Morgunblaðið - 29.12.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.12.1983, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 298. tbl. 70. árg. FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins 17 flýðu frá borði Am.sterdam, 28. desember. AP. SAUTJÁN pólskir ferðamenn flýðu af pólska skemmtiferðaskip- inu Rogalin, sem áður hét Edda og var í siglingum til og frá Islandi, er skipið hafði sólarhrings viðdvöl í Amsterdam. Báðu þeir um hæli sem pólitískir flóttamenn. í hópn- um eru hagfræðingur, sálfræðing- ur, tveir vísindamenn, bóndi, skrifstofumenn, námsmaður, túlk- ur og hjúkrunarkona. Ummæli Jumblatts vekja ugg Beirút, 28. desember. AP. WALID Jumblatt leiðtogi drúsa sagöi í kvöld aö vonlaust væri aö halda áfram sáttatilraunum við stjórn Amin Gemayels forseta. Talið er að með þessu sé Jumbl- att að loka dyrum á nýjan sátta- fund helztu leiðtoga stríðandi afla, og er óttast að borgarastyrjöld kunni að brjótast út að nýju í Líb- anon. Yfirlýsingin dregur einnig úr vonum manna að saminn verði friður st'ríðandi fylkinga í Líbanon og þannig lagður grundvöllur að brottflutningi gæzluliða og út- lendra herja frá landinu. Sakaði Jumblatt stjórnarherinn um margendurtekin Srot á vopna- hléssamkomulaginu með skotár- ásum á stöðvar drúsa í fjöllunum umhverfis Beirút og stöðvar shíta í suðurúthverfum Beirút: Dýrkeypt jólakynding Osló, 28. desember. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Mbl. Jólakyndingin reyndist dýr hjá norskum 82 ára öldungi, því er hann kveikti upp í kolaofninum haföi hann gleymt aö þar geymdi hann sparifé sitt. Það var ekki fyrr en skíðlogaði í gamla ofninum að fyrir honum rann upp ljós, en það var um sein- an og 12 þúsund krónur norskar í seðlum að verða að ösku. Askan er nú í vörzlu og til rann- sóknar í Noregsbanka og finnist einhver seðlanúmer í öskunni mun bankinn bæta öldungnum viðkom- andi seðla. Bandaríkin úr UNESCO París, 28. desember. AP. SENDIFULLTRÚI Bandaríkjanna hjá Menningar- og vísindastofnun Sameinuöu þjóöanna (UNESCO) skýröi framkvæmdastjóra stofnun- arinnar frá því í dag aö Bandaríkin myndu draga sig út úr stofnuninni frá lokum næsta árs, aö sögn áreiö- anlegra heimilda. Búist er við að yfirvöld í Wash- ington tilkynni þessa ákvörðun sína formlega á morgun, fimmtu- dag. Hefur stjórn Reagans forseta ákveðið að draga Bandaríkin út úr stofnuninni vegna óánægju með störf og stefnu hennar. Siökkviliösraenn vinna aö því aö ráða niðurlögum elds, sem gars upp eftir sprengingu í vöruhúsi í Buffalo í New York ríki meö þeim afleiöingum aö a.m.k. sex menn fórust. —, _, , . Sfmamynd AP. _____________ Sex forust t gassprengingu SEX menn týndu lífi í mikilli gassprengingu í vöruhúsi í úthverfi Buffalo og 60 slösuðust. Tugir húsa löskuðust illa og íbúðarblokk hrundi til grunna. Talið er að sprengingin hafi orðið vegna própangasleka. Slökkvi- liðsmenn voru nýkomnir á vettvang þar sem tilkynnt hafði verið um gasleka við vöruhús brauðgerðar. Eftir sprenginguna gaus upp mikill eldur sem breiddist ört út til nærliggjandi húsa. Náðu hundruð slökkviliðsmanna ekki