Morgunblaðið - 02.02.1984, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1984
17
Munkurinn Akaki
Sá elsti
nú látinn
llelsinki, 31. janúar. AF.
ELSTI MAÐUR Norðurlanda, faðir
Akaki, lést í svefni í gær, hann var
110 ára gamall. Síðustu ár sín bjó
hinn aldni munkur í Valamo-
klaustrinu í Mið-Finnlandi.
Akaki fæddist árið 1873 í Vol-
ogda í Rússlandi, en var 17 ára
gamall er hann gekk í Petsamo-
klaustrið skammt frá íshafinu í
Lapplandi. Árið 1942 lokaði
klaustrið vegna stríðsins, og fór
Akaki þá ásamt 20 öðrum munk-
um til Valamo-klaustursins og bjó
þar til dauðadags. Yfirmunkur
klaustursins sagði, að Akaki hefði
verið ern og hress til hins síðasta.
Kvennaráðgjöf
ÞRIÐJUDAGINN 7. febrúar mun
kvennaráðgjöf taka til starfa. Hún
hefur aðsetur í Kvennahúsinu, Hótel
Vík, Vallarstræti 4 í Reykjavík.
Kvennaráðgjöfin er ráðgjöf
fyrir konur veitt af konum. Þang-
að geta konur komið, hringt eða
skrifað og rætt vandamál sín við
konur í ráðgjöfinni.
Að kvennaráðgjöfinni stendur
hópur kvenna, félagsráðgjafar,
lögfræðingar, félagsfræðinemar
og lögfræðinemar. Boði verður
upp á einstaklingsbundna ráðgjöf
og hópstarf. Nafnleyndar verður
gætt.
Kvennaráðgjöfin verður opin á
þriðjudagskvöldum frá kl. 20.00 til
22.00 og síminn er 21500.
(FrétUtilkynninf{.)
Þessi ullarjakki telst fyrsta flokks
og er seldur sem slíkur, en brögð
eru að því að menn framleiði óvand-
aðri ullarvörur og selji til Bandarikj-
anna, þar sem þær fara beint á út-
sölur. Margir framleiðendur telja að
þessi þróun sé að eyðileggja þann
góða orðstír, sem farið hefur af fatn-
aði, framleiddum úr íslenskri ull.
„Við höfum nú rætt við þá aðila
sem hér eiga í hlut, bæði hér á
landi og í Bandaríkjunum og þeir
vita best sjálfir hvað er að gerast.
Ef þeir láta ekki segjast verðum
við að grípa til frekari ráðstafana.
Við höfum íhugað þann möguleika
að vernda orðið „Icelandic" og að
aðeins fyrsta flokks vörur og vör-
ur sem koma frá íslandi verði
seldar undir heiti sem tengist
nafni landsins. En lagaverndun af
þessu tagi er háð yfirvöldum í
Bandarikjunum."
Comiðástorg-*-
MlarpotwP'0
Btómapottar.k
kerti o.rn.i'-
Kornið við, 9er
ð Sigwn,
,ðurhúsinu
/MIKUG4RDUR
Fyrsta
vörukynning
á Islandi
hefst í dag
GÆÐAVARA
Á GÓÐU
VERÐI