Morgunblaðið - 02.02.1984, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1984
Fjárbú Tilraunastödvarinnar á Reykhólum:
119 Austur-Barðstrending-
ar skora á stjórn RALA
að leggja búið ekki niður
Stjórnandi og einleikari ásamt formanni stjórnar Samtaka um byggingu
tónlistarhúss. Frá vinstri: Mark Reedman, Ármann Örn Ármannsson og
Gunnar Kvaran. (Morpinbi»A«>/KÖE)
Fjáröflunartónleikar til styrktar tónlistarhúsi:
Strengjasveit Tónlistarskól-
ans leikur í Bústaðakirkju
Morgunblaðinu hefur bor-
ist eftirfarandi áiyktun:
„Við undirritaðir íbúar
A-Barðastrandarsýslu, mótmæl-
um harðlega þeirri ákvörðun
stjórnar RALA að leggja niður
sauðfjárbú Tilraunastöðvarinnar
á Reykhólum. Við teljum að það
starf, sem þar hefur verið unnið,
sé mjög til framdráttar sauðfjár-
Fríkirkjan:
Þorrafagnaður
á sunnudaginn
Jæja, nú ætlum við að halda
þorrafagnaðinn, sem við urðum að
fresta um daginn vegna veðurs og
ófærðar. Það er ætlunin að koma
saman í Oddfellow-húsinu á sunnu-
daginn kemur og opna húsið klukk-
an nítján-núll-núll. Það verður á
borðum íslenskur matur, sem
geymdur hefur verið með gamla lag-
inu. Ýmis skemmtiatriði verða á
dagskrá: Dóra Reyndal og Ágústa
Ágústsdóttir syngja við undirleik
Pavels Smíd, organista, Wilma
Young, tónlistarkennari ofan af
Akranesi, ætlar að spauga á fiðluna
sína og hjónin Guðrún Ásmunds-
dóttir og Kjartan Ragnarsson, leik-
arar, sitja fagnaðinn með þeirri
kímni og þægilegheitum, sem okkur
finnst svo falleg og ánægjuleg. Loks
verður stiginn dans við músík Reyn-
is Jónassonar og félaga.
Nú er bara að vona, að margir sjái
sér fært að koma. Aðgöngumiðar
fást keyptir í versluninni Brynju við
Laugaveg. Best er náttúrulega að
tryKKja sér bílæti í tíma, og það
hafa margir gert nú þegar, en þau
verða einnig seld við innganginn.
Það er Kvenfélag Fríkirkjusafn-
aðarins, sem hefur veg og vanda af
skemmtuninni og ég bið, að við hitt-
umst heil í Oddfellowhúsinu á
sunnudagskvöldið.
Gunnar Björnsson,
fríkirkjuprestur.
rækt í landinu og Reykhólaféð sé
auðlind sem geti skilað miklum
verðmætum í þjóðarbúið.
Reykhólaféð skilar nú þegar 2,8
kg af ull, hver kind, en á vísitölu-
búum skilar hver kind 1,94. Þetta
umfram ullarmagn gefur að auka-
verðmæti sem nemur 37 lömbum,
sé miðað við vísitölubúið. Einnig
lítum við svo á, að ef nóg sé af ull,
með þeim kostum sem Reykhóla-
féð hefur, megi stórminnka ullar-
innflutning og hægt verði að
framleiða hágæðavörur úr alís-
lenskri ull. Einnig má vekja at-
hygli á því, að gærur af Reykhóla-
lömbum líka mjög vel og fullyrða
má að kominn sé upp á Reykhól-
um sterkur vísir að alhvítu feldfé.
Við skorum á stjórn Rannsókn-
arstofnunar landbúnaðarins að
hætta þegar í stað við umrædda
ákvörðun og láta fjárbú Tilrauna-
stöðvarinnar á Reykhólum undir
sömu yfirstjórn halda áfram
störfum þar.“
Undir áskorunina rita 119 at-
kvæðisbærir menn í Austur-
Barðastrandarsýslu.
Ýmir seldi
ÝMIR HF seldi í gær 129,3 lestir í
Bremerhaven. Heildarverð var
2.657.600 krónur, meðalverð 20,55.
Talsvert var af smáum karfa í afl-
anum og dró það meðalverðið
niður, en að öðru leyti voru gæði
aflans í góðu lagi.
