Morgunblaðið - 07.02.1984, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.02.1984, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984 Hef járnvilja til að draga úr spennunni — sagði Thatcher áður en hún flaug heim frá Ungverjalandi I»ndon, 6. febrúar. AP. „ÞÓTT ÉG sé e.Lv. þekkt undir nafn- inu járnfrúin hef ég einnig járnvilja til þess að draga úr þeirri spennu, sem ríkir í heimimim. Ég er öll af vilja gerð til þess að beita mér fyrir bættum og öruggari heimi, þar sem meira er lagt upp úr góðri afkomu fólks en vopnum," sagði Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bret- lands, á fundi með fréttamönnum í Búdapest áður en hún hélt heimleiðis þaðan í gær eftir opinbera heimsókn til Ungverjalands. För Thatcher til Ungverjalands virðist hafa verið einkar vel heppn- uð ef marka má umfjöllun bresku blaðanna í gær, sunnudag. Hvarvetna var forsætisráðherr- anum hælt á hvert reipi fyrir þá ákvörðun sína „að brjóta ísinn" og heimsækja austantjaldsríki. Voru blöðin flest þeirrar skoðunar, að með frumkvæði sínu hefði Thatch- er fært þeim orðróm byr undir báða vængi, að hún hygðist heim- sækja ráðamenn í Moskvu innan tíðar. Þar sem samskipti stórveldanna, Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, hafa verið stirð að undanförnu, eru breskir fréttaskýrendur almennt þeirrar skoðunar, að Thatcher gæti gegnt lykilhlutverki í þeirri við- leitni að fá þau aftur að samninga- borðinu. Þótt ánægja ríkti með för Thatcher heimafyrir kvað við annan tón í nágrannaríki Ung- verjalands, Tékkóslóvakíu. Þar sagði í Pravda, málgagni kommún- istaflokksins, að ummæli Thatcher um vilja hennar um bætt samskipti austurs og vesturs væru orðagjálf- ur eitt. Sakaði Pravda Thatcher um hræsni í anda Reagan, Bandaríkja- forseta. Indverskur verslunarfulltrúi fannst myrtur í Bretlandi: Umfangsmikil leit lög- reglu að morðingjunum Birmingham, Knglandi, 6. febrúar. AP. BRESKA lögreglan hóf í dag um- fangsmikla leit að hópi kasmírskra aðskilnaðarsinna, sem lýst hefur á hendur sér ábyrgð á brotthvarfi ind- versks sendiráðsstarfsmanns, sem fannst látinn í Mið-Englandi í gær- kvöldi. Lík hins 48 ára gamla Ravindra Mahtre, aðstoðarverslunarfulltrúa við indversku ræðismannskrifstof- una í Birmingham, fannst um kl. 22 í gærkvöldi á heimtröð bóndabæjar skammt fra Hinckley, um 50 km. N-A af Birmingham. Indira Gandhi, forsætisráðherra Indlands, hefur fordæmt morðið á Mahtre og lýst honum sem fórnar- lambi bleyðuskapar og mannhat- urs. Gandhi boðaði til neyðarfundar í ríkisstjórn sinni í morgun og hvatti þar til þess að öryggisgæsla við sendiráð Indlands um allan heim yrði hert að mun. Mahtre var rænt á föstudags- kvöld og til þessa óþekktur hópur skæruliða lýsti ábyrgð á mannrán- inu á hendur sér. Hópurinn starfar Fékk kjarnorkuknú- inn kafbát í trollið (Mló, 6. fcbrúar. Krá Jan Krik Lauré. fréttaritara NORSKI togarinn Vesttind fékk held- ur óvenjulegan afla í trollið er hann var að toga á einu „gráu svæðanna" svonefndu á Barentshafi um helgina. Þar sem togarinn var að toga vissi áhöfnin ekki fyrr til en skipið snarstoppaði, þannig að hnykkur kom á. Vélin var sett á fulla ferð afturábak, en ekki losnaði trollið. „Þegar við fundum greinilega að togað var í skipið sáum við okkar óvænna og skárum trollið aftan úr bátnum," sagði skipstjórinn. „Ef ekki er hætt við að skipið hefði hreinlega sokkið.