Morgunblaðið - 30.11.1983, Síða 14

Morgunblaðið - 30.11.1983, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1983 Vænlegra að „fjárfesta“ í heilsuvernd en sjúkdómum — eftir Ólaf Ólafs- son landlækni Inngangur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur lagt fram áætlun um mark- mið í heilbrigðismálum sem þjóð- um heims ber að stefna að að ná fyrir árið 2000. Samkvæmt áætlun þessari skal t.d. náð ákveðnum árangri varð- andi lækkun ungbarna- og mæðra- dauða, hækkun meðalaldurs og lækkun dánartfðni vegna hjarta- sjúkdóma, háþrýstings, heilablæð- inga, leghálskrabbameins, lungna- krabba, slysa, sjálfsmorða o.fl. Ennfremur er minnst á útrýmingu mislinga, rauðhunda, mænuveiki, barnaveiki, syfilis o.fl. smitsjúk- dóma. Jafnframt skal náð ákveðn- um staðli í menntunar-, húsnæðis- og öðrum félagsmálum. Flest Norð- urlönd með ísland í fararbroddi hafa þegar náð allflestum þessara markmiða. Litill vafi leikur á að þessi „markmið" hafa náðst að mestu leyti vegna stórbættra lífs- kjara og vel heppnaðra heiisu- verndaraðgerða (heilsugæslu) og skal þá ekki gert lítið úr góðri sjúkrahúsþjónustu. Engu að síður verjum við ennþá mestöllu því fé er við höfum yfir að ráða til heil- brigðisþjónustu til meðferðar og rannsókna á langvinnum sjúk- dómum á lokastigi. Á undanförnum áratugum hef- ur sjúkdómamynstur íslendinga breyst mikið. Berklar, aðrar far- sóttir, mikill ungbarnadauði, nær- ingarskortur og sem afleiðing stutt meðalævi eru ekki lengur vandamál. Þess í stað ber mest á langvinn- um sjúkdómum svo sem æða- og hjartasjúkdómum, krabbameini, sjúkdómum í öndunarfærum og geðsjúkdómum. Atvinnusjúkdóm- ar og misnotkun vímugjafa hafa haldið innreið sína og slysatíðni er mikil. Aðaláherslan hefur verið lögð á meðferð langvinnra sjúkdóma á lokastigi m.a. með stækkun sjúkrahúsa og mikilli tæknivæð- ingu. Rekja má um 80—90% af kostnaðaraukningu við heilbrigð- isþjónustuna er orðið hefur á und- anförnum árum til þessa liðs. Forvarnir Allt frá árunum 1960—1970 hef- ur þó aðgerðum gegn ýmsum lang- vinnum sjúkdómum s.s. hjarta- og æðasjúkdómum, krabbameini, lungnasjúkdómum, sykursýki, gláku o.fl. verið sinnt í vaxandi mæli. Lækkun hefur orðið á ald- ursstaðlaðri dánartíðni vegna krans- æðasjúkdóma og háþrýstings. ísland mun vera eitt af fáum löndum í heiminum sem getur státað af lækk- andi aldursstaðlaðri dánartíðni vegna krabbameins. Dánartíðni vegna há- þrýstings og leghálskrabbameins er nú lægri hér á landi en meðal ann- arra vestrænna þjóða. Þessi góði ár- angur hefur vakið athygli Al- þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og hefur hún mælst til samstarfs við Islendinga um að sýna fram á að unnt sé að koma í veg fyrir dauðsföll af völdum síðastnefnda sjúkdómsins. Margt bendir til þess að svipuðum árangri megi ná í baráttunni gegn heilablæðingu af völdum háþrýstings. Þessi árang- ur hefur m.a. náðst fyrir tilstilli leikra og lærðra sem starfað hafa að heilsuverndarmálum i tugi ára innan félaga s.s. Hjartaverndar, Krabbameinsfélags Islands o.fl. Allt bendir til þess að rauðhund- um og mislingum hafí að mestu ver- ið útrýmt. Á döfinni eru svipaðar aðgerðir gegn t.d. hettusótt og heilabólgu. Kostnaður vegna fram- angreindra heilsuverndaraðgerða svarar til kostnaðar við rekstur ör- fárra sjúkrarúma á ári og sparnaður er hlotist hefur af framangreindum heilsuverndaraðgerðum verður ekki nema að litlu leyti mældur í krónum. Flest rök benda eindregið til þess að lækkun dánar- og sjúkdóms- tíðni ásamt lengingu á meðalævi, sem orðið hefur í landinu á síðustu áratugum, megi m.a. að verulegu leyti rekja til heilsuverndarað- gerða, betri sjúkdómaleitar og bættra lífskjara og skal þó ekki gert lítið úr áhrifum bættrar læknismeðferðar. Mikið