI
BORGWÞÉR FYRR
EN R MORGUN, MRGGfl.
ÞEIR ORBGR EKKl i HRPP-)
DR'CTTINU FVRR EN ÞR,
izt
'J/OG HVERT /KFUlPfl^
VMiÐny