Morgunblaðið - 29.12.1983, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1983
Reglur um stjórnun veiða
væntanlegar 20. febrúar:
Ekki er skynsam-
legt að taka allar
ákvarðanir nú
Stykkishólmur:
Ingibjörg Daðadóttir og Sigurður Magnússon.
74 ára brúðkaupsafmæli
Stykkishólmi, 27. desember.
f ÞESSUM mánuði áttu þau Ingibjörg Daðadóttir og
Siguröur Magnússon fyrrum hreppstjóri 74 ára brúð-
kaupsafmæli. Hann er nú 103 ára og verður ef hann
lifir, 104 ára í apríl nk., en hún 100 ára 19. maí nk.
Hann er nú rúmfastur á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi
og hefir verið það nokkurn tíma, en hún er heima hjá
Aðalheiði dóttur sinni.
Það gerðist í haust að hún varð lasin og var
tekin á sjúkrahúsið. Þar hitti ég hana og sagði
hún mér þau tíðindi að þetta væri sín fyrsta
sjúkrahúsvist og þar var hún nokkra daga og lét
vel yfir allri meðferðinni. Hún hefir fram til þessa
alltaf verið að vinna eitthvað í höndunum, en nú
hefir hún, eins og hún segir, slegið slöku við, enda
starfsdagur langur og heilsan eins og gengur og
gerist þegar háum aldri er náð.
FrétUritari.
Mál, sem við koma sjávarút-
vegi heyri undir ráðuneytið
— segir Halldór Ásgrfmsson sjávarútvegsráðherra
„MÉR finnst skynsamlegt að
setja ýmis mál, sem viðkoma sjáv-
arútvegi, undir sjávarútvegsráðu-
neytið, svo sem Siglingamála-
stofnun, jafnvel Landhelgisgæzl-
una, fiski- og farmannafræðsluna,
Fiskvinnsluskólann og Veiðimála-
stofnunina," sagði sjávarútvegs-
ráðherra, Halldór Ásgrímsson,
meðal annars á fundi hjá Sjó-
Kísiliðjan hf.:
Ársframleiðsla í
fyrsta sinn meiri
en 25 þús. tonn
Mývatn88veit, 27. desember.
FYRIR nokkrum dögum var slegið
met í framlciðslu kísilgúrs hér á
landi. Þá komst ársframleiðslan í
25 þúsund tonn, en áður hefur hún
mest orðið 24.700 tonn á ári. í dag
var þessa merka áfanga minnst
með því að starfsfólki Kísiliðjunn-
ar hf. var boðið til kaffidrykkju í
verksmiðjunni.
Þar var veitt af mikilli rausn
og myndarskap. Við það tæki-
færi gat Hákon Björnsson fram-
kvæmdastjóri þess, að stefnt
væri að því að framleiðslan á
næsta ári gæti orðið 26 þúsund
tonn.
Ekki er enn ljóst hver heildar-
framleiðslan verður á árinu
1983, en þó er talið að hún verði
um 25.500 tonn. Sala á kísilgúr
gengur mjög vel og má segja að
allt seljist eftir hendinni.
— Krislján.
mannafélagi Reykjavíkur í gær.
„Eitt af því sem menn mega
ekki nefna eru tilraunaveiðar á
laxi, það er eins og menn vilji
ekkert vita um laxinn, en hann
heyrir undir landbúnaðarráðu-
neytið og það er kannski ekki
svo fráleitt, en menn virðast
bara ekki vilja skoða hvað er í
efstu lögum sjávarins. Ég hef
fengið mörg slæm bréf í kjölfar
þess að ég sagðist hlynntur því
að hafnar yrðu tilraunaveiðar á
laxi. Þetta er svipað og þegar
þeir, sem efuðust um að frelsar-
inn væri eingetinn, voru drepn-
ir. Það eru nánast sömu trúar-
brögð ríkjandi með laxinn, það
má ekki efast um eina einustu
kenningu í sambandi við hann.
Menn hafa sagt við mig, að með
þessu sé ég að reita af mér
bændafylgið á Austfjörðum,"
sagði Halldór Ásgrímsson.