undirtökun- um í viðureigninni við eldinn fyrr en eftir þrjár klukkustundir. Slíkur hiti stóð frá eldinum að hlutar slökkviliðsbifreiðanna hrein- lega bráðnuðu. Sjá: „Bresturinn bergmálaöi um endilanga borgina" á bls. 19. AP/ Símamynd. Fáni brenndur Sovézki fáninn brenndur á mót- mælafundi fyrir utan sovézka sendiráðiö í Delhí. Fundurinn var haldinn í tilcfni fjögurra ára afmælis innrásar Sovétmanna í Afganistan. Sjá nánar á bls. 19: „Stjórnin hélt upp á innrásarafmæ!ið.“ * Fjármálaráðherra Israels: Vill fresta landnámi á Vesturbakkanum Tel A»iv, 28. desember. AP. YIGAL COHEN-ORGAD fjármálaráöherra kraföist þess í dag að nánast öllum byggingaframkvæmdum á hernumdum svæöum á Vesturbakkanum yröi frestaö, og varö þaö til þess aö valda miklu hugarangri meöal ýmissa ráöhcrra í stjórn Shamirs, en gyöingabyggöir á hernumdum svæöum er hyrningarsteinn í hugmyndafræði þeirra. Cohen-Orgad hefur verið einn helzti talsmaður þess að gyðingar hæfu landnám á hernumdum svæðum og á sjálfur hús í smíðum í borginni Ariel í bakkanum miðj- um. Af hálfu ráðuneytisins var sagt að hugmyndir hans væru hluti af „efnahagsramma", sem næstu fjárlög myndu byggjast á. Einnig vill Cohen-Orgad fresta smíði meiriháttar áveitukerfis og vatnsorkuvers, sem tengja mundi Dauðahafið og Miðjarðarhafið með miklum skurði. Jafnframt að numin verði úr gildi lög um skyldunám, sem tryggja þegnun- um ókeypis skólagöngu til 15 ára aldurs, og að foreldrar greiði hluta kostnaðar við menntun að loknu barnaskólstigi í hlutfalli við tekj- ur. Ýmsir brugðust reiðir við fregn- inni um áform fjármálaráðherr- ans, sem boðað hefur verulegan niðurskurð á ríkisútgjöldum, en þau endurspegla þá hrikalegu efnahagskreppu sem ísraelar eiga við að etja. Þeir skulda erlendis 23 milljarða dollara og búa við 200% verðbólgu. Allsherjarverkfall hófst í baðstrandarbænum Eilat við Rauðahafið öðru sinni í þessum mánuði, þar sem verið er að mót- mæla auknu atvinnuleysi í ísrael. Andropov fjarverandi á haustfundi æðstaráðsins Washintíton, Moskvu, 28. desember. AP. YURI ANDROPOV leidtogi sovézka kommúnistaflokksins hefur verið í nýrnavél frá í sumar vegna alvarlegs nýrnasjúkdóms og er mjög þungt haldinn, aö því er Washington Post hefur eftir læknum og diplómötum. Andropov var fjarverandi er æðsta ráöið kom saman til haustfundar í dag og hann var heldur ekki viðstaddur fundi miönefndar kommúnistaflokksins síðustu daga. Ráðamenn í Kreml segja Andropov taka fullan þátt í störf- um flokks og ríkisstjórnar og því ekki alvarlega veikan, hann þjáist aðeins af kvefi. í skilaboðum til miðnefndarinnar kvað Andropov „tímabundna örðugleika" valda fjarveru sinni. Æðsta ráðið fjallar fyrst og fremst um efnahagsáætlun og fjárlög næsta árs, sem miðnefndin samþykkti á sínum fundi. Washington Post hefur eftir heimildum sínum að Andropov kunni að vera við góða andlega heilsu þrátt fyrir sjúkdóm sinn og því hafa tök á stjórn landsins. Hins vegar sé ekki við því að búast að hann eigi langa lífdaga fyrir höndum, vart nema eitt ár eða tvö í mesta lagi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.