Morgunblaðið - 29.12.1983, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1983
Rafveita Siglufjarðar 80 ára
„ÞETTA ER fjóröa elsta rafveita á
landinu, sem veitir raforku til al-
menningsnota, stofnuð 18. des-
ember 1913,“ sagði Sverrir Sveins-
son rafveitustjóri á Siglufirði í
samtali við blm. Mbl., í tilefni af
því að Kafveita Siglufjarðar varð
70 ára 18. desember síðastliðinn.
„Siglfirðingar hófust snemma
handa um að beisla vatnsorkuna
sér til hagsbóta og á það má
benda að á næstu tíu árum, til
ársins 1923, tvöfaldaðist mann-
fjöldi hér, en þá bjuggu í þorpinu
1500 manns," sagði Sverrir enn-
fremur.
Sverrir sagði að það hefði ver-
ið Frímann B. Arngrímsson
raffræðingur sem fyrstur benti á
möguleikana á því að virkja
Skeiðsfoss um 1920 og 1921 hefði
bæjarstjórn Siglufjarðar keypt
jörðina Skeið í Fljótum fyrir 20
þúsund krónur, en henni hefði
fylgt hálf vatnsréttindin við
Skeiðsfoss. Ákvörðun þessi hefði
hins vegar valdið miklum deilum
og var því ekki ráðist í að kaupa
hinn helming vatnsréttindanna
strax. Það hefði verið gert 1929.
Skeiðsfossvirkjun hefði síðan
verið byggð 1944—45 og stækkuð
1953 og síðan endurvirkjað í
Fljótá við Þverá 1975-76. Afl
beggja virkjananna væri 4,8
megavött og orkuvinnslugeta
talin 20 gígavattstundir.
Veitunefnd Siglufjarðar hefur
í tilefni afmælisins friðað land-
spildu í landi jarðarinnar Skeiðs,
sem er 30 hektarar að stærð og
talin vel fallin til skógræktar.
Til byrjunarframkvæmda næsta
sumar er veitt 150 þúsund krón-
um úr sjóði sem stofnað var til
af Ásgeiri Bjarnasyni, fyrrver-
andi rafveitustjóra, en sjóður
þessi er ætlaður til að fegra um-
hverfi Skeiðsfossvirkjunar. Þá
samþykkti veitunefnd einnig að
veita 100 þúsund krónum til
kaupa á trjáplöntum sem plant-
að verði í bænum.
Flugleiðir opnuöu skrifstofu á Heathrow-flugvelli í London fyrr á þessu ári.
Þorgils Kristmannsson hinn nýráðni starfsmaður Flugleiða í Glasgow er t.v.
á myndinni.
Flugleiðir ráða starfs-
mann að nýju í Glasgow
WIRGILS Kristmannsson, aöstoö- ráðinn starfsmaður félagsins í
arstöðvarstjóri Flugleiða á Heath- Glasgow, að sögn Sæmundar Guð-
row-flugvelli í London, hefur verið vinssonar, fréttafulltrúa Flugleiða.
/
SKALAR
Hjá okkur fer vel um viðkvæma vöru
Vöruskálarokkar í Sundahöfn eru hannaðir
með framtíðarþarfir í huga. Við vitum að gott
olnbogarými í vörugeymslum; 20.000 m2
gólfpláss og 9.000 m2 hillupláss er lykil-
atriði í vandaðri meðferð á viðkvæmri vöru.
Þess vegna höfum við hvergi slakað á
kröfOm um fullkomna tækniaðstöðu og
góðan frágang. Sérhæfðir lyftarar af
mörgum stærðum og gerðum finna hverri
vöru viðeigandi geymslustað, og hvort sem
hún er í gám eða á fleti, á gólfi eða í hillu,
er öryggi hennar tryggt.
Rúmgóðir vöruskálar, fullkomin flutnings-
tækni og lipur vinnubrögð - okkar leið til
öruggrar vörumeðferðar.
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
Sími 27100
*
Sæmundur sagði að Þorgils
myndi hafa yfirumsjón með af-
greiðslu flugvéla félagsins, auk
þess að starfa að sölumálum al-
mennt. „Flugið til Glasgow og
milli Glasgow og Kaupmanna-
hafnar hefur gengið vonum fram-
ar á þessu ári og það er þegar búið
að að taka ákvörðun um að bæta
við þriðju ferðinni í viku í marz-
mánuði nk.,“ sagði Sæmundur
ennfremur.
Flugleiðir héldu uppi flugi milli
íslands og Glasgow og áfram til
Kaupmannahafnar um langt ára-
bil, eða allt til þess, að félagið var
þvingað til að hætta flugi á flug-
leiðinni milli Glasgow og Kaup-
mannahafnar fyrir liðlega þremur
árum. Brezka flugfélagið British
Airways gerði tilkall til flugsins.
Afkoman hjá British Airways á
flugleiðinni varð hins vegar mun
lakari en forsvarsmenn fyrirtæk-
isins höfðu áætlað og því var það
lagt niður og Flugleiðir tóku upp
þráðinn að nýju.
Tímaritið
Frelsið
komið út
TÍMARITIÐ Frelsið, 3. tölublað
1983, er komið út, en ritstjóri þess er
Hanncs Hólmsteinn Gissurarson.
Meðal efnis í þessu blaði er
ljóðaflokkur eftir Matthías Jo-
hannessen skáld, en ljóðaflokkur-
inn heitir „Úr ólíkum áttum". Þá
ritar Hannes Hólmsteinn grein
um nýja bók eftir Matthías, Fé-
laga orð. Þá er í blaðinu grein eftir
Harris lávarð, sem heitir Sam-
keppni og val, og ólafur Björns-
son, fyrrum alþingismaður og pró-
fessor við viðskiptadeild Háskóla
íslands, skrifar grein um George
Stigler nóbelsverðlaunahafa í
hagfræði.
Þá er í blaðinu frásögn af þingi
Mont Pélérin-samtakanna 1983 og
einnig er hinn fasti þáttur, Fréttir
af hugmyndabaráttunni, í blaðinu.
Þá eru í blaðinu frásagnir af
innlendum og erlendum ritum.
MetxHuHadá hvcr/um d%i!