- til þess er málið of
viðamikið, segir sjáv-
arútvegsráðherra
Sjávarútvegsráðuneytið stefnir
að því, að birta nýjar reglur um
stjórnun veiða á helztu botn-
fisktegundum fyrir 20. febrúar
næstkomandi. Hinar nýju reglur,
sem ætlað er að taki gildi í marz-
byrjun, munu meðal annars taka til
veiða á þorski, ýsu, ufsa, karfa,
skarkola, grálúðu og steinbít. I frétt
frá sjávarútvegsráðuneytinu segir,
að útgerðarmönnum og skipstjórn-
armönnum skuli bent á, að alíi og
úthald á botnfiskveiðum í janúar og
febrúar muni reiknast sem hluti af
leyfi þeirra til slíkra veiða á árinu
1984. Afli og úthald á ufsa- og út-
hafsrækjuveiðum á þessum tíma
mun þó ekki skerða botnfiskleyfi á
árinu 1984. Sama gildi um línuveið-
ar af hálfu.
í frétt ráðuneytisins segir
ennfremur, að meginreglan verði,
að útgerðarleyfi hvers veiðiskips
til botnfiskveiða verði bundið við
ákveðið aflamark af hverri þess-
ara sjö tegunda eða ákveðið sókn-
armark í úthaldsdögum, sem
gildi fyrir árið 1984, en verði ef til
vill skipt á tímabil. Leyfunum
verði meðal annars úthlutað með
hliðsjón af afla og úthaldi fiski-
skipa á tímabilinu 1. nóvember
1980 til 31. október 1983.
Sjávarútvegsráðherran kynnti
þessar reglur nánar á fundi í Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur í gær
og sagði þá meðal annars, að það
væri samdóma álit þeirra, sem að
þessu ynnu, að þeir þyrftu að
ætla sér alllangan tíma til að
ganga frá þessum málum endan-
lega og því væri ekki skynsamlegt
að taka allar ákvarðanir nú.
Þetta væri það viðamikið mál, að
það mætti kallast gott ef reglurn-
ar yrðu tilbúnar fyrir þennan
tíma. Það væri mikið vandamál
að ákveða nýjum skipum afla-
mark og því væri sá möguleiki
inni í dæminu, að úthluta þeim
einhverjum ákveðnum dagafjölda
til veiða á næsta ári vegna þess,
að engin raunhæf viðmiðun væri
til staðar.
Ráðherrann sagði ennfremur,
að á þessum tíma væru veiðar á
úthafsrækju ekki miklar, en þó
hefði þótt rétt að hafa þær utan
aflamarksins vegna þess, að lík-
legt væri að auka mætti sókn í
rækjuna. Ufsinn hefði þá sér-
stöðu, að gert væri ráð fyrir þvi
að veiða meira af honum á næsta
ári en veitt yrði í ár. Auk þess
væri nú gott verð fyrir ufsa er-
lendis, aðallega í Þýzkalandi og á
þessum tíma væri hann mjög
góður til vinnslu. Hvað línuveið-
arnar varðaði, væri aukning
þeirra þáttur í því, að koma með
betra hráefni að landi. Þær gætu
þá einnig komið að nokkru í stað-
inn fyrir þorsknetaveiðar. Því
væru línuveiðarnar að hálfu
teknar út fyrir aflamarkið.
Mosfellssveit:
Útsvör lækki
úr 11% í 10,5%
Útsvar.sálagning í Mosfellssveit á
komandi ári verður lækkuð úr 11% í
10,5% samkvæmt frumvarpi til fjár-
hagsáætlunar sem lögð var fram á
hreppsnefndarfundi í gær. Fast-
eigna- og aðstöðugjöld verða óbreytt
frá í ár.
Fasteignagjöld á íbúðarhúsnæði
eru 0,375% eða með hámarksaf-
slætti 25%. Á atvinnuhúsnæði eru
þau 1%. Aðstöðugjöld eru 0,8% á
landbúnað en 1% á aðrar atvinnu-
greinar. Áætlaðar heildartekjur
árið 1984 eru samkvæmt fjár-
hagsáætluninni 65 millj. 888 þús.
kr., nettógjöld 47 millj. 240 þús.
kr.
