Morgunblaðið - 02.02.1984, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1984
39
fclk í
fréttum
Barnið hennar Söru
+ Fyrir fjórum vikum leit dags-
ins Ijós í Englandi jarphærö og
bláeyg stúlka, sem hlotiö hefur
nafnið Flora Elisabeth Keays.
Flora litla veit þaö að sjálfsögðu
ekki enn en hún er af frægu
fólki komin, móóir hennar er
Sara Keays og faðir hennar
heitir Cecil Parkinson, fyrrum
ráðherra í bresku ríkisstjórn-
inni.
Parkinson varð að segja af sér
þegar uppvíst varð, að Sara,
einkaritari hans, var með barni,
sem hún kenndi honum og sagði
að auki, að hann hefði veriö bú-
inn að lofa sér eiginoröi aö frá-
gengnum skilnaöi við konu sína.
Parkinson var efnilegur stjórn-
málamaður og haföi veriö spáö
miklum frama í Ihaldsflokknum
en nú er óvíst, að hann eigi aft-
urkvæmt í pólitíkina.
Flora er fallegt barn og verður
kannski föður sínum til meiri
gleöi í framtíðinni en nokkur
ráðherradómur.
Þorstlátir blaðamenn
kvíða flrabíuferðinni
+ Margrét Þórhildur Dana-
drottning mun brátt leggja leiö
sína til sólbakaöra sandanna í
Saudi Arabíu og er undirbún-
ingur ferðarinnar þegar í fullum
gangi. Þrátt fyrir sólarbreiskj-
una á þessum slóðum verða
engir sumarkjólar meö í far-
angrinum heldur verður Mar-
grét mjög hlýlega klædd. Heil-
erma kjólar og ökklasíðir en
blæjulaus má drottninginn þó
vera. Arabar eru nefnilega
komnir skammt á veg í kven-
frelsismálunum og finnst það
æriö kynlegt, aö kona skuli
vera þjóðhöfðingi.
Þrjátíu blaðamenn verða í för
með Margréti og segjast sumir
þeirra kvíða ferðinni nokkuö.
Danir eru miklir bjórunnendur
eins og kunnugt er, en í Saudi
Arabíu fá þeir hvorki öl né ann-
að áfengi. Það er bannaö og
þeir, sem út af því brjóta, eru
ekki teknir neinum vettlinga-
tökum.
COSPER
— Slökktu strax á sjónvarpinu.
+ Charlene Tilton, Lucy í Dall-
as, fór í síöasta mánuöi fram á
skilnað við mann sinn, Johnny
Lee, og þess vegna kom það
vinum hennar dálitiö á óvart
þegar sagði, aö hún væri að
leggja upp í brúökaupsferö.
Það kom í Ijós, aö í ferðina ætl-
aði hún að fara meö manninum
sínum, þeim sama og hún vildi
skilja viö. Þau hjónin hafa leikið
þennan leik þrisvar eða fjórum
sinnum, skiliö og síöan fundið
hvort annað og brugöið sér í
brúökaupsferö.
+ Alan Alda, sem margir kann-
ast við úr MASH, var nýlega
kosinn „þekktasti og vinsælasti
skemmtikraftur“ í Bandaríkjun-
um. Warren Beatty, sem áður
haföi haft þennan titil, lenti nú í
ööru sæti, en aðrir, sem börö-
ust um fyrstu sætin, voru t.d.
Burt Reynolds og Lucille Ball.
skiði
Toppskíði í öllum verðflokkum
fyrir alla, konur og karla.
Hér á eftir eru nokkur
verð og tegundasýnishorn.
Fyrir unglinga og
byrjendur:
Racer 90—130 cm. Verö 1.795,-
Racer 140—165 cm. Verð 2.289,-
Racing Star 140—175 cm. Verð 3.608,-
Red Star 160—165 cm. Verð 2.481,-
Cup Star Mid og RS 170—190 cm. Verð 3.218,-
Fyrir þá sem eru lengra
komnir í kunnáttu:
Cup Star Team 170—190 cm. Verö 3.985,-
Cup Star Mid, nýtt, 170—190 cm. Verð 3.672,-
Blue Star Mid 170—190 cm. Verð 4.514,-
Blue Star Sportive 175—195 cm. Verð 4,925,-
Blue Star Pro. 170—190 cm. Verð 4.712,-
Keppnisskíði:
White Star Pro SL 180—200 cm. Verð 7.772,-
White Star Pro Junior 140—175 cm. Verð 5.228,-
Gönguskíði:
Touring HC þarf ekki áburö 180—215 cm. Verö
2.397,-
Touring fyrir áburð 180—215 cm. Verð 2.247,-
Red Star HC þarf ekki áburö 180—215 cm. Verö
2.856,-
Okkar tilboð fyrir gönguskíðafólk.
Við vitum hvað ganga er holl hreyfing. Því er okkar tilboð skíöi,
skór, bindingar, stafir og ásetning fyrir aöeins 4.000,- Geri aðrir
betur.
Jafnframt eigum við alltaf nóg af skíöaskóm, göngufatnaði,
stretsbuxum, skíðagleraugum, skíöabindingum, skíðaúlpum,
o.fl., o.fl., o.fl.
Ásetning á meöan beðiö er. Eurocard, Visa.
Febrúar-
tilboð
á vestur-þýskum skíðagöllum á
konur og karla. Margir litir.
Margar stærðir.
Verð kr.
1.500,-
m
vt'-
Opið til kl. 2 laugardag
PÓSTSENDUM - GREIÐSLUKJÖR
« hummel
I KREDITKORT
Ármúla 38 — sími 83555