Morgunblaðið - 20.12.1983, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983
67
Góðir dómar um sýn
ingu Sigríðar Björns
dóttur í Finnlandi
DAGANA 3.—27. nóvember í ár hélt
íslenski myndlistarmaðurinn Sigríð-
ur Björnsdóttir sýningu á verkum
sínum í Váinö Aaltonen-safninu í
Turku/ Ábo í Finnlandi.
Sigríður var með 67 myndir á
þessari sýningu, unnar í olíu, akryl
og vatnsliti. Sýningin fær lofsamlega
dóma í þremur dagblöðum í Turku/
Ábo og Helsingfors. Turku/ Abo-
blaðið Turun Sanomat fjallar um
sýninguna tvisvar, 4. nóvember og
11. nóvember.
Blaðið bendir á að Finnum gef-
ist of sjaldan tækifæri til að kynn-
ast íslenskri málaralist, nokkuð
hefur verið um íslenskar grafík-
sýningar í Finnlandi, en ekki mik-
ið um myndlistarsýningar.
„Sigríður fjallar mikið um nátt-
úruna og landslag sérstaklega.
Sérkennilegt landslag, áhrifamik-
ið og eyðilegt er vitaskuld bak-
grunnur íslensks myndlistar-
manns. Stórfenglegt svið, hið
óþekkta fyrir handan, og hin háu
fjöll umlykjandi allt, gefa lista-
manninum ekkert tækifæri til að
nota mjög sterka liti. Hvítt, blátt
og grátt, ásamt sterkum grænum
litum eru einnig þeir litir sem Sig-
ríður vinnur með af þessum sök-
um. Þeir.lyfta fram eyðileika nátt-
úrunnar, en gefa um leið í skyn
mikilfengleik þögullar náttúru.
í örfáum verkum, þar sem nátt-
úran sjálf er ekki nálæg i eigin
mynd, notar Sigríður bjarta og
sterka liti, þar sem gulur og rauð-
ur fá að skipa sinn sess“, segir í
umsögn Turun Sanomat um sýn-
ingu Sigríðar.
Turku/ Ábo-dagblaðið Ábo
Underráttelser birtir stutt viðtal
við Sigríði, þar sem aðallega er
fjallað um „art-therapy“, en Sig-
ríður Björnsdóttir stundar um
þessar mundir nám í þessari grein
við University of London.
Finnsk-sænska dagblaðið Huf-
vudstadsbladet segir í sinni um-
sögn: „Sigríður Björnsdóttir frá
Islandi sýnir stór olíumálverk og
smámyndir af íslensku landslagi,
stórfenglegt og villt, sem nú hefur
mikið áhrif á hana eftir löng ab-
strakt-tímabil. Sigríður Björns-
dóttir er í reynd sjálf heimsborg-
ari, hún býr um þessar mundir í
London og stundar framhalds-
nám, hún er menntaður listakenn-
ari með „Art-Therapy“ sem sér-
grein."
(Frétutilkynning)
Frá Egilsstöðum
Ljósm.: Mbl./Ólatur.
Kveikt á jólatré að
lokinni friðargöngu
KjfiLsslöðum, 16. deNember.
Á ÞORLÁKSMESSU kl. 18 verður
kveikt á jólatré við Egilsstaðakirkju,
en tré þetta er gjöf til Egilsstaða frá
sænska vinabænum Skara.
Formaður Norræna félagsins á
Egilsstöðum mun afhenda oddvita
Egilsstaðahrepps tréð; krikjukór-
inn syngur og væntanlega fjöl-
menna jólasveinar til athafnar
þessarar venju samkvæmt.
Friðarhreyfing kvenna á Héraði
hyggst efna til sérstakrar friðar-
göngu áður en kveikt verður á
trénu. Farin verður blysför frá
Lagarfljótsbrú að Egilsstaða-
kirkju, þar sem fulltrúar friðar-
hreyfingarinnar ávarpa viðstadda.
Að því loknu fer fram afhending
jólatrésins frá Skara og ljós þess
verða tendruð. — Ólafur.
