Morgunblaðið - 20.12.1983, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983
55
Skugga-Sveinn, frá sýningu L.A. 1917.
mætti verða, sé sú að stofnað yrði
til áhugamannafélags almennings
sem tækist á við málið fjárhags-
lega. Öðruvísi get ég ekki ímyndað
mér að málið yrði leyst," sagði
Bragi Sigurjónsson.
Sígný Pálsdóttir, leikhússtjóri
Leikfélags Akureyrar:
„Hvers virði er Matthías leik-
húsfólki? Fyrsta leikrit Matthías-
ar, Útilegumennirnir, sem seinna
varð að Skugga-Kveini, er orðið
nokkurs konar þjóðleikur Islend-
inga. Ekkert íslenskt leikrit hefur
verið sýnt eins oft né haft eins
víðtæk áhrif á íslenska leiklist.
Hefði Indriði Einarsson skrifað
Nýársnóttina eða Jóhann Sigur-
jónsson Fjalla-Eyvind, ef hrifning
þeirra á sýningum á Útilegumönn-
unum hefði ekki kveikt neistann í
brjóstum þeirra? Jóhann Sigur-
jónsson sagði að aldrei hefði nokk-
ur leiklist gripið hann með jafn-
mikilli aðdáun og skelfingu eins
og þegar Skugga-Sveinn hristi at-
geirinn og kvað. „Þá snart gyðja
sorgarleiksins hjarta mitt í fyrsta
sinn með sínum volduga væng,“
sagði Jóhann, okkar fremsta leik-
ritaskáld, löngu síðar.
Það var kjarni leikara úr vei
heppnaðri frumsýningu á
Skugga-Sveini, 1917, sem stofnuði
Leikfélag Akureyrar sama ár, og
hefur það starfað óslitið síðan, en
þegar Skugga-Sveinn var fyrstur
sýndur hér á Akureyri 1877 var
skotið úr fallbyssum í innbænum,
þegar sýningar skyldu hefjast, og
vakti sú tiltekt og leikurinn sjálf-
ur óskipta athygli bæjarbúa. Síð-
an hefur Skugga-Sveinn oft verið
á fjölum Samkomuhússins okkar
og dagskrá samin honum til heið-
urs sýnd 1974. Matthías skrifaði
að sjálfsögðu fleiri leikrit, eins og
Jón Arason, þó ekki hafi þau enn
verið sýnd hjá LA, og leikritaþýð-
ingar hans á Shakespeare, Byron,
Ibsen og fleirum eru stórvirki.
Því er Leikfélagi Akureyrar í
mun að minning leiklistarbraut-
ryðjandans Matthíasar haldist á
lofti, en ég læt öðrum eftir að
minnast hans sem ljóðskálds,
trúmanns og kennimanns.
Hvers virði eru söfn, ef þau eru
dauð? Æ færri koma að sjá þau ef
ekki er í þeim líf og tengsl nýrra
kynslóða við minningu frumkvöð-
ulsins slitna. Hugmynd séra Bolla
í Laufási um að blása lífi í Sigur-
hæðir er bráðgóð. Sú hugmynd að
efsta hæðin verði íbúð til skamm-
tíma afnota fyrir listamenn og
fræðimenn er það snjöll að ég legg
til að Akureyrarbær geri gangskör
að því að kaupa hæðina sem fyrst,
svo húsinu verði öllu viðhaldið í
réttum anda og nýtist. Leikfélag
Akureyrar er allt leikárið með
listamenn í heimsókn, ýmist rit-
höfunda, leikstjóra, leikmynda- og
búningahönnuði eða leikara og
yrði það sannarlega meðal fyrstu
umsækjenda um skammtíma leigu
á íbúðinni. Ég unni að sjálfsögðu
öðrum listamönnum þess líka að
dvelja þar. Það er alkunna hve
mikil uppörvun það er fyrir lista-
menn og aðra andans menn að
fara í annað umhverfi og hið ein-
stæða andrúmsloft Akureyrar get-
ur gefið eins mikið og London,
París eða Róm.
Annað líf í húsinu, eins og
menningarkvöld eða fyrirlestrar á
vetrum, mætti einnig hugsa sér, ef
engin hætta væri á að safnið yrði
fyrir hnjaski. Ég kynntist marg-
þættu starfi í húsi Jóns Sigurðs-
sonar á námsárunum í Kaup-
mannahöfn. Það andar lífi, sem
heldur tengslum við landið og for-
tíðina, og er vonandi að hið sama
verði hægt að segja um Sigurhæð-
ir. Matthías á það skilið," sagði
Signý Pálsdóttir, leikhússtjóri.
