Morgunblaðið - 20.12.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983
69
isvímunni, eða menningarvím-
unni, eins og dr. Gunnlaugur seg-
ir, hurfu honum daprar sorgir
hversdagsleikans, gleðin tók við,
glaður vildi hann vera, hélt hann
gæti það ekki ódrukkinn, þess
vegna drukkinn alla tíð.
En hefði hann aldrei höndlað
gleðina í reglunni? Nóbelsskáld
vort heldur því fram að eins og öll
mikil skáld hafi Jónas skynjað
sorgina. Það hlýtur að hafa verið á
timburmannaskeiðunum, eða
hvað? Bindindismaðurinn Jónas
hefði mætt ástarraunum sínum
vökulum, næmum huga, ekki
drekkt þeim strax í guðaveigun-
um. Veit nokkur nema úr þeim
allsgáðu hugarþrengingum hefðu
komið dýrindis ljóðaperlur lang-
lífs stórskálds? Vonbrigði og
horfnar ástir hafa alltaf skilið eft-
ir sig dýpri listrænni spor en vel-
gengni og sorgarlaust líf. Eða reit
síra Hallgrímur Passíusálmana
e.t.v. undir áhrifum, dr. Gunn-
laugur? Það kemur kannski í
næstu grein.
Og enn er það eitt varðandi Jón-
as. Dr. Gunnlaugur minnist særð-
ur á kala þann og fálæti sem for-
feður vorir ávallt sýndu skáldinu,
og vitnar meira að segja í átakan-
legt ljóð Jónasar sjálfs, svo til-
vitnunin getur ekki verið mark-
tækari. Já, víst var Jónas Hall-
grímsson langt frá því að vera
vinsæll á sinni tíð, frekar en flest-
ir íslendingar sem eitthvað hefur
verið spunnið í.
En var það vegna þess hvursu
sjaldan honum skaut upp úr flóði
alkóhólsins? Nei, þá mætti ís-
lenska þjóðin fyrirlíta sjálfa
sig... Við vitum hins vegar að
Jónas tók í bakaríið hinn þjóð-
hyllta Sigurð Breiðfjörð og blés
skáldskaparstefnu hans, rímna-
kveðskapinn, út í hafsauga svo
hann náði sér aldrei á ný. Þar
sýndi sjálfur Jónas einmitt þann
illa anda sem dr. Gunnlaugur tel-
ur Kirkjubóls-Halldór og bindind-
isbræður hans altekna af —
ofstæki. Þeir hafa þó aldrei verið
andlega skyldir þeir Halldór
Kristjánsson og Jónas Hallgríms-
son eftir allt saman?
Svo, áður en ég klippi á þetta,
vil ég drepa á eitt atriði enn sem
snertir rökfræðihandbókina góðu,
eða réttara sagt fjarveru henar af
skrifborði Gunnlaugs. Reyndar
aukaatriði í þessum hugrenning-
um, en samt... Virðulegi Gunn-
laugur. Ef „vín er einn besti
mannasættir sem til er“, hví beit-
irðu því þá ekki fyrr en „sátt hefur
náðst“? Væri ekki nær að gefa
mönnum hið mannsættandi lyf á
fyrri stigum deilunnar, meðan
menn eru enn argir og heitt í
hamsi? Þá er nú of seint í bossann
gripið ef á að fara að sætta glaða
og fullsátta menn!
Dr. Gunnlaugur Þórðarson, ég
fékk mér ekki neðan í því áður en
ég hóf þessa greinarsmíð. Enda
geri ég varla ráð fyrir því að þér
finnist hún ljóma „af andagift
vestrænnar menningar og lista“.
En þó að ég sé allsgáður er ég
samt nógu menningarríkur til að
kunna að meta hugprýði þína og
andagift, eins og hún birtist oft á
öldum ríkisfjölmiðlanna. Þú kem-
ur, sérð og sigrar í hvert sinn er
hljómmikil rödd þín glymur i
hljóðvarpstækjunum, — þar ber
að ljá þér eyra. En hvað um það.
Ég vona að bindindismenn, hóf-
drykkjumenn sem og drykkju-
menn menningar og lista samein-
ist sem ein fjölskylda á hátíð
mesta bindindismanns allra tíma,
Jesú Krists.
Gjört í Garðakaupstað
8. desember 1983.
Kristínn Jón Guðmundsson er
nemandi í Menntaskóla Kóparogs
og sölumaður hjá Sölusamtökun-
um bf.
Ný sólbaðs-
og hár-
greiðslustofa
AÐ HRINGBRAUT 121, í JUport-
inu, hafa hágreiðslustofa og sól-
baðsstofa tekið til starfa.
Gunnþróunn Jónsdóttir rekur
hárgreiðslustofuna, en þær Sigga
og Maddý sólbaðsstofuna. Einnig
er úrval snyrtivara til sölu á
staðnum. Opið er alla virka daga
frá 9—18 og laugardaga frá
klukkan 9—16. Meðfylgjandi
myndir eru teknar á stofunum.
LtangaIU
lab^J
sig^uti
■ 11pesíV
etne^íc
x TÍ\vaV»*\
> lítið
Otðatoó^
og auna
S\an9ut<
gvava^
TYtotss
ipau ov
utu- r
i tuVud
I íóiVá'
DÖMU
NÆRBUXUR
Domu nærbuxurnar eru ur 97% bómull
og 3% teygiu. sem ofin er aó ofanverðu
Þola suðu. eru bæði klæðilegar og
þægilegar, 5 gerðir oq 3 stærðir I hverri
gerð
Utsölustaðir:
Verzl. Misty, Miðbætarmarkaði.
Verzl Georg, Austurstræti,
Verzl ísadóra, Austurstræti, Rvk.
Sápuhúsið, Laugavegi 17.
Verzl. Blik, Laugavegi
Holtsapótek, Langholtsvegi.
Borgarapótek, Álftamýri.
Sporið, Grímsbæ,
Árbæjarapótek, Hraunbæ
Verzl. Spói. Engihjalla, Kóp
Kf. Hafnfirðmga, Miðvangi,
Fjarðarkaup, Hólshraum
Nafnlausa buðin, Strandgötu.
Verzl. Vik, Ólafswik
Verzlunarfél. Grund, Grundarfirði,
Kf Hvammsfjarðar, Buðarddal
Verzl. Sig. Pálmasonar. Hvammstanga.
J.S. Bjarnason, Bíldudal.
Vöruval. Isafirði
Verzl Gunnars Sigurðssonar. Pingeyri
Kf. önfirðinga, Flateyri.
Utibú K.F.A , ölafsfirði.
Verzl. Sýn. Sauðárkróki.
Verzl. Sif, Akureyri
Verzl. Chaplin, Akureyri,
Apótek Neskaupstaðar, Neskaupstað
Apótek Austurlands, Seyðisfirði.
Pöntunarfél Eskifirði, Eskif
Kf. A. Skaftfellinga, Höfn, Hornaf.
Versl. Ninja Vestmannaeyjum
Rangárapótek, Hellu.
Bragakjör, Grmdavik.
Verzl Run, Grindavik.
Verzl. Kristy. Keflavik.
Verzl Aldan, Sandgerði,
Magnþora Magnusdottir sf.
heildverzlun
Brautarholti 16. simi 24460