Morgunblaðið - 20.12.1983, Side 30
78
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983
Aldrei meiri
sviptingar á
vinsældalista
Tónabæjar og
Járnsíöunnar
Vegna mistaka (ekki þó af
hálfu Járnsíðunnar að þessu
sinni) gat ekki orðið af birt-
ingu hins mjög svo vaxandi
vinsældalista Járnsíöunnar og
Tónabæjar í síðustu viku.
Þetta stafaði af þeirri einföldu
ástæöu aö enginn listi var val-
inn í Tónabæ. Einföld og góð
skýring.
Kannski var það þessi hvíld
sem gerði útslagiö, hver veit,
en þegar komiö var saman á ný
til kjörs hrundu fjögur lög af
listanum, sem reyndar var þá
oröinn tveggja vikna gamall.
Þaö er langur timi í þoppinu og
sviptingarnar uröu í fullu sam-
ræmi viö þaö. Kíkjum á útkom-
una.
1(1) Union Of The Snake/-
DURAN DURAN
2 (—) Say It Isnt So/
HALL OG OATES
3 (—) Heart And Soul/Huey
Lewis and The News
Simon Le Bon, söngvari Duran
Duran.
4 ( 2) Promises, Promises/
NAKED EYES
5 ( 6) Say, Say, Say/
Paul McCartney og
Michael Jackson
6 ( 3) It’s a Jungle Out There/
BONE SYMPHONY
7 (10) I Want You/
CURTIS HAIRSTON
8 ( 4) Mama/GENESIS
9 (—) Why Me/IRENE CARA
10 (—) Superman/LADDI
Lögin, sem hrundu af listan-
um nú voru þessi:
* Bodywork meö Hot Streak.
Ein vika á listanum.
* New Song meö Howard Jon-
es. Fimm vikur á lista.
* Waiting For Another Chance
meö End Games. Ein vika á
lista.
* Automatic Man meö Michael
Sembello. Fjórar vikur á lista.
Say, Say, Say þeirra Páls og
Magnúsar hefur veriö á listan-
um, eitt laga, frá byrjun. Sjö
vikur alls. Mama meö Genesis
og Snákabandalagiö meö Dur-
an Duran hafa veriö í 5 vikur
hvort.
Loksins staðfest:
Tappi tíkar-
rass hættir
Þeir Jakob Magnússon og
Guömundur Gunnarsson í
Tappa Tíkarrassi tjáöu Járnsiö-
unni þaö rétt fyrir helgina aö
nýja platan, Miranda, yröi
svanasöngur sveitarinnar,
a.m.k. í núverandi mynd. Ein-
hverjir tónleikar munu vera
fyrirhugaðír áöur en leiöir skilja
með Björk Guömundsdóttir,
söngkonu, og hinum þremur,
sem hyggjast halda hópinn.
Orörómur um aö Tappi Tíkar-
rass væri aö hætta hefur veriö
á kreiki frá því í haust, en er nú
loks staöfestur.
Tappi tíkarrass í útlandinu.
Sjö plötur frá
Gramminu í ár
— Miranda Tappa tikarrass á leidinni
Hljómplötuverslunin
Grammíö hefur nýlega flutt
sig um set og hefur nú aöset-
ur á Laugavegi 17. Þar er á
boðstólum fjölbreytilegt úrval
af íslenskum og erlendum
hljómplötum. Grammiö flytur
nú inn hljómplötur meó ýms-
um tegundum rokk-, jazz- og
klassískrar tónlistar, auk
bóka og tímarita.
Hljómplötuútgáfan Gramm gef-
ur út 7 hljómplötur á þessu ári:
1. Tappi tíkarrass: Miranda er
ný LP-hljómplata frá þessari vin-
sælu hljómsveit, sem vakiö hefur
mikla athygli fyrir frammistöðu
sína í kvikmyndunum Rokki í
Reykjavík og Nýju lífi. Plata þessi
var tekin upp fyrr á þessu ári í
Southern Studios í London og hef-
ur veriö vandað vel til útgáfu þess-
arar. Platan er væntanleg á mark-
aöinn mánudaginn 19. desember.