“ Mbl. Þótt erfitt sé að færa óyggjandi sönnur á hvað þarna hafi verið á ferð hallast menn almennt að því, að trollið hafi fest í kjarnorku- knúnum sovéskum kafbáti, sem var á leið til hafnar á Kólaskaga. Tog- arinn er 300 lesta og er um 50 metra langur, þannig að það gefur auga leið að mikið afl þarf til að draga hann til. Útgerð skipsins hefur ákveðið að biðja norska sjávarútvegsráðuneyt- ið að beita sér fyrir því að Sovét- menn bæti henni það tjón, sem hún varð fyrir við trollmissinn. undir heitinu „Frelsisher Kasmír". I bréfi, sem hópurinn sendi til Reuters-fréttastofunnar á föstudag, hótaði hann því að taka Mahtre af lífi kl. 10 árdegis á laugardag ef indverska stjórnin yrði ekki við beiðni hans um að láta tiltekinn fjölda pólitískra fanga lausan í Indlandi. Á meðal þeirra, sem nafngreindir voru, var Maqbool Butt, einn úr hreyfingunni, sem bíður fullnægingar dauðadóms. Auk þessa krafðist hópurinn and- virði 41 milljónar ísl. króna lausn- argjalds frá indversku stjórninni. Talsmaður skrifstofu indversku stjórnarinnar í Lundúnum sagði við AP-fréttastofuna í dag, að mann- ræningjarnir hefðu aldrei haft samband við skrifstofu hans og fresturinn, sem þeir hefðu gefið, hefði verið allt of skammur. Þá hefðu þeir ekki heldur haft sam- band við lögreglu. „Ef við hefðum haft einhver tök á að komast í sam- band við þessa menn, hefðum við gert allt sem við gátum til að bjarga lífi Mahtre," sagði hann. Að sögn lögregluyfirvalda í Vestur-Miðlöndum hefur enn ekki verið hægt að kveða upp úrskurð um hvernig Mahtre var tekinn af lífi. Ekki liggur heldur ljóst fyrir hvort hann var myrtur á heimtröð- inni að bóndabænum eða hvort líki hans var varpað þar eftir að hann hafði verið tekinn af lífi. Heimsmethafi í hjónaböndum Hinn 75 ára gamli Glynn Scotty Wolfe lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna þótt árin séu tekin að færast yfir hann. Sá gamli gerði sér lítið fyrir um daginn og gekk í það heilaga í 26. sinn og bætti þar með eigið met. Nýjasta konan hans er 38 ára gömul og sú langelsta sem hann hefur kvænst til þessa. Týnda tunglið fannst alheilt ( a|H‘ ('anavrral, Florida, S. febrúar. AP. TÆKNIMENN í geimferðastofnun Bandaríkjanna fundu um helgina gervitunglið sem geimskutlan Chall- anger „týndi“ á laugardaginn. í fyrstu var talið að það hefði eyði- lagst, en í Ijós kom að það var al- heilt, en á hinn bóginn á rangri braut. Ekki er fyrirsjáanlegt að hægt verði að koma tunglinu á rétta braut og því skaðinn hinn sami fyrir eig- endurna, Western Union. Áhöfnin á Challenger skaut í gær hinu gervi- tunglinu sínu, indónesísku tungli, og heppnaðist það fullkomlega. Þannig vill til að Westar 6., en svo heitir gervitunglið, getur hlaðið rafkerfi sitt og haldið því gangandi með sól- arorku," sagði Bill Ziegler, talsmað- ur Western Union í gær. Hann bætti því