skortir þó á að nægilega hafi verið unnið á þessu sviði. Sem dæmi má nefna að þótt dánartíðni hafi yfirleitt lækkað hefur hún aukist eða stað- ið í stað í eftirfarandi sjúkdóma- flokkum: Lungnakrabbameini, brjóstakrabbameini, þarma- krabbameini, slysum, berkjukvefi, lungnabólgu o.fl. Tíðni kransæðasjúkdóma hefur minnkað eftir 1970 en er ennþá mikil. Svipaðar breytingar til hins betra hafa orðið á ýmsum áhættu- þáttum sjúkdómsins á síðasta ára- tug svipað og í N-Finnlandi. Yfir- leitt eru læknar sammála um að með breyttum lífsvenjum, m.a. minnkuðum reykingum, minni áfengisnotkun og auknum slysa- vörnum megi draga verulega úr tíðni flestra framangreindra sjúkdóma. Sú hefur orðið raunin á í öðrum löndum. T.d. hefur innlögn- um á sjúkrahús vegna afleiðinga umferðarslysa fækkað um 20—25% meðal sumra nágrannaþjóða — í kjölfar öfíugra forvarna. Til þess að ná frekari árangri á sviði sjúk- dómavarna eru m.a. eftirfarandi leiðir færar: 1. Auka verður forvarnarstarf vegna hjarta- og æðasjúkdóma og krabbameins svo og fóstur- og mæðravernd, sjón- og heyrn- arvernd sem þegar er hafið á fæðingardeildum, heilsugæslu- stöðvum og af Hjartavernd og Krabbameinsfélagi íslands. Þessa starfsemi þarf að tengja mun betur heilsugæslustöðvum en verið hefur. Dæmi um þýð- ingu heilsugæslustöðva í þessu efni er m.a. eftirfarandi: Um Olafur Ólafsson „Flest rök benda ein- dregið til þess að lækk- un dánar- og sjúkdóms- tíðni ásamt lengingu á meðalævi, sem orðið hefur í landinu á síðustu áratugum, megi m.a. að verulegu leyti rekja til heilsuverndaraðgerða, betri sjúkdómaleitar og bættra lífskjara, og skal þó ekki gert lítið úr áhrifum bættrar lækn- ismeðferðar.“ 20% þeirra kvenna er boðaðar hafa verið til leghálskrabba- meinsleitar mæta ekki í skoðun þrátt fyrir endurteknar áskor- anir. í þeim hópi er dánartíðni allt að 13-föld borið saman við þann hóp er mætir til skoðunar. Nú leita yfir 90% allra íbúa til heilsugæslustöðva á tveggja til þriggja ára fresti. Á stöðvunum er unnt að ná sambandi við framangreindar konur, er þær koma annarra erinda, og bjóða þeim skoðun. Samskonar að- ferðum má beita við varnir gegn öðrum sjúkdómum t.d. há- þrýstingi. 2. Á næstunni er fyrirhuguð stór- aukin ieitarstarfsemi á sviði brjóstakrabbameins og auknar slysavarnir. Efla þarf leit að magakrabbameini á forstigi. Kerfisbundin leit að þessum sjúkdómi meðal annarra þjóða hefur skilað mjg góðum árangri. 3. Efla ber heilbrigðisfræðslu í grunn- og framhaldsskólum landsins. Hjúkrunarfræðingar og læknar verða að gerast virk- ir aðilar við kennsluna því að margir kennarar eiga erfitt með að sinna ýmsum þáttum þeirrar fræðslu. Fræðsluefnið skal flutt í samvinnu við kenn- ara enda fer best á því að fræðslan falli sem best að öðru námsefni og veki „heilsuvitund" nemenda. Á undanförnum árum hafa læknanemar unnið og flutt fræðsluefni um hættur af reyk- ingum og kynsjúkdómum í grunn- og framhaldsdeildum skólanna. Sl. vetur hafa nemar úr hjúkrunarskólum unnið fræðsluefni og flutt í skólum um: Getnaðarvarnir, heimaslys, mataræði, fræðsla um slysa- varnir í umferð hefur einnig farið fram. Tugum þúsunda bæklinga um getnaðarvarnir og kynsjúk- dóma hefur verið dreift í skóla og heilsugæslustöðvar. Sæmi- legur árangur virðist hafa orðið af þessu starfi. T.d. hefur tíðni lekanda minnkað yfír 40% meðal 15—19 ára unglinga. Fóst- ureyðingum sem fjölgaði verulega eftir 1973 hefur ekki fjölgað með- al 14—17 ára stúlkna eftir 1979. Fæðingartíðni hefur lengi verið mun hærri meðal íslenskra kvenna en í nágrannalöndunum en nú hefur hún lækkað meðal yngri kvenna líkt og á öðrum Norðurlöndum. Sumar Norður- landaþjóðir viðhalda ekki leng- ur sjálfum sér. Dregið hefur úr reykingum meðal grunnskólabarna um 40%. Brýnt