Morgunblaðið - 02.02.1984, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.02.1984, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1984 Demókratar vilja friðargæsluliðið í Líbanon heim: „Læt sem ég hafi ekki heyrt þetta“ — sagði Reagan Bandaríkjaforseti Washington.l. febrúar. AP. RONALD Reagan, Bandaríkjaforseti, gaf í kvöld til kynna, ad hann hygðist láta samþykkt þingmanna demókrata, þess efnis að bandaríska gæsiuliðið í Líbanon verði kallað heim, sem vind um eyru þjóta. Þegar forsetinn var inntur eftir því hvað hann vildi segja um til- logu demókratanna svaraði hann: „Eg er allt of ánægður með lífið þessa stundina til þess að láta ákvarðanir demókrata angra mig.“ Er gengið var fastar að for- setanum svaraði hann: „Ég læt sem ég hafi ekki heyrt þessa til- lögu þeirra." Talsmaður fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, Thomas P. O’Neill sagði við AP-fréttastofuna að nær allir fulltrúar demókrata í deildinni hefðu verið samþykkir tillögunni. Talsmaður forsetans, Larry Speakes, var harðorður í garð demókratanna og sagði þá styðja ófriðaröfl í Miðausturlönd- um með samþykkt sinni. Hálf milljón í mót- mælum gegn Marcos Hundaútrýmingarsveitir Manila, 1. febrúar. AP. TÍU uppreisnarmenn kommúnista og þrír hermenn létu lífið í miklum bardögum, sem hófust á hádegi í gær norður af Manila, höfuðborg Filippseyja. Átökin stóðu enn síðdeg- Cheysson í Chad París, 1. febrúar. AP. CLAUDE Cheysson, utanrfkisráð- herra Frakklands, fór í dag áleiðis til Chad, Eþíópíu og Lfbýu, þar sem hann mun kynna sér ástandið og reyna að stilla til friðar. Tilkynningin um brottför Cheysson kom á sama tíma og sendiráð Chad í París tilkynnti, að stjórnarherinn í landinu hefði „útrýmt" óvinahersveit, sem gerði árás á stöð stjórnarhersins í suðurhluta landsins. Þetta er í annað sinn á einni viku, að fréttist um skærur í Chad eftir að allt hafði verið þar með kyrrum kjörum f 5 mánuði. is í dag, en ekki höfðu borist fregnir af frekara mannfalli. Talið er að um hálf milljón manna hafi tekið þátt í tólf klukkustunda mótmælaaðgerðum gegn stjórn Ferdinands Marcos í Manila, höfuðborg Filipseyja, í gær. Þetta eru fjölmennustu að- gerðirnar gegn stjórninni frá því í útför Benigno Aquino, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, sem var ráðinn af dögum á Tarmac- flugvelli í Manila í ágúst í fyrra. Aðgerðirnar hófust sem mót- mælaskokk 300 manna frá héraði því sem Aquino bjó í og til flug- vallarins þar sem hann var myrt- ur. Lögregla stöðvaði skokkarana fyrir þremur dögum og voru þeir þá staddir 16 km fyrir norðan höf- uðborgina. Marcos forseti greindi frá því í forsetahöllinni í gær að hann hefði ákveðið að afsala sér til 1. júní n.k. heimild til að fyrirskipa handtöku manna sem hvetja til óeirða og uppreisnar. Stjórnar- andstæðingar höfðu gert þetta valdaafsal að skilyrði fyrir þátt- töku í þingkosningunum sem fram eiga að fara á Filippseyjum í maí. frá drottn- ingunni Kaupmannahöfn, 1. febrúar. Frá Ib Björnbak, fréttaritara Mbl. ÞAÐ ER stund- um sagt, að sum- ir seú fæddir með silfurskeið í munninum, t.d. prinsar og prins- essur, en nú ætl- ar Margrét Danadrottning að gera hér brag- arbót á. Um næstu jól verður boðið upp á skilfur- skeið frá drottn- ingunni, jólaskeið, sem hún hefur fallist á að gera fyrir fyrirtækið A. Michelsen, konunglegan gim- steinasala. Fyrirmyndin er Jesú- barnið og hugmyndina fékk Marg- rét þegar hún skoðaði Verdun- altarið svonefnda í Klosterne- uburg skammt frá Vín. Er það silfursmíði mikil eftir meistarann Nikolaus frá Verdun og silfrið gyllt og emelerað og þannig verð- ur skeiðin líka. Þetta verður 75. jólaskeiðin frá A. Michelsen. Enginn efast um að skeiðin verði mikjll safngripur en áður hefur Márgrét teiknað jóla- frímerki og myndskreytt bók um æsina gömlu. „Ekki núna, bjálfinn þinn. Það er fylgst með okkur.