Morgunblaðið - 31.01.1984, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1984
3
Morgunblaftift/ Svavar B. Magnússon
Piper Chieftain flugvél Flugfélags Norðurlands er mikið löskuö eftir að henni hlekktist á á flugvellinum á Ólafsfirði
sl. laugardag.
Ólafsfjörður:
Flugvél hlekkt-
ist á í lendingu
ÓlafsfirAi, 30. janúar.
FLUGVÉL frá Flugfélagi Norður
lands hlekktist á í lendingu á flug-
vellinum hér á Ólafsfirði sl. laugar-
dag. Vélin, sem er af gerðinni Piper
Chieftain, var að koma úr áætlunar-
fiugi frá Reykjavík þegar óhappið
átti sér stað.
Fljúgandi hálka var á flugvell-
inum þegar óhappið átti sér stað,
en vélin rann út af brautinni út í
mikinn snjó við enda hennar. Við
óhappið rákust vængur, skrúfa og
hjólabúnaður vélarinnar á snjó-
ruðningana og urðu töluverðar
skemmdir á vélinni.
Með vélinni voru 10 manns, en
engin slys urðu á fólki þegar
óhappið átti sér stað, en þá var
vindur þvert á braut.
— Jakob
Spurt og
svarað um
skattamál
MORGUNBLAÐIÐ tekur nú við
fyrirspurnum frá lesendum sín-
um varðandi skattamál, og er
þessi þjónusta hugsuð sem að-
stoð við lesendur við gerð skatta-
framtala.
Lesendur geta hringt í síma
Morgunblaðsins, 10100, milli
klukkan tvö og þrjú á daginn
og beðið um umsjónarmann
þáttarins „Spurt og svarað um
skattamál". Hann tekur niður
spurningarnar og kemur þeim
til ríkisskattstjóra, Sigur-
bjarnar Þorbjörnssonar, sem
hefur fallizt á að svara þeim.
Svör ríkisskattstjóra munu svo
birtast í blaðinu.
Vinna hefst
væntanlega
hjá BÚR í
fyrramálið
VINNA mun væntanlega hefjast í
vinnslustöövum Bæjarútgerðar
Reykjavíkur í fyrramálið, að sögn
Brynjólfs Bjarnasonar, forstjóra,
sem sagði að fyrsta skip fyrirtæk-
isins, togarinn lljörleifur, kæmi
væntanlega inn til hafnar í kvöld,
eða fyrramálið.
„Það má segja, að hlutirnir
hafi gengið fyrir sig eins og við
gerðum ráð fyrir, það er að
fyrsta skip kæmi inn um mán-
aðamótin og síðan verði sam-
felld vinna úr því,“ sagði Brynj-
ólfur Bjarnason ennfremur, en
eins og skýrt var frá í Mbl. í
b.vrjun ársins var stórum hluta
starfsfólks Bæjarútgerðar
Reykjavíkur sagt upp störfum
vegna erfiðleika í rekstri fyrir-
tækisins.
Verðlagsráð um
greiðslukort:
Notendur beri
kostnaðinn
VERDLAGSRÁÐ samþvkkti á fundi
sínum í gærdag, að mælast til þess við
stjórnvöld, að sottar verði sem allra
fyrst nákvæmar reglur um greiðslu-
kort, sem m.a. tryggi, að kostnaður
vegna greiðslukortanna lendi ein-
göngu á þeim, sem þau nota.
Þessi samþykkt er gerð í kjölfar
tillögu frá Ásmundi Stefánssyni og
Snorra Jónssyni í Verðlagsráði á
dögunum þess efnis, að kaup-
mönnum, sem verzluðu með
greiðslukort, væri gert skylt að
veita þeim viðskiptavinum sem
staðgreiddu vöru ákveðinn stað-
greiðsluafslátt sem næmi a.m.k.
þeirri þóknun, sem kaupmenn
greiða greiðslukortafyrirtækjunum.
Hafskíphf.
styðuraukið
átaktil
útflutnings
islensKiar
iðnaðarvðru
Vegna aukins átaks í sölu á íslenskum iðnaðarvörum erlendis og í tilefni 25 ára
afmælis Hafskips bjóðum við útflytjendum eftirfarandi aðstoð .
Aukin umsvif Hafskips erlendis skapa okkar mönnum þekkingu á erlendum stað-
háttum, einkum á sviði flutninga, viðskipta og markaðsmála. Þessi þekking stendur til
boða, m.a. með ráðgjöf og milligöngu.
Fimm svæðisskrifstofur Hafskips erlendis; í Kaupmannahöfn, Hamborg, Rotterdam,
Ipswich og New York og eigið flutningafyrirtæki, COSMOS Shipping Co. með skrif-
stofur sínar í fimm borgum Bandaríkjanna, eru tilbúnar að veita enn frekari þjónustu.
T.d. við ýmiskonar upplýsingaöflun, leit að viðskiptasamböndum, lækkun erlends
milliliðakostnaðar, tilboðaleit í flutninga milli svæða erlendis, aðstoð við hráefnisöfl-
un og útboð.
Skipaður hefur verið sérstakur milligöngumaður á aðalskrifstofu Hafskips í Reykjavík,
Þorsteinn Máni Árnason, til að sinna þessum verkefnum auk framangreindra aðila.
Leitið til hans með frekari fyrirspurnir.
Auk annarrar þjónustu sem að gagni gæti komið nefnum við síðast en ekki síst
hvetjandi flutningsskilmála á iðnaðarhráefnum til landsins og fullunninni iðnaðar-
vöru héðan.
Aukið átak í útflutningi
er íslensku þjóðinni lífsnauðsyn.
Hafskip hf. gengur heilshugar til leiks.
Okkar menn - þínir menn
ZS HAFSKIP HF.