Morgunblaðið - 31.01.1984, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1984
47
Umbylting í
gömlu bakaríi
EITT hinna eldri og grónari fyrir-
tækja hér í Reykjavík er bakaríið
G. Olafsson og Sandholt á Lauga-
vegi 36. Fyrir rúmlega 60 árum var
byrjað að baka í bakaríinu þar, en
það reistu bakarameistararnir
Guðmundur Olafsson og Stefán
Sandholt. Enn er bakað upp á
hvern dag í þessu húsi. Stofnend-
urnir eru fallnir frá. Er Guðmund-
ur Ólafsson lést var Ásgeir Sand-
holt, sonur Stefáns, byrjaður að
starfa í bakaríinu. Gerðist hann þá
samcignarmaður með föður sín-
um. Stefán Sandholt féll frá árið
1956.
Enn stendur Asgeir við bak-
araofninn upp á hvern dag. Nú
starfar með honum sonur hans,
Stefán Sandholt bakarameist-
ari, — þriðji ættliðurinn, sem að
iðninni starfar í þessu gamal-
gróna bakaríi.
Fyrir nokkru, helgina 21.—-22.
janúar, létu þeir Ásgeir og Stef-
án sonur hans hendur standa
framúr ermum. Gömlum inn-
réttingum í afgreiðslu bakarís-
ins var ruslað út ásamt fleiru.
Síðan settar upp nýjar innrétt-
ingar, afgreiðsluborð með kæii-
útbúnaði fyrir rjómakökur og
tertur og aðrar kökur, nýir
veggskápar og fleira. Þá var öll
raflýsing endurbætt og aukin.
Var þessu öllu lokið er opnað
var á mánudagsmorguninn
næsta, 23. janúar.
Við vonum að viðskiptavinum
okkar falli þetta vel. Telji þessa
umbyltingu hjá okkur til stórra
bóta, sagði Ásgeir Sandholt er
ljósmyndari frá Mbl. leit þar inn
á dögunum. Stöðugt eru gerðar
strangari kröfur um alla með-
ferð og geymslu á kökum og
brauðum. Með þessum nýju,
fullkomnu innréttingum teljum
við okkur hafa mætt þessum
nýju kröfum, bætti Ásgeir við.
Fisksölur
erlendis
OTUR GK seldi í gær 116,3 lestir
í Bremerhaven. Heildarverð var
2.863.500 krónur, meðalverð
24,63. Þá seldu þrjú skip afla sinn
erlendis í síðustu viku, sem ekki
hefur verið getið enn.
Erlingur GK seldi á föstudag
126,7 lestir í Cuxhaven. Heild-
arverð var 2.543.000 krónur,
meðalverð 20,07. Þá seldi Ólaf-
ur Jónsson KE á fimmtudag
172,5 lestir í Bremerhaven.
Heildarverð var 3.954.900 krón-
ur, meðalverð 22,93. Gullberg
NS seldi á þriðjudag 103,8 lestir
í Grimsby. Heildarverð var
2.399.200 krónur, meðalverð
23,11.
Afli Gullbergs var talsvert
blandaður og dró það meðal-
verð nokkuð niður í samanburði
við það, sem venjulega fæst í
Englandi. Til dæmis voru 30
lestir aflans karfi og einnig var
talsvert af grálúðu í aflanum.
Hins vegar fékkst um 37 króna
meðalverð fyrir þorskinn.
Talsvert var af smáum karfa
í afla Erlings og dró það meðal-
verðið niður.
Lyklakippa í
óskilum á Mbl.
LYKLAKIPPA er í óskilum á
Mbl. Eigandinn gleymdi henni á
skrifstofu blaðsins fyrir nokkr-
um dögum. Á kippunni eru 6
lyklar, m.a. lykill að Saab-bif-
reið. Eigandinn er beðinn að
hafa samband við Mbl.
í bakaríinu hjá G. Ólafsson og Sandholt eftir breytinguna að sjálfsögðu. —
Ásgeir bakarameistari og afgreiðsludömurnar. Allt er þar nýtt í hólf og gólf.
Fundur FEF á fímmtudag:
„Réttur barna til
að eiga foreldra“
„RETTUR barna til að eiga for-
eldra“, er yfirskrift almenns félags-
fundar sem verður í Félagi ein-
stæðra foreldra fimmtudagskvöldið
2. febrúar kl. 21. Fundurinn er hald-
inn í Skeljahelli, Skeljanesi 6.
Eins og fundarefnið gefur til
kynna verður þarna m.a. rætt um
umgengnismál og umgengnisrétt,
en þessi atriði hafa verið mjög í
brennidepli undanfarið. Málshefj-
endur eru Ólöf Pétursdóttir, deild-
arstjóri í dómsmálaráðuneytinu,
Sigrún Karlsdóttir, starfsmaður
barnaverndarnefndar og Helga
Hannesdóttir, barnageðlæknir.
Einnig situr Dögg Pálsdóttir,
form. barnaverndarnefndar fund-
inn. Frjálsar umræður verða og
fyrirspurnir eftir því sem tíminn
leyfir.
Félagar eru hvattir til að mæta
vel og stundvíslega og tekið skal
fram, að nýir félagar og ófélags-
bundið fólk er velkomið.
Þá skal minnt á að félagar geri
skil fyrir jólakort, sem þeir tóku-
til sölu. Félagsbréf 1. tbl. 10. árg.
er nýlega komið út og hefur verið
sent til félagsmanna.