Morgunblaðið - 30.11.1983, Side 20

Morgunblaðið - 30.11.1983, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1983 Vilborgarsjóður Þeir Sóknarfélagar sem eiga rétt á styrk úr Vilborg- arsjóöi eru beönir aö hafa samband viö skrifstofuna fyrir 12. des. nk. Starfsmannafélagiö Sókn. VEIÐIMENN Blanda er boöin út til stangveiði frá 1. júní — 31. júlí 1984. 4 stendur eru leyföar í ánni. Skriflegum tilboöum skal skilaö fyrir 15. janúar 1984 til Péturs Hafsteinssonar, Hólabæ, Austur-Húna- vatnssýslu, sími 95—4349, sem veitir nánari upplýs- ingar. Réttur áskilinn aö taka hvaöa tilboði sem er eöa hafna öllum. Stjórnin. SEXTAN ÞÆTTIR , UH ÞJ0ÐSK0RUNG Bjami Benediktsson crtti stœrri hlut að því en ílestir aðrir að móta svip íslenskrar stjómmálasögu á því tímabili sem einna viðburðaríkast heíur orðið á íslandi. Bók sú sem hér birtist um hann er œvisaga rituð aí sextán höíundum sem allir þekktu hann náið og störíuðu með honum að ákveönum viðíangseínum. Ritar hver um þann þátt í œvi og staríi Bjarna sem hann þekkti best. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir MAGNÚS SIGURÐSSON Strauss í sviðsljósi stjórnmálanna á ný FRANZ Josef Strauss, leiðtogi kristilega flokksins (CSU) í Bæjaralandi, hefur látið verulega að sér kveða að undanfornu. Og honum hefur svo sannarlega tekizt að koma á óvart. Fáir vestur-þýzkir stjórnmálamenn hafa verið hvassyrtari í garð Austur-Þýzkalands á liðnum árum en einmitt Strauss. Í sumar beitti hann sér samt fyrir feiknalegri lánveitingu til Austur-Þjóðverja, sem nam um einum milljarði vestur-þýzkra marka. Þetta þótti vissulega tíðindum sæta. Fyrir skemmstu hugðist Strauss gera enn betur og beitti sér aftur fyrir stórfelldri lánveitingu til Austur-Þýzka- lands. En nú fannst Helmut Kohl kanslara nóg komið af svo góðu og kom í veg fyrir þessi áform. Rök Kohls voru þau, að fyrirheit austur-þýzkra stjórn- valda um mannúðlegra stjórn- arfar hefðu ekki verið haldin og því kæmi það ekki til mála, að stjórn hans ábyrgðist nýtt stór- lán. Atburðir þessir hafa verið ofarlega á baugi í Vestur-Þýzka- landi að undanförnu og haft í för með sér, að Strauss er enn á ný kominn í sviðsljósið. Samt finnst mönnum sem Strauss hafi tapað enn einni lot- unni í þeirri valdabaráttu, sem á sér stað milli hans og Kohls saksóknara til dómstólanna var væntanleg í síðustu viku. Búizt var við, að á grundvelli hennar yrðu Lambsdorf og ýmsir aðrir háttsettir stjórnmálamenn kall- aðir fyrir rétt. Það er hins vegar á valdi dóm- aranna að taka ákvörðun um, hvort málinu skuli haldið áfram og búast má við, að þeir þurfi sex mánuði til þess að skera úr um, hvort þau sönnunargögn, sem saksóknarinn hefur lagt fram, séu nægilegur grundvöllur fyrir því að láta réttarhöldin fara fram. Almennt hafði verið gert ráð fyrir því, að Lambsdorf segði af sér embætti, er skýrsla sak- sóknarans yrði lögð fram. Lambsdorf mun hins vegar hafa tekið þá ákvörðun með samþykki Kohls kanslara að bíða með allt Þaö vakti mikla athygli, er Strauss heimsótti Austur-Þýzkaland og beitti sér fyrir stórláni þangað á liðnu sumri. Þessi mynd var tekin í þeirri heimsókn og sýnir Strauss ásamt Erich Honecker, leiðtoga austur-þýzkra kommúnista. kanslara. Síðustu mánuði hefur sá síðarnefndi hvað eftir annað látið fara frá sér yfirlýsingar þess efnis, að engar breytingar á stjórn hans stæðu fyrir dyrum. Er þetta vafalítið gert í þeim til- gangi að kæfa allar uppástungur úr röðum stuðningsmanna Strauss um breytingar, svo að hann geti fengið aðild að stjórn- inni. Jafnframt hefur Kohl vilj- að styrkja stöðu Otto Lambs- dorfs efnahagsmálaráðherra, sem sætt hefur mikilli gagnrýni að undanförnu. Strauss og stuðningsmenn hans hafa hins vegar stöðugt verið að vonast eftir, að Lambsdorf segði af sér, svo að Strauss gæti tekið sæti hans. Rannsókn Flick-málsins Lambsdorf liggur undir ákæru um að hafa tekið við fé á síðasta áratug — annað hvort handa sjálfum sér eða flokki sínum, Frjálsa demókrataflokknum (FDP) — frá