Ný gjafavöruverslun í Garðabænum
AÐ IÐNBÚÐ 4 í Garðabæ hefur nú
verið opnuð ný gjafavöruverslun
sem ber heitið „Þú og Ég“.
í versluninni eru á boðstólum
ýmiskonar gjafavörur úr postul-
íni, kopar og handunnum leir, svo
og ilmkerti og handunnar vefnað-
arvörur frá Perú og Indlandi.
Eigandi hinnar nýju verslunar í
Garðabænum er Marta S.H. Krist-
jánsdóttir og er hún á meðfylgj-
andi mynd ásamt dóttur sinni
Rakel.
(FrétUtilkynning)
Metsölublac) á hverjum degi!
SFI BEÍIG KYWMfR^y
BJORTU
HLIÐARNAR
f#J
,A VIWA FUNDl"
.................rilllll>l|l|IHIIHWl*pTtttlÍlttlHllMt,‘
„Björtu hliðaraar" heitir ný bók
eftir Gylfa Gröndal.
Þetta er ævisaga Siguijónu
Jakobsdóttur, ekkju Þorsteins M.
Jónssonar skólastjóra og bókaút-
gefanda._______________________
Þetta er áttunda ævisaga Gylfa
Grondals, en í fyrra gaf Setberg út
eftir hann „Æviminningar Kristjáns
Sveinssonar augnlæknis", sem
varð metsöiubók.
„Björtu hlidaraar" er uppörvandi
og lærdomsríkur lestur. Það er
unun að fá að pjóta frásagnargáfu
og lífsgleði þessarar merku konu
sem þó háði svo oft harða lífsbar-
áttu.
Morgunblaðið, 30. nóv. 1983:
„Gylfi Gröndai hefur sýnt það í
ýmsum bokum, að honum er lagið
að laða fram góða frásógn... Titill
bókarinnar er mikið réttnefni.
Svona bók er gott að lesa og
dáiítið mannbætandi."
lóhanna Kristiónsdóttir,
er 208 blaðsíður auk
ra mynda.
Komin er út bókin „A vina fúndi"
eftir Guðmund Daníelsson.
Þetta eru bráðlifandi samtöl við
sautján íslendinga úr öllum lands-
hlutum. _______________________
Frásegjendur eru: BJÖRTS GUÐ-
MUNDSSON, VIGDÍS MAGNÚS-
DÓTTIR. GISSURÆVARR JÓNSSON,
JÓN ÞORKELSSON SMIÐUR, JÓN
VIDALÍN SÓLVEIGARSTÖÐUM, JÓN
INGVARSSON SKIPUM, RUT í
SÓLVANGI, SÉRA STEFÁN LÁRUS-
SON í ODDA, MARKÚS EINARSSON
FORSTJÓRI Á LITLAIIRAUNI,
ANDRÉS JÓNSSON BÓNDI OG
VERKAMAÐUR, KRISTÍN JÓNS-
DÓTTIR FRÁ GEMLUFALLI, IIAR-
ALDUR JÓNSSON í MIÐEY, ÓLAFUR
JÓNSSON EYSTRA-GELDINGAR-
HOLTI. KRISTMANN GUÐMUNDS-
SON SKÁLD, BJÖRN GUÐMUNDS-
SON SLEÐBRJÓTSSELI, ANNA
MARGRÉT OG FRIÐRIK PÉTURS-
SON, JÓNAS MAGNÚSSON VERK-
STJÓRl OG BÓNDI í STARDAL.
Morgunblaðið, 6. des., 1983: „Á
vina fundi er hollur lestur . . . Ég
get ekki ímyndað mér að aðrar
þjóðir geti státað af alþýðlegum
frásögnum af því tagi sem finna
má í „A vina fundi."
Jóhann Ifjálmarsson.
„A vina fundi" er 202 blaðsíður,
auk mynda.
GUÐMUMDUR DANÍEISSOM
avina
fundi
SETBEEG
Freyjugötul4