Að sögn Páls Guðjónssonar
sveitarstjóra í Mosfellshreppi er
reiknað með að bæta lausafjár-
stöðu hreppsins verulega á kom-
andi ári og lækka fjármagns-
kostnað. Til eignabreytinga er
áætlað um 27,5%, sama tala í fjár-
hagsáætlun fyrir árið 1983 var
24,2%.
Fjárhagsáætlun Seltjarnarness lögð fram:
46% hækkun milli ára
Veðrið um áramótin:
Strekkingur og élja-
veður á gamlárskvöld
„SENNILEGASTA veðrið á
gamlárskvöld er suðvestan- eðá
vestanátt, með talsverðum
Flugeldasýning
skáta í kvöld
HIN árlega flugeldasýning Hjálp-
arsveitar skáta í Reykjavík verður
haldin í kvöld við íþróttavellina í
Laugardal og hefst klukkan 20.15.
strekkingi víða og éljum, nema
að öllum líkindum verður bjart
veður austan Eyjafjarðar og
Skeiðarársands. Það verður
sennilega vægt frost,“ sagði
Knútur Knudsen veðurfræðing-
ur hjá Veðurstofunni um veður-
útlitið á gamlárskvöld.
Knútur sagði, að reyndist
þessi spá rétt, yrði sennilegasta
veðrið á nýársdag lítið eitt hæg-
ari suðvestanátt, en kaldara en á
gamlársdag.
FJÁRHAGSÁÆTLUN Seltjarnarness var lögð fram á
fundi bæjarstjórnar 21. þ.m. og er samkvæmt henni um
46% hækkun að ræða frá endurskoðaðri áætlun síðasta
árs, en niðurstöðutölur á rekstrarreikningi eru 73,5
milljónir króna. Útsvarsálagning verður 10,5% og gef-
inn er 25% afsláttur af fasteignagjöldum af íbúðarhús-
næði, en 1% á aðrar eignir. Gjaldstigi aðstöðugjalda er
óbreyttur frá 0,20%—1% eftir rekstri.
Helstu tekjuliðir eru: útsvör 48 milljónir króna,
fasteignagjöid 9,1 milljón, jöfnunarsjóður 8,5 millj-
ónir og vanskilavextir 5 milljónir króna.
Helstu gjaldaliðir eru: Fræðslumál 12 milljónir
króna, almannatryggingar og félagshjálp 9 milljón-
ir, gatna- og holræsagerð 10,8 milljónir, stjórn kaup-
staðarins 3,7 milljónir, fjármagnskostnaður 4 millj-
ónir, skipulagsmál 2,4 milljónir, hreinlætismál 2,2
milljónir, brunavarnir ein milljón og fimmtíu þús-
und, samgöngumál (SVR) 1,1 milljón króna.
Viðmiðunartekjur elli- og örorkuþega vegna
niðurfeilingar eða lækkunar fasteignagjalda af eigin
íbúð verða, sem hér segir:
o Pincíalflinrriir'
’ brúttót. 1983 allt að kr. 161.000,- - 100% niðurf.
brúttót. 1983 allt að kr. 189.000,--- 70% niðurf.
brúttót. 1983 allt að kr. 222.000,- - 30% niðurf.
b. fyrir hjón sem bæði eru ellilífeyrisþegar:
brúttót. 1983 allt að kr. 202.000,— 100% niðurf.
brúttót. 1983 allt að kr. 240.000,- — 70% niðurf.
brúttót. 1983 allt að kr. 257.000,--- 30% niðurf.
Framlög til verklegra framkvæmda lækka milli
ára í krónutölu og ennfremur framlag til eigna-
breytinga, sem nú hefur lækkað í 17,8% úr 22% á
síðustu áætlun.
Niðurstöðutölur eignabreytinga eru um kr. 16
milljónir eða um 2 m.kr. lægri tala en á árinu 1983.
Á næsta ári verður lögð áhersla á að koma sund-
laug í notkun en að öðru leyti lögð áhersla á að bæta
fjárhagsstöðu bæjarsjóðs, sem hefur versnað mjög á
árinu 1983, segir í frétt frá bæjarstjóranum á Sel-
tjarnarnesi.