Flick-fyrirtækinu, móðurfélagi iðnsamsteypu, sem er á meðal þeirra stærstu sinnar tegundar í Vestur-Þýzkalandi. í staðinn á Flick að hafa hlotið gífurlegar skattaívilnanir. Rannsókn í þessu máli hefur staðið yfir í tvö ár, en skýrsla slíkt, þar til niðurstöður dóms- ins lægju fyrir. Hans-Dietrich Genscher, utanríkisráðherra og leiðtogi frjálsra demókrata, er einnig sagður þessu samþykkur. Embætti efnahagsmálaráð- herra er eitt af þeim fáu ráð- herraembættum, sem Strauss telur hæfa hæfileikum sínum, en hann dregur enga dul á, að hann líti á sjálfan sig sem snjallasta stjórnmálamann landsins. Eina embættið annað, sem Strauss hefði áhuga á, er embætti Genschers. Þá hafa þær hug- myndir komið upp hjá stuðn- ingsmönnum Strauss, að komið verði á fót stærra ráðuneyti, sem nái yfir efnahags- og fjármála- ráðuneytið og að hann verði þar ráðherra. Georg Stoltenberg úr flokki CDU er nú fjármálaráð- herra og samstaða hans með Kohl og Genscher er almennt kunn. Gagnrýnir Bonn-stjórnina Sú valdabarátta, sem Strauss heyr nú, á að miklu leyti en þó ekki eingöngu rót sína að rekja til persónulegs metnaðar hans. Enda þótt Strauss sé 68 ára gamall, er hann enn sem fyrr gæddur þróttmikilli skapgerð og ríkum metnaði og með sínar eig- in skoðanir á helztu málefnum þjóðar sinnar. Hann var varn- armálaráðherra í sex ár á sjötta og sjöunda áratugnum og fjár- málaráðherra 1966—1969, en þegar hann bauð sig fram til kanslaraembættisins í kosning- unum 1980 tapaði hann fyrir Helmut Schmidt, þáverandi kanslara. Strauss mun fyrir löngu leiður á þeim staðbundnu stjórnmál- um, sem hann hefur þurft að fást við að undanförnu sem for- sætisráðherra fylkisstjórnarinn- ar í Bæjaralandi og sækir það nú fast að verða virkur á nýjan leik með þátttöku á vettvangi þjóð- málanna í Bonn. Hann hefur gagnrýnt sambandsstjórnina óspart að undanförnu — jafnt kanslarann sjálfan sem einstaka ráðherra — fyrir kjarkleysi og hik og fyrir að hafa mistekizt að hagnýta sér kosningasigurinn í marz sl. til þess að koma á raunverulegum umbótum í land- inu. Þá hefur Strauss ekki látið sig muna um að lýsa Lambsdorf þannig, að hann hafi yfirleitt ekkert vit á efnahagsmálum og eftir innrás Bandaríkjamanna í Grenada beindi Strauss spjótum sínum gegn Genscher og síðan Kohl kanslara sjálfum fyrir að hafa látið í ljós efasemdir um nauðsyn og gildi þessara aðgerða gagnvart Reagan-stjórninni. Hafnaði embætti innanríkisráöherra Eftir sigur kristilegu flokk- anna í kosningunum í marz var Strauss boðið að gerast innan- ríkisráðherra, en hann hafnaði því. í stað hans tók Friedrich Zimmermann við embættinu, en hann er úr flokki Strauss, sem starfar eingöngu í Bæjaralandi. Þegar vonir Strauss um áhrifa- stöðu innan stjórnarinnar urðu að engu fyrir atbeina Kohls, reyndi hann að fá því framgengt, að ákvarðanataka yrði flutt frá ríkisstjórninni til þriggja manna ráðs aðildarflokka stjórnarinn- ar, þar sem sæti áttu hann sjálf- ur, Kohl og Genscher. En Kohl hefur ekki reynzt neitt sam- vinnufúsari en áður og ein af helztu kvörtunum Strauss að undanförnu hefur einmitt verið sú, að þetta ráð hafi aðeins einu sinni komið saman til fundar síðan í kosningunum í marz. í Bonn er mönnum tíðrætt um langvarandi og djúpan persónu- legan ágreining milli þeirra Strauss og Genschers, en Strauss er talinn líta á frjálsa demókrata sem meginhindrun- ina í vegi sínum til þess að kom- ast til valda í landinu. Enda þótt frjálsir demókratar hafi tapað miklu fylgi eftir að hafa fellt samsteypustjórn þeirra sjálfra og jafnaðarmanna fyrir rúmu ári, eru þeir Genscher og Lambs- dorf eftir sem áður mjög valda- miklir sem ráðherrar í núver- andi stjórn. Víst kann Strauss að hafa orðið að lúta í lægra haldi að sinni í valdabaráttunni, en þess sjást samt augljós merki, að fyrr en seinna hyggist þessi lit- ríki en umdeildi stjórnmálamað- ur ryðja sér að nýju braut til valda í Vestur-Þýzkalandi. (Heimildir: Der Spiegel og The Wall Street Journal)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.