Morgunblaðið - 20.12.1983, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983
63
Bandalag jafnaðarmanna um fjárlagafrumvarpið:
Skipulagt undanhald í
skugga versnandi lífskjara
BANDALAG jafnaöarmanna tclur
að núvcrandi fjárlög séu skipulagt
undanhald í skugga versnandi lífs-
kjara, samkvæmt því sem segir í
upphafi fréttatilkynningar frá
Bandalaginu í tilefni umfjöllunar
Alþingis á fjárlagafrumvarpi fyrir
árið 1984.
Þar segir ennfremur:
„B.J. telur að í fjárlögum
skorti allt sem bent geti til
stórhuga sóknar til bættra lífs-
kjara.
B.J. telur að á því megi ráða
bót með því að færa til fjármuni
á fjárlögum til þeirrar atvinnu-
greinar, sem framtíð okkar bygg-
ist á, þ.e. iðnaðar.
Metsölublad á hverjum degi!
Zhita - ný versl-
un við Vesturgötu
Zhita, nefnist verslun sem ný- boðstólum m.a. snyrtivörur frá
lega var opnuð að Vesturgötu 23 fyrirtækinu Boots, málshátta-
í Reykjavík. Eigendur eru Hjört- plattar, myndir, bækur og fleira.
ur Kristinsson og Dagný E. Einnig sagði hún að hægt væri
Magnúsdóttir, sem sést á þessari að fá skrautritanir í bækur og
mynd. kort.
Að sögn Dagnýjar verða á Ljósm..- mw./kee
B.J. hefði gjarnan viljað breyta
framlögðu fjárlagafrumvarpi
enn meir, því mikið vantar enn á
að þau séu stríðsyfirlýsing í bar-
áttu við versnandi þjóðarhag.
Það er alveg ljóst að nýsköpun
atvinnuvega og barátta við at-
vinnuleysi verður ekki háð úr
þeim skotgröfum sem þjóðinni
eru grafnar í fjárlagafrumvarp-
inu. Það eru augljóslega vond
fjárlög, sem leggja að jöfnu að-
hald og andlaus vinnubrögð.
Sömu afturgöngurnar ganga
ljósum logum sem fyrr. Land-
búnaður og sjávarútvegur njóta
enn niðurgreiðslu á ráðgjöf og
þjónustu eftir 100 ára aðlögun-
artíma, á meðan iðnaðinum er
ætlað að verulegu leyti að standa
undir þjónustu sem er þó engan
veginn sambærileg að umfangi. í
iðnaði verður að krefjast athafna
í stað orðaflaums."
Friðarhreyfing íslenskra kvenna:
Fyrsta fréttabréfið
MIÐSTTÓÐ Kriðarhreyfingar ís-
lenskra kvenna er nú að senda frá
sér sitt fyrsta fréttabréf. En sam-
kvæmt skipulagi hreyfingarinnar er
miðstöð ætlað að miðla fræðslu um
friðarmál og afvopnunarmál, í þeim
tilgangi að vekja fólk til umhugsun-
ar um þau málefni og efla samstarf á
þeim grundvelli.
í þessu fyrsta bréfi, sem sent
verður út til jæirra hópa og ein-
staklinga sem hafa skráö sig í
miðstöð, eru upplýsingar um
stofnun og skipulag Friðarhreyf-
ingar íslenskra kvenna, birt ávarp
það sem 30 konur úr ýmsum stétt-
um og stjórnmálafiokkum komu
sér saman um og undirskrifuðu
undir einkunnarorðunum: Við vilj-
um frið! Þá er listi yfir nöfn þeirra
kvenna sem starfa í miðstöð og
hvernig þær skipta með sér verk-
um.
Miðstöð hefur aðstöðu á Hall-
veigarstöðum, Túngötu 14, 101
Reykjavík og þar er hægt að fá
afrit af ræðu Maj Britt Theorin,
sænska þingmannsins, sem flutti
erindi á stofnfundi Friðarhreyf-
ingar íslenskra kvenna í vor, afrit
af ræðu Sigríður Thorlacius á
landsþingi Kvenfélagasambands
íslands, og friðarávarpið á ís-
lensku og ensku.
Skírt er frá því að miðstöð hafi
látið gera sérstakt merki fyrir
friðarhreyfinguna, málmmerki til
að bera í barmi, merki á bílrúður
og límmerki á bréf o.fl. Er það
sniðið eftir merkjum sem frið-
arhreyfing kvenna á Norðurlönd-
um hafa notað, er dúfa með merki
kvennahreyfingarinnar í nefi og
áletruninni: Konur vilja frið! Eru
merkin til sölu og afgreidd á
skrifstofu Kvennréttindafélags ís-
lands á Hallveigarstöðum 14—17
frá mánudegi til fimmtudags.
Úr fréttatilkynningu.
Síríus rjómasúldailaði
Pegar Síríus rjómasúkkuladid kemar
út úr súkkuladivélinni nidri á Barónstíg
er búid ad skipta því
í 28 jafna bita.
Hvrr biti er sérstaklega stimpladur með merki Síríus,
svona rétt til þess að tryggja gœðin.
Pað er þess virði að bíta í Síríus.
jmqh St Mm
GOTT POLK