Morgunblaðið - 30.11.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1983
19
eftir ljóðvinir
dáin grðfinni
höfum á valdi okkar
eldtungumálið
Það holar innan slagorð
holar innan vígorð
uns þau bresta utan af engu.
Takið
Bókmenntir
Sigurður Haukur Guðjónsson
í brennunni
Höfundur: María Skagan
Prentun: Leiftur hf.
Útgefandi: Höfundur
Mér var að berast 5. bók Maríu
og forvitnum huga greip ég hana
höndum. Hvað getur verið að ffetta
úr myrkrahylnum? spurði sál mín,
sem veit um þá líkamlegu þjáningu
er faðmað hefir og kramið skáldið
daga og ár, heft það við beð. En það
var ekki bikar myrkurs sem mér
var réttur, heldur ljóss. Ljóðin
hennar Maríu eru boð sálar til
taktstigs í glímu við gátur ekki
hennar eigin heldur lifsins, gátur
þínar, gátur mínar. Hvað er kjarni,
hvað er hismi, hví veljum við stríð
fyrir frið, hví nærist auður minn á
hungri þínu?
Við munum
koma hér aftur
að gera óvirk
orð og sprengjur.
Æ og aftur,
uns við
og getum sagt
með sanni:
Lýs milda ljós.
Já, ljósið heillar hug hennar, aft-
ur og aftur vekur það henni ljóða-
þrána:
Leikur ljóskviku’
að óhagganieik fjallsins
býður í grun
að heimurinn sé harpa
í geislavirkum höndum.
Hve breytilega ómandi
og brothætt sú harpa.
Myndmál Maríu er meistaralegt
á stundum. Um unga stúlku segir
hún:
sáttmáli gullinn
sólar og jarðar.
Um hinn sigrandi mátt segir
skáldið:
Hefurðu heyrt það
sem þegir gegnum hrópið
sterkara en dauðinn?
Víst verður Maríu til kvala sinna
á stundum. I ljóðinu Bæn segir
hún:
Sól leggðu mig ljósi í gegn
svo mér blæði út þessu sára myrkri.
Læstu mig sólstöfum
í arma lífsins.
Bókinni lýkur á 5 ljóðmyndum er
hún kallar svo. Efnistök hennar
þar eru heillandi skemmtileg,
minna mig stundum á ljóðmál
Gibrans. Tökum sem dæmi Mynd
nr. 2:
Mynd númer tvö
er stillt á ást.
Kona teygir fram fíngjörðar
hendur mót elskhuga sínum.
Þau fallast hljóðlega í faðma
og hafið ómar.
Þau kyssast lengi
og hafið rís í hvítum öldum
brýtur í leiftur kristal ljóssins.
Kossar hans fiðrildi á brjóstum hennar
bera á vængjum sér skóginn
ilmandi af stjörnum.
María Skagan
Þaú sogast í djúpið
— ekki lengur hann og hún
heldur það sem gerist
í hjarta guðs
þegar hann skapar
lífið.
Þetta var kærkominn gestur,
bókin hennar Maríu, ómfögur orð,
sem vekja sál minni spurnir og
svör, knýja til fylgdar aftur og aft-
ur. Unnir þú ljóði, unnir þú hugs-
un, agaðri hugsun, þá tak þér bók-
ina hennar Maríu í hönd og les.
Prentun og frágangur allur góð-
ur. Vart í frásögur færandi þó
prentvillupúkinn breyti ókleifu
fjalli í ókleyft. Hafið þðkk fyrir
góða bók. Mættum við fá meira að
heyra.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hór
segir:
HULL/GOOLE:
Jan ............ 12/12
Jan ............ 30/12
Jan .......... 9/1 84
ROTTERDAM:
Jan ............ 13/12
Jan ............ 28/12
Jan .......... 10/1 84
ANTWERPEN:
Jan ............ 30/11
Jan ............ 14/12
Jan ............ 28/12
Jan .......... 11/1 84
HAMBORG:
Jan ........... 2/12
Jan ............ 16/12
Jan ............ 27/12
Jan .......... 13/1 84
HELSINKI:
Helgafell ...... 14/12
Helgafell .... 12/1 84
GDYNIA:
Helgafell ...... 12/12
LARVIK:
Hvassafell ...... 5/12
Hvassafell ..... 19/12
Hvassafell .... 3/1 84
Hvassafell ... 16/1 84
GAUTABORG:
Hvassafell ...... 6/12
Hvassafell ..... 20/12
Hvassafell .... 4/1 84
Hvassafell ... 17/1 84
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell ...... 7/12
Hvassafell ..... 21/12
Hvassafell .... 5/1 84
Hvassafell ... 18/1 84
SVENDBORG:
Hvassafell ...... 8/12
Helgafell ...... 19/12
Hvassafell .... 22/12
Hvassafell .... 6/1 84
ÁRHUS:
Hvassafell ...... 8/12
Helgafell ...... 19/12
Hvassafell ..... 22/12
Hvassafell .... 6/1 84
GLOUCESTER MASS.:
Jökulfell ...... 15/12
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell ..... 30/11
,_ Jökulfell . 16/12
1»
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
PEUGEOT 505 GR fyrir aðeins kr. 420.000
Innifalið í verði: Vökvastýri 5 gíra kassi Læst mismunadrif (sjálfvirkt)
6 ára ryðvarnarábyrgð
Tökum notaða bíla í góðu ásigkomulagi upp í nýjan bíl.
® Það er engin tilviljun að Peugeoteigendur eru ánægðir eigendur!
I HAFRAFELL
I VAGNHÖFÐA 7 — SÍMI 85211
TRYGGING HF sœ"78