við að útilokað virtist að koma tunglinu á rétta braut og ekki væri annað fyrirsjáanlegt en að það myndi aðeins nýtast til fáeinna klukkustunda útsendinga tvisvar á dag. Talið er að einn af hreyflum Westar 6. hafi bilað, en Ziegler sagði að sams konar bilun og nú virtist hafa átt sér stað hafi einn- ig skotið upp kollinum í æfingar- flugi. Talið hefði verið að bilunin væri úr sögunni, en allt kom fyrir ekki. Korchnoi dæmdur til að greiða syni sínum háa fjárupphæð: „Þetta eru þakkirnar að fá hann leystan úr fyrir haldi“ Genf, 6. febrúar. AP. DÓMSTÓLAR í Sviss hafa kveðið upp þann úrskurð, að stórmeistar- anum Victor Korchnoi sé skylt að greiða 25 ára gömlum syni sínum 63.500 svissneska franka (rúmlega 800.000 ísl. krónur) Sonur stórmeistarans, Igor, kom til föður síns árið 1982 eftir að honum hafði verið sleppt úr fangelsi fyrir að neita að gegna herþjónustu í Sovétríkjunum. Móðir hans og eiginkona Korchnoi, Bella, var þá einnig með í förinni, en þau mæðgin höfðu um áraLil sótt um að fá að flytjast til Korchnoi, sem hefur aðsetur í Sviss. Hjónaband þeirra Korchnoi og Bellu virtist ekki samt eftir að- skilnaðinn og í fyrra fór stór- meistarinn fram á lögskilnað frá konu sinni. í kjölfar þeirrar ákvörðunar ákvað Igor að krefja föður sinn um 82.000 franka (tæpa 1,1 millj. ísl. króna) til þess að greiða fjögurra ára námskostnað hans. Einnig áttu peningarnir að vera eins konar skaðabætur fyrir 30 mánaða dvöl hans í fangelsi. Igor neitaði á sínum tíma að gegna herþjón- ustu, þar sem hann taldi þar með úti um þá von sína að komast úr landi. „Kannski er þetta þakklætis- vottur sonar míns fyrir baráttu mína fyrir að fá hann leystan úr Victor Korchnoi haldi," sagði Korchnoi er hann hafði að fyrra bragði sanfoand við AP-fréttastofuna til þess að tilkynna henni dómsúrskurðinn. Korchnoi sagði einnig við AP, að hann hefði alltaf stutt son sinn með ráðum og dáð, „en honum fannst það greinilega ekki nóg“. Igor stundar nú nám í rafeinda- fræði við háskólann í Lausanne. Að sögn Petru Leeuwerink, einkaritara Korchnois, hefur Bella, fyrrum eiginkona hans alla tíð gert sér rangar hug- myndir um tekjur hans og sífellt farið fram á hærri lífeyri frá honum. Korchnoi vildi ekki tjá sig um þetta tiltekna atriði. Reagan hélt upp á afmæli sitt í gær Kureka, lllinois. 6. febrúar. AP. RONALD Reag- an forseti Banda- ríkjanna, hélt upp á 73 ára af- mæli sitt á fyrr- verandi heimili sínu í bænum Eureka í Illinois í gær. Þar sagði hann í ræðu, að hann hefði gert Bandaríkin á nýjan leik að leið- andi afli í heimsstjórnmálum. Ræðuna flutti forsetinn í háskólanum í Eureka og var inntakið, að hann hefði reynt að innleiða einlægni og sið- ferðisvitund í utanríkisstefn- una til að sýna fram á að Bandaríkin gætu litið framhjá stefnum annarra þjóða þrátt fyrir að þau gerðu við þær friðar- og vináttusáttmála. Og inn í það spilaði einnig að sjá til þess að bandarískir þegnar yrðu ekki fyrir áreitni og árás- um, hvort heldur um þyrlu- flugmenn við Sitraflóa eða læknanema við háskólann í Grenada væri að ræða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.