Morgunblaðið - 29.12.1983, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 29.12.1983, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1983 Naumur sigur FH gegn KA á Akureyri FH VANN nauman sigur, 21—18, á liði KA í 1. deildinni á Akureyri í ! gærkvöldi. í hálfleik var staöan 9—9. Leikur liðanna einkenndist af mikilli baráttu og var lengst af mjög jafn. Lið KA lék af mikilli skynsemi í fyrri hálfleiknum og hafói oft foryst- una í fyrri hálfleiknum. Kom þaö mjög á óvart hversu þungir og slappir leikmenn FH voru í leiknum. „Ég er ekki meö neinar afsakan- ir, þetta var sennilega besti leikur KA í vetur, og viö erum núna í mik- illi lægö. Viö höfum æft tvisvar á dag síöastliönar þrjár vikur og ætl- um okkur aö koma upp í Evrópu- leikjunum í janúar gegn ungverska liöinu Tatabanja," sagöi Geir Hall- steinsson, þjálfari FH, eftir leikinn í gærkvöldi. Kristján Arason lék ekki meö FH aö þessu sinni þar sem hann er meiddur á öxl. Var hans saknaö bæöi í vörn og sókn og er hann án efa sá leikmaöur sem FH má sist missa ef liöiö ætlar aö standa sig. Aöeins tveir leikmenn FH léku eins og þeir áttu aö sér, Atli Hilmars- son, sem hélt liöinu á floti meö stórgóöum leik, og Haraldur Ragn- arsson markvöröur, sem varöi frábærlega vel. Á 20. mínútu fyrri hálfleiks náöi KA tveggja marka forystu, 8—6, fh 18:21 en FH jafnaöi og jafnt var í hálfleik. I síðari hálfleiknum náöi KA aftur tveggja marka forystu, 11—9, og 12—10, en FH jafnaöi, 12—12, og komst síöan yfir. Mesti munur á liöunum voru þrjú mörk fyrir FH. Þegar þrjár mínútur voru eftir var staöan jöfn, 18—18, en leikmenn FH voru sterkari á endasprettinum og sigruöu. Nokkuö sanngjarn sig- ur FH. KA-menn voru nokkuö meö ótímabær skot í leiknum og var þaö þeim dýrkeypt. Bestu leikmenn KA voru Magn- ús Gauti Gautason, markvöröur, sem varöi af stakri snilld allan leik- inn út í gegn. Þá var Jón Kristj- ánsson góöur. Aörir leikmenn voru jafnir, böröust vel, og í heild lék KA-liöiö nokkuö vel. Hjá FH báru Atli og Haraldur af, aörir léku undir getu. Óttar var þó sæmilegur en fékk fáar línusend- ingar. Mörk KA: Jón Kristjánsson 4, 2 v, Siguröur Sigurösson 3, Jóhann- es Bjarnason 3 v, Erlingur Krist- jánsson 2, Þorleifur Ananníasson 2, Jóhann Einarsson 2, Magnús Birgisson 1 og Logi Einarsson 1. Mörk FH: Atli Hilmarsson 11, 3 v, Hans Guömundsson 3, 1 v, Þor- gils Óttar 2, Pálmi Jónsson, Guö- mundur Magnússon, Guömundur Óskarsson, Sveinn Bragason og Guöjón Guömundsson skoruöu allir eitt mark hver. Mjög góö aö- sókn var í nýju íþróttahöllina á Ak- ureyri og var stemmning góö. SH/ÞR. Valur mætir liði UMFN í kvöld í KVÖLO FER fram einn leikur í úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Vals- menn fá Njarövíkinga í heimsókn í Seljaskólann. Leikur liðanna hefst kl. 20.00. Búast má vió hörkuspennandi viöureign á milli þessara liða í kvöld. Umræóuþáttur um íþróttamannvirki í KVÖLD kl. 22.35 fer fram umræðuþáttur um íþróttamannvirki í íþróttaþætti útvarpsins. Hermann Gunnarsson stjórnar umræðunum en í þeim taka þátt Steinar Lúóvíksson, Þorsteinn Einarsson, Reynir Karlsson og Skúli Nordal. Þá verður rætt vió Júlíus Hafstein og Svein Björnsson. Hlustendur geta hringt og spurt spurninga meðan á þætt- inum stendur. • Atli Hilmarsson var langbesti leikmaóur FH < gærkvöldi á Akureyri. Hann skoraöi 11 glæsileg mörk og hélt liöi sínu alveg á floti. 