Morgunblaðið - 02.02.1984, Side 32

Morgunblaðið - 02.02.1984, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1984 VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF — UMSJÓN SIGHVATUR BLÖNDAHL — Fyrsta Boeing 737-300 farþega- þotan afhent FYRSTA farþegaþotan af gerft- inni Boeing 737-300 var afhent hjá Boeing-flugvélaverksmift- junum í Seattle í Banda- ríkjunum í vikunni, en vélar af gerðinni Boeing 737-100 og Boeing 737-200 hafa verið í framleiðslu um árabil. Má nefna aft Arnarflug er með Boeing 737-200 þotu í milli- landaflugi sínu. Söluverð þessarar nýju vélar er um 22 milljónir dollara, en hún er ætluð til flugs á skemmri- og millivegalengd- um. f venjulegri útfærslu tek- ur nýja vélin um 128 farþega, en þá er hún farrýmaskipt. Helztu keppi nautar nýju vél- arinnar eru DC-9-80 og British Aerospace 146 og Fokker F-28 Su per 100, en þær vélar taka liðlega 100 farþega í hefðbund- inni útfærslu. Boeing-verksmiðjurnar af- hentu í desember sl. vél númer 1.000 af gerðinni Boeing 737- 200 og hefur aðeins verið framleitt meira af einni vél- artegund í sögunni til þessa, Boeing 727, eða liðlega 1.800 vélar. Nýja vélin er heldur lengri en Boeing 737-200, auk þess að vera knúin aflmeiri og eyðslugrennri hreyflum. Flug- þol hennar er þar af leiðandi meira, auk þess sem ýmiss konar tækjabúnaður er full- komnari. Metár hjá Volvo 1983: Liðlega 15% fleiri bílar seldir en 1982 VOLVO-samsteypan seldi alls 365.000 bíla á síðasta ári, sem er mesta sala fyrirtækisins í sögu þess. Aukningin frá árinu á undan, sem ennfremur var metár, er um 15%, en þá seldust alls liðlega 317.000 bflar. Heildarframleiðsla á bflum í heiminum var um 28 milljónir bfla, borið saman við 25 milljónir árið 1982. Aukningin þar er um 12%. Alls voru seldir um 232.000 bílar af 240-gerðinni, sem er um 5,5% aukning frá árinu á undan, þegar alls voru seldir liðlega 220.000 bíl- ar. Um þriðjungur af þeirri sölu eru station-bílar, eða um 83.000 bílar. Aukningin í þeirri sölu er um 21%, en árið 1982 voru seldir samtals um 68.000 station-bílár af Volvo-gerð. Alls voru seldir um 31.000 bílar af flaggskipinu frá Volvo, Volvo 760, en síðasta ár var fyrsta heila árið í sölu, en bíllinn var kynntur á árinu 1982. Þá gerðist það í fyrsta sinn í sögu Volvo, að framleiddir voru meira en 100.000 bílar af 300-gerð- inni. Alls voru framleiddir og seldir liðlega 102.100 bílar af þeirri gerðinni, sem er um 13% aukning frá árinu á undan, þegar alls voru seldir liðlega 90.400 bíl- ar Heildarsala bíla dróst lítillega saman í Svíþjóð á síðasta ári, eða um 216.300 bílar á móti liðlega 217.500 bílum árið 1982. Volvo jók hins vegar sölu sína í Svíþjóð um tæplega 7,7%, þegar seldir voru 61.900 bílar, borið saman við 57.500 bíla árið á undan. Fyrir- tækið jók markaðshlutdeild sína úr 26,3% í 28,6%. Stærsti markaður Volvo eru Bandaríkin, en þar í landi seldust alls 87.700 bílar af Volvo-gerð, borið saman við liðlega 71.600 bíla árið 1982. Aukningin milli ára eru um 22%. Eimskip: „Lindau nýtt tölvukerfi til vinnslu á farmskrám NÍJ UM áramótin var tekið í notkun nýtt tölvukerfi til vinnslu á farmskrám Kimskips, og hefur því verift gefift nafnift „LINDA“ (Liner Information Network for Data Administration). Ný tölvudiskettu- stöð frá FACIT Undanfarin ár hafa eingöngu flutningsgjaldareikningar verið skrifaðir út í tölvu, en með hinu nýja kerfi verður farmskráin í heild skráð í tölvu og má þannig á einfaldan hátt kaila fram á skerm helstu upplýsingar um þyngd, vörulýsingu, flutnings- gjöld, eftirkröfur o.fl. Einnig kemur fram staðsetning vöru, hvort hún er í gám eða vöru- geymsluhúsi. Sendingin verður merkt ákveðnu vöruhúsi, og