Morgunblaðið - 20.12.1983, Blaðsíða 2
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983
Uppþ votta vélin
I m n w • Vandvirk.
LAAlS T • Sparneytin.
SIEMENS
SMITH &
NORLAND HF.,
Nóatúni 4, sími 28300.
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
Message 350 - létt og
þægileg, meö skýru letri,
föstum dálkum og loki. Verð
aðeins kr. 4950. Með 10%
staðgreiðsluafslætti aðeins
kr. 4.455
Message 610 TR -Lipur
og létt, í tösku, með dálkastilli,
skýru letri og sérlega þægileg
í meðförum. Verð aðeins kr.
5980. Með 10% staðgreiðslu-
afslætti aðeins
kr. 5.382
Tvær góðar fyrir skólann og heimilið
Góð greiðsiukjör.
Sendum t póstkröfu.
SKRII FSTOFUVÉLAR H.F.
Hverfisgötu 33 — Sími 20560
Pósthólf 377
Félagar úr Kammersveit Reykjavíkur.
Kammersveit
Reykjavíkur
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Jólatónleikar Kammersveitar
Reykjavíkur hafa alltaf verið vel
sóttir enda bæði von á góðri
tónlist og góðum flutningi.
Á tónleikum sveitarinnar sl.
sunnudag í Bústaðakirkju voru
flutt verk eftir Bach, Pergolesi,
Vivaldi og Manfredini. Tónleik-
arnir hófust á þriðja Branden-
burgarkonsertinum eftir Bach.
Konsertinn er í tveimur þáttum
en hér var skotið inn smá semb-
alsóló, sem nokkurs konar hæg-
um milliþætti. Þetta byggist á
þeirri hugmynd að Bach hafi
ætlast til að semballeikarinn
léki af fingrum fram smá milli-
þátt og hafa ýmsir stjórnendur
því brugðið á það ráð að fella inn
smá kafla úr öðrum verkum
gamla mannsins.
Konsert þessi er sérkennilega
unninn, ritaður fyrir þrjá
strengjahópa og hver hópur svo
þrískiptur innbyrðis. Verkið var
í heild vel leikið.
Fyrri kaflinn var nokkuð of
hraður, sem vel má vera þung-
lega leikinn, sem andstæða við
hraða sveifluna í seinni kaflan-
um. Það kann að þykja aukaat-
riði að fjalla um skipan verkefna
en fyrir undirritaðan var besta
verkið leikið fyrst og síðan er
leið á efnisskrána, þá varð inni-
hald verkanna sífellt smágerð-
ara en um leið gisnara.
Bernhard Wilkinson lék ein-
leik á flautu í konsert, sem út-
gefinn hefur verið sem verk eftir
Pergolesi. Hvað sem líður höf-
undareinkennum er verkið ekki
óáheyrilegt og var mjög vel leik-
ið.
f efnisskrá hefur læðst sú villa
að „Vivaldi hafi samið ekki færri
en 500 konserta", sem mun eiga
að vera 400 og mun það þó þykja
all nokkuð. Konsertinn ber þess
merki að vera ekki eiginlegur
konsert, heldur umritun (án
nafns) á tríósónötu og þó bregði
fyrir einstökum snjöllum línum,
vantar öll konserttilþrif Vivald-
is. Pétur Jónasson lék konsert-
inn vel og treysti á að veikur
tónn gítarsins hefði við
strengjasveitinni, sem lék mjög
dempað. Hægi kaflinn er mjög
falleg tónsmíð, en vafasamt að
Vivaldi hafi ætlað fiðlunum svo
lítið verk, sem þar gat að heyra,
því svona tegund af undirleik
var ekki búið að „finna upp“ á
tímum Vivaldis. Síðasta verkið
var svo „Jólakonsert" eftir
Manfredini. Verkið er létt og
ljúft og sennilega samið áður en
kennari höfundarins, Torelli,
kom fram með nýjungar sínar í
gerð konserta. f heild voru tón-
leikarnir góð skemmtan, svo sem
vera ber á jólum, þó það besta
hafi verið „skammtað" fyrst en
eftirmaturinn verið mun bragð-
minni en forrétturinn.