Morgunblaðið - 07.02.1984, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.02.1984, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984 Ragnar í Smára áttræður Björg Ellingsen og Ragnar nýgift. Ragnar Jónsson, bókaútgefandi og forstjóri Helgafells, er áttræð- ur í dag. Hann er einn af helztu menningarfrömuðum þjóðarinnar á þessari öld, fæddur 7. febrúar 1904 í Mundakoti á Eyrarbakka, sonur Jóns Einarssonar hrepp- stjóra og konu hans Guðrúnar Jó- hannsdóttur. Ragnar stundaði nám í Verzlunarskóla ísiands, en réðst starfsmaður hjá Smjörlíkisgerð- inni Smára að námi loknu og varð síðar annar aðaleigandi hennar. Hann stofnaði bókaútáfuna Helgafell og stjórnaði henni frá upphafi. En Ragnar Jónsson hefur ekki einungis komið við sögu ís- lenzkra bókmennta, heldur var hann einn af aðalstofnendum Tónlistarfélagsins og formaður þess. Hann hefur um langt skeið verið útgefandi ýmissa helztu rit- höfunda og skálda þjóðarinnar, forystumaður í tónlistarmálum, eins og kunnugt er, og síðast en ekki sízt hefur hann verið einn helzti styrktarmaður íslenzkra myndlistarmanna. Hann gaf Al- þýðusambandi Islands 1961 safn 120 málverka eftir íslenzka lista- menn og má segja, að safnið sé kjarninn í Listasafni Alþýðu- sambandsins. Ævistarf Ragnars í Smára er langt og farsælt, enda hefur hann komið víða við og haft forystu um margvísleg málefni, sem til heilla horfa. Hann hefur verið kjölfesta listræns borgaralegs samfélags á okkar dögum og notið virðingar og vinsælda fyrir framtak sitt og fjölbreytt lífsstarf. Hann hefur ekki sízt átt þátt í að koma mörg- um ungum listamönnum til þroska, rétta þeim hjálparhönd á örlagastundu og rutt þeim braut á grýttum vegi listsköpunar og nýj- unga. Þegar hann hafði fulla heilsu var hann öðrum mönnum áhrifameiri í menningarpólitík landsins, hefur stutt Sjálfstæðis- flokkinn og átt náið samstarf við Morgunblaðið, sem sendir honum og fjölskyldu hans nú innilegar hamingjuóskir á þessum merkis- degi, um leið og það þakkar Ragn- ari samfylgdina og óskar þess, að borgaralegt samfélag okkar eign- ist sem flesta honum líka. Ragnar í Smára hefur átt við vanheilsu að stríða undanfarin ár, en notið frábærrar umhyggju sinna nánustu, ekki sízt Bjargar, konu sinnar, sem hefur verið hon- um ómetanlegur bakhjarl í erfið- um veikindum. Afmælisdeginum mun Ragnar í Smára eyða með fjölskyldu sinni, vafinn ástúð hennar og þakklæti þjóðarinnar. Það er í raun og veru að bera í bakkafullan lækinn að fjalla um Ragnar í Smára hér í blaðinu, svo oft sem hans hefur verið getið og starfs hans. En Morgunblaðinu er bæði Ijúft og skylt að minnast þessa dags og þá ekki sízt þess kjarnmikla íslenzka menningar- arfs, sem Ragnar er sprottinn úr. Faðir hans var í senn bóndi, sjómaður og kaupmaður, þótti dugnaðarmaður mikill, en gætinn til orðs og æðis. Á æskuheimili Ragnars var merkilegt menning- arandrúm skapað af foreldrum hans báðum og þeim minnisstæða arfi, sem þau lögðu til í lífi sínu og starfi. Þegar Ragnar Jónsson ólst upp, var Eyrarbakki miðstöð verzlunar og athafnalífs á Suðurlandi og sterk dönsk áhrif í skjóli erlendra kaupmanna. Þótt lífsbaráttan væri hörð, kunni þetta fólk að færa sér í nyt jákvæð áhrif og soga næringu bæði úr erlendum menningarstraumum og mikil- vægum innlendum jarðvegi. Vega- nesti Ragnars Jónssonar var þvi svipað því andrúmi, sem íslenzka þjóðin hefur