Morgunblaðið - 20.12.1983, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983
77
rv
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
^ TIL FÖSTUDAGS
/71*1 U/m'l) If
Demantshringar —
Draumaskart
Þessir hringdu . . .
Aðstaðan mjög
góð og
allt til alls
Aðstandandi íbúa í Furugerði 1
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Það var einhver H.B.
að skrifa um Dalbraut 27 og
Furugerði 1. Ég var óskaplega
óánægður með þessi skrif fyrir
hönd fólksins í Furugerði 1.
Tengdamóðir mín býr þar, og
þess vegna er mer vei Kunnugt
um, að aðstaðan í húsinu er mjög
góð og allt til alls: hárgreiðsla,
fótsnyrting, leikfimi og matur,
og ef fólk er veikt, fær það sent
upp til sín. Á hverjum fimmtu-
degi kemur rútubíll á staðinn og
fer með fólkið upp í verslunar-
miðstöðina í Austurveri, bíður
meðan það erindar og skilar því
heim aftur. Og svona mætti
lengur telja.
Fékk að heyra
síðustu
mínútuna
Kristinn Pálsson, Keflavík,
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Fyrir stuttu gaf
hljómsveitin CTV út fyrstu
hljómplötu sína sem heitir Casa
Blanca. Platan fjallar um lífs-
gæðakapphlaupið og vísar til
samnefndrar kvikmyndar. Þetta
er að mínu viti fullkomnasta og
pottþéttasta skífa sem komið
hefur út i langan tíma. En það er
eins og Útvarpið sé að reyna að
þegja hana í hel, því að vart hef-
ur heyrst nokkuð af henni á rás-
unum tveimur, sem Útvarpið
hefur yfir að ráða. Reyndar fékk
áðurnefnd plata hálfkuldalega
kynningu á rás 2. Þar var rætt
við einn hljómsveitarmanna
CTV og á meðan heyrðist lágur
ómur af titillaginu. Þegar viðtal-
inu lauk var bara hækkað í lag-
inu og sagt að hér væri iagið
Casa Blanca með CTV og fólk
fékk að heyra síðustu mínútuna
af umræddu lagi. Þetta finnst
mér hálfleiðinleg framkoma hjá
útvarpsmönnum. Hugsum okkur
ef Bara-flokkurinn fengi t.d.
álíka kynningu. Ég hef á síðustu
dögum hringt margsinnis í rás 2
og beðið um að margumrædd
plata yrði spiluð, en þá hafa
syrpustjórarnir farið að gráta og
sagt að þeir vildu spila lög sem
þeir hefðu sjálfir valið. Að lok-
um vil ég hvetja alla sanna tón-
listaráhangendur til að hlusta á
þessa nýju plötu, auk þess sem
ég bið útvarpsmenn að hugsa
málið.
Dýraverndunarmál
ættu aö vera mun
meira á dagskrá í
fjölmiðlum en
nú er reyndin
Margrét Hjálmtýsdóttir skrifar:
„I pistlum Velvakanda 11. des.
er ágæt grein eftir Martein H.
Skaftfells, þar sem hann, eftir að
hafa kynnt sér ýtarlega flutning
hesta til slátrunar með skipum til
annarra landa, mælir eindregið á
móti slíkum verknaði, og er það
þakkarvert.
Af slíku tilefni koma í hugann
sagnir af sölu íslenskra hesta hér
áður á árum til þrældóms í kola-
námum Bretlands eftir að stungið
var í augu þeirra til að blinda þá
og vekja hrylling og eru smánar-
blettur á þeim, er að því stóðu.
Einu sinni var svörtum
mönnum í Afríku smalað saman
og þeir fluttir í skipum f hópum,
oft í böndum, og seldir til þræl-
dóms hjá hvítum mönnum á Vest-
urlöndum. Sú mikla svívirða hvílir
enn þungt á herðum hvíta manns-
ins. Þarna var ágirndin sem er
„rót alls ills" að verki.
Islendingar ættu ekki að fremja
svipaðan verknað gegn hestunum
sínum. Dýraverndunarmál ættu
að vera mun meira á dagskrá í
fjölmiðlum en nú er reyndin því
betur má ef duga skal.
Gæti Velvakandi að gefnu til-
efni birt dýraverndunarlög þau, er
Alþingi hefur samið?"
Kjartan Ásmundsson,
gullsmíðav.
Aðalstræti 8.
bevKi
Loft- og veggklæðningar, límtré, smíðaplötur,
parket. - A/lt úr Beyki,
því það er óskaviðurinn í dag!
Allar upplýsingar veittar í síma 25150.
BJORNINN HF
Skúbtúni 4 - Simi 25150 - Reykjavik
AUCLÝSINCASTOFA
MYNDAMÓTAHF