Morgunblaðið - 31.01.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1984
19
Sjaastad spurdur
um Treholt-málið
ÓnIó, 30. janúar. Frá Jan-Krik Laure,
rréttaritaraiMbl._
„ÉG ÁTTI ekki
annars úr-
kosti,“ sagöi
Anders C. Sjaa-
stad, varn-
armálaráðherra
Noregs, þegar
hann var spurö-
ur aö því á
þingi hvers vegna Arne Treholt, sem
njósnaöi fyrir KGB, hefði verið leyft
að setjast í Háskóla hersins og fá
þar meö aðgang aö ýmsum
hernaðarleyndarmáium.
Ríkisstjórnir ýmissa Atlants-
hafsbandalagsríkja hafa gagnrýnt
það, að Treholt skyldi hafa fengið
að setjast í skólann án þess að
þeim væri skýrt frá því, að hann
væri grunaður um njósriir.
„Á þessum tíma vorum við viss-
ir um að Treholt væri njósnari
fyrir KGB en utanríkisráðuneytið
átti rétt á einum nemanda við
skólann. Til að vekja ekki grun-
semdir með Treholt hleyptum við
honum að en að öðrum kosti er
ekki víst að við hefðum getað stað-
ið hann að verki," sagði Sjaastad,
sem kvaðst harma það tjón, sem
Treholt kann að hafa valdið
bandalagsríkjum Norðmanna.
Hann benti þó á, að handtaka Tre-
holts og þær upplýsingar, sem
hann kann að gefa um starfshætti
KGB, væru ómetanlegar fyrir
bandalagið.
Forsetakosningar í Ecuador:
Kosið á milli
tveggja efstu
(iuito, K-cuador, 30. janúar. AP.
LEON Kcbres-Cordero, frambjóðandi íhaldsmanna, og Rodrigo Borja, fram-
bjóöandi jafnaöarmanna, munu takast á í síðari umferð forsetakosninganna
í Ecuador en þeir urðu efstir og nærri jafnir í fyrri umferðinni, sem fram fór
í gær, sunnudag.
Níu flokkar buðu fram í gær en
úrslitin urðu þau, að Febres-
Cordero fékk 29,12% og Borja
28,32%. Miðflokksmaðurinn Angel
Duarte komst næstur þeim með
11,9%. Þar sem enginn frambjóð-
andi fékk meirihluta verða þeir
tveir efstu að reyna með sér á ný.
Sá sem sigrar tekur við af núver-
andi forseta, Osvaldo Hurtado,
sem ekki var í kjöri. Verður síðari
umferðin 6. maí nk.
Nærri fjórar milljónir manna
voru á kjörskrá og fóru kosn-
ingarnar yfirleitt friðsamlega
fram undir gæslu 20.000 her-
manna. Hurtado tók við forseta-
embættinu árið 1981 eftir að fyrr-
um forseti, Jaime Roldos, beið
bana í flugslysi. Kjörtímabili hans
lýkur 10. ágúst nk. Ástandið í
Ecuador er mjög erfitt um þessar
mundir. Verðbólgan er um 65%,
atvinnuleysi mikið, þjóðarfram-
leiðslan minnkaði um 3,5% á síð-
asta ári og erlendar skuldir eru
sjö milljarðar dollara.
Spánn:
Hosni Mubarak
Samtök
múhameöstrúarríkja:
Egyptar að-
ilar á ný án
skilmála
Kairo, 30. janúar. AP.
HOSNI Mubarak, forseti Egypta-
lands sagöi í gær, að Egyptar
myndu þiggja meö þokkum tilboð
samtaka múhameöstrúarríkja um
að gerast á ný aðilar að samtökun-
um, en Egyptalandi var vísað úr
samtökunum í kjölfarið á Camp
I)avid-samkomulaginu svokallaða
þar sem Egyptaland og ísrael
sömdu frið. Mubarak tók skýrt
fram, að Egyptar virtu eflir sem
áður Camp David-samkomulagið
og ekkert minntist hann á skilmála
fyrir endurkomu Egypta í samtök-
in.
