Morgunblaðið - 29.12.1983, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1983
Umferðardagar
í Bolungarvík
Bolun^arvík, 10. desember.
DAGANA 25. nóvember til 5. des-
ember sl. var efnt til sérstakra um-
ferðardaga hér í Bolungarvík i til-
efni Norræns umferðarörvggisárs.
Að undirbúningi þessara daga
unnu einstaklingar frá eftirtöld-
um félögum: Kvenfélaginu Braut-
inni, Kvennadeild Slysavarnafé-
lagsins, Nemendafélagi grunn-
skólans, Lions, Kiwanis, JC, Um-
ferðarnefnd Bolungarvíkur ásamt
lögreglu.
Sérstök umferðarfræðsla fór
fram í skólanum þessa daga og var
sú fræðsla að mestu í höndum
kennara grunnskólans. Starfs*
maður umferðarráðs, Tryggvi
Jakobsson, kom í heimsókn og fór
hann ásamt lögreglu í skólann og
sýndi kvikmyndir og ræddi við
nemendur. Einnig sat hann fund
með kennurum þar sem fjallað var
um umferðarfræðslu í skólum og
kennslugögn. Efnt var til opins
fundar þar sem Tryggvi flutti
framsögu um umferðarmál og
ustu gatnamótum bæjarins. Alls
voru skráðar 249 bifreiðir sem
fóru um gatnamótin á um einum
og hálfum klukkutíma. Aðeins 59
af þessum 249 bifreiðum, sem ým-
ist beygðu til hægri eða vinstri,
gáfu stefnuljós. Þá var könnuð
notkun endurskinsmerkja. Könn-
unin sú náði yfir 177 einstaklinga.
68 voru með einhver endurskins-
merki en 109 höfðu ekkert slíkt að
bera.
Það kom í ljós við þessa könnun
að fólk á vinnumarkaðinum var í
miklum meirihluta þess sem ekki
bar endurskinsmerki. Þá má
nefna bílbeltakönnun sem sýndi
að um % þeirra ökumanna sem
stöðvaðir voru notuðu bílbelti.
Að mati lögreglu staðarins hef-
ur hér virkilega vel til tekist, ekki
síst með þá umfjöllun sem um-
ferðarmál hafa fengið í skólanum
og þær umræður sem nemendur
hafa vafalaust vakið upp á heimil-
um SÍnum. Gunnar.
Nemendur kanna bílbeltanotkun.
lögregla ræddi um umferðar-
óhöpp, ölvun við akstur o.fl. í Bol-
ungarvík. Dreift var endurskins-
merkjum til allra nemenda grunn-
skólans og kennara, vistmanna í
sjúkraskýli Bolungarvíkur og
barna í leikskólanum.
Meðal nemenda í grunnskólan-
um var efnt til teiknimyndasam-
keppni um „Barnið í umferðinni".
Ýmsar kannanir voru gerðar í um-
ferðinni þessa daga og tóku nem-
endur 7., 8. og 9. bekkjar grunn-
skólans þátt í þeim ásamt lögreglu
staðarins. Þessar kannanir sýndu
ýmsar athyglisverðar niðurstöður,
t.d. var einn daginn athuguð notk-
un stefnuljósa á þremur fjölförn-
Póstur og sími:
Stöðvartelex
OPNUÐ hefur verið ný þjónusta
hjá símstöðinni í Reykjavík, sem
er stöóvartelex, þ.e. almenn telex,
að því er segir í frétt frá Póst- og
símamálastofnuninni, sem Morg-
unblaðinu hefur borist.
Hinum almenna viðskiptavini
stofnunarinnar gefst nú tæki-
færi á að senda sjálfur eða fá
aðstoð kunnáttumanns til að
senda telexsendingar til allra
skráðra telexnotenda.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja:
Stúdentar brautskráðir
15. STARFSÖNN í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja lauk sunnu-
daginn 18. desember með braut-
skráningarathöfn í Ytri-Njarð-
víkurkirkju.
