Morgunblaðið - 31.01.1984, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1984
41
fólk f
fréttum
+ „Ég kom allt í einu auga á
hana í auglýsingamynd í sjón-
varpinu og allt mitt líf tók aðra
stefnu,“ segir enski leikarinn
Michael Caine, sem nú er
fimmtugur aö aldri.
Konan, sem Caine er aö tala
um, heitir Shakira Baksh og var
fulltrúi Guyana í feguröarkeppn-
inni „Ungfrú heimur" áriö 1967.
Þau hafa nú verið gift í 11 ár, búa
í Los Angeles og eiga eina dótt-
ur, Natasha, sem er tíu ára göm-
ul.
„Áöur en ég hitti Shakiru var
ég á góöri leið í göturæsiö.
Drakk aldrei minna en eina
vodkaflösku á dag og sótti sjald-
an mannamót án þess aö lognast
út af í brennivínsdái,“ segir
Caine
Michael Caine sló fyrst í gegn í
myndinni „lpcress-skjölin“ og
eftir þaö stóöu honum allar dyr
opnar. Köldu, bláu augun hans
heilluðu konurnar og hvert ást-
arævintýrið rak annaö. Kvik-
myndaleikur, veisluhöld, glaumur
og gleði voru snar þáttur í lífi
hans og í gegnum allt þetta glóöi
á gullið víniö í glasinu, sem
smám saman tók aö færa sig
upp á skaftið.
i
Michael Caine og Shakira Baksh
Caine lét sig alltaf dreyma um
aö eignast fjölskyldu en konan
hans átti líka bara aö vera konan
hans. Hugsa um búiö og börnin
og láta aö vilja hans í einu og
öllu. Draumadísin reyndist hins
vegar vandfundnari en hann
haföi haldið. Einu sinni hélt hann,
aö hann heföi fundið hana í
sænsku fyrirsætunni Camillu
Sparv en þaö reyndist misskiln-
ingur og í annað sinn var hann
kominn á fremsta hlunn meö aö
kvænast stúlku aö nafni Bianca
de Macias. Þaö gekk þó ekki
heldur og tveimur árum síöar
giftist hún manni aö nafni Mick
Jagger.
Michael Caine var oröinn ör-
væntingarfullur og hann var far-
inn aö skilja, aö brennivínið var
aö taka af honum völdin. Þaö var
þá sem hann kom auga á Shak-
iru.
„Ég komst aö simanúmerinu
hennar, hringdi til hennar og
bauö henni út að boröa. Svo þarf
ekki aö hafa um þaö fleiri orð.“
Þau hafa nú veriö gift í ellefu
ár, en Shakira er 14 árum yngri
en hann. Caine hefur enn gaman
af því að láta sem hann stjórni
öllu en viðurkennir þó, aö í raun
sé þaö Shakira, sem stjórni hon-
um.
Hutisow: Barnlaus og einmana
+ Rock Hudson er ein af stóru
stjörnunum í Hollywood og til-
heyrir þeirri kynslóð, sem nú er
sm óðast aö kveðja. Rock, sem
er 58 ára gamall, er enn aö þótt
hann hafi rifaö seglin verulega
og um þessar mundir hefur
hann veriö við upptökur á
myndinni „Devlin og sonur“, en
þær hafa farið fram í Júdeueyöi-
mörkinni í ísrael.
Þaö hefur löngum veriö sagt
um Rock Hudson, aö hann bæöi
reykti og drykki í óhófi en hann
ber þaö samt ekki utan á sér aö
hafa lifaö óhollu lífi.
„Ég hef aldrei neitaö mér um
iífsins lystisemdir og ekki einu
sinni eftir aö ég gekk undir mik-
inn hjartauppskurö fyrir tveimur
árum. Ég hef allt, sem einn mað-
ur getur óskaö sér. Fallegt hús i
fjöllunum fyrir ofan Los Angeles,
fjóra hunda, peninga eins og
sand og fallega vinstúlku,“ segir
Rock, sem í raun er þó mjög ein-
mana maöur og ekki síst vegna
þess aö hann hefur aldrei átt
barn.
„Ég hef aðeins kvænst einu
sinni, þegar ég var ungur maöur,
og siðan hef ég ekki þorað aö
kasta mér út í ástarævintýri af lífi
og sál. Mig hefur alltaf langaö til
Rock Hudson ber aldurinn vel
þótt hann hafi ekki lifað neinu
meínlætalífi.
aö eignast börn en þaö er
kannski eins gott aö vera barn-
laus í þessum heimi, sem viö lif-
um í.“
Rock Hudson er fæddur i smá-
bænum Winnetka í lllinois og
heitir réttu nafni Roy Scherer.
Kvikmyndaframleiöendunum
fannst þaö hins vegar ekki nógu
spennandi en meöal vina sinna
og kunningja er Rock aldrei kall-
aöur annaö en Roy.
COSPER
Guð hjálpi mér, er klukkan orðin 12.
sívinsæli, veröur heiöursgestur á
Broadway nk. föstudags- og laugar-
dagskvöid.
Míöapantanir í símum 77-500 og 68-73-70.
Sjá einnig bls. 5-7-11-41-43-45
Óöinn Þuriöur Einar
ÞAÐ
BYRJARí
FEBRÚAR
TILBOD
Viö bjóöum 1.200 króna afslatt af
12 mynda myndatöku og eini stórri
stækkun í stæröinni 30 x 40 cm.
Verö meö afslætti er kr. 2.925.-
Takmarkaður tími myndataka.
Pantið því tíma strax.
barna&fjölsk/ldu-
Ijósmyndir
Austurstræti 6, sími 12644.
Gix)an daginn!