Morgunblaðið - 20.12.1983, Side 18
66
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983
ARHAPLAST
Brennanlegt og tregbrennanlegt.
Sama verð.
Steinull — glerull — hólkar.
’Armúla 16 sími 38640
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Heimilistæki hf. hafa til sölu
jólaseríur frá kr 300.
og eilífðarjólatré frá kr. 960.
Það hefur aldrei verið fjölbreyttara úrval af jólaljósaseríum
hjá Heimilistækjum hf., einfaldar, skrautlegar, fallegar.
Jólatré úr varanlegum gerfiefnum, sem endast heila eilífð
100 cm, 150 cm og 170 cm.
Tré - ljós - gjafir fyrir alla fjölskylduna
Komið, skoðið, kaupið.
Heimilistæki hf.
Sætúni - Hafnarstræti
HaUormsstaðun
Húsmæðraskólinn
fær nýtt hlutverk
KgiLsstöAum, 15. desember.
HúsmKðraskólinn á Hallormsstað
hefur átt í vök að verjast sem slíkur
líkt og aðrir húsmæðraskólar á land-
inu og nú eru tíu ár liðin frá því að
heilsvetrar hefðbundið hússtjórnar-
nára var lagt niður við Húsmæðra-
skólann á Hailormsstað. Þess í stað
hefur skólinn, sem nú er oftast
nefndur Hússtjórnarskólinn á Hall-
ormsstað, fengið nýtt hlutverk. Fyrri
hluta vetrar sækja þangað grunn-
skólanemcndur víðs vegar af Mið-
Austurlandi námskeið í heimilis-
fræðum og síðari hluta vetrar er þar
rekið einnar annar hússtjórnarnám
á framhaldsskólastigi.
Þeir grunnskólar á Mið-Aust-
urlandi sem ekki hafa haft afstöðu
til að bjóða nemendum uppá nám i
heimilisfræðum heima fyrir eiga
þess kost að senda 13 og 14 ára
nemendur sína til einnar viku hús-
stjórnarnámskeiðs á Hallorms-
stað fyrri hluta vetrar. Þar dvelja
nemendur í góðu yfirlæti í heima-
vistinni og fá tilsögn í matreiðslu,
ræstingu, næringarefnafræði,
vörufræði o.fl. Námskeið þessi
hafa átt vinsældum að fagna og
sambýlisform heimavistarinnar
hentar vel námskeiðum sem þess-
um.
Eftir áramót hefst svo einnar
annar nám í heimilisfræðum fyrir
framhaldsskólanemendur, að
þessu sinni 9. janúar. Kennsluvik-
ur eru jafnmargar og í skólum
þeim, sem starfa eftir áfangakerfi
enda er nám þetta metið til ein-
inga í þeim skólum.
Af námsþáttum má nefna mat-
reiðslu, fatasaum, vefnað, nær-
ingarefnafræði, vörufræði, sálar-
og heilsufræði, híbýlafræði,
áhaldafræði og gerlafræði.
Annar Heiður Guðmundsdóttir,
skólastjóri Húsmæðraskólans á
Hallormsstað, sagði í spjalli við
tíðindamann Mbl. að ekki væri
nokkur vafi á því að slíkt nám
hefði almennt hagnýtt gildi. Hún
sagði aðsókn vera góða, en þó
væru enn nokkur pláss laus á
komandi önn. Umsóknarfrestur er
til áramóta. „Þeir sem áhuga hafa
geta hringt í síma 97-1435 til frek-
ari upplýsinga, og auðvitað tökum
við á móti umsóknum frá báðum
kynjum," sagði Anna að lokum.
— Ólafur.
flóin
fbin
FLOIN
flóin
FLÓIN
vesturgötu4 s:19260