Af þessum orðum má sjá, að
ýmsir hafa áhuga á að hugmynd
séra Bolla Gústafssonar í Laufási
verði gefinn gaumur. Hvernig
framkvæmdum verður háttað eða
hvort þær yfirleitt verða nokkrar
á eftir að koma í ljós.
Ef til vill gefur bæjarstjórn sér
einhvern tíma ráðrúm til þess að
líta upp úr öllum jafnréttisskýrsl-
unum og leiktækjasalarekstrinum
og hugleiöa framtíð Matthíasar-
safns. Þangað til eitthvað verður
að gert held ég að við Akureyr-
ingar ættum að tala sem minnst
um safnabæinn okkar, við getum í
staðinn rausað um skólabæinn
okkar, sem þó vantar skólarými í,
að maður ekki tali um heimavist-
araðstöðu fyrir alla þá nemendur,
sem vilja sækja sér menntun hér á
Akureyri.
í hugum Akureyringa er fallega
húsið á Sigurhæðum sérstætt hús
með merkilega sögu að baki. Safn-
ið þar, sem helgað er þjóðskáldinu
séra Matthíasi, er kannski ekki
mikið sótt af bæjarbúum, en
hræddur er ég um að ýmsum
hnykkti við ef það væri ekki leng-
ur á sínum stað. Vonandi taka
bæjaryfirvöld við sér og sýna því
réttan sóma í framtíðinni."
G.Berg
Kvennaframboðið í Reykjavík:
Kjarnorkuvígbúnað-
ur verði frystur
KVENNAFRAMBOÐIÐ hefur sent lögu Svíþjóðar og Mexíkó um fryst-
frá sér svohljóðandi fréttatilkynningu: ingu kjarnorkuvígbúnaðar."
„Kvennaframboðið í Reykjavík hefur
sent Alþingi eftirfarandi áskorun:
Kvennaframboðið í Reykjavík
skorar á Alþingi að sjá til þess, að
fastafulltrúi íslands hjá Sameinuðu
þjóðunum greiði atkvæði með tiþ:i,
Ix’scfni ístómm skömmtum!
Tónlist
á hveriu heimili
umjólin
K.'«***
Stálskál
Endingargóð og varan-
leg skál, tllvalin I alla
köku- og brauðgerð.
Ávaxtapressa
Skilar ávaxta- og græn-
metissafa meó öllum
vltamlnum.
Dósahnífur
Opnar allar tegundir
dósa án þess að skilja
eftir skörðóttar brúnir.
••
Grænmetisrifjárn
Sker og raspar niður I
salat. — Búið til yðar
eigin frönsku kartðflur
meó til þess gerðu járni.
AUKNIR MOGULEIKAR
8SSJI
HJALPARKOKKURINN
Sitrónupressa
Býr til ijúffengan fersk-
an sltrussafa á iitiu
lengri tlma en tekur að
skera sundur appelsfnu.
Grænmetisrifjárn
Sker niður rauðrófur,
agúrkur, epli, kartöflur.
Raspar gulrætur, ost,
hnetur og súkkulaði.
KENWOOD chef
Er engin venjuleg
hrærivél.
Verð með þeytara,
hnoðara,
grænmetis- og
ávaxtakvörn,
ásamt plasthlíf
yfir skál:
Kr. 8.430.-
(Gengi 26.11.83)
Til í tveimur litum.
KENWOOD chef
Hakkavél
Hakkar kjöt og fisk jafn-
óðum og sett er I hana.
Einnig fljótvirk við gerð
ávaxtamauks.
Grænmetiskvörn
Blandar súpur, ávexti,
kjötdeig og barnamat.
Saxar hnetur, o.fl.,
malar rasp úr brauöi.
Kaffikvörn Hraögengt rifjárn
Malar kaffið eins gróft Sker niður og afþýðir
eða flnt og óskað er og grænmeti á miklum
ótrúlega fljótt. hraða og er með fjórum
mismunandi járnum.
Þrýstisigti
Aðskilur steina og
annan úrgang frá ávöxt-
um. Auöveldar gerð
sultu og ávaxtahlaups.
Kartöfluhýðari Hetta
Eyðið ekki mörgum Yfirbreiðsla yfir Ken-
stundum I að afhýða wood Chef vélina.
kartöflur sem Kenwood
afkastar á svipstundu.
KENWOOD chef
IhIHEKLAHF
Laugavegi 170-172 Sími 21240
Rjómavél
Býr til Ijúffengan, fersk-
an rjóma á nokkrum
sekúndum, aðeins úr
miólk og smjöri.