2. Hljómsveitin Vonbrigði sendi
fyrir nokkru frá sér sína fyrstu
LP-plötu, Kakófóníu, sem vakiö
hefur mikla athygli. Vonbrigöi er
nú ein athyglisveröasta nýbylgju-
hljómsveit á íslandi, en er einnig
farin aö vekja veröskuldaöa athygli
erlendis því hljómsveitin lék nýlega
á samnorrænni tónlistarhátíö í
Stokkhólmi og þessi nýja plata
hefur nú einnig veriö gefin út í
Bretlandi af útgáfufyrirtækinu
Shout Records.
3. Þorlákur Kristinsson hlaut
frábærar viötökur fyrir LP-plötu
sína The Boys from Chicago.
Þorláki til aöstoöar á plötunni er
hljómsveitin Ikarus, en sérlegur
gestur er Megas sem syngur 4 af
21 lagi plötunnar. Hin 60 mínútna
langa plata skiptist í tvö horn, fyrri
hliöin inniheldur söng og kassagit-
arspil Þorláks, en á þeirri seinni
keyrir hann rokkiö upp viö undir-
leik Ikarus.
4. Hljómsveitin Kukl sendi frá
sér smáskífu meö lögunum Söng-
ull og Pönk fyrir byrjendur.
Hljómsveitina skipa einstaklingar
«em veriö hafa í framlínu íslenskrar
rokktónlistar um langt skeiö, Björk
Guömundsdóttir, Einar Örn, Sig-
tryggur Baldursson, Birgir Mog-
ensen, Einar Melax og Guölaugur
Óttarsson. Kukl mun hljóörita nýja
LP-plötu í byrjun næsta árs í Lond-
on, sem gefin veröur út hjá útgáfu-
fyrirtæki Crass.
5. Hljómsveitin Þeyr gaf út litla
plötu meö lögunuum Lunaire, Pos-
itive Affirmations og The Walk. I
gullgeröarlist eru 5 frumefni og
sem grundvöll alls hefur oft veriö
talaö um „the law of fives“. Hvort
hljómsveitin Þeyr hafi meö þessari
plötu höndlaö frumefnin fimm og
látið tónlistina lúta fimmundar-
lögmáli skal ósagt látiö. Ef svo er
ekki þá er hún allavega nærri því.
Annars er platan tileinkuö tunglinu
og hvers vegna ekki?
6. Hljómsveitin Purrkur Pillnikk
sendi frá sér 5. plötu sína á árinu.
Þaö er LP-plata sem ber heitið
Maskínan. Á henni er aö finna
upptökur af hljómleikum svo og
önnur sjaldgæf og illfáanleg lög.
Purrkur Pillnikk var alltaf tónleika-
grúppa og því ekki úr vegi aö hafa
síöasta afkvæmi hennar ættaö frá
þeim tónleikum sem hún spilaöi á.
Maskínan spannar allt frá þriöju
tónleikunum til þeirra síöustu og er
m.a. komiö viö á Englandsferö
Purrksins og síöustu tónleikum á
Melavelli. Nýir tónar og nauösyn-
legir.
7. Þá er aö geta 45 snúninga 12
tommu plötu hljómsveitarinnar
Q4U sem ekki ætti aö þurfa aö
kynna. Platan nefnist Q1 og er
fyrsta plata þessarar hljómsveitar
sem vakti fyrst verulega athygli
fyrir leik sinn í kvikmyndinni Rokki
í Reykjavík.
Tvennir tónleikar Mezzo-
forte í Háskólabíói
Það hefur varla fariö framhjá
nokkrum, að Mezzoforte efndi til
tvennra tónleika í Háskólabíói é
sunnudag. Sannarlega merkur
viöburöur og stemmningin var
hreint mögnuð á þeim tónleíkum
er umsjónarmaður Járnsíðunnar
sat, þ.e. þeim síðari. Mezzoforte
haföi ekki leikið á tónleikum hér
heima síðan í mars/apríl. Frá
þeim tíma hefur margt drifiö á
daga sveitarinnar.
Allt frá því „bigband“ tónlistar-
skóla FÍH steig á sviö rétt upp úr
kl. 21 var loftiö rafmagnaö í saln-
um. Kennarasveit skólans kom því
næst og þá lcelandic Seafunk
Corporation, sem sannarlega sló í
gegn þetta kvöld. Mezzoforte-
strákarnir stigu þvínæst á sviö eftir
hlé og eftir fremur rólega byrjun
þróaöist tveggja stunda langt
prógramm þeirra upþ í kynngi-
magnaðan lokasprett, þar sem
áhorfendur heimtuöu meira og
meira. Fengu eitt aukalag og í lok-
in sungu allir Heims um ból. Vegna
þrengsla veröur frekari umfjöllun
aö bíða.