Leiðrétting
í FRÉTT sem birtist í Morgun-
blaðinu í gær um bókaklúbb bóka-
útgáfunnar Svart á hvítu voru eig-
endur hennar ranglega sagðir vera
þeir Guðmundur Þorsteinsson og
Björn Jónasson. Þeir eru hins veg-
ar starfsmenn bókaútgáfunnar,
sem er hlutafélag. Morgunblaðið
biðst velvirðingar á þessum mis-
tökum.
STRENGJASVEIT Tónlistarskólans
í Reykjavík heldur nk. fostudag,
þann 3. febrúar, fjáröflunartónleika i
nafni Samtaka um byggingu tónlist-
arhúss. Stjórnandi er Mark Reed-
man og Gunnar Kvaran sellóleikari
leikur einleik. Tónleikarnir verða í
Bústaðakirkju og hefjast klukkan
20.30.
Eru þetta fyrstu fjáröflunar-
tónleikarnir sem haldnir eru til
styrktar byggingu tónlistarhúss.
Áætlaður kostnaður við tónlist-
arhúsið er í kringum 200 milljónir
króna, en húsið á að vera um 30
þúsund rúmmetrar að stærð.
Ármann Örn Ármannsson, for-
maður stjórnar Samtaka um bygg-
ingu tónlistarhúss, sagði á fundi
með blaðamönnum í gær, að ekki
væri mikið til í sjóði í dag, enda
fjáröflun rétt að fara af stað. Si-
nfóníuhljómsveit íslands lagði þó
til ákveðna upphæð fyrir tveimur
árum, auk þess að leika 9. sinfóníu
Beethovens á tónleikum til styrkt-
ar málefninu í vor.
í samtökunum eru um 1900
manns og greiða þeir félagsgjöld,
lágmark 200 krónur, en hámarkið
er ótakmarkað. Sagðist Ármann
Örn vonast til að tækist að ná inn
um 2 milljónum króna á þann hátt.
„Um aðrar fjáröflunarleiðir er
ekki tímabært að fjölyrða mikið
um á þessu stigi," sagði Ármann
Örn. „Við höfum á borðinu hjá
okkur á milli 20 og 30 möguleika,
þar sem meðal annars er gert ráð
fyrir þátttöku ríkisins og sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu. Og'
síðast en ekki síst verðum við að
treysta á þátttöku fólksins í land-
inu, því þetta er þeirra hús, þar
sem leikin verður tónlist af öllu
mögulegu tagi.“
Armann Örn sagði að lóðamálin
Lýst eftir
bifreið
AÐFARANÓTT fimmtudagsins 12.
janúar var bifreiðinni R-12685 stolið
frá Fellsmúla 17.
Bifreiðin er af Lada-gerð og er
drapplituð. Þeir sem kunna að búa
yfir upplýsingum um hvar bifreið-
in er niðurkomin, vinsamlega láti
lögregluna í Reykjavík vita.
Skíði og skíða-
stafir hurfu
UM HELGINA hurfu Karú-
gönguskíði og skíðastafir frá
Miklubraut 28. Hlutirnir voru við
útidyr hússins. Þeir sem kunna að
búa yfir upplýsingum um hvar
skíðin og skíðastafirnir eru niður-
komnir vinsamlega hringi í síma
17547.
væru enn í biðstöðu, en þrjár lóðir
eru helst taldar koma til greina:
Við Sigtún í námunda við Blóma-
val, vestur af Glæsibæ eða á
Miklatúni, annað hvort við Rauð-
arárstíg eða á horni Flókagötu og
Lönguhlíðar.
Á efnisskrá tónleikanna á föstu-
daginn verður Brandenborgar-
konsert nr. 3 eftir Johan Sebastian
Bach, Sellókonsert í e-moll eftir
Vivaldi, þar sem Gunnar Kvaran
leikur einleik, og Strengjakvintett
í c-dúr op. 163 eftir Franz Schu-
bert, og eru flytjendur þau Sigrún
Eðvaldsdóttir og Bryndís Pálsdótt-
ir fiðlur, Mark Reedman lágfiðla,
Bryndís H. Gylfadóttir og Bryndís
Björgvinsdóttir selló.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn, en allur ágóði rennur í
sjóð Samtaka um byggingu tónlist-
arhúss, sem fyrr sagði.