4. Alex Ferguson (Aberdeen) 9% 5. Bob Paisley (Liverpool, hættur) 8% 6. Sven-Göran Eriksson (Benfica) Graham Taylor 4% (Watford) 4% 8. Enzio Bearzot (ftalía) Cesar Luis Menotti 3% (Barcelona) 3% 10. Mike England (Wales) 2% Hamborg SV valið lið ársins 1983 - Piontek talinn besti þjálfarinn Hiö þekkta knattspyrnutímarit „World Soccer“ skýrói frá því í desemberútgáfu sinni hver heföi veriö valinn knatt- spyrnumaöur ársins af lesendum og útgefendum blaðsins. Þá valdi blaöið þjálfara ársins og knattspyrnuliö fyrir árið 1983. Zico varð fyrir valinu Stórstjarnan Zico frá Brasilíu varö fyrir valinu sem knatt- spyrnumaöur ársins 1983. Zico, sem nú leikur meö ítalska liðinu Udinese, fékk 28% atkvæöa. Platini, Frakklandi, varö í ööru sæti. Sem drengur ólst Zico upp í mikilli fátækt, en hann tók snemma ástfóstri viö knattspyrn- una og notaöi allar frístundir fyrir æfingar. Zico, ööru nafni Arthur Antunes Ciombra, er í dag ekki aðeins einn sá snjallasti, heldur líka hæst launaöi knattspyrnu- maöur veraldar. Hann er 30 ára gamall og hefur leikiö 78 lands- leiki fyrir Brasilíu. Hann var maö- urinn á bak viö velgengni Flam- engo í Brasilíu en liöiö sigraöi Liverpool í keppni félagsliöa um heimsmeistaratitilinn áriö 1981. Eftirtaldir leikmenn fengu flest atkvæði: 1. Zico (Udinese og Brasilía) 28% 2. Michel Platini (Juventus og Frakkland) 24% 3. Paolo Roberto Falcao (Róm og Brasilía) 18% 4. Diego Maradona (Barcelona og Argentína) 6% 5. Karl-Heinz Rummenigge (Bayern og V-Þýskaland) 4% 6. Kenny Dalglish (Liverpool og Skotland) 3% Felix Magath (Hamborg og V-Þýskal.) 3% Bryan Robson (Man. Utd. og England) 3% 9. Charlie Nicholas (Arsenal og Skotland) 2% Erwin Vandenbergh (Anderlecht og Belgía) 2% Piontek þjálfari ársins Landsliðsþjálfari Dana, Sepp Piontek, hlaut flest atkvæöi af þjálfurum. Piontek hefur unniö mjög gott starf fyrir danska knattspyrnusambandiö og undir hans stjórn er danska landsliðið komið í úrslit í Evrópukeppni landsliöa sem fram fer í Frakk- landi næsta sumar. Piontek er Þjóöverji. Piontek lék á sínum tíma sex landsleiki fyrir V-Þýska- land en hann var fastur leikmaö- ur meö Werder Bremen. Hann útskrifaöist sem þjálfari frá hin- um fræga þjálfaraskóla DFB eftir aö hann hætti aö leika knatt- spyrnu. Þjálfaöi síöan Bremen- liöið og siöan Fortuna Dússel- dorf. En þar var hann látinn hætta eftir fyrsta keppnistímabil- iö. Þá fór hann til Haiti og var þar í tvö ár. Næsta verkefni hans var í V-Þýskalandi en svo fór hann til Danmerkur og tók viö landsliö- inu. Þaö hefur veriö staöföst skoöun Piontek aö notast aöeins viö leikmenn í landsliöinu danska sem hafa mikinn áhuga á aö leika fyrir land sitt og vilja leggja sig alla fram. Ég hef ekki not fyrir leikmenn sem leika eingöngu til aö sýna sjálfa sig, en hafa ekki metnaö í aö berjast fyrir góöum árangri, segir Piontek. Eftirtaldir þjálfarar hlutu at- kvæöi í kjörinu um besta þjálfar- ann: 1. Sepp Piontek (Danmörk) 29% 2. Ernst Happel (Hamborg) 27% 3. Nils Liedholm (Róm) 10% Hamburger SV kjöriö lið ársins Hamborg, sigurvegari í Evróp- ukeppni meistaraliöa, fókk flest atkvæöi í kjörinu um besta knattspyrnuliö árins 1983. Liöiö vann marga góöa sigra á árinu, en hæst ber sigurinn á Juventus j í úrslitaleiknum um Evrópumeist- aratitilinn. Jafnframt sigraði Hamborg í kepninni um v-þýska meistaratit- ilinn og stóö sig mjög vel allt síö- asta keppnistimabil. Þaö er ann- aö liöiö frá V-Þýskalandi sem tekst aö sigra í Evrópukeppni meistarliöa. Bayern vann titilinn á árunum 1974—1976. Hamborg hefur sex sinnum unniö meist- aratitilinn í heimalandi sínu. Liöin sem fengu flest atkvæöi voru þessi: 1. Hamborg 29% 2. Aberdeen 15% 3. Danmörk 11% 4. Róm 10% 5. Liverpool 6% 6. Anderlecht 5% Gremio, Porto Alegre 5% 8. Albania Under-21 4% France 4% 10. Belgía 3% Samantekt Þ.R. • Zico alltaf mjög vinaæll. rl& • Magath, fyrirliöi Hamborg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.