átt að venjast frá alda öðli, en það er fólgið í því að nýta erlend áhrif til góðs og fella þau í íslenzkan farveg. Þetta vega- nesti gagnaðist Ragnari í Smára vel, þegar hann hleypti heimdrag- anum 16 ára að aldri og hóf nám í Verzlunarskólanum í Reykjavík. Þar naut hann m.a. kennslu Þór- bergs Þórðarsonar og lauk námi eftir tvo vetur 1922, þegar hann gerðist skrifstofu- og sölumaður hjá Smjörlíkisgerðinni Smára, eins og fyrr er nefnt. Ragnar komst ungur í kynni við Erlend í Unuhúsi og þar hófust samskipti hans við íslenzka listamenn. Hann átti þátt í stofnun Tónlistarskól- ans alþingishátíöarárið 1930 og tengdist mörgum helztu lista- mönnum landsins traustum bönd- um. Um það leyti hóf hann að kaupa myndir eftir Ásgrím Jóns- son. Samstarf hans og margra helztu listamanna þjóðarinnar er alkunna, ekki sízt brautryðjenda- starf þeirra dr. Páls ísólfssonar, síðar hóf hann einnig bókaútáfu og má segja, að Helgafell hafi ver- ið eins konar hornsteinn islenzkr- ar bókmenningar um og eftir miðja öldina. Listaverkaútgáfur Ragnars eru alþekktar og þá ekki síður útgáfur á verkum Halldórs Laxness, Tómasar Guðmundsson- ar, Steins Steinars og Davíðs Stef- ánssonar, svo að getið sé nokkurra höfuðskálda. Ragnar gaf út tíma- ritið Helgafell, sem var forysturit á sínu sviði um margra ára skeið. Fyrir tveimur árum kom út rit- verk um Ragnar Jónsson í Smára á vegum Listasafns ASÍ og Lög- bergs, og nefnist það Ragnar í Smára. Þar eru samtöl við ýmsa nánustu vini og samstarfsmenn hans, yfirlit yfir líf hans og störf, auk merkilegs safns litmynda úr listaverkagjöf Ragnars til Alþýðu- sambands íslands. Um leið og Morgunblaðið óskar afmælisbarn- inu fyrir sína hönd og lesenda sinna allra héilla á þessum merkisdegi, er ekki úr vegi að benda á ritverk þetta um ævi hans og störf, því þar er saman kominn mikill og skemmtilegur fróðleikur um starf og lífsskoðanir þessa merka listvinar og samtíma- manns, auk mikilvægra upplýs- inga um afstöðu ýmissa þeirra, sem hafa haft nánust kynni af honum um margra ára skeið. Megi lífsstarf Ragnars Jónssonar í Smára bera þann ávöxt sem til var stofnað, þjóðinni til heilla og framtíð hennar til farsæidar. ritstj. I dag, á afmælisdegi Ragnars Jónssonar, birtist grein um hann í 50. árgangi Verzlunarskólablaðs- ins eftir Jón Karl Helgason, nem- anda í 6. bekk skólans. Mbl. birtir þessa grein með leyfi höfundar í tilefni dagsins. Forspjall Engum skyldi blandast hugur um mikilvægi menningar hverri þjóð. Jafnhliða brauðstritinu þarf einstaklingnum að vera unnt að „rækta garðinn sinn“ einsog Birt- ingur orðar það; njóta samvista við listagyðjuna, skynja hið fagra. Á öndverðri þessari öld skóku margvíslegar hræringar þjóðlíf okkar íslendinga. Þrátt fyrir brotsjó kreppu og styrjalda sigldi þjóðin hraðbyri frá vanþróun til framfara í langþráð var lýðveld- isstofnunar. Sýnt var að samhliða hækkandi risi þjóðarbúsins þurfti að hlúa að hinum andlegu ökrum, en andstætt almennri vakningu nutu menningarumsvif á þessum tíma stopullar veðráttu. Við svo búið mátti ekki standa og leitast var við að búa íslenzkum lista- mönnum viðunandi vaxtarskil- yrði. Gekk einstaklingur nokkur þar öðrum framar og lyfti Grett- istaki í íslenskri endurreisn, en það var verzlunarskólagenginn Eyrbekkingur, Einar Ragnar Jónsson, gjarnan nefndur Ragnar í Smára. I eftirfarandi ritsmíð hyggst undirritaður