Morgunblaðið - 29.12.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1983
3
Rættist úr innanlandsfluginu í gær
TÖLUVERT rættist úr innanlandsfluginu í gær. Hjá Flugleiðum
voru farnar tíu ferðir, þrjár á Akureyri, tvær á ísafjörð og ein á
Egilsstaði, Sauðárkrók, Höfn í Hornafirði, til Húsavíkur og Vest-
mannaeyja. Þó varð að snúa við vél sem fór til Patreksfjarðar þar
sem lendingarskilyrði voru ekki fyrir hendi, auk þess sem sleppa
varð ferð til Þingeyrar og þriðju ferðinni á ísafjörð. Að sögn
Sæmund&r Guðvinssonar, blaðafulltrúa Flugleiða, bíða tiltölulega
fáir eftir flugi þessa stundina.
Hjá Arnarflugi var flogið á Bíldudal, Siglufjörð, Fáskrúðsfjörð,
Gjögur og til Hólmavíkur, en ekki tókst að komast til Suðureyrar
og Flateyrar. Voru uppundir 80 manns á biðlista í gærkvöldi.
Ávöxtun sparifjár og bundins
fjár hefur batnað verulega
— segir dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri
„NÚ ER ÓHÆTT að segja, að bæði almennt sparifé og bundið fé njóti
jákvæðrar ávöxtunar í fyrsta skipti í meira en áratug. Er mikilvægt, að þeirri
stöðu verði haldið framvegis," segir Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri, m.a. í
forystugrein sinni í nýjasta hefti Fjármálatíðinda, sem eru gefin út af Hag-
fræðideild Seðlabanka íslands.
Jóhannes Nordal segir, að sé litið
á lánskjarastefnuna til lengri tíma
sé ljóst, að hún muni ekki ráðast
eingöngu af verðlagsþróun, heldur
verði hún einnig að taka mið af
öðrum efnahagslegum markmiðum
svo sem jafnvægi í viðskiptajöfnuði
við útlönd og samdrætti í erlendum
lántökum.
„Hvort tveggja er þetta einmitt
mjög háð því, að það takist að efla
fjármagnsmyndun innanlands með
aukinni sparifjármyndun á vegum
bankakerfisins, betri ávöxtun
opinberra sjóða og auknum frjáls-
um sparnaði í formi sölu verðbréfa.
Samkvæmt lánsfjáráætlun fyrir
árið 1984 er gert ráð fyrir mun
meiri innlendri fjármögnun en ver-
ið hefur í formi söluspariskírteina
og annarra innlendra verðbréfa,
bæði vegna opinberra fram-
kvæmda og íbúðalána, og hlýtur
þessi aukna fjármögnun að hafa
veruleg áhrif á lánamarkaðinn.
Eigi sú heildarfjáröflun innan-
lands, sem gert er ráð fyrir í láns-
fjáráætlun, að nást á næsta ári,
getur orðið nauðsynlegt að bjóða
verulega betri og fjölbreyttari
ávöxtunarkjör, en gert hefur verið
að undanförnu. Ekki yrði þá heldur
komizt hjá þvi, að innlánsstofnanir
geti boðið samkeppnisfær kjör, svo
að þær geti haldið eðlilegri hlut-
deild í því heildarfjármagni, sem
til ráðstöfunar verður,“ segir Jó-
hannes Nordal.
Þá segir Jóhannes Nordal, að
jafnframt því sem nafnvextir ættu
að geta haldið áfram að lækka með
hjaðnandi verðbólgu á komandi
ári, séu öll líkindi til þess, að
raunvextir af sparifé og öðrum inn-
lendum sparnaði þurfi að vera
sparendum mun hagstæðari en
verið hefur, ef unnt eigi að vera að
ná heildarjafnvægi á lánsfjár-
markaði og koma í veg fyrir áfram-
haldandi aukningu á hinni erlendu
skuldabyrði.
Endurbætur á hitaveitulögnum:
Einangrun gefur sig í
Breiðholti og Fossvogi
HITAVEITULAGNIR í Breióholti I,
Fossvogshverfí og fleiri borgarhlut-
um verða lagfærðar eða endurnýjaðar
á vori komanda og næstu árum.
Frauðsteypueinangrun lagnanna hef-
ur ekki reynst nægilega vel og þarf að
kanna gallana og skipta um þar sem
skemmdir eru umtalsverðar, að sögn
Jóhannesar Zoega, hitaveitustjóra í
Reykjavík.
„Það er fleira en þetta, sem þarf
að lagfæra," sagði Jóhannes í sam-
tali við blaðamann Mbl. „Víða eru
æðar orðnar gamlar og á öðrum
stöðum hefur ekkert verið litið á
þetta undanfarin 5—7 ár. En nú er
þetta á fjárhagsáætlun okkar fyrir
næsta ár, 1984, og verður á næstu
árum.“
Jóhannes sagði að frauðsteypu-
einangrunin, sem væri eftir
danskri forskrift, hefði verið talin
mjög fullkomin þegar notkun
hennar hófst hérlendis á árunum
1965—1970. „En þetta hefur gefist
mjög misjafnlega og í einum bæ á
Jótlandi hlaust af mikið tjón fyrir
nokkrum árum. Einangrunin sjálf
helst óskemmd en ef það kemst
raki inn undir hana ryðga rörin,“
sagði hann.
Mest aðkallandi er að kanna að-
alæðarnar um Breiðholt I, sem
liggja eftir Stekkjarbakka yfir f
Breiðholt II, að sögn hitaveitu-
stjóra. „Það er ekki enn vitað hve
mikið þetta er skemmt en það verð-
ur kannað þegar farið verður I
þetta með vorinu. Og þetta er víðar
um bæinn — það eru ein 20—30
stórverkefni, sem við hyggjumst
fara f á næsta ári,“ sagði Jóhannes
Zoega.
FIAT 127 SUPER ‘83 KR. 176.500.-
(GENGI í DES. ‘83)
HVAÐ ÞÝÐIR SUPER — LESTU ÞETTA
Super þýöir bíll hlaðinn aukabúnaöi, við viljum m.a. nefna:
• fimm gíra kassi
• tauklædd sæti
• sportstýri
• skutbílsútfærsla
• hiti og þurrka í afturrúðu
• stokkur og hólf milli framsæta
• hólf í hliðarhurðum
• öskubakki afturí
• quarts klukka
• hliðarspegill stilltur innanfrá
• opnanlegir hliðargluggar afturí
• hilla í mælaborði
• vindlakveikjari • sportfelgur
• litað gler • hjólbogalistar
• breiðir hliðarlistar
EGILL
VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202