Allur ágóöi af tónleikunum rann
til tónlistarskóla FÍH. Gott fordæmi
hér á ferö og kannski er sá tími
hinum fræga klúbbi Ronnie Scott’s
í hinu virta dagblaöi The Times.
Þar sagöi m.a., aö Mezzoforte
heföi leikiö frábærlega og þá ekki
síöur jazzlög, m.a. Charlie Parker-
standarda. Öllum hljómsveitar-
meölimum er hælt í hástert en
engum þó eins og Friörik Karls-
syni. „Jazzinn bókstaflega leggur
frá honum,“ sagöi blaöiö. Þá segir
Times, aö Mezzoforte ætti í raun
aö leyfa sér oftar aö leika „frjáls-
legar í anda jazzins”.
„Svona, brostu nú karl“. Jóhann og'
Kristinn úr Mezzoforte bregöa á leik
með Steínari Berg.
runninn upp, að íslenskar hljóm-
sveitir styrki stofnanir, sem standa
þeim nær en margar aörar. Hér er
þó ekki veriö aö varpa rýrö á spila-
mennsku í þágu þeirra, sem minna
mega sín í þjóöfélaginu.
Fyrir réttum hálfum mánuöi var
Oe*e*
pUC6 ^O'
•'VL x>'lo t\cNC' 'ií.otví'"'^Y\e*t a ___
CÓ' _\ns ^ ^ V\»A
'SST' "'íJeW'"'0
___— Urklippan úr The Times.
Bubbi er enn samningsbundinn hjá Steinum hf.:
Fékk 200.000 kr. við undirskrift en mátti ekki semja
Óvíst hvað verður um samninginn við Safari Records
er meö snöruna um hálsinn,“ sagöi
hann, en frábaö sór frekari um-
„Bubbi er á samningi hjá okkur
og þaö er Egó líka. Sá samningur
er enn í gildi og því sætti ég mig
að sjálfsögðu ekki við þaö ef
hljómlistarmenn á okkar snærum
ætla sér að semja viö önnur
plötufyrirtæki á meðan samning-
ur þeirra viö okkur er fjarri því að
vera útrunninn."
Svo fórust Steinari Berg Isleifs
syni, forstjóra Steina hf., orö er
Járnsíðan spuröi hann, þegar hann
kom tfl landsins á miövlkudag,
hvort rétt væri, aö Bubbi Morth-
ens, sem veriö hefur á samningi
hjá Steinum hf., væri aö slíta sam-
starfinu og ganga til liös viö Safari
Records.
Tilefni fyrirspurnar Járnsíöunnar
var til komiö vegna þess, aö í
plötudómi Finnboga Marinóssonar
um safnplötuna Línudans í Morg-
unblaöinu var þess getiö, aö Bubbi
væri kominn meö nýjan plötu-
samning.
Járnsíöan fór á stúfana og aflaöi
sér þá þeirra upplýsinga, aö Safari
Records heföi greitt Bubba
200.000 krónur fyrir undirritun
samningsins. Af þeirri upphæö
voru 150.000 kr. í reiöufé skv.
heimildum Járnsíöunnar.
Hvernig þessi misskilningur kom
upp, aö Bubbi taldi sig geta samiö
viö Safari Records, er óvíst, en í
óformlegu spjalli viö Járnsíöuna
fyrir nokkrum dögum sagöi Bubbi
þaö Ijóst, aö hann væri ekki laus
frá samningnum viö Stelna hf. „Ég
ræöur um máliö viö þær kringum-
stæöur, sem spjalliö fór fram viö.
„Ef Bubbi vill ekki vera á samn-
ingi hjá okkur og ef Egóiö vill þaö
ekki heldur, þá gott og vel. Þessir
aöilar geta fengiö samningnum
rift,“ sagöi Steinar ennfremur.
— Hefur þeim veriö boöiö aö
rifta samningi?
„Já.“
— Og hvert var svariö?
„Þeir vildu ekki rifta samningn-
um.“