Morgunblaðið - 20.12.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983
79
Stutt spjall viö keflvísku sveitina C.TV.
„Þad var eitt og annað, sem olli
því aö við skiptum um nafn á
hljómsveitinni,“ sögöu þeir Sig-
urður Sævarsson og Baldur Guð-
mundsson, höfuðpaurar keflvísku
sveitarinnar C.TV. er þeir litu inn
á ritstjórn og röbbuöu stuttlega
viö umsjónarmann Járnsíöunnar
um fyrstu plötu þeirra, Casa-
blanca.
f raun er varla hægt aö tala um
aö C.TV. sé ný hljómsveit í besta
skilningi þess orös. Þeir Siguröur
og Baldur voru áöur í hljómsveit-
inni Box ásamt Óskari Nikulássyni.
Hann greip hins vegar tækifæriö
þegar stóri bróðir, Axel, fór til
Bandaríkjanna og hirti sæti hans í
Njarövíkurliöinu í körfuknattleik.
Þar meö var poppið aö mestu lagt
á hilluna. Baldur sagöi þá tvo þó
leika saman í annarri hljómsveit,
þannig að Óskar héldi sér aöeins
viö. C.TV. er því skipuö þeim Sig-
uröi og Baldri, svo og öörum
Baldri (Baldurssyni) og bróöur Sig-
urðar.
„Ég held aö C.TV. sé nokkuö
rökrétt framhald af því, sem Box
var aö gera,“ svaraði Baldur er
Járnsíöan innti hann eftir tónlist-
arbreytingum, sem oröiö heföu.
„Annars er þetta aö mestu leyti
heföbundiö popp meö nýjum
vinnubrögðum. Sum þessara laga
eru reyndar frá byrjun þessa árs
og öll eldri en nafniö á hljómsveit-
inni. Nafniö? Nei, þaö er ekkert í
tengslum viö Psychic TV. Viö
þekktum þá hljómsveit ekkert, lás-
um aö hún væri aö koma hingaö til
lands daginn eftir aö viö nefndum
okkur C.TV.“
— Hvernig móttökur hafiö þiö
fengið til þessa undir þessu naíni?
„Móttökur?" Þaö veröur stutt
þögn. „Þær hafa nú veriö dálítiö
blendnar. Viö fengum t.d. góöar
móttökur á tónlistarhátíö Fjöl-
brautaskóla Suöurnesja í Stapa,
en hiö sama veröur ekki sagt um
unglingastaöina D-14 og Agnar-
ögn. Viö spiluöum reyndar líka á
æskulýösvikunni á Kjarvalsstöö-
um, en fengum ekki verulega góö-
an hljómgrunn.“
Skuggahliðín
— Þiö sögöuö áöan, aö tónlist-
in væri rökrétt framhald af þvi sem
Box var aö gera, en um hvaö fjalla
textarnir?
„Þeir mynda í raun ákveöna
heild. Fjalla um skuggahliöar lifsins
(önnur plata Box hét Skuggahliöin)
og þá staöreynd aö fólk er alltaf aö
reyna aö flýja raunveruleikann.“
— Nú hefur tónlist ykkar lítiö
heyrst í útvarpi. Hvaö teljiö þiö
valda?
„Góö spurning. Okkur hefur
gengiö mjög illa aö koma tónlist
okkar aö og Rás 2 hefur alveg
brugöist vonum okkar. Þó er
geysilega mikiö leikiö af íslenskri
tónlist þar. Við höfum reynt fyrir
okkur á fleiri stööum, t.d. hjá sjón-
varpinu, en talaö fyrir daufum eyr-
um. Reyndar höfum viö velt því
fyrir okkur aö gera myndbands-
upptöku af einhverju laga okkar en
úr því hefur ekki oröiö ennþá."
— Af framangreindu má ráöa,
aö þiö eigiö dálítiö erfitt uppdrátt-
ar, eöa a.m.k. tónlist ykkar. Eru
unglingar ekki lengur nýjunga-
gjarnir?
„Þaö er nú þaö, af þeim móttök-
um, sem viö höfum oft fengiö,
mætti helst ráöa, aö allir vildu hafa
tónlistina óbreytta frá því sem hún
hefur veriö í mörg ár. Sumir stara á
okkur eins og naut á nývirki af því
aö viö erum t.d. ekki meö tromm-
ara. Notum trommuheila.“
— í beinu framhaldi: Hvernig
gengur þá reksturinn á sveitinni?
„Hann gengur eiginlega ekki,“
segja þeir félagar og hlæja. „Viö
höfum til samans fengiö 1000
krónur fyrir þrenna síöustu tón-
leika. Þaö þykir ekki mikiö. En svo
mikiö er víst, aö enginn getur meö
góðri samvisku sagt, aö viö séum í
þessu peninganna vegna."
Sannkölluö skuggahliö, sem
þeir strákar í C.TV. draga upp, en
vonandi fer aö birta til hjá þeim
eins og öörum landsmönnum inn-
an tíöar.
— SSv.
Einir tónleikar,
tónsnælda
og svo í dvala
„Pönkabillý-hljómsveitín
Oxsmá, sem að undanförnu
hefur vakið athygli fyrir þaö,
sem sveitin nefnir sjátf „kill-
embillý" tónlist sína, helt tón-
leika í Safari á fimmtudag.
