Morgunblaðið - 07.02.1984, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.02.1984, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984 12 ARHAPLAST Brennanlegt og tregbrennanlegt. Sama verö. Steínull — glerull — hólkar. ’Armúla 16 síml 38640 þTþorgrímsson & CO Skíðaferðir í Skálafell Fastar áætlunarferöir veröa í vetur á skíöasvæöiö í Skálafelli alla virka daga, þegar veöur leyfir. Brottfarartímar: Kl. 13.30 KR-heimilið Kl. 13.40 BSÍ — Umferöarmiöstööin Kl. 13.50 Shell — Miklubraut Kl. 14.00 Vogaver Kl. 14.10 Breiöholtskjör Arnarbakka Kl. 14.20 Shell — Hraunbæ Kl. 14.30 Kaupfélag Kjalnesinga Brottfarartímar frá Skálafelli: Kl. 19.00 og 21.00. Símsvari fyrir skíöasvæöiö í Skálafelli gefur upplýs- ingar um veður, færö og opnunartíma lyfta. Númeriö er 66099. Beint samband viö KR-skála er 66095. Verið velkomin í Skálafell. Klippiö og geymið auglýsinguna. ÚLFAR JACOBSEN FERÐASKRIFSTOFA Símar 13491 og 13499. Heitto Scholl g notalegt P fótabao HRESSANDI ENDIR Á ERILSÖMUM DEGI Allir vita hve notalegt þaó er að fara í fótabaó eftir erilsaman dag. Scholl-fótasaltiö örvar blóðrásina, mýkir haröa húö, linar þreytuverki og heldur fótraka í skefjum. Fáanlegt í tveimur stæróum: 200g og 600g ÞORA 041. 41/01 YSINGASTOfA Sf FÆST I APOTEKINU AF ERLENDUM VETTVANGI Eftir BRIAN CROZIER Jóhannes Páll páfí II skömmu eftir að tyrkneski hryðjuverkamaðurinn Mehmet Ali Agca skaut á hann á Péturstorginu í Róm. Agca heldur þvi fram, að upphafíega hafí tilgangurinn verið að ráða Walesa af dögum og hafí hann notið við það aðstoðar búlgörsku leyniþjónustunnar. Sovéskar hryðjuverkasveit- ir búnar að koma sér fyrir á Vesturlöndum ÞEGAR Jóhannes Páll páfí II hitti tyrkneska hryðjuverkamanninn Mehmet Ali Agca í Rebibbia-fangelsinu í Róm hafði hann meiri áhyggjur af sárlarheill Agca en af samsærismönnunum, sem raunverulega stóðu að baki honum, en eins og kunnugt er afplánar Agca nú lífstíðardóm fyrir banatilræði við páfa í maí árið 1981. Fyrir nokkrum mánuðum vakti það mikla athygli þegar Agca sagði fréttamönnum, að hann hefði fengið þjálfun sína hjá KGB og að það hefði verið ætlunin að drepa Lech Walesa en ekki páfa. Italska lögreglan gætti Walesa hins vegar svo vel, að Agca gafst aldrei gott færi á honum og þá ákvað hann að skjóta á páfann þegar hann æki um Péturstorgið í opnum vagni. Ekki er enn ljóst hvort full- yrðingar Agca hafa við rök að styðjast og e.t.v. mun þetta mál kafna í ósannanlegum ásökun- um, „fjarvistarsönnunum" og mótsagnakenndum framburði. Hvað sem því líður er það stað- reynd, að KGB, sovéska leyni- þjónustan, hefur á sínum snær- um þrautþjálfaða hryðju- verkamenn og morðsveitir. Stofnunin, sem sá um þessa starfsemi, var upphaflega kölluð Deild 5, en hún var leyst upp um stundarsakir árið 1970 eftir að helsti útsendari hennar í Lond- on, Oleg Lyalin, gaf sig fram við bresku leyniþjónustuna. Meðal þeirra upplýsinga, sem Lyalin gaf, voru áætlanir um að eyði- leggja viðvörunarkerfið, sem á að vara við kjarnorkuárás á Bretlandi, fjarskiptamiðstöðina í Orfordness í Suffolk og áætlan- ir um að koma fyrir banvænu eitri í vatnsbólum Lundúnabúa. í kjölfarið var 105 Sovétmönnum vísað frá Bretlandi eins og frægt er orðið. Stjórnmálanefndinni sovésku þótti þessi afhjúpun svo lítil- lækkandi, að það var ákveðið að leggja Deild 5 niður, opinberlega a.m.k., og allir útsendarar henn- ar voru kallaðir heim. I raun voru þó hryðjuverka- og morðsveitirnar aðeins settar undir annan hatt, Deild 