Nýr bankastjóri Búnaðarbankans:
Lárus og Jón Adolf til
umræðu í bankaráðinu
Sólon R. Sigurðsson bætt-
ist í hóp umsækjenda ígær
NIÐLRSTÖÐU um hver skipa
muni bankastjórastöðu Búnaðar-
banka íslands er ekki að vænta
fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku, að
sögn Stefáns Valgeirssonar for-
manns bankaráðs. Skiptar skoðan-
ir eru innan bankaráðsins um
hvern skipa eigi sem bankastjóra
og hafa tveir menn helst verið
nefndir til stöðunnar, þeir Lárus
Jónsson alþingismaður og Jón
Adolf Guðjónsson, aðstoðarbanka-
stjóri Búnaðarbankans, en síðdeg-
is í gær mun bankaráðinu hafa
verið greint frá því að Sólon R.
Sigurðsson, forstöðumaður gjald-
eyrisdeildar Búnaðarbankans,
sækti einnig um stöðuna.
í gær voru haldnir óformlegir
fundir í bankaráðinu og stjórn
Stofnlánadeildar landbúnaðar-
ins, en þar er fjallað um hver
skipa skuli stöðu forstöðumanns
Stofnlánadeildarinnar. Sam-
kvæmt heimildum Mbl. eru þar
þrjú nöfn helst nefnd af þeim 15
sem sóttu um, en það eru: Leifur
K. Jóhannesson búnaðarhag-
fræðingur, Þórólfur Gíslason
kaupfélagsstjóri, og auk þess
annar af þeim tveimur umsækj-
endum sem æsktu nafnleyndar.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins munu skiptar
Sólon R. Sigurðsson
skoðanir innan Sjálfstæðis-
flokksins um það hvorn þeirra
tveggja fyrstnefndu skuli ráða til
bankastjórastarfans. Þingflokk-
ur Sjálfstæðisflokksins tilnefndi
Lárus Jónsson til þessa embætt-
is, en séra Gunnar Gíslason,
fyrrverandi alþingismaður, sem
er annar fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í bankaráðinu, hefur
gefið til kynna stuðning við Jón
Adolf Guðjónsson. Ekki er vitað
um afstöðu hins fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins í bankaráðinu,
Friðjóns Þórðarsonar alþing-
ismanns.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins mun sterkur
stuðningur vera við Jón Adolf
Guðjónsson meðal starfsmanna
Búnaðarbankans. Innan þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins er á
það bent, að séra Gunnar Gísla-
son og Friðjón Þórðarson séu
kjörnir trúnaðarmenn þing-
flokksins í bankaráðinu og því sé
eðlilegt að þeir fari að óskum
þingflokksins í þessum efnum.
í gærkvöldi var talið að ráðn-
ing nýs banakstjóra við Búnað-
arbankann byggðist á því, að
samstaða tækist milli hinna
tveggja fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins í bankaráðinu og
mundu fulltrúar hinna flokkanna
þriggja hlíta þeirri niðurstöðu.
Lárus Jónsson
Jón Adolf Guðjónsson
Athugasemd
frá Stefáni
Valgeirssyni
Mbl. hefur borist eftirfarandi at-
hugasemd frá Stefáni Valgeirssyni,
alþingismanni og formanni banka-
ráðs Búnaðarbankans:
„Ég verð að gera athugasemd
við það sem blaðamaður hafði
eftir mér í blaðinu í gær í sam-
bandi við ráðningu á bankastjóra
í Búnaðarbanka Islands í stað
Magnúsar heitins Jónssonar.
Þetta mál var ekki rætt á banka-
ráðsfundinum í gær, að öðru leyti
en því að nauðsynlegt væri að
ganga frá ráðningunni eins fljótt
og tök væru á. Hins vegar hefur
bankaráðið rætt málið á nokkr-
um óformlegum fundum.
Það sem gerist á bankaráðs-
fundum ræði ég ekki við blaða-
menn, fyrr en niðurstaða liggur
fyrir. Hins vegar gat ég þess við
blaðamanninn, að formaður
Sjálfstæðisflokksins, Þorsteinn
Pálsson, hefði tilkynnt mér að
Sjálfstæðisflokkurinn hefði til-
nefnt Lárus Jónsson alþing-
ismann sem fulltrúa sinn í
bankastjórastarfið. Ég nefndi
éinnig að fleiri menn væru í
myndinni, t.d. Jón Adolf Guð-
jónsson aðstoðarbankastjóri.
Hins vegar er rétt eftir mér haft,
að ég tel að Sjálfstæðisflokkurinn
eigi ekki þessa stöðu eftir það
sem á undan er gengið í Búnað-
arbankanum."
Aths. ritstj.:
Þessi athugasemd Stefáns Val-
geirssonar er gersamlega óþörf
þar sem hún er nánast samhljóða
frétt Morgunblaðsins í gær.