“ Þannig hljóðar textinn við þessa skopmynd, sem birtist í Daily Mail í síðustu viku. Á lögreglubifreiðinni á teikningunni segir: „Hundaútrýmingarsveitir lögreglunnar í Reykjavík.“ Reagan lagði fjárlagafrumvarpið fram f gær: Tekjuaukning 10% og gert ráð fyrir minnkandi halla Washington, 1. febrúar. AP. RtíNALD Reagan, Bandaríkjaforseti, lagði í dag fram fjárlagafrumvarpið fyrir næsta fjárhagsár fyrir þingið. Fjárhagsárið hefst 1. október n.k. Niðurstöðutölur frumvarpsins hljóða upp á 925,5 milljarða doll- ara útgjöld. Er það 71,7 milljarða dollara aukning frá yfirstandandi fjárhagsári. Tekjur eru áætlaðar 745 milljarðar dollara og er þar um að ræða 75 milljarða dollara tekjuaukningu frá yfirstandandi fjárhagsári. Eins og sjá má af framan- greindum tölum er halli á fjárlög- unum umtalsverður, eða um 180 milljarða dollara. Talið er að hall- inn á núverandi fjárlögum verði um 183,7 milljarðar dollara. Gert er ráð fyrir því, að hallinn á fjár- lögunum verði kominn niður undir 150 milljarða dollara árið 1988. Rúmur fjórðungur fjárlaga- frumvarpsins er ætlaður til varn- armála, eða 264,4 milljarðar doll- ara alls. 'Er hér um 14,5% aukn- ingu frá yfirstandandi fjárhagsári að ræða. Þá er lagt til að aðstoð við erlend ríki verði 15,2 milljarð- ar dollara og fari meginhluti þeirrar upphæðar til ísrael og Eg- yptalands. Framlög til félagsmála eru nær óbreytt á flestum sviðum og 100 milljón dollara aukning er til menntamála. Lagt er til, að 150 milljónum dollara verði varið til hönnunar og þróunar á mannaðri geimstöð. Heildarkostnaður við stöðina er áætlaður 8 milljarðar dollara. Þá leggur Reagan á það áherslu, að staga þurfi í þau göt, sem fyrirfinnist á núverandi skattakerfi. Jólaskeið Ummæli Svenn Stray, untanríkisráðherra Noregs, á fundi með sendiherra Sovétmanna í Osló: Njósnirnar hafa grafiö undan gagnkvæmu trausti þjóðanna Orié, I. febrúar. Frá Per A. Borglund, fréttaritara Mbl. NtíRSKA utanríkisráðuneytið sendi í kvöld frá sér svohljóðandi frétta- tilkynningu: í framhaldi af handtöku Arne Treholt, skrifstofustjóra í utan- ríkisráðuneytinu, kallaði Svenn Stray, utanríkisráðherra Nor- egs, sendiherra Sovétríkjanna í Noregi, Dimitrij S. Poljanski, á sinn fund. Utanríkisráðherrann tjáði sendiherranum, að fram hefði komið í vitnaleiðslum í Treholt- málinu, að sovéskir sendiráðs- starfsmenn hefðu haft í frammi tilburði, sem ekki samræmdust stöðu þeirra. Þá tilkynnti Stray, að norska stjórnin liti mál þetta alvarleg- um augum. Njósnamál af þessu tagi græfu óneitanlega undan því gagnkvæma trausti, sem þjóðirnar byggðu samskipti sín á. Stray sagði jafnframt, að sov- ésk stjórnvöld hlytu alfarið að bera ábyrgð á því tjóni, sem njósnir Treholts hefðu valdið ^amskiptum þjóðanna. Stray mótmælti harðlega þeirri framkomu, sem starfs- menn við sovéska sendiráðið í Osló hefðu gert sig seka um og lagði að því loknu fram lista yfir starfsmenn sendiráðsins, sem hann sagði óæskilega í Noregi og bæri að yfirgefa landið svo skjótt sem auðið væri. Þeir, sem um er að ræða, eru Leonid A. Makarov, ráðunautur, Stanislav I. Tsjebotok, fyrsti sendiráðsritari, Jurij A. Anis- imov, fyrsti sendiráðsritari, og þeir Mikhail I. Utkin og Anatolij A. Artamov, báðir óbreyttir starfsmenn við sendiráðið. Utanríkisráðherrann tilkynnti ennfremur, að ekki yrði heimilað að fjölga sovéskum sendiráðs- starfsmönnum frá því sem nú er. Nýir menn kæmu ekki í stað hinna brottviknu. Loks skýrði Stray frá því, að þeirra Gennadij F. Titov, Evgenij Beljajev, Vladi- mir I. Zjizjin og Aleksander G. Lopatin væri ekki óskað í Nor- egi- Rússarnir á myndinni yfirgáfu Noreg í síðustu viku. Talið er að þeir hafí séð þann kost vænstan þar sem þeir hafi átt yfir höfði sér brottvísun frá Noregi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.