leitast við að bregða upp mynd af þessum Jarðvöðli í víngarði Drottins"1*, eins og Thor Vilhjálmsson nefnir hann, lífs- viðhorfum hans og uppskeru langrar starfsævi. Má þó ljóst vera að greinarkorn sem þetta getur aldrei orðið ljósritsteikning svo margbrotins viðfangsefnis. Jarðvegurinn Það var hinn 7. febrúar 1904 að Ragnar fæddist á bænum Munda- koti á Eyrarbakka. Höfðu forfeður hans í móðurætt búið þar mann fram af manni um nokkurra alda skeið. Foreldrar Ragnars voru hjónin Guðrún Jóhannsdóttir og Jón Einarsson. Á þessum fyrstu árum aldarinn- ar var menningarlíf fjölskrúðugt á Bakkanum. Þar var meðal annars óopinber menningarmiðstöð Suð- urlandsundirlendis; „Húsið" svo- kallað, öflugt tónlistarlíf þreifst og prentsmiðja var starfandi. Vinnudagurinn var sem annars staðar langur og strangur við sjó- róðra, landbúnað og verzlun. I þessu umhverfi elst Ragnar upp við starf og leik innan um gróandi iistir. Hafði samveran við Talíu snemma áhrif á hann og eftir hon- um er haft: „I barnslegum hugar- heimi mínum komst ég að raun um að það væri „vont fólk“ sem elskaði ekki listir." Z) Sextán ára gamall heldur Ragn- ar til höfuðstaðarins og hefur nám við Verzlunarskólann að hausti 1920. Skólinn var þá staðsettur við Vesturgötuna og í kennaraliði hans leyndist rithöfundur nokkur austan úr Suðursveit, Þórbergur Þórðarson að nafni. Gekk Ragnari vel að læra inn á ranghala við- skiptanna og lauk góðu prófi úr skólanum eftir tveggja ára nám. Á þessum árum voru starfrækt- ar nokkurs konar „Akademíur" í Reykjavík. Andlega þenkjandi fólk hittist í heimahúsum og skeggræddi hræringar þessa heims og annars, listastefnur er- lendis frá voru kynntar, jafnhliða því sem forn heimspekikerfi voru rifjuð upp. Snemma komst Ragnar í kynni við þetta umhverfi og jafn- framt marga þá listamenn sem síðar urðu samofnir lífshlaupi hans. Unuhús var einn þessara sam- komustaða og eflaust sá eftirtekt- arverðasti. Undir forystu húsráð- andans, Erlends Guðmundssonar, döfnuðu skapandi umræður upp- rennandi kynslóðar og var Ragnar í þeim hópi. Höfðu kynnin við Er- lend þá kannski mest áhrif á hann. Þessi síðskeggjaði maður, sem helzt líktist spámanni úr Gamla testamentinu, einkenndist af sérstæðum viðhorfum og stó- ísku mati. Um hann hefur Ragnar sagt: „Aðeins einn maður þekkti mig til fulls — sem fjármálaglóp og tilraun til manns. Ég skulda honum margt, þó met ég það til hæstu skuldanna, að hann bað mig að gerast útgefandi Halldórs Laxness og Þórbergs, og hann óskaði þess að ég eignaðist Unu- hús eftir sinn dag.“3) Lífsvindar Að loknu námi réðst Ragnar sem skrifstofu- og afgreiðslumað- ur við smjörlíkisgerðina Smára. Er ferill hans hjá því fyrirtæki líkastur ævintýri; hann vann sig upp í að verða eigandi fyrirtækis- ins. Jók hann veraldleg umsvif sín jafnt og þétt eftir því sem árin liðu og kom víða við. Menningarmálin áttu þó jafnan sterkust ítök í Ragnari, efnið var honum aldrei annað en verkfæri til andlegra framkvæmda. Skýrði hann þetta viðhorf sitt meistara- lega í kappræðu um fjárhagsstöðu lista: „Eg sýð kæfu, þú spilar á hljóðpípu, peningarnir eru brúin á milli okkar.“4) Var Nóbelsskáldið þar viðstatt og gerði þessa skil- greiningu ódauðlega í afmælis- grein á fimmtugsafmæli Ragnars. Segir þar meðal annars: „Ef þjóð- in heldur, eins og sumir stjórn- málamenn gera, að hún rísi ekki undir því að heyra spilað á hljóð- pípu, þá er það af því menn eru búnir að gleyma í hvaða skyni peníngar eru búnir til.