Mubarak þekktist boð samtak-
anna formlega er sendinefnd
skipuð á ráðstefnunni í Marokkó
sótti hann heim. Hann sagði:
„Auðvitað göngum við aftur í
samtökin, við höfum ætíð gert
skyldu okkar gagnvart öðrum
múhameðstrúarlöndum og ekk-
ert í þessu máli hefur beygt
okkur á einn eða annan hátt til
að hvika frá skuldbindingum
okkar eða sjálfstæði."
Gonzalez við
útför Quintana
ETA hefur lýst víginu á hendur sér
Madrid, 30. janúar. AP.
FELIPE Gonzalez, forsætisráðherra Spánar, var í dag viðstaddur útfór Guill-
ermo Quintana Lacaci, hershöfðingja, sem baskneskir hryðjuverkamenn
myrtu í gær.
Gonzalez var auðsjáanlega
brugðið og harmi lostinn þegar
hann fylgdi Quintana til grafar.
Juan Carlos, konungur, og Sofia
drottning voru í gærkvöldi við
minningarguðsþjónustu um
Quintana en voru ekki við sjálfa
útförina. Um eitt þúsund manns
að auki fylgdust með útförinni og
hrópuðu margir ókvæðisorð um
stjórn sósíalista og skoruðu á her-
inn að taka völdin í landinu.
Aðskilnaðarhreyfing Baska,
ETA, hefur lýst víginu á hendur
sér en Quintana er sjöundi hers-
höfðinginn, sem hryðjuverka-
mennirnir myrða frá árinu 1978
og annar frá því að sósíalistar
tóku við stjórnartaumunum.
Rúmlega 500 lögreglumenn og
hermenn hafa fallið fyrir hendi
þeirra frá 1968 þegar ETA var
stofnað.
Veiðar Færeyinga við Grænland:
Þorskkvótinn
skorinn niður
kaupmannahofn, 30. janúar. Frá Niels Jnrgen Bruun, CrænlandsfréttariUira Mbl.
ALLT útlit er nú fyrir, að Nordafar, færeyska fiskvinnslustöðin í Færeyinga-
höfn á Grænlandi, verði ekki starfrækt á sumri komanda. Er ástæðan sú, að
grænlenska landsstjórnin vill ekki láta Færeyinga fá þann þorskkvóta, sem
þeir hafa farið fram á.
Pauli Ellefsen, lögmaður Fær-
eyinga, og Lars Emil Johansen,
fulltrúi grænlensku landsstjórn-
arinnar, hafa að undanförnu rætt
þessi mál en ekki komist að neinni
niðurstöðu. Færeyska landsstjórn-
in hefur gengið í ábyrgð fyrir
stöðina upp á 20 milljónir danskra
króna og segir, að þorskkvótinn
verði að vera a.m.k. 4000 tonn til
að rekstur hennar geti gengið.
Lars Emil Johansen segir hins
vegar, að hámarkið sé 1000 tonn.
Nordafar hefur mikla þýðingu
fyrir íbúana í höfuðstaðnum,
Nuuk, og á sumrum eru að jafnaði
5—600 manns í vinnu þar. Græn-
lendingar bera hins vegar við afla-
bresti og segjast ekki vera aflögu-
færir með þorsk til annarra.
30-50%
AFSLÁTTUR
fdlllHL
LV
m
Við viljum losa af lager 100 tepparúllur
Nú er tækifærið að kaupa
teppið á íbúðina, á stigaganginn, herbergið, skrifstofuna
teða hvaða gólf sem er.Greiðsluskilmálar, útborgun um 20%
og eftirstöövar á 7 mánuöum. Rýmum til fyrir nýjum
tegundum og gefum 30 - 50% afslátt af gamla verðinu.
VERÐ FRÁ KR.: 140-550pr.m2
Missið ekki af þessu einstæða tækifæri,
til að eignast úrvals teppi á alvöru afsláttarverði.
/x%,.
'arma
Byggingavörur hf.
REYKJAVÍKURVEGI 64 HAFNARFIRÐI, SÍMI 53140.