Athöfnin hófst með því að
Hildur Hauksdóttir, nemandi í
skólanum, lék einleik á óbó við
undirieik Gróu Hreinsdóttur,
kór Tónlistarskóla Njarðvíkur
söng nokkur lög.
Jón Böðvarsson, skólameist-
ari, flutti yfirlit um starfsemi
skólans á haustönn 1983 og af-
henti prófskírteini.
32 luku námi að þessu sinni,
6 af tveggja ára brautum, 6
flugliðar, 7 iðnnemar og 13
stúdentar.
Ólafur Sæmundsson flutti
ávarp af hálfu nemenda, en
Þórunn Friðriksdóttir flutti
ávarp af hálfu Kennarafélags
FS. Að lokum ávarpaði skóla-
meistari nemendur.
Frétutilkynning
Hjálparsveit skáta í Kópavogi
með flugeldasölu á 4 stöðum
Friðsæl jól í
Stykkishólmi
StykkLshólmi, 26. desemb«r.
VIÐ Á lTltM hér friðsæl jól. Messað
var á aðfangadag í kirkjunni okkar kl.
18.00, en hámessa var um miðnætti í
kaþólsku kirkjunni. Þar var einnig há-
messa á jóladag kl. 15.00.
Jólaskreytingar voru miklar í
bænum til að minna á komu jólanna,
bæði jólatré, jólastjörnur og önnur
ljósadýrð. Margir komu heim um jól-
in og þá sérstaklega nemendur til að
halda jól með sínu skylduliði. Á að-
fangadagsmorgun byrjaði að snjóa
og var stanslaus snjókoma allan
daginn og fram á jóladag. Hafði þá
kyngt niður einum mesta snjó um
áraraðir hér í Hólminum og deildu
menn um hvort jafnfallinn snjór
væri 60 eða 80 sm og ekki veit ég
hvor hafði betur en mikill var hann.
Ekki var hægt að komast um á smá-
bílum, en stærri bílar brutust áfram
enda snjórinn laus. Á annan jóladag
voru göturnar svo ruddar og komst
þá fólk vel leiðar sinnar. Áætlunar-
ferðin féll niður í dag,
Fréttaritari
FLUGELDASALA Hjálparsveitar
skáta í Kópavogi stendur yfir um þess-
ar mundir, en henni lýkur á gamlárs-
dag, að því er segir í fréttatilkynningu
sveitarinnar.
Útsölustaðir hjálparsveitarinnar eru
fjórir að þessu sinni, í Toyota-salnum
við Nýbýlaveg, í Blómabúðinni íris i
Kaupgarði, í kjallara hússins við
Hamraborg 1—3 og í skátaheimilinu
við Borgarholtsbraut.
I fréttatilkynningunni segir, að á
boðstólum sé úrval af tívolíbombum,
flugeldum, blysum, stjörnuljósum
og fleiru, auk þess sem svokallaðir
fjölskyldupakkar séu að sjáifsögðu í
boði, en þeir eru með 10% afslætti.
Á fyrrgreindum útsölustöðum er
opið á tímabilinu 10—22 daglega,
nema á gamlársdag, þegar opið er á
tímabilinu 10—16. Loks kemur
fram, að félagar sveitarinnar eru 64
Heildarafli landsmanna verður
830 þúsund lestir árið 1983
Aflinn er að verðmæti um 70,5% heildarútflutnings íslendinga
MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá
Fiskifélagi íslands, um ýmis atriði íslensks sjávarútvegs á árinu
1983, ásamt samanburðartölum fyrir árið 1982.
1. Aflabrögð
Samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélags Islands verður
heildarafli landsmanna árið 1983 830 þúsund lestir.
Heildaraflinn 1982 var 786 þúsund lestir. Þannig er heildarafl-
inn 1983 44 þúsund lestum meiri en 1982.
