Morgunblaðið - 20.12.1983, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983
57
Ljósm.: Mbl. Kristján Einarsson.
Þessir þrír myndarlegu strákar buðu blaðamanni happdrættismiöa til
sölu nýverið og auðvitað var ekki um annað að ræða en segja „já, takk“,
við svo vasklegt liö. Þeir heita: Sambó, Þórður Þorbergsson og Tryggur,
og málefniö er Björgunarhundasveit íslands. f því happdrætti verður
dregið á Þorláksmessudag, eins og í svo mörgum öðrum styrktarhapp-
drættum.
varastjórn: Vilhjálmur S. Bjarna-
son, Dagný Karlsdóttir, Bergur
Þorleifsson, Ásta Þorsteinsdóttir
og Jón Bjarni Þorsteinsson. Ný-
kjörinni stjórn var falið að leggja
áherslu á kynningu á félaginu
fram að fyrsta aðalfundi, sem
fyrirhugaður er í apríl nk. Innan
félagsins eru 5 starfssvæði og
fyrirhugaðir eru fundir á hverju
svæði fyrir sig.
Starfssvæðin eru: 1. Kjósar-,
Kjalarness- og Mosfellshreppur, 2.
Seltjarnarnes, 3. Kópavogur, 4.
Garðabær og Bessastaðahreppur,
5. Hafnarfjörður. Hvert starfs-
svæði á einn aðalmann og einn
varamann í stjórn. Um tilgang fé-
lagsins segir í lögum þess: Til-
gangur félagsins er að viður-
kenndur verði réttur þroskaheftra
til að starfa og lifa sem eðli-
legustu lífi í samfélaginu. Félagið
er aðildarfélag í Landssamtökun-
um Þroskahjálp og eru 24 félög
sem starfa innan þeirra samtaka.
FrétUtilkynning
Þroskahjálparfélag á Reykjanesi stofnaÖ
Sjanghæ í Kína árið 1927, en þá
gerðu kommúnistar uppreisn í
borginni og náðu henni á sitt vald.
Um það leyti voru þeir í bandalagi
við þjóðernissinna Tsjang-kæ-
sjeks, en áður en lauk breyttist sú
Þroskahjálparfélag á Reykjanesi
var stofnað 26. nóvember sl. Félagið
fékk nafnið Þroskahjálparfélagið á
Reykjanesi. Starfssvæði þess er
Kjósar-, Kjalarness-, Mosfells- og
Bessastaöahreppur og kaupstaðirnir
Hafnarfjörður, Garðabær, Kópavog-
ur og Seltjarnarnes.
í stjórn félagsins voru kosin:
Jón Sævar Alfonsson form., Hrafn
Sæmundsson varaform., Karl
Harrý Sveinsson gjaldkeri, Hall-
dóra Sigurgeirsdóttir ritari, Jó-
hanna H. Sigurðardóttir meðstj. I
Hlutskipti manns
eftir André Malraux
BÓKAFORLAGIÐ Svart á hvítu hef-
ur gefiö út Hlutskipti manns eftir
André Malraux, en skáldsaga þessi
hlaut Goncourt-verðlaunin frönsku
árið 1933, sama ár og hún kom út á
frummálinu.
Frétt frá útgefanda segir: „Sag-
an er spennandi frásögn af at-
burðum sem áttu sér stað í
HIDIIHIPTI
NANNI
samvinna í blóðug átök uppreisn-
arherjanna innbyrðis. Inn í þessa
sögu fléttar höfundurinn atburð-
um úr lífi höfuðpersónanna og
hugleiðingum m.a. um ástina og
hlutskipti mannsins, sem auka
gildi sögunnar umfram flestar al-
gengar stríðslýsingar. Höfundur-
inn André Malraux tók þátt í
borgarastyrjöldinni á Spáni við
hlið lýðveldissinna og vann sér
frægðarorð í franska hernum og
svo andspyrnuhreyfingunni í
Frakklandi á árum seinni heims-
styrjaldarinnar, og hann varð
menningarmálaráðherra Frakka í
stjórnartíð De Gaulles forseta."
Hlutskipti manns er þýdd af
Thor Vilhjálmssyni. Kápumyndin
er eftir Halldór B. Runólfsson, en
bókin er 280 blaðsíður að stærð og
unnin hjá Prentsmiðjunni Odda.
„Þegar heimur-
inn opnaðist“
— ísafold gefur út bók
þýdda úr grænlenzku
ÚT KR komin hjá ísafoldarprent-
smiðju hf. bókin „Þegar heimurinn
opnaðist" eftir grænlenska rithöfund-
inn Inoraq Olsen. Þetta er fyrsta bók
höfundar og jafnframt fyrsta græn-
lenska bókin sem þýdd er beint úr
grænlensku á íslensku, segir í frétt frá
útgefanda. Norðurlandaráð veitti
styrk til útgáfu bókarinnar. Benedikt
Þorsteinsson þýddi textann, en Ásta
Krlingsdóttir Ijóðin.
Bókin segir frá ungum Græn-
lendingum sem fara til Danmerkur
til framhaldsnáms, viðhorfum
þeirra til hins nýja umhverfis og
sálrænum örðugleikum þeirra í hinu
nýja umhverfi.
Bókin dýpkar skilning á ná-
grönnum okkar og aðstæðum þeirra.
Áuk þess munu margir Islendingar,
sem dvalist hafa langdvölum er-
lendis, þekkja þau viðhorf og
reynslu sem Inoraq Olsen lýsir í bók
sinni.
opnaðist
Inoraq Olsen
Viðveituml5%
kynningarafslátt