“5) Ragnari sveið sáran staðan ís- lenzkra listamanna en hún var næsta bágborin þessi ár. Til að mynda þótti eðlilegt að þeim sem prentaði bók væru greidd hærri laun en hinum sem bókina reit. Dæmi eru fyrir því að skáld gæfu útgáfurétt, einungis í veikri von um árangur. Látum Ragnar hafa orðið: „Ég skildi það mæta vel, að bækur verða ekki til af sjálfu sér. Og það er eðlilegt að listamenn þurfi að fá eitthvað fyrir snúð sinn til að skapa listaverk sem aðrir njóta.“6) Og áfram heldur hann: „ ... Hitt er harður kostur að við, sem njótum verka þeirra, gerum okkur ekki grein fyrir, að mikil listaverk krefjast meiri áreynslu, meiri fórna, meiri þján- inga en önnur mannleg afrek.“6) Og enn um gildi lista: „Við verðum að leggja okkur á hjarta þá reynslu er mannkynssagan flytur, að þær þjóðir, sem hæst meta list- ir og gera mest til þess að efla þær í landi sínu, hafa orðið forystu- þjóðir í heiminum. En hinar, sem þrúgað hafa listina niður og van- metið hana, hafa horfið af landa- bréfunum smám saman.“6) Má ætla að snemma hafi blund- að í Ragnari þessir tveir draumar sem gagntekið hafa gjörvallt líf hans, annars vegar að kenna þjóð- inni að meta listamenn sína og umbuna þeim að verðleikum og hins vegar að flytja menningu þjóðarinnar inn á hvert heimili í landinu. Báðir þessir draumar fengu rætzt. Tónlistin Árið 1930 urðu þáttaskil í ís- lenzku tónlistarlífi. Fyrir þann tíma voru starfræktar nokkrar lúðrasveitir hérlendis auk tuttugu manna hljóðfærasveitar áhuga- manna, Hljómsveit Reykjavíkur. Það var svo skömmu fyrir tíu alda afmæli Alþingis að ýmsir forystu- menn um tónlist tóku höndum saman við hljómsveitarmeðlimi og beittu sér fyrir því að ráðinn yrði erlendur tónlistarkennari og stjórnandi við sveitina fyrir Al- þingishátíðina. Var Ragnar Jóns- son í þessum hópi. Að hátíðinni yfirstaðinni var þessum mönnum þvert um geð að leggja árar í bát og réðust þeir því í stofnun tón- listarskóla. Fyrstu tvö árin sá Hljómsveit Reykjavíkur um rekstur skólans, en vegna hnökra slíks fyrirkomu- lags var ráðizt í stofnun Tónlistar- félagsins sem síðan hefur séð um reksturinn. Alls voru þetta tólf menn sem ýttu Tónlistarfélaginu úr vör, þar af helmingur starfandi í hljómsveitinni. Voru þeir oftlega nefndir postularnir. Ragnár var kosinn formaður félagsins og var driffjöður í starfi þess. Ásamt rekstri Tónskólans og hljómsveit- ar Reykjavíkur stóð Tónlistarfé- lagið fyrir reglulegu tónleikahaldi, uppfærslum á fjölda kórverka og tók þátt í óperuflutningi í sam- vinnu við Leikfélagið. Margir frægir erlendir tónlistarmenn hafa haldið hér tónleika á vegum félagsins. Má þar nefna Adolf Busch, Rudolf Serkin, Dietrich Fischer Diskau og gítarsnillinginn André Segovia. Ragnar tók jafnan á móti þessum mönnum og þá af svo einstökum hlýleik að flestir urðu þessir menn persónulegir vinir hans að heimsókn lokinni. Hefur Jón Þórarinsson tónskáld lýst þessu þannig: „En það góða orð sem fór af Islandi og móttök- um Ragnars varð til þess að er- lendir tónlistarmenn komu hingað hver af öðrum. Sú auglýsing, sem Ragnar gaf landi og þjóð, var ómetanleg. Hann tók á móti þess- um mönnum með slíkum glæsi- Foreldrar Kagnars: Guðrún Jóhannsdóttir og Jón Einarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.