tengist birgðahaldi félagsins í Sunda- höfn. Virkt eftirlit verður með tjónum og tjónauppgjöri, og það tengt farmskránni. Þetta nýja tölvukerfi mun flýta og auka upplýsingastreymi til starfsmanna og viðskipta- manna félagsins um einstakar vörusendingar. Leggst þá af það fyrirkomulag að fletta upp og leita í farmskrám til að gefa upplýsingar til viðskiptamanna um hina ýmsu þætti sem tengj- ast vörusendingunum. Öll upp- lýsingagjöf til viðskiptamanna mun því stórbatna. í byrjun mun öll skráning farmbréfa fara fram í flutninga- deildum félagsins, en stefnt er að því að mestöll frumskráning farmbréfa flytjist til viðkomandi umboðsmanna erlendis, og verði farmskráin send í tölvuskráðu formi um símalínu til aðalskrif- stofunnar í Reykjavík. Þetta nýja tölvukerfi mun hafa víðtæk áhrif á ýmsum svið- um, og t.d. verða gögn send í tölvutæku formi til Tollstjóra- skrifstofunnar í Reykjavík í ná- inni framtíð. Minna verður um mistök og misræmi við gerð toll- skýrslna. Héðan í frá mun Eim- skip nota nafnnúmerakerfi í stað sérstaks viðskiptanúmerakerfis. Vöruflokkakerfi verður það sama hjá Eimskip og Hagstof- unni. Má gera ráð fyrir að önnur skipafélög muni fara yfir í svip- að kerfi í framtíðinni. Með þessu nýja tölvukerfi, verður upplýsingakerfi Eimskips orðið mjög víðtækt og samtengt, og þá má telja að félagið verði komið í hóp þeirra skipafélaga, sem fremst standa í heiminum í dag hvað varðar notkun tölvu- tækninnar. Þróun kerfisins hefur þegar tekið um 6 mannár, en vinna við það hófst fyrir um 2'/i ári. Á árinu 1984 verður unnið að end- anlegum frágangi kerfisins og ekki er ólíklegt, að þegar allri vinnu verði lokið hafi uppbygg- ing kerfisins tekið 10 mannár. Um áramót verður 21 tölvu- skermur tengdur þessu nýja farmskrárkerfi, víðsvegar um fyrirtækið. Gagnvart viðskiptavinum Eimskips eru þessar breytingar helstar: Form útsendra tilkynninga breytist. Á tilkynningunni koma fram allar upplýsingar sem til- greindar eru á farmbréfi, auk út- reikninga á flutningsgjöldum eins og verið hefur. Framvegis verður hverri send- ingu gefið sérstakt sendingar- númer, sem er skráð á tilkynn- inguna, og skal að beiðni tollyf- irvalda færa sendingarnúmer inn á tollskýrsluna í stað farmskrárnúmers áður. Til að tryggja öruggara sam- starf „LINDU" og tollyfirvalda, eru viðskiptavinir hvattir til að óska eftir því við sendendur er- lendis, að færa inn á farmbréfið nafnnúmer vörumóttakanda auk nafns. Gagnvart tollyfirvöldum verð- ur tilkynningin framvegis tekin gild sem afrit af farmbréfi. Þetta er til mikils hagræðis fyrir viðskiptamenn. GÍSLI J. Johnsen Skrifstofu- búnaftur sf. hefur hafift innflutn- ing á lítilli tölvudiskettustöð frá FACIT í Svíþjóft, sem nefnist FACIT Micro Floppy 4811. Þessi diskettustöft er tengd vift FACIT 8111 ritvélar, sem notaftar hafa verift um nokkurt skeift hérlend- is hjá fjölda fyrirtækja. Disketturnar, sem notaðar eru, eru 5 sm í þvermál og stöðin sjálf vegur 1,5 kg. A þessum diskettum er hægt að geyma í minni allt að 16.000 stafi um aldur og ævi. FACIT-ritvélarnar, sem stöðin er tengd við, hefur einnig 16.000 stafa minni, svo ef eig- andinn kýs að geyma textann til langframa, flytur hann textann yfir á diskettuna úr minni ritvélarinnar. Þegar nota þarf textann aftur, er hann fluttur af diskettunni yf- ir í minni ritvélarnar og þar er hægt að breyta honum að vild, áður en hann vélritast á blað. Auk þessara 16.000 stafa er hægt að geyma í minni ritvél- arinnar ýmis ávörp, sem al- geng eru í verslunarbréfum og einnig uppsetningu verslun- arbréfa. Ritvélin og diskettustöðin kosta samtals um 95.000 kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.