Morgunblaðið - 17.12.1983, Qupperneq 24
72
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1983
Frí ráðstefnunni.
vænlegt til árangurs ef allir vís-
indamenn séu að hrópa hver í sínu
horni og gera kröfur um aukið fé
sér til handa. Röksemdir, sem
hægt sé að leggja út sem hags-
munakröfur einstakra stétta, geti
ekki stuðlað að framförum rann-
sókna á íslandi. Mikið vantar á að
frumskilyrði rannsókna séu fyrir
hendi á íslandi. M.a. vegna ein-
angrunar, lélegra bókasafna,
tímaskorts og aðstöðuleysis. Hann
benti á, að við háskólann og aðrar
rannsóknarstofnanir starfaði
fjöldi fólks með samningsbundnar
rannsóknarskyldur. Það ætti að
vera lágmarkskrafa, að þessu fólki
sé gert kleift að stunda sín störf
sem skyldi.
Mikael sagði ennfremur að á
ráðstefnum sem þessari veltu
menn því gjarnan fyrir sér hvers
konar rannsóknir ætti að stunda á
íslandi, hvort ætti að leggja meiri
áherslu á fræðilegt gildi eða
nytjagildi, mannleg (humanistisk)
fræði- eða náttúruvísindi. Um
þetta sé ekki hægt að komast að
neinni almennri niðurstöðu.
Sérhver fræðimaður sé menntaður
til þess að stunda rannsóknir í
sinni fræðigrein og varla sé t.d.
hægt að ætlast til þess, að guð-
fræðingur beri skynbragð á erfða-
stofna sauðfjár. Þessum einföldu
staðreyndum verði ekki breytt
með stefnumörkun. Og orðrétt
sagði Mikael: „Þá virðist mér að
alls engin sé fær um að taka
ákvarðanir um hvað rannsaka
skuli nema sá fræðimaður sjálfur
sem hlut á að máli hverju sinni,
stundum einn og óstuddur, stund-
um í samráði við starfsfélaga sína
í sömu grein. Hér verður niður-
staða mín sú að um rannsóknar-
efni verði engri almennri stefnu
við komið."
Mikael lagði hins vegar áherslu
á að þessu mætti ekki rugla saman
við þá spurningu hvernig haga
ætti fjárveitingum til ólíkra rann-
sóknarverkefna og hver ætti að
fara með ákvörðunarvaldið. Þar
vildi Mikael gera greinarmun á
rannsóknum sem eingöngu hefðu
fræðilegt gildi og hagnýtum rann-
sóknum. Við fræðilegar rannsókn-
ir bæri að forðast mjög fjárfrekar
rannsóknir, en rannsóknarverk-
efni, sem tengdust beint iðnaði,
sjávarútvegi eða landbúnaði og
snertu lífsafkomu þjóðarinnar,
bæri að líta á frá pólitísku sjón-
armiði og fjárveitingar til þeirra
ættu því að vera í höndum stjórn-
málamanna. En í báðum tilvikum
væri þó þörf á mjög auknu gæða-
mati rannsókna, frá því sem nú er.
í erindi sínu „Hvernig rann-
sóknir er skynsamlegt að stunda á
íslandi" fjallar Þórður Jónsson,
eðlisfræðingur, meðal annars um
þá meginbreytingu, sem orðið hef-
ur á hlutverki og stöðu vísinda í
samfélagi Vesturlanda. Það sé
orðið flestum fullljóst, að það sé
arðbært fyrir þjóðfélagið að hluti
þegnanna hafi rannsóknir að aðal-
starfi. Það sé hins vegar ekki jafn-
ljóst hvernig rannsóknum skal
stýrt og hverjir eigi að bera kostn-
aðinn.
Þórður minntist einnig á mik-
ilvægi þess að finna rétt jafnvægi
á milli hagnýtra rannsókna og
grunnrannsókna og sagði: „Við
grunnrannsóknir verður til sá
þekkingarsjóður, sem nytjarann-
sakendur sækja í, þar verða til
þær aðferðir, sem nýtast við lausn
hagnýtra verkefna, þar fæðast
flestar þær hugmyndir sem sköp-
um skipta fyrir framþróun
mannkyns og þar er vaxtarbrodd-
ur vísindanna."
Hann vék síðan að aðstæðum á
íslandi og taldi flest ytri skilyrði
er móta rannsóknir hérlendis
heldur illar og tiltók þar m.a. fá-
menni, einangrun og einhæft at-
vinnulíf. Vegna fæðar okkar séu
íslenskir menntamenn oft á tíðum
mestu sérfræðingar þjóðarinnar,
hver í sinni grein. Þeir verði því
ekki aðnjótandi þeirrar uppörvun-
ar og þess aðhalds sem sé vísinda-
mönnum nauðsynleg. Menn geti
ekki heldur einbeitt sér að þröng-
um sérsviðum sem sé vænlegast til
árangurs og einangrun og léleg
bókasöfn skapi aðstæður sem geti
auðveldlega orðið gróðrarstía
fyrir sveitamennsku og kukl í
fræðimennsku.
Þórður sagði það ennfremur
einn hinn mesta ljóð á ráði ís-
lenskra rannsókna að þær væru að
mestu fjármagnaðar úr ríkissjóði.
Þetta væri afleiðing þess hvernig
atvinnulíf hefði þróast, en æski-
legra væri að rannsóknir og þá
einkum nytjarannsóknir færðust í
auknum mæli út í atvinnulífið og
vék hann síðan að því hvernig
helst mætti stuðla að þeirri þróun.
HASKOLAPAÐ
i ' i ' . ! i iKennslustj./
i ! i ! i i i .
VISINDARAÐ
Háskólaritari
Vidskiptadeild
Lœknadeild
Raunvísinda-
og
Verkfrædideild
Framkvœmdastj./
RANNSOKNARAÐ
Deildar- stjórnir Kennslustofnun
Gudfrœdideild
i
Heimspekideild
i
Félagsvísindadeild
J
Lagadeild
1
Rannsóknastjj
1 i' ! 1
.i 11 I i
Visindastofnun
Arnastofnun
Ordabók Háskólans
Mannfrœdistofnun
!
Tannlœknadeild
I
Tilraunastödin Keldum
Rannsóknastofur í;
MEINEFNAFRÆÐI, LYFJAFRÆÐI.
LÍFEÐLISFRÆÐI, LÍFEFNAFRÆÐI,
VEIRUFRÆÐI, HEILBR.FRÆÐUM,
OG ÓNÆMISFRÆÐI
Líffrœdistofnun
Raunvísindastofnun, Reiknist.
Norrœna Eldfjallastödin
Verkfrædistofnun
Deildar-
stjórnir
Hug og
Félagsv.d.
Lif og
Lœknisfr.d.
Náttúru-
visindad.
Audlindaog
Liftœknid.
RANNSOKNASTOFNANIR
ATVINNUVEGANNA
Hafrannsóknastofnun, Idntœknistofnun,
Rst.Byggingaridnada Rst.Fiskidnadarins
og Rst.Landbunadarins