Morgunblaðið - 31.01.1984, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 31.01.1984, Blaðsíða 26
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1984 GULLNI HANINN BISTRO Á BESTA STAÐÍBÆNUM Gullni haninn býður gestum sínum mat og persónulega þjónustu, eins og best gerist á góðu Bistro, - heimilislegum veitingastað. Pað sem Gullni haninn hefur framyfir góð veitingahús er stœrðin. Veitingasalurinn er ekki stór í sniðum, hann er mátulega stór til að skapa rétta stemmningu, góð persónuleg tengsl á milli gesta og þeirra sem þjóna þeim til borðs. Svo eru fáir, sem slá Gullna hananum við í matargerð. Mjög fáir. LAUGAVEGI 178, SÍMI 34780 z:_z:.... . ..................... ..... \ Minning: Halla K.G. Jóns- dóttir ísafirði Fædd 10. desember 1904. Dáin 27. desember 1983. Þann 27. desember síðastliðinn andaðist Halla K. G. Jónsdóttir, til heimilis að Hlíf, ísafirði, í sjúkrahúsinu á ísafirði eftir lang- varandi veikindi. Halla fæddist að Úlfarsfelli í Helgafellssveit 10. dag desem- bermánaðar árið 1904, dóttir hjón- anna Guðrúnar Sigurðardóttur og Jóns Benediktssonar er þar bjuggu. Halla ólst upp í foreldrahúsum ásamt systkinum sínum fjórum og var hún næst elst þeirra. Nú eru þrjú þeirra á lífi, öll búsett í Stykkishólmi. Tæplega tvítug að aldri fluttist Halla að heiman í atvinnuleit. Lá leiðin fyrst til Hafnarfjarðar, síð- an til Reykjavíkur um stund, en þaðan fluttist hún til Isafjarðar árið 1932. Á ísafirði réðst Halla til hjón- anna Jónínu Þórhallsdóttur og Björns H. Jónssonar skólastjóra. Á því ágæta heimili kynntist Halla verðandi eiginmanni sínum, Sigmundi Guðmundssyni vél- stjóra, bróður mínum. Gengu þau í hjónaband árið 1941 og komu sér upp eigin heimili á ísafirði, sem staðið hefur þar alla tíð síðan. Þau Halla og Sigmundur eign- uðust tvo syni, en misstu fyrri drenginn við fæðingu. Síðari drenginn, Guðlaug Friðgeir, eign- uðust þau árið 1945 og er hann nú búsettur í Reykjavik, giftur Guð- nýju Emilsdóttur. Synir þeirra eru Benedikt og Sigmundur og stúlku, Höllu Kristínu, á Guðlaug- ur frá fyrra hjónabandi. Ég kom sem gestur til þeirra Höllu og Sigmundar á þeirra fyrstu búskaparárum og síðan eru þær orðnar æði margar heimsókn- ir mínar og fjölskyldu minnar til þeirra hjóna. Oft var ég þó einn á ferð vegna vinnu minnar og kom þá stundum fyrirvaralítið og jafn- vel fyrirvaralaust. Það var sama hvenær mig, eða mína, bar að garði, hvort heldur var að degi eða nóttu, alltaf mætti manni sama hlýjan og vináttan. Það var gott að dvelja á heimili þeirra hjóna, sem jafnan var til fyrirmyndar hvað hlýju, hreinlæti og öllum búnaði við kom, enda var húsmóð- irin sístarfandi og óþreytandi í því að vinna heimili sínu, fjölskyldu og gestum, þegar þá bar að garði, allt það er mátti til gagns og ánægju verða. Þá spillti ekki ánægjunni músíkáhuginn á heim- ilinu, eða bókasafnið, sem hafði mikinn og góðan fróðleik að geyma. Halla hreifst mjög af landi sínu og naut þess ríkulega að ferðast um landið með fjölskyldu sinni og kunningjum. Ferðir okkar og fjöl- skyldna okkar um landið urðu margar og ánægjulegar, enda var þeirra jafnan beðið með óþreyju á mínu heimili. Mest unni Halla þó sinni heimasveit, eins og hún leit jafnan á Helgafellssveitina. Sann- aðist þar, sem svo oft áður, gamla spakmælið, að „römm er sú taug er rekka dregur föðurtúna til“. Þar naut Halla sín bezt, að ég ætla, í faðmi skylduliðs og ann- arra góðvina og hinna fögru fjalla og sveitar, með eyjarnar allar úti fyrir, oft eins og fljótandi í purp- urarauðum, gullbryddum hafflet- inum þegar sólin var að síga til viðar á lognkyrrum miðsumar- kvöldum. Ferðir þeirra hjóna í Hólminn urðu því árviss viðburð- ur á hverju sumri, þegar þau gátu því við komið meðan heilsan ent- ist. Með Höllu er góð kona til grafar gengin, ein af þessum eljusömu ís- lensku aldamótakonum, sem gerðu jafnan meiri kröfur til sjálfra sín, en annarra og glöddust yfir því, sem þær gátu látið gott af sér leiða, án tillits til umbunar. Fyrir kynni mín af Höllu og allt það sem hún lét mér og mínum í té er mér skylt og ljúft að þakka. Ég og fjölskylda mín vottum ykkur feðgunum og öðrum að- standendum samúð okkar. F. Hraundal Birting afmœlis- og minningar- greina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Bridge Arnór Ragnarsson Undankeppni Reykja- víkurmótsins lokið Um helgina lauk undankeppni Reykjavíkurmótsins í sveita- keppni, sem jafnframt er undan- keppni íslandsmótsins, með sigri sveitar Úrvals sem hlaut 255 stig. Sveit Samvinnuferða/Land- sýn varð í öðru sæti með sama stigafjölda. Tólf efstu sveitirnar taka þátt í undankeppni íslandsmótsins, en 4 efstu sveitirnar spila um Reykjavíkurmeistaratitilinn. Röð sveitanna: Úrval 255 Samvinnuf./Landsýn 255 Ólafur Lárusson 238 Þórarinn Sigþórsson 228 Þorfinnur Karlsson 215 Stefán Pálsson 199 Runólfur Pálsson 191 Guðbrandur Sigurbergsson 186 Gestur Jónsson 180 Jón Hjaltason 174 Ágúst Helgason 156 Gísli Steingrímsson 115 Alls tóku 17 sveitir þátt í mót- inu. Úrslitakeppni Reykjavík- urmótsins fara fram á Hótel Hofi 18. og 19. febrúar. Þá spila allir við alla sem kallað er, 40 spila leiki. Ekki sitja þó allar sveitirnar við sama borð þegar leikurinn hefst og mun sveit ís- landsmeistara, Þórarins Sig- þórssonar, hafa lakasta stöðu skv. reglugerð mótsins. Bridgeklúbbur Akraness Að loknum fjórum umferðum af fimm í tvímenningskeppninni er staða efstu para þessi: Guðjón Guðmundsson — Ólafur G. Ólafsson 500 Karl Alfreðsson — Þórður Elíasson 462 Guðmundur Björgvinsson — Björgvin Guðmundsson 460 Alfreð Viktorsson — Eiríkur Jónsson 459 Vigfús Sigurðsson — Guðni Jónsson 449 Meðalskor 432. Tuttugu pör taka þátt í keppn- inni. Síðasta umferðin verður spiluð í Röst á fimmtudaginn kl. 20.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.