Með þessum tónleikum
braut Oxsmá odd af oflæti
sínu, því til þessa hefur sveitin
ekki leikið fyrir hvern sem er.
Helst á einhverjum „under-
ground“-stööum. Þetta voru
sumsé fyrstu opinberu tónleik-
ar Oxsmá.
Þessir merku tónleikar voru
reyndar hálfgeröur feigöarboöi,
því Oxsmá leggst í dvala um
ófyrirsjáanlegan tíma. Hins
vegar þurfa áhangendur henn-
ar ekki aö skæla, því strax á
föstudag var væntanleg tón-
snælda meö upptökunum frá
kvöldinu áöur. Vanir menn, aö
maöur segi nú ekki meira.
Jón Ólafsson
nýr liðsauki
„Jú, þetta er rótt hjá þér,
Jón Ólafsson er genginn til
liðs við okkur,“ sagði Eiríkur
Hauksson er Jámsíðan sló á
þráðinn til hans í vikulok.
Undanfarnar vikur hafa þeir
Einar Jónsson veriö á höttun-
um eftir bassaleikara og hugs-
anlegum hljómborösleikara i
sveit þeirra, sem senn veröur
hleypt af stokkunum. Fjóröi
maöurinn í sveitinni er Siguröur
Reynisson, trommuleikari.
Jón Olafsson er gamalreynd-
ur bassaleikari og hefur komiö
viöa viö sögu á löngum ferli.
Um miðbik áttunda áratugarins
var hann í vinsælustu flokkum
landsins og síöast í Start áöur
en sú sveit söng sitt síöasta.
Gekk reyndar í Foss um tíma,
en þeirri sveit skolaöi til sjávar
á mettíma.
Aö sögn Eiríks er stefnt aö
því aö koma fram einhvern tíma
fljótlega á nýja árinu og hefur 5.
janúar veriö nefndur sem hugs-
anlegur dagur og þá á Borg-
inni. Vel hefur veriö æft aö und-
anförnu og nýju lögin hrannast
upp.
►
Fara Dúkku-
lísurnar á
samning hjá
Skífunni?
Við skýröum frá því á Járn-
síöunni á fimmtudag, að
plötusamningur væri í höfn
hjá hljómsveitinni stórefni-
legu, Dúkkulísunum frá Eg-
ilsstöðum. Ekki munu þau mál
þó alveg vera fullfrágengin, en
þó öll í deiglunní.
Þaö er Skífan, sem hyggst
gefa út plötu meö Dúkkulísun-
um. Er Járnsíöan haföi sam-
band viö Óskar Þórisson hjá
Skífunni sagöi hann rétt, aö
veriö væri aö athuga þessi mál,
en samningur viö hljómsveitina
væri ekki frágenginn.
Eftir aö hafa heyrt i Dúkkulís-
unum í tvígang á skömmum
tíma er umsjónarmaöur Járn-
síöunnar ekki í nokkrum vafa
um aö þær eiga eftir aö slá í
gegn og þaö svo um munar.
Myndabók Fjölva um rokk nýlega komin út
Frábærar myndir en textinn ekki gallalaus
Myndabók Fjölva um rokk
kom út fyrir nokkru. Hér er um
aö ræða myndarlega bók meö
fjöldamörgum glæsilegum lit-
myndum. Upphaflega kom
þessi bók út hjá Salamander-
útgáfunni í Lundúnum, en text-
anum hefur nú verið snaraö yfir
á íslensku. Myndirnar áfram
þær sömu og „layout“ sömu-
leiðis hiö sama.
Umsjónarmanni Járnsíöunnar
hefur ekki gefist mikiö tóm til að
grandskoöa bókina í jólafárinu.
Hins vegar hafa fjölmargar þýð-
ingar í bókinni vakiö undrun og
eftirtekt. Viröist á köflum, sem
þýöandi bókarinnar geri sér illa
grein fyrir ýmsum þeim nöfnum
og hugtökum, sem notuö eru í
tónlistinni.
Sem myndabók er þetta eigu-
legasti gripur, en þá ættu menn
líka aö foröast aö taka þaö
bókstaflega, sem í textanum
stendur. Sem fróöleiksrit hefur
bókin nokkuö gildi, einkum þó
inngangur hennar. Þó er hann
ekki gallalaus og enn held ég aö
þýöandinn eigi þar sök á. Sú
árátta hans aö þýöa helst öll er-
lend orö og hugtök kemur oft
eins og köld vatnsgusa framan
lesandann.
/fsr-
r%
r.«v3
'm
Af mörgum frábærum myndum telur umsjónarmaöur Járnsíöunnar þessa bera af. Scorpions á útopnu.
Síðbúin mynd af tón-
leikum Linton Kwesi
Nokkuð er nú um liðið frá því reggae-kappinn Linton Kwesi
skemmti á annað þúsund islendingum á eftirminnilegan hátt í
Sigtúni. Til stóð að birta mynd af kappanum frá Sigtúni meö um-
fjöllun um tonleika hans sl. þriöjudag, en vegna mistaka var þaö
ekki hægt. Við bætum nú úr þessum myndaskorti og læðum hér aö
einni góðri af kappanum, þar sem hann syngur við undirleik sveitar
Dennis Bovell.