Botnfiskaflinn verður 606 þúsund lestir á þessu ári, en 1982
var hann 690 þúsund lestir og munar þá nákvæmlega þvf magni,
sem á vantar, eða 84 þúsund lestum, til að þorskur í aflanum sé
hinn sami og hann var 1982.
2. Skipting helstu tegunda 1933 1982
Þús./lestir Þús./lestir
Þorskur 298 382
Loðna 133 13
Karfi 122 115
Ýsa 68 67
Ufsi 58 65
Síld 59 57
Rækja 13 9
Hörpuskel 13 12
3. Aflinn og verðmæti eftir skipagerðum 1983 1983 1982 1982
Þús/lestir Millj/kr. Þús/lestir Millj/kr.
Allir vélbátar 481 3.850 404 1.762
Skuttogarar 349 2.860 382 1.690
830 6.710 786 3.452
Miðað við markaðsverð og gengi um þessar mundir verður
útflutningsverðmæti sjávaraflans 1983 rúmlega 15 milljarðar
króna.
4. Magn og verðmæti útfluttra sjávarafurða
Samkvæmt skýrslum Hagstofu lslands um útflutning lands-
manna fyrstu 11 mánuði ársins nemur heildarverðmæti útflutn-
ingsins 16,6 milljörðum króna, þar af er hlutur sjávarvöru 11,7
milljarðar, eða 70,5%.
Miðað við sama tímabil 1982 var verðmæti heildarútflutnings-
ins 7,3 milljarðar og þá var hlutur sjávarvöru 5,6 milljarðar eða
76,7%.
Heildarmagn útfluttra sjávarafurða fyrstu 11 mánuði ársins
nemur 299.994 lestum, en á sama tfma I fyrra var það 327.672
lestir.
Skipting útflutnings sjávarvöru fyrstu 11 mánuði ársins eftir
afurðaflokkum er þannig:
1983 1982
Lestir-þús/kr. Lestir-þús/kr.
Frystar afurðir 128.943 6.859.215 119.103 3.003.315
Saltaðar afurðir 67.452 2.645.034 68.653 1.563.058
ísaðar og nýjar af. 40.441 672.800 32.759 320.155
Hertar afurðir 4.853 554.462 2.770 185.793
Mjöl og lýsi Niðurl. og 44.100 373.482 95.234 349.409
niðurs. af. 11.582 210.552 6.908 61.225
299.994 11.659.292 327.672 5.622.674
Helstu viðskiptalönd, hvað varðar útflutning sjávarvöru,
fyrstu 11 mánuði ársins, eru þessi:
1983 1982
Bandarikin Lestir-þús/kr. 66.807 4.497.394 Lestir-þús/kr. 60.605 1.962.010
Bretland 55.043 1.471.233 77.244 749.313
Portúgal 23.805 1.106.415 31.386 832.599
Sovétrfkin 34.999 922.876 33.340 464.312
Afríkulönd 11.332 872.299 8.230 223.566
Vestur-Þýskal. 39.937 805.666 30.652 338.813
5. Um birgðir sjávarafurða
I samráði við stjórnvöld og hagsmunaaðila gefur Fiskifélagið
opinberlega ekki upplýsingar um magn birgða sjávarvöru, en
félagið safnar tölum þar um mánaðarlega.
Verðmæti þeirra birgða sjávarafurða, sem nú eru til f landinu,
er áætlað 4,1 milljarður króna. Á sama tíma f fyrra var verð-
mætið áætlað 3,1 milljarður.
6. Veiðar erlendra ríkja innan fiskveiðilög.sögu íslands
Færeyjar Noregur Belgía Samtals
1983 Lestir Lestir Lestir Lestir
Þorskur 6.113 85 148 6.346
Annar afli 11.927 1.339 858 14.124
(Bráðabirgðat.) 18.040 1.424 1.006 20.470