8 S, sem heyrir undir KGB og sér um að ráða nýja menn, þjálfa þá, koma þeim fyrir á góðum stöðum erl- endis og síðast en ekki síst að lauma sovéskum flugumönnum, sem hafa alla pappíra upp á ann- að þjóðerni, inn í áhrifastöður erlendis. Um þetta síðastnefnda er Lonsdale-málið í Bretlandi frægasta dæmið. Á sjötta áratugnum þegar kalda stríðið var í algleymingi voru launmorð ríkari þáttur í starfsaðferðum sovéskra útsend- ara en nú og má nefna um það ýmis dæmi. Sovéskir útlagar, sem KGB þótti of áberandi, voru í sérstakri hættu og má í því sambandi minna á morðið á Úkraínumanninum Lev Rebet í Múnchen árið 1957. Þá vildi svo til, að banamaður hans náðist, Sovétmaður að nafni Stash- insky. Annarra þjóða menn voru líka stundum ráðnir af dögum og stundum mistókust morðtilraun- irnar. Árið 1962 hugðist KGB t.d. drepa íranskeisara en hætti við á síðustu stundu vegna tæknilegra mistaka. Allir liðsmenn Deildar 8 S fá sérstaka starfsþjálfun og er „kennsluefnið" launmorð, undir- búningur og aftaka og skemmd- arverk, einkum á vatnsbólum, raforku- og fjarskiptastöðvum. Þegar innrásin í Afganistan var í undirbúningi var tekin ákvörð- un um að myrða þáverandi for- seta, Hafizulla Amin, sem ráða- mönnunum í Kreml fannst ekki vera nógu auðsveipur. Þeir höfðu áður án árangurs reynt að koma honum frá og þess vegna var sovéskri morðsveit falið að drepa hann í forsetahöllinni í Kabúl sem hún og gerði. í þjálfunarbúðum morðsveit- anna í Balashika skammt fyrir austan Moskvu eru ekki aðeins Sovétmenn. Útvaldir leyniþjón- ustumenn frá leppríkjunum fá einnig „eldskírnina" þar og í einni undirdeildanna eru þjálf- aðir „þjóðfrelsismenn" frá þriðja heiminum. Meðal þessara „útlendinga" eru búlgarskir leyniþjónustu- menn sem lengi hafa haft náið samstarf við KGB, og Kúbu- menn, sem Sovétmenn beita í æ ríkari mæli fyrir sig í þriðja heiminum. Það er ekki síst vegna þessara manna sem sov- éska morðvélin er jafn ógnvæn- leg og raun ber vitni. Starfsað- ferðirnar eru oftast þær, að það eru Rússar, sem gefa skipunina, en Búlgarar, Kúbumenn eða aðrir kaupa síðan þjónustu glæpamanna og hryðjuverka- manna, sem sjaldnast vita fyrir hverja þeir vinna í raun. Sovésku morð- og hryðju- verkasveitirnar, sem kallaðar eru Spetsnaz, hafa það hlutverk að koma sér fyrir í þeim löndum, sem Sovétmenn telja til óvina sinna og saman standa af til- tölulega fámennum kjarna en geta kallað til miklu fjölmenn- ara varalið. Ef ófriðarblikur dregur á loft eiga þær að eyði- leggja fjarskiptastöðvar, ráðast á mikilvægar herstöðvar, skemma raforkuver og vatns- veitur og hafa tiltæk vopn og einkennisbúninga viðkomandi ríkis til að villa á sér heimildir. Opinberar skýrslur frá Sví- þjóð sýna, að Spetsnaz er víðar að verki en í ríkjum Atlants- hafsbandalagsins. Aftonbladet sænska sagði nú nýlega frá ítar- legum skýrslum um þjálfun Spetsnaz-manna og fullyrti, að þeir væru nú þegar búnir að koma sér fyrir í landinu. Manndráp eru eitt megin- atriðið í þjálfun Spetsnaz. Sér- stökum sveitum er ætlað að leita uppi og drepa stjórnmálamenn og frammámenn í her viðkom- andi þjóðar til að valda sem mestri ringulreið og gera landið berskjaldað fyrir sovéskri inn- rás. Margir bestu íþróttamenn Sovétríkjanna eru liðsmenn Spetsnaz enda búnir þeim eigin- leikum, sem þar eru metnir mest, sjálfsaga og líkamlegum styrk. Alveg eins og á Ólympíu- leikunum. Brian Crozier er rithöfundur og blaðamaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.