er að unglingar hefji ekki reyk- ingar því að reynslan sýnir að stórreykingafólk hættir yfir- leitt ekki að reykja (hóprann- sókn Hjartaverndar). Fræðsluefni um áfengi og önn- ur vímuefni hefur verið samið að beiðni kennara og síðan rætt á sameiginlegum fundum með skólastjórum, kennurum og heilbrigðisstarfsfólki. Nauðsynlegt er að nemar í skól- um heilbrigðisstétta öðlist þjálfun við gerð og flutning fræðsluefnis. Með hliðsjón af að 80—90% fólks heimsækir heilsugæslustöðvar á 1—2 ára fresti er heilsugæslustarfsfólk í lykilstarfi til þess að miðla fræðslu til þess. 4. Halda þarf áfram gerð fræðslu- þátta um sjúkdóma og heilsu- far, svipuðum og hafa verið fluttir sl. vetur í sjónvarpi og í samvinnu við heilbrigðisstéttir en með meiri áherslu á heilsu- vernd. Sjúkrahúsþjónusta Sjúkrahúsþjónusta okkar er í heild eins og best gerist meðal nágrannaþjóða. Árangur lækna og heilbrigðisstétta stenst vel sam- anburð við árangur á bestu sjúkrahúsum erlendis. Vissulega þurfum við að fylgjast með þróun- inni í þessum málum og megum ekki dragast aftur úr. T.d. þarf að koma upp aðstöðu hérlendis til skurðaðgerða vegna hjartasjúk- dóma, betri meðferðar á krabba- meinssjúklingum og bæta hag ým- issa sjúklingahópa s.s. bæklunar- og hjúkrunarsjúklinga o.fl. En að mínu áliti höfum við byggt nægi- legar legudeildir fyrir bráða sjúkdóma í bili. Háttsettur erlend- ur starfsmaður við Alþjóðaheil- brigðisstofnunina er heimsótt hef- ur Island oftar en einu sinni taldi að við hefðum byggt sjúkrarými 10—15 ár fram í tímann. Að vísu er ég honum ekki að öllu leyti sammála en glöggt er gestsaugað. Það er andstætt ríkjandi með- ferðarstefnu í læknisfræði að bjóða upp á sjúkrahúsmeðferð nema að brýna nauðsyn beri til. Að lokum eitt veigamikið atriði. Nauðsynlegt er að tryggja áfram- haldandi jöfn og góð lífskjör því að þau cru aðalforsenda góðs heilsu- fars. f löndum þar sem verulegt atvinnuleysi er, t.d. Bretland, hef- ur heilsufari hrakað. Því miður gleyma margir þessu atriði þegar rætt er um orsakir góðs heilsu- fars. Hafa skal hugfast að veru- legan hluta hinnar miklu hækkun- ar meðalævi sem orðið hefur á þessari öld má að mestu leyti þakka mikilli lækkun ungbarna- dauða og fækkun smitsjúkdóma sem urðu í kjölfar ört batnandi lífskjara og heilsuverndar. Vel nærðar og hraustar mæður ala af sér hraust börn sem þola áföll. Lokaorð Enginn má skilja orð mín á þann veg að við eigum að draga úr sérfræði- og sjúkrahúsþjónustu frá því sem nú er. Til langframa er vænlegra að „fjárfesta" í heilsu- vernd en sjúkdómum, t.d. í slysa- vörnum frekar en í slysadeildum — þar eð slysum fækkar ekki þó að við fjölgum rúmum þar. — f ungbarna- og mæðravernd frekar en í dýrum leguplássum. — í góðu barnauppeldi en í upptökuheimil- um. — I geðvernd frekar en geð- sjúkrahúsum. — í reykingavörn- um frekar en í meðferðarstofnun- um fyrir krabbameins-, lungna- og hjartasjúklinga. — f áfengisvörn- um í stað þess að búa nú við til- tölulega mun fleiri sjúkrarými fyrir áfengissjúklinga en ná- grannalöndin þó að áfengisneysla sé minni og áfengissjúkdómar mun færri hérlendis en annars staðar. Svo mætti lengi telja. Fordæma seina- gang í úthlutun námslána Nemendaráð Tækniskóla ís- lands fordæmir harðlega þann seinagang sem orðið hefur á út- hlutun námslána á þessu hausti, að því er fram kemur í fréttatil- kynningu frá ráðinu. Ráðið telur þau vinnubrögð við úthlutun námslána forkastanleg að um- sækjendum hafi ekki verið svarað, hvort þeir hafi fengið lán eða ekki. Þá er krafist úrbóta svo fjarvistir nemenda verði ekki úr hófi vegna baráttunnar við kerfið. Opið tíl kl. 19 ■ Mánudaga — Þriðjudaga — Miðvikudaga 17 A 01T ATTD